Þjóðviljinn - 22.09.1972, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. september 1972.
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Otgefandi: Útgáfufélag ÞJóðviljarra.
Framkvæmdastjórl: EIBur Bergmann.
Ritatjórar: SigurSur GuSmundssoit,
Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjórí: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiSsla, auglýslngar:
Skólav.st. 19. Sími 17500 (5 línur).
Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuSi.
LausasöluverS kr. 15.00.
Prentun: BlsSaprent h.f.
SJÁIÐ MEÐ EIGEV AUGUM
Með augum hverra sjá menn yfirleitt
striðsglæpi Bandarikjamanna i Vietnam?
Með eigin augum? Með augum Nixons
Bandarikjaforseta? Sjálfsagt er allt til i
þvi, en spurningunum er velt upp i tilefni
af sænsku myndinni sem sjónvarpið sýndi
á dögunum, sem greindi á hrikalegan hátt
frá striðsglæpum Bandarikjamanna i
Vietnam. Greinilegt er að fjölmargir ís-
lendingar höfðu áður ekki gert sér grein
fyrir ægilegum glæpaverkum Bandarikj-
anna i Indókina. Fjölmargir létu sér
nægja að afgreiða Vietnamstriðið eftir
formúlunni: ,,Hinir gera eins!”.
En nú er það ekki lengur gert. Banda-
risk hernaðarstefna á sér engan mál-
svara. Sjónvarpsmyndin sýndi átakan-
lega að tizkuafgreiðslan er ekki aðeins
röng heldur lika andmannúðleg. Hún er
röng vegna þess að það er ekki unnt að
sýna neitt svipað ,,hinum megin” eins og
fréttamenn sjónvarpsins orða það yfir-
leitt.
I striðinu i Vietnam er baráttan milli
Vietnama og Bandarikjamanna. Banda-
rikjamenn eru innrásarlið sem svifst
einskis i baráttuaðferðum sinum: Beitt
hryllilegum vopnum, sem eiga engan sinn
lika i sögunni og eru bönnuð i öllum
alþjóðlegum samþykktum. i þvi fjöl-
breytta vopnasafni Bandarikjamanna er
að finna stálkúlusprengjur, sem eru
þannig útbúnar að inni i sprengjunni
sjálfri eru stálkúlur sem smjúga inn i við-
kvæmustu vefi mannslikamans.
í ananassprengjunni eru 250 stálkúlur
sem springa á leiðinni til jarðar. í þeim
eru 250 stálkúlur. i snúningssprengjunni
eru 300 stálkúlur, en hún springur ekki
fyrr en eftir að hún er komin til jarðar og
þá við minnstu hreyfingu. 1 stökksprengj-
unni eru 450 örlitlar stálflisar sem læsa sig
inn i mannslikama. i pilusprengjunni eru
30-35 cm. langar stálörvar sem rista
sundur sinar og æðar á mannslikama.
Köngulóarsprengjan springur ekki um
leið og hún snertir jörð, en þegar saklausir
vegfarendur koma við hana þeytir hún frá
sér banvænum höglunum i allar áttir út úr
öllum átta metra löngum örmum sinum. i
appelsinusprengjunni eru flisar sem
kljúfa bein djúpt inni i mannslikama.
Leðurblökusprengjan springur ef smá-
börn snerta hans, þ.e. við aðeins 5 kg.
þrýsting. Þessi sprengja svifur hljóðlaust
til jarðar svo hún geti komið fórnarlömb-
unum sem mest að óvörum. Laufsprengj-
unni er komið fyrir i litlum grænum poka
þannig að hún sést mjög illa. En ef stigið
er á hana breytist hún i ógnarlegt morð-
vopn sem grandar ekki einasta þeim sem
stigur á hana heldur og þvi sem hrærist i
næsta umhverfi. Þessari sprengjutegund
er helzt varpað niður i skjóli náttmyrkurs
og þegar bændurnir fara út á akrana i
morgunsárið ræðst hún á þá eins og
óargadýr. Napalmsprengjan er ikveikju-
sprengja. Nærstaddur manpslikami
stiknar i allt að 2000 gráðu hita á 'örfáum
sekúndum. Sárin eru i mörgum tilfellum
ólæknandi. Fosfórnampalm getur haldið
áfram að brenna eftir að það hefur borað
sér leið inn i mannslikamann.
