Þjóðviljinn - 24.09.1972, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINNSunnudagur 24. september 1972
75 ára
Haraldur Norðdahl, fyrrver-
andi tollvörður, Bergstaðastræti
66, Reykjavik, er 75 ára i dag.
Haraldur er fæddur 24.9. 1897 að
Elliðakoti i Mosfellssveit sonur
hjónanna Skúla Norðdahl, sem
lengst var bóndi að Úlfarsfelli i
Mosfellssveit, og konu hans Guð-
bjargar Guðmundsdóttur.
Haraldur hóf ungur störf við
tollgæzluna i Reykjavik sem einn
allra fyrsti islenzkur tollvörður.
Starfaði hann þar siðan svo lengi
sem lög leyfa og var löngum for-
ystumaður i stéttarsamtökum
tollvarða.
Haraldur Norðdahl hefur auk
þess starfað mikið að fjölmörgum
öðrum félagsmálum, m.a. i sam-
tökum bindindismanna, og var
um áratuga skeið mikilvirkur
þátttakandi i stjórnmálahreyf-
ingu islenzkra sósialista.
Kona Haraldar var Valgerður
Jðnsdóttir, sem látin er fyrir
nokkrum árum, og áttu þau 4
börn.
Þjóðviljinn sendir Haraldi
Norðdahl hlýjar afmæliskveðjur
og óskar honum góðs gengis og
langra lifdaga.
Haraldur verður að heiman i
dag.
Áfengisneyzla í nœr 100 ár:
Nær tífalt meira
drukkið nú
Á árunum 1881 — 1885
drukku íslendingar samtals
2,38 litra hreins vínanda aö
meðaltali hvert manns-
Safnaðar-
heimili vígt
Vigsludagur safnaðarheimilis
Grensásssóknar er 24. septemb.
nk. Þá mun biskup islands, hr.
Sigurbjörn Einarsson, vigja
heimilið með guðsþjónustu sem
hefst kl. 11.00 að morgni. Að
kvöldi sama dags heldur kirkju-
kór Grensásssóknar tónleika und-
ir stj. Árna Arinbjarnarsonar.
.Safnaðarheimilið verður til sýnis
á vigsludaginn kl. 14-18.
FÉLAGSLÍF
Langholtsprestakall.
Guðþjónusta kl. 2. Ræðuefni:
Barnið á höndum. Sigurður
Haukur
Bústaðakirkja.
Guðþjónusla kl. 2. Haustferm-
ingarbörn eru sérstaklega
beðin að ma'ta.
Séra OlaíurSkúlason
Kvenfélag óháða
safnaðarins. Fundur á
morgun. mánudag, kl. 8.30 i
Kirkjuba1. Félagsstarf
vetrarins rætt.
barn. Síðan tór drykkju-
skapur nokkuð rénandi og
niður i 0,37 lítra af hreinum
vínanda á hvern mann í
landinu. Það var á árunum
1916 til 1920. Eftir það eykst
drykkjuskapur nokkuð
jafnt og þétt, er svipaður á
eftirstriðsarunum til 1960,
en hefur siðan vaxið hratt
og er 2,5 lítrar af hreinum
vínanda á mannsbarnið
1970, en 2,7 litrar í fyrra,
1971.
Þetta kemur fram i
töflum Áfengisvarnarráðs.
Sovétmenn
vilja fækkun
WASHINGTON 21/9
Sovétstjórnin hefur nú í
meginatriöum fallizt á að
umræöur um gagnkvæma
fækkun i herliði stórveld-
anna i Evrópu fari fram
jafnhliða hinni fyrirhuguöu
Oryggismálaráðstefnu
Evrópu, sem hefst í
Helsinki hinn 22. nóvem-
ber.
Það var talsmaður Banda-
rikjastjórnar. sem skýrði frá
þessu i dag. en umræður um mál
þetta eru taldar þýðingarmikið
skref i átl að bættri sambúð
stjórna Sóvétrikjanna og Banda-
rikjanna. Samkomulagi um um-
ræðurnar var náð er Kissinger,
ráðgjafi Bandarikjaíorseta,
heimstótti Moskvu fyrir
skemmstu.
