Þjóðviljinn - 24.09.1972, Page 16
UÚWIUINN
Sunnudaf'ur 24. septcmbcr I!>72
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Nætur- og helgidagavarzla
vikuna 23. sept. til 29. sept. er
i Vesturbæjarapóteki og Háa
leitisapóteki. Á sunnudag er
varzla aðeins i Háaleitisapó-
teki.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Banaslys
á Akranesi
Siðastliðinn miðvikudag hras-
aöi maður i tröppum við hús sitt 5
Akranesi. Höfuðkúpubrotnaði
maðurinn við fallið. Var hann
þegar fluttur á sjúkrahús á Akra-
nesi og þaðan suður á Borgarspit-
alann. Maður þessi lézt i gær-
morgun á Borgarspitalanum af
völdum meiðsla sinna. Hét hann
Haukur Ólafsson til heimilis að
Jaðarsbraut 19 á Akranesi. Hafði
hann verið sjómaður um árabil og
var nær sextugur að aldri.
Ketilsprenging
í Kópavogi
Sprenging varð i miðstöðvar-
katli að Nýbýlavegi 46b i fyrra-
kvöld. Veggir sprungu i
miðstöðvarherberginu. og steypu-
molar þeyttust i næsta hús.
Vatnsinntakið eyðilagðist við
sprenginguna og flæddi vatn um
klefann, en ekki kviknaði eldur af
þessum sökum.
Hvellurinn af sprengingu þess-
ari varð eins og af íallbyssuskoti.
Sýningu
Magnúsar A.
lýkur í dag
Sýning Magnúsar A Arnasonar
1 Félagsheimili Kópavogs hefur
nú staðið i hálfan máuð.
Á sýningunni eru 19 málverk og
2 höggmyndir.
Sýningunni lýkur i dag, og er
hún opin til kl. 5.30.
Sýningulýkur
Sýningu Sigurðar Orlygssonar
og Magnúsar Kjartanssonar, sem
staðið hel'ur yfir að undanförnu i
Norræna húsinu, lýkur kl. 22 i
kvöld. Um fimm hundruð manns
hafa þegar séð sýninguna og sjö
myndir hafa selzt. M.a. hefur
Reykjavikurborg keypt eina
mynd af hvorum.
Gaf sædýr
Ásgrimur Agústsson, ljós-
myndari á Akureyri. gaf
Nátturugripasafninu á Akureyri
nýlega mikið safn sædýra af
djúpmiðum umhverfis iandíð.
Ásgrimur safnaði dýrunum er
hann var háseti á Akureyrar-
togurunum.
Litið verður ha-gt að sýna af
dýrunum fyrr en úr rætist með
húsnæðismál safnsins.
Blaðberar
óskast
Þjóðviljinn óskar að
ráða blaðbera í eftirtalin
hverf i:
Hjarðarhaga
Skjol
Háskólahverfi
Háteigsveg
Breiðholt
Fossvogshverfi 2
Ásgarð
Miöbæ
Hverfisgötu
Þjóðviljinn
sími 17500
Kvrópa cr býsna l'átæk að orkulindum, og cnginn vafi leikur á ofurkapp á að sölsa norskar oliulindir undir sig, ef stjórn Bratte-
þvi, að stóriðjuhringar auðvaldsbandalagsins EBE munu leggja l*s tckst að tcyma norsku þjóðina inn i bandalagið.
Norskar olíulindir
Orkumálastjóri Efnahagsbandalagsins:
tilheyra EBE
Harðar umrœður í norska sjónvarpinu
ósló 22/9. Harð-
vitugar orðahnipp-
ingar urðu i umræðu-
þætti norska sjón-
varpsins i gær milli
þeirra Ileige Seip,
þingmanns Vinstri-
llokksins, og Finn
Gustavsen, formanns
SF-IIokksins, um oliu-
lindir á botni Norður-
sjávar, út af strönd
Noregs. Tilefni um-
ræðnanna voru þau
ummæli orkumála-
stjóra EBE
Ferdinands Spaaks,
að lita bæri á norsku
oliulindirnar sem um-
ráðasvæði Efnahags-
bandalagslandanna.
Gustavsen fór svo
ómildum orðum um
græðgi og yfirgang
EBE, að stjórnanda
þáttarins þótti ástæða
til að stöðva um-
ræðurnar andartak.
Seip reyndi hvað hann gat,
til að draga úr þýöingu um-
mæla Spaaks, og kvað orku-
málastjórann naumast hafa
umboð til að ákveða slikt mál
upp á eigin spýtur, en
Gustavsen .benti á, að sem
orkumálastjóri EBE hlyti
Spaak að mæla fyrir munn
bandalagsins.
