Þjóðviljinn - 24.09.1972, Page 1
UOBVIUINN
KRO
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Sunnudagur 24. september — 37. árg. 215. tbl.
Furðufrétt í
Springer-blaði:
r
Islending-
ar nota
rafstraum
til að reka
torfur
í netin
island er á forsiöum stór-
blaðanna um allan heim um
þessar mundir vegna land-
helgism álsins. Stundum er
þar farið furðurangt með alla
hluti — en ekkcrt blað, sem
okkur hefur borizt, hefur
flutt aðrar eins fjarstæður og
Springer-blaðið „Bild” I
Munchen. Eftirfarandi frétt
birtist þar á forsiðu:
„Reykjavik, 9. sept. —
íslendingar verja 50 milna
landhelgi sina með nýjum og
nýjum aðferðum. Til að hrifsa
bezta fiskinn frá erlendu sjó-
mönnunum, eru torfurnar
reknar með rafstraumi i net
heimamanna. Rafgeislarnir
eru sendir frá baujum sem is-
lenzka strandgæzlan setur út.
Þar að auki hafa verið fengnir
froskmenn frá Sviþjóð og
Ameriku sem eiga að fá 3 þús-
und dollara á mánuði fyrir að
skera sundur dragnet útlend-
inganna. 1 ráði er að hagnýta
reykbaujur sem eiga að neyða
erlend skip til að snúa frá.”
Þorskaflinn fyrstu átta mánuði ársins:
30% MZ/VM EN
í mTTEÐFYKRAl
Þorskafli islenzkra skipa hefur minnkað um nær
30 af hundraði á fyrstu átta mánuðum þessa árs
miðað við sama tima i hitteðfyrra. Þetta kemur
fram i grein, sem birt er á 3ju siðu Þjóðviljans i
Þorskafli íslenzkra skipa ofveiðihættan er svo aug-
fyrstu átta mánuði þriggja Hós að hver einasti heil-
ára hefur verið sem hér skyggn maður hlýtur
segir:
dag, eftir Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráð-
herra. Greinin nefnist „Landhelgismálið og
minnkandi fiskiafli.”
aö viðurkenna hana. þessi atriði — og um það
I grein sjávarútvegsráð- óvernig samningsstaðan er
herra erýtarlegaf jallað um me<^ til ofveiðinnar.
1970
1971
1972
277.791 tonn
227.712 tonn
196.636 tonn
Þorskaflinn er þannig
18% minni í fyrra en í
hitteðfyrra, en 29% minni í
ár en í hitteðfyrra.
Sé aðeins miðað við síð-
ustu mánuði, — maí til
ágústloka, litur dæmið
þannig út að minnkun afl-
ans er hvorki meira né
minna en 40% eða úr 81.741
tonni í 48.749.
Jafnframt þessum ægi-
legu staðreyndum liggur
það fyrir að fiskistærðin fer
sífellt smækkandi og
Krag ógnar Dönum
„Kjósið rétt - ella
lækka ég gengið!”
23/9 Jens Otto Krag, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hótaði þjóð
sinni i gær gengisfellingu, ef
mcirihluti atkvæða félli ekki með
aðild að Kfnahagsbandalagi
Evrópu.
Þess er skemmst að minnast,
er Tryggve Bratteli, forsætisráð-
herra Noregs, lýsti þvi yfir, að
stjórn sin myndi segja af sér, ef
Norðmerui reyndust andvigir
aðild að EBE, og er þvi ekki
annað sýnna, en að rikisstjórnir
frændþjóða okkar beiti flestum
tiltækum ráðum til að laða, eða
ógna, kjósendur til fylgis við
stefnu sina i þessu örlagarika
máli.
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer
fram i Noregi hinn 26. september,
og i Danmörku verður gengið til
kosninga 2. október.
Raðsmíði á fiskibátum
Slippstöðin á Akureyri hefur
tekið upp raðsmiði á fiskibátum,
og verður fyrsti b.átur;inn afhent-
ur eigendum á næstunni. Er
hann 150 tonn að stærð og verður
gerður út frá Vestmannaeyjum.
Ætlunin er að fara reynsluför um
pollinn.
Báturinn var sjósettur siðast-
liðið vor og hefur verið útbúinn
siðan að tækjum og vélum.
Þegar eru tveir bátar af sömu
gerð i smiðum hjá Slippstöðinni á
Akureyri.
Hinn nýi bátur kemur til með að
heita Gunnar Jónsson.
Varðskipið Óðinn
Óðinsmenn nota klippurnar i fyrsta skipti:
Brezku togurun-
um stuggað burtu
i fyrrakvöld skar varö-
skipið óðinn á togvírana
hjá tveimur brezkum
togurum frá Fleetwood, er
þeir voru að ólöglegum
veiðum 30 milur innan nýju
fiskveiðilögsögunnar út af
Látrabjargi. Þarna misstu
vörpurnar Kennedy FD 139
og Wyre Captain FD 228
vegna óhlýðni við íslenzk
lög.
Hingað til hefur varðskipið
Ægir sótt að brezkum togurum á
þennan hátt. Er þetta fyrsta að-
förin hjá varðskipinu óðni með
klippurnar að brezkum togurum.
Voru tveir halaklipptir og óljósar
fregnir hafa borizt utan af
miðunum, að Óðinsmenn hafi
gert tilraun til þess að klippa
vörpuna af þriðja togaranum.
Undanfarna daga hafa sjö
brezkir togarar verið að veiðum
innan nýju landhelginnar út af
Látrabjargi og engu sinnt til-
mælum varðskipanna að flytja
sig út fyrir morkin. Aðför varð-
skipsmanna stuggaði hins vegar
öllum brezku togurunum burtu af
þessum veiðislóðum. Hafa togar-
arnir flutt sig norður fyrir og ekki
lá ljóst f'yrir i gær, hvort þeir
væru farnir að veiða innan land-
helgi á Hornbanka eða á Húna-
flóaál.
Þá var vitað i gær, aö eftirlits-
skipið Miranda ætlaði að flytja
sig af veiðisvæðinu út af Látra-
bjargi.
í gær var vitað um brezka
togara að veiðum á Þistilfjarðar-
grunni og út af Sléttugrunni. Hafa
brezkir togarar verið að veiöa
ungfisk á Þistilfjarðargrunni
undanfarna daga.
Viðtal við Gunnar
Guðmundsson,
framkvæmdastjóra
Sinfóniuhljómsveit-
ar íslands.
Sjá 5. siðu
Viðtal viö Vigdisi
Finnbogadóttur, ný-
ráðinn leikhússtjóra
hjá Leikfélagi
lleykjavikur.
Sjá opnu
Hörkuárekstur:
Tveir
meiddust
í bílslysum
Hörkuárekstur varð á mótum
Háaleitisbrautar og Fellsmúla i
gærmorgun. Rákust þar saman
Peugotfólksbill og sendiferðabill
af F’ord-gerð. Skarst bilstjórinn i
sendiferðabilnum illa á höfði og
var fluttur á slysavarðstofuna.
Báðir bilarnir skemmdust mikið.
Þá varð árekstur á mótum
Lönguhliðar og Háteigsvegar.
Slóst annar billinn utan i eldri
mann, sem átti leið i mjólkurbúð.
Meiddist hann eitthvað og var
fluttur á slysavarðstofu.