Þessar myndir fylgdu grein
Ilagens Nyheter, sem
„sönnunargögn”. Á einni sést
ósköp venjulegt hótelherbergi,
þar sem sovczkir sölumenn gistu
um hrið; á annari getur að lita
skrifstofuhúsnæði Matrecos i
Gavle^og á þriðju myndinni sést
loftnetsstöng.
Sænska leyniþjónust-
an lygasögur fyrir
dagblöðin
Hin leynilega öryggis-
lögregla i Sviþjóð, Sápo,
(Sakerhetspolisen)
gerist æ umsvifameiri,
svo að mörgum þykir
nóg um. Auk þess að
vasast i meintum
njósnamálum erlendra
aðila i Sviþjóð, svifst
Sápo einskis til að
njósna um róttæk
stjórnmálasamtök
innanlands, hlera simtöl
og skrásetja þá menn er
gætu talizt hættulegir
sænska auðvalds-
kerfinu, og apar i stuttu
máli allar starfsaðferðir
sinar eftir fyrir-
myndinni, hinni ill-
ræmdu njósnaþjónustu
CIA i Bandarikjunum.
Engin stofnun hins opinbera i
Sviþjóð hefur fengið jafn miklar
hækkanir á fjárveitingum sínum
sem Sapo. Meira að segja hefur
njósnaþjónustan fengið úthlutað
stærri fjárupphæðum en hún
hefur beðið um.
Sænsku blöðin hafa á undan-
förnum mánuðum gerzt æ harð-
skeyttari i gagnrýni sinni á SSpo,
og þau hafa hvað eftir annað flett
ofan af ólöglegri starfsemi
hennar. En forkólfar Sá'po hafa
brugðizt við þessu eins og þeirra
er von og visa, með þvi að reyna
að æsa upp sefasýki og njósna-
hræðslu meðal almennings. Ýmis
blöð hafa upp á siðkastið birt
býsna undarlegar greinar, sem
augljóslega miða að þvi að rétt-
læta starfsaðferðir njósna-
þjónustunnar.
Siðdegisblaðið Expressen, sem
er alræmt fyrir æsifregnir, birti
til að mynda fáránlega njósna-
grein hinn 11. mai i vor, undir
fyrirsögninni „Svona starfa
njósnararnir i Sviþjóð.”
Höfundurinn, sem kallar sig
„B.O. Svensson”, skýrir frá fund-
um sinum við tvo njósnara frá
Austur-Evrópu, ,,D” og ,,K”. í
trúnaði skýra þeir honum hinir
rólegustu frá þvi hvernig þeir eigi
að eyðileggja tölvur og vatns-
veitukerfi i Sviþjóð, ef til
styrjaldar komi.
Þvi miður fyrir„B.O. Svens-
son” hlýtur að teljast fram úr hófi
ósennilegt, að erlendir njósnarar
i Sviþjóð heilsi upp á blaðamann
frá Expressen alls ótilkvaddir og
segi: „Jæja nú skaltu fá fina frétt
i blaðið þitt, bara ef þú lofar að
segja ekki hvað við heitum”.
Njósnararnir myndu i sliku til-
viki vita fullvel, að lög um prent-
frelsi næðu ekki yfir slika land-
ráðastarfsemi, og að viðkomandi
blaðamaður yrði neyddur til að
segja til þeirra.
Hið ágæta timarit Folket i
Bild/Kulturfront, telur að njósna-
greinin sé skrifuð að tilhlutan
Sápo, og hið sama eigi við um
svipaða njósnasögu, er birtist i
Dagens Nyheter i vor. t grein
Dagens Nyheter er þvi slegið
fram, að aðalstöðvar sovézka bif-
reiðafyrirtækisins Matrecoc i
GMvle séu miðstöð njósnastarf-
semi Rússa i Sviþjóð. Að sögn
blaðsins, höfðu starfsmenn SSpo
þrásinnis fylgzt með rússneskum
njósnurum, þar sem þeir væru á
þönum milli aðalstöðvanna i
GSvle og ýmissa mikilvægra
hernaðarmannvirkja, allt undir
þvi yfirskini að þeir legðu stund á
bifreiðasölu. í greininni segir, að
stjórnvöldum hafi verið gert við-
vart um landráðabrölt Rússanna,
og yfirmaður Sápo gekk svo langt
að staðfesta fregnina. „Ég hef
enga ástæðu til að bera frásögn
Dagens Nyheter til baka”, sagði
hann.