Þeir Bratteli, forsætisráð-
herra, og Borten, þingmaður,
deildu og um oliuréttindin i
sama þætti. Bratteli kvað
stjórn sina ekki hafa samið
um rétt til nýtingu oliulinda
við EBE. Borten sagði hins
vegar, að það hlyti að liggja i
augum uppi, að hin stóru
aðildarriki EBE renndu hýru
auga til norsku oliulindanna,
og þótt jieim tækist ef til vill
ekki beinlinis að sölsa þær
undir sig, kynnu þau að beita
þrýstingi, til að fá Norðmenn
til að nýta oliulindirnar hraðar
og fyrr, en æskilegt gæti talizt.
N ey ðarástand
á Filippseyjnm
MANILA 22/9. Neyðar-
ástandi var lýst yfir á
Filippseyjum i gær-
kveldi, eftir aö varnar-
málaráðherra landsins
Uganda:
Enn er
barizt á
landamærun
um
Kampala 23/9. — Harðir bar-
dagar geisa nú milli Ugandahers
og sveita Tanzaniuhers og skæru-
liða, að sögn herstjórnarinnar i
Kampala. Vigvöllurinn er á
tanzanisku landsvæði, rétt við
landamæri Uganda. Jafnframt
var frá þvi skýrt i morgun, að
einn þeirra er teknir voru
höndum i átökunum við borgina
Mutukula fyrr i vikunni, sé John
Wakholi, fyrrum ráðherra og
stuðningsmaður Obotes, fyrrver-
andi forseta Uganda, Wakholi
kvað hafa særzt i átökunum, og
tafemaður herstjórnarinnar taldi
óvist að hann myndi lifa af flutn-
ingana til Kampala.
hafði verið sýnt mis-
heppnað banatilræði, og
þrálátur kvittur gaus
upp, um að stjórnar-
bylting væri i aðsigi.
Að minnsta kosti tuttugu manns
höfðu verið teknir höndum i Man-
ila i gærkvöldi þeirra á meðal
leiðtogar stjórnarandstöðunnar.
Yfirhershöfðingi höfuðborgarum-
dæmisins skýrði frá þvi, að
Marcos forseti myndi gefa út
yfirlýsingu um ástandið i dag.
Rikisstjórnin ver ákvörðun sina
Merkja- og blaðsöludagur
Sjálfsbjargar, er i dag.
Auk merkjanna er tímaritið
Sjálfsbjörg selt,en það keinur út
einu sinni á ári.
Af efni blaðsins má geta
greinar Oddu Báru Sigfúsdóttur
um almannatryggingar. Þar er
einnig að finna grein um athyglis-
verða fræðslustarfsemi i Noregi,
en samtök fatlaðra þar i landi
hafa um nokkurra ára skeið hald-
Marcos forseti Filippseyja.
um neyðarástand þeim rökum að
kommúnistar vaði uppi með
skæruhernað i afskekktum hér-
uðum á Filippseyjum. Skæru-
liðar, sem sagðir eru maóistar,
hafi náð ýmsum héruöum á sitt
vald, og neyðarástandið eigi að
nýta til að vinna bug á þeim.
ið námskeið fyrir foreldra fatl-
aðra barna, þar sem tekin eru til
meðferðar hin margvislegu
vandamál sem þeir þurfa að eiga
við. Ennfremur er fróðleg grein
eftir Unni Guttormsdóttur um
sundkennsluaðferö, sem hentar
vel fötluðum.
Blöð og merki Sjálfsbjargar
verða seld viða um land i dag.
Kostar blaðiö kr. 60,- og merkið
kr. 30,- öllum ágóða er varið til
byggingar Sjaálfsbjargarhússins.
Reyk-
sprengjur
á Saigon-
þiíigi
Saigon 23/9 Tuttugu og tveir
þingmenn stjörnarandstöðunnar i
Suður-Vietnam greiddu atkvæði á
þingi i dag, til að nema úr. gildi
bráðabirgðalög þau er Thieu
„forseti” setti tii að tryggja stöðu
sina i júnimánuði, i þann mund er
Þjóðfrelsissveitirnar hófu stór-
sókn sina. Ekki likaði öllum jafn
vel, að Thieu skyldi sviptur laga-
legu gerræöi sinu, og i þann mund
er þingmenn gengu til atkvæða
var reyksprengju varpað af
áheyrendapöllum niður i salinn.
Þingmennirnir urðu að halda
vasaklútum fyrir vitin, meðan
þeir greiddu atkvæðin, en
lokasamþykktin var á þá leið, að
bráðabirgðalögin skyldu numin
úr gildi.
Flýgur SAS
til Kína?
Kaupmannahöfn 23/9 Undir-
búningi flugsamgangna milli
Norðurlanda og Kina hefur nú
miðað talsvert áfram, en i gær
lauk Norðurlandaheimsókn kin-
verskrar sendinefndar, sem
fjallar um þessi mál. Að sögn for-
vigismanna SAS, voru viðræður
við Kinverjana árangursrikar, og
i þeim voru lögö drög að flugsam-
göngum i framtiðinni.
MERKJASÖLUDAGUR
SJÁLFSBJARGAR