Þannig beinist villimannlegt árásar-
strið Bandarikjamanna i Vietnam ekki
einasta að þvi að sprengja upp og eyði-
leggja hernaðarlega mikilvæg mannvirki.
Það beinist einnig að skólum, sjúkra-
húsum og ibúðahverfum. Og það beinist
einnig að manneskjunni óvarinni á akri, i
þorpi, á leið i skóla, á leið á vinnustað.
Hvar sem er. Enginn getur verið óhultur.
Ógnarsprengjan getur i dögun legið við
þröskuld hússins. Henni hefur verið
varpað niður hljóðlaust i skjóli nátt-
myrkurs og fyrsta skref Vietnamans á
nýjum degi getur eins verið skref
dauðans. Enn er þetta ekki nægjanlegt
blóðófreskjunum i bandariska hernaðar-
málaráðuneytinu: Varpað er eiturefnum
á landsvæði sem eyðileggja gróður og
jarðveg til ára og áratuga. Tugþúsundum
tonna af eiturefnum hefur verið varpað
yfir Vietnam. í eiturefnunum er til dæmis
arsenik og fólk á viðkomandi svæðum er
dæmt til þess að neyta eitur-mengaðrar
fæðu um árabil. Þetta hefur i för með sér
vanskapnað barna, vanliðan fullorðinna
eða kvalafyllsta dauðdaga.
Þetta sem hér hefur verið gert að um-
talsefni sýnir að það er andstyggilegt og
ómannúðlegt að ætla sér að yppta öxlum
enn um sinn kæruleysislega og segja
„Þetta er eins hinu megin” og lita alla at-
burði með augum Nixons en ekki með
eigin augum. Framkoma Bandarikja-
manna i Vietnam er einstök. Jafnvel
hryðjuverk Hitlers, sem allir eru sam-
mála um að fordæma, falla i skuggann
fyrir ógeðslegustu aðförum bandariskrar
hernaðarstefnu. Og svo er litil þjóð við
norðurheimskautsbaug, sem hýsir sama
herinn og fremur glæpaverkin i Vietnam
og sem er aðili að hernaðarbandalagi þar
sem Bandarikjamenn ráða lögum og
lofum. Sjáið það einnig með eigin augum.
Frá fiórðungsþingi Vestfirðinga
NOKKRAR ÁLYKTANIR
Hér fara á eftir nokkrar ályktanir sem nýlega
haldið fjórðungsþing Vestfirðinga beindi i ýmsar
áttir, svo sem þær bera með sér.
Vestfjarðaáætlun
„Fjórðungsþing Vestfirðinga
beinir þeirri áskorun til þing-
manna kjördæmisins, að þeir
beiti sér fyrir þvi, að hraðað verði
gerð Vestfjarðaáætlunar varð-
andi atvinnu- heilbrigðis-,
fræðslu-, og félagsmál.”
Samband félagsheimila.
„Fjórðungsþing Vestfirðinga
beinir þvi til stjórna félagsheimil-
anna á Vestfjörðum, að þau stofni
með sér samband, er vinni að
sameiginlegum hagsmunamálum
félagsheimilanna og aukinni
menningarstarfsemi.”
Um heilbrigðismál
„Fjórðungsþing hvetur
fjórðungsstjórn til að halda sem
fastast fram hagsmunamálum
Vestfirðinga i heilbrigðismálum á
grundvelli þeirra ályktana, sem
samþykktar voru á siðasta
fjórðungsþingi.”
Brýnt að sveitarfélögin
beti byggt leiguhúsnæði.
„Fjórðungsþing Vestfirðinga
telur að skortur á ibúðarhúsnæði
standi flestum byggðarlögum á
Vestfjörðum mjög fyrir þrifum.
