Þjóðviljinn - 30.09.1972, Page 1

Þjóðviljinn - 30.09.1972, Page 1
UÚBVIIIINN KRO ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON Laugardagur 30. október — 37. árg. 220. tbl. Dómsmála- ráðuneytið: Leigu- hœkkunin í Iðnó fer til sak- sóknara Fyrir nokkru skrifafti Þjóð- viljinn allmikið um leigumái Iðnós. Leikfélags Reykja- víkur. Þar sem leigan var hækkuð taldi blaðið að það bryti í bága við reglur þær sem enn eru i gildi um verð- stöðvun, nema að fengnu sam- þykki viðkomandi ráðuneytis. Nú hefur blaðinu borizt frétt frá dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu þar sem frá þvi er greint^að þessu máli sé skotið til saksóknara rikisins þar sem komið hafi fram ,,að ætla megi að við leigu á húsnæði til Leikfélags Reykjavikur i Alþýðuhúsinu Iðnó nú nýlega hafi af hálfu leigusala verið framið brot á verðlagslög- gjöfinni.” Frétt ráðuneytisins fer hér á eftir: „Þar sem komið hefur fram i almennum blaðafregnum, að ætla megi að við leigu á húsnæði til Leikfélags Reykja- vikur i Alþýðuhúsinu Iðnó nú nýlega hafi af hálfu leigusala verið framið brot a' verðlags- löggjöfinni, hefir ráðuneytið talið rétt að óska þess við sak- sóknara rikisins, að hann hlutist til um að fram fari réttarrannsókn, svo að mál þetta verði upplýst og geti fengið viðeigandi meðferö. Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið, 29. september 1972." Einar Ágústsson, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna: „Þetta er spurn- ing um líf og dauða” Einar Ágústsson, utan- ríkisráðherra flutti ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna s.l. föstudags- kvöld. Fjallaði ræða utanríkis- ráðherra eingöngu um landhelgismálið og túlkaði hann þar rök islendinga i málinu, og gerði grein fyrir, hve mikið væri í húfi fyrir íslenzku þjóðina. Utanríkisráðherra komst m .a. svo að orði: „Það er staðreynd sem ekki verður umflúin, að hinn 1. september 1972 voru fiskveiði- mörkin umhverfis Island færð út i 50 milur, svo sem ég tilkynnti úr þessum ræöustól fyrir ári.” Og siðar i ræðunni: „Rikisstjórn tslands telur heldur ekki að Alþjóðadóm- stóllinn sé bær til að meta á nokkurn hátt veiðimagn það, sem brezkir togarar megi taka af Sigurður Guðmundsson lætur af störfum sem ritstjóri Þjóðviljans Sigurður Guðmundsson lætur ai störfum sem ritstjóri Þjóðviljans frá og með morgundeginum. Sigurður hefur starfað við Þjóð- viljann frá þvi að blaðið kom fyrst út og er Sigurður eini starfs- maður Þjóðviljans, sem hefur verið við blaðið frá upphafi og á þessum tima hefur hann veitt blaðinu mikla og gifturika for- ustu. Sigurður starfaði fyrst við Verkalýðsblaðið sem sjálfboða- liði i sumarleyfum frá námi sinu. Hann hóf siðan störf viö Þjóð- viljann er Kommúnistaflokkur tslands tók að gefa blaðið út 1936. Sigurður var löngum eini blaða- maður Þjóðviljans og gegndi um leið langtimum saman ritstjóra- störfum vegna pólitiskra anna ritstjóranna, Einars og Sigfúsar Sigurður var fluttur með þeim i fangelsi hjá Bretum á hernáms- árunum og tók þannig sjálfur þátt i hörðustu stéttaátökum þessarar aldar, bæði á kreppuárunum og á striðsárunum. Þegar lesendur Þjóðviljans hafa blaðið i höndum dag hvern minnast þeir sjálfsagt sjaldan þess mikla starfs sem skapendur Þjóðviljans hafa á sig lagt. Brautryðjendastarfið var ótrú- lega erfitt og ómögulegt að meta það sem vert væri. Þegar Kommúnistaflokkurinn hóf að gefa úr Þjóðviljann voru starfs- menn fáir og mikill hluti