En Lennart Geijer, dómsmála-
ráðherra Sviþjóðar, var á öðru
máli. Hann hélt stutta ræðu i
sjónvarpið sama dag þar sem
hann fór hörðum orðum um efni
Frh. á bls. 15
Mútan og svipan
Fyrr og siðar hafa heimsveldin
notað tvær aðferðir til þess að
halda áhrifum sinum og yfir-
ráðum yfir öðrum þjóðum, oft
hafa þær verið og eru notaðar
jöfnum höndum. stundum er ann-
arri beitt. „Enginn borgarmúr er
svo hár. að asni klyfjaður gulli
komist ekki yfir hann”. Þessi
I sláturtíðinni —
Húsmœður athugið
Höfum ávallt fyrirliggjandi hvitar og vaxbornar öskjur með áföstu Ioki.
Öskjurnar eru mjög hentugar til geymslu i frystikistum á sláturafurðum
°g kjöti. Þær eru af ýmsum stærðum, 1/2 kg. — 1 kg.—2 1/2kg. og 5
kg.
Komið á afgreiðsluna. Gengið inn frá Dalbraut.
KASSAGERÐ REYKJAYIKUR
Kleppsvegi 33
regla er ennþá i góðu gildi. Marg-
ir sigrar hafa unnizt með mút-
unni, hún hefur oft dugað betur en
bein valdbeiting. Valdbeitingin
leiðir til andúðar á þeim, sem
henni beitir, en mútan sljóvgar
þá. sem ekki halda vöku sinni. og
hún er alla jafna mörgum kær-
komin.
Undanfarið hefur afstyrmi
Morgunblaðsins rausað um vald-
beitingu i Tékkóslóvakiu, en
ekkert haft að athuga við afskipti
Bandarikjanna hér á landi.
Margir vilja leggja valdbeitingu
Rússa i Tékkóslóvakiu og þving-
anir og litt dulbúnar mútur
Bandarikjanna hér á landi að
jöfnu, sem rétt er. Munurinn er
fólginn i aðferðum, annars vegar
hrá valdbeiting, hins vegar vald-
beiting mútunnar. Hér á landi er
talsverður hópur manna sem
hafa hag af valdbeitingu mút-
unnar. og þeir menn gera allt sem
hægt er til þess að sljóvga við-
námsþrótt þessarar þjóðar með
stöðugum áróðri um ágæti
bandariskra lifshátta og
stjórnarfars. Þessir aðilar hafa
beinan hag af þjónustu sinni við
erlent stórveldi og þeir sjá fram
á. að þvi meir sem áhrif þeirra
aukast, þvi meiri likur eru á að
hagkerfi gróðahyggjunnar festi
hér rætur. Höfuðbakhjarl gróða-
hyggjunnar nú eru Bandarikin og
fylgiriki þeirra. Herstöðin á
Miðnesheiði er útvarðstöð fyrir
Bandarikin og varðar fyrst og
fremst öryggi Bandarikjanna. 1
skjóli hennar og með mögnun
efnahagsáhrifa Bandarikjanna
hér á landi, sem stundum eru
nefnd efnahagsaðstoð og fleirum
hylmingsheitum, þrifst þjóð-
villan. og áróðurskvörnin malar
stöðugt um nauðsyn herverndar
Bandarikjanna. Það er mikið i
húfi fyrir unnendur „frjáls fram-
taks”; allt, sem stendur i vegi
fyrir og tefur fyrir þvi að hagkerfi
gróðahyggjunnar nái hér undir-
tökunum, er nefnt kommúnismi.
Mesta hættan sem steðjar að
sjálfstæði íslendinga er áróður
mútuþeganna og þeirra taglhnýt-
inga. Alit tal þessara manna um
lýðræði og frelsi þýðir aðeins
„bófafrelsið” og lýðræðið alræði
þeirra, sem hagnýta sér mútuna
á hagkvæmastan hátt.
Svipan vekur alltaf upp andúð
og hatur. en mútan er ismeygileg
og leynir á sér. seyrir mútu-
þegana. Css.
bréf til
blaösins