Ef treysta á eðlilega og nauð-
synlega búsetu og fólksfjölgun i
kjördæminu er aðkallandi að gera
stórátak til raunhæfra úrbóta á
þessum málum.
En þar sem það verkefni er
ofviða fámennum byggðarlögum
verður veruleg aðstoð rikisvalds-
ins að koma til.
Með tilliti til þess skorar
fjórðungsþingið á alþingi og rikis-
stjórn að auka verulega frá þvi,
sem nú er, stuðning við ibúðar-
byggingar einstaklinga, félags-
samtaka og sveitarfélaga úti um
landsbyggðina.
Fjórðungsþingið telur aðkall-
andi og brýna nauðsyn bera til
þess að umrædd sveitarfélög geti
hið fyrsta hafið framkvæmdir við
byggingu leiguhúsnæðis, er fyrst
og fremst sé ætlað ungu fólki, svo
og öðrum þeim sem koma til
framleiðslustarfa i viðkomandi
byggðarlögum, til handa starfs-
fólki, er sveitarfélögin þurfa að fá
til starfa, t.d. hjúkrunarfólk,
kennarar, eða aðra, sem starfa að
félagslegum þáttum byggðarlag-
anna, — einnig til handa öldruðu
fólki.
Fjórðungsþingið felur stjórn og
framkvæmdastjóra sambandsins
að vinna að frekari undirbúningi
og framgangi málsins.”
Nauðsyn á gatnagerð i
þágu fiskvinnslustöðva.
„Fjórðungsþing Vestfirðinga,
haldið á Patreksfirði dagana 2.-3.
sept. 1972, fagnar þeirri sam-
stöðu, sem tekizt hefur milli
sveitarfélaga á Vestfjörðum um
stofnun félags til kaupa og
rekstursá tækjum til varanlegrar
gatnagerðar.
Fyrsta og nauðsynlegasta
verkefnið, sem fyrir liggur i
þessum efnum er að fullnægja
kröfum um hollustuhætti varð-
andi umhverfi fiskvinnslustöðva,
en það skiptir vestfirzku sjávar-
þorpin óg þjóðarbúið i heild miklu
að þau geti leyst það verkefni
fyrir tilgreindan tima.
Með tilkomu umræddrar gatna-
gerðarsamstæðu er jafnframt
lagður grundvöllur að malbikun
flugvalla á Vestfjörðum og að
varanlegri gerð fjölförnustu þjóð-
vega i kjördæminu.
Fjórðungsþingið skorar á
þingmenn kjördæmisins að að-
stoða þau sveitarfélög, sem hér
eiga hlut að máli, til að fá hag-
kvæm lán til kaupa á gatna-
gerðartækjum og til umræddra
framkvæmda.”
Fiskiskipahafnir i fjár-
hagsvandræðum.
„Fjórðungsþing Vestfirðinga
bendir á, að enn sem fyrr skipta
hafnarmálin Vestfirðinga miklu.
Um leið og fjórðungsþingið
fagnar þvi, sem gert hefur verið i
hafnarmálum kjördæmisins á
undanförnum árum, bendir það á,
að enn bíða mörg þýðingarmikil
og aðkallandi verkefni úrlausnar,
auk þess sem tilkoma stærri fiski-
skipa kallar á aukhar hafnar-
framkvæmdir og stórbætta að-
stöðu i höfnunum.
Undantekningarlaust eiga
hafnirnar á Vestfjörðum, sem
allar þjóna fyrst og fremst fiski-
skipaflotanum og eru þvi þýð-
ingarmikill þáttur i gjaldeyris-
öflun þjóðarinnar, við alvarlega
fjárhagserfiðleika að striða, sem
Framhald á 11. siðu.
ENSKAN
Kvöldnámskeið og siðdegistimar fyrir
fullorðna
BYRJENDAFLOKKAR
FRAMHALDSFLOKKAR
SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLEND-
INGUM
SMÁSÖGUR
FERÐALÖG
BYGGING MÁLSINS
VERZLUNARENSKA
LESTURBÓKMENNTA
Innritun i sima 11109 og 10004 (kl. 1-7 e.h.)
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4.