starfsins unninn i sjálfboðavinnu. Ungir menn með bjartar hugsjónir sósialismanns einar að verklaun- um unnu daglangt og náttlangt að þvi að gera Þjóðviljann að þvi málgagni sem hann er enn i dag. Einn brautryðjendanna er Sigurður Guðmundsson ritstjóri. Starf hans við Þjóðviljann og annars staðar i þágu sósialiskrar hreyfingar á Islandi er þegar orðið svo mikið og frábært að vart á sér hliðstæðu. Hann hefur átt þátt i þvi að móta Þjóðviljann og þar með það málgagn, sem islenzkur verkalýður og flokkur hans, Alþýöubandalagið á i dag. Sigurði Guðmundssyni er ekki umhugað um að koma sjálfum sér á framfæri. Og ekkert likar honum ver en skrif um hann sjálfan og verðleika hans Þvi verða þessi orð ekki fleiri en við þessi timamót skulu Sigurði Guðmundssyni fluttar alúðarþakkir Þjóðviljans og lesenda hans. Fjölskyldu hans flytur blaðið árnaðaróskir og þakkir. Þjóðviljinn islenzku stofna hafsvæði, án þess aö hættu fiskistofnunum á svæði, sem rikisstjórn tslands hefur lýst fullveldisrétti sinum yfir að þvi er varöar fiskveiðar.” Ennfremur sagði utanrikisráð- herra: „Að svo komnu máli verður islenzk þjóð að horfast i augu við þá staðreynd, að hin eina auðlind hennar kunni að verða eyðilögð vegna fiskveiða erlendra manna. Vinnunefnd sem komið var á fót af Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðinefndinni og Alþjóða Hafrannsóknarráðinu hefur komizt að þeirri niðurstöðu að minnka ætti þorskveiðarnar á Norður-Atlantshafi um helming. Þetta er spurning um lif og dauða. Nirðurstaða okkar var og cra að við gætum ekki beðið lengur. Við gætum ekki setið auð- um höndum og horft fram á hrun efnahags þjóðarinnar. Engar ásakanir um eigingirni eöa ein- hliða aðgerðir geta breytt þeirri staðreynd. Og við skulum öll hér á þingi gera okkur grein fyrir þeirri stað- reynd, að ósveigjanlegar reglur, sem byggðar eru á verndun hags- muna þjóða, sem fiskveiðar stunda á fjarlægum miðum og hagnýta i sina þágu strandmið annarra rikja, — að slikar reglur eru ekki sigildar. Þær eru úreltar”. Framhald á 11. siðu. Merkur list- viðburður A morgun kl. 13.30 verður opnuð yfirlitssýning á vegum Listasafns rikisins á verkum Þorvaldar Skúlasonar, list- málara. A sýningunni eru 177 myndir er spanna timabilið frá 1928 fram til dagsins i dag, þar af 136 oliumálverk og 41 teikning, vatnslita- og klipp- mynd. Þetta er að sjálfsögðu mikilfengleg sýning sem list- unnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. A myndinni hér að ofan sitja þeir saman Asmundur Sveinsson, Þorvaldur Skúla- son og Gunnlaugur Scheving en þá má kalla öldunga i islenzkri list i dag hvað ár snertir, en allir eru þeir i fullu fjöri sem skapandi listamenn. Sjá nánari frásögn á 3ju siðu. Boða vinnslu- stöðvun ef ekki fæst . . . Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna efndi til aukafundar i gær. Komst fundurinn að þeirri niðurstöðu ,,að boða stöðvun á vinnslu i frystihúsum innan samtakanna, ef ekki fæst viðunandi rekstrar- grundvöllur við upphaf næsta verðlagstimabils, sem hefst 1. október.” Enn olia úr E1 Grilló Alltaf berst olia upp úr tönkum E1 Grilló á Seyðisfirði og flýtur á firðinum. Hefur borið á þessari oliumengun öðru hverju i sumar til þessa, sagði Gisli Sigurðsson við blaðið. Þá hafa ekki borizt ennþá niðurstöður af rannsókn siglingamálastjóra á þessari mengun,sem framkvæmd var á vegum Landhelgisgæzlunnar i sumar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.