Þjóðviljinn - 14.12.1972, Page 14
14. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN? Fimmtudagur 14. desember 1972
Auglýsing
um kosningu til fulltrúaþings F.I.B.
9. grein laga félagsins:
„Félagsmenn i hverju hinna 6 umdæma,
sem talin eru i 3. grein, skulu kjósa full-
trúa til fulltrúaþings F.I.B., sem hér
segir:
Umdæmi nr. I. Vesturland- 4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
Umdæmi nr.íl. Norðurland 4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
Umdæmi nr. III. Austurland 4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
Umdæmi nr. IV. Suðurland 4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
Umdæmi nr. V Reykjanes 6 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
Umdæmi nr. VI. Reykjavik og nágr.
20 aðalfulltrúa
og 10 varafulltrúa.
Alls 42 fulltrúar og 30 varafulltrúar.
Kosningar til fulltrúaþings skulu haldnar
annað hvert ár. Kjörtimabil fulltrúa er 4
ár og miðast við fulltrúaþing.
Skal HELMINGUR fulltrúa kjörinn á 2ja
ára fresti.
Uppástungur um fulltrúa eða vara-
fulltrúa, sem félagsmenn vilia bera fram.
skulu hafa borizt félagsstjórninni fyrir 15.
janúar það ár, sem kjósa skal.
Kjörnir fulltrúar skulu alltaf vera i kjöri.
Komi ekki fram uppástungur um fleiri en
kjósa skal,verður ekki af kosningu.
Með uppástungum um þingfulltrúa, sem
kjósa skal i hverju umdæmi, skulu fylgja
meðmæli eigi færri en 15 fullgildra félags-
manna úr þvi umdæmi,en i VI. umdæmi
skulu meðmælendur eigi vera færri en 30
fullgildir félagsmenn þar.
I framangreindri tölu meðmælenda má
telja þá, sem stungið hefur verið uppá sem
þingfulltrúum.
Berist eigi uppástungur úr einhverju eða
einhverjum umdæmum skoðast fyrri full-
trúar þar endurkjörnir, nema þeir hafi
beðizt skriflega undan endurkjöri”.
Samkvæmt þessu skulu uppástungur um
IIELMING þeirrar fulltrúatölu, sem i 9.
grein getur, hafa borizt aðalskrifstofu
F.I.B., Ármúla 27, Reykjavik i ábyrgðar-
bréfi fyrir 15. janúar 1973.
Reykjavik 12. desember 1972.
F.h. stjórnar Félags islenzkra bifreiðaeig-
enda
Magnús H. Valdimarsson.
MINNING
Guðmundur
Magnússon
F. 14.11. 1910 -
Mánudaginn 30. október siðast-
liðinn lézt i Landakotsspitala
Guðmundur Magnússon, múrara-
meistari, tæplega 62 ára að aldri,
og fór jarðarför hans fram 8. nóv.
Hann var fæddur á Akureyri,
sonur hjónanna Magnúsar Jóns-
sonar og konu hans Halldóru
Soffiu Arnadóttur. Voru þáu hjón
bæði Eyfirðingar að ætt.
Guðmundur ólst upp • meðal
systkina sinna á Akureyri,;en alls
voru börnin niu og var hann næst-
yngstur þeirra Af systkinunum
eru aðeins tvö á lifi, Helga, sem
býr i Reykjavík, og Ólafur i Siglu
firði. Eins og titt var um heimilis-
feður i kaupstöðum og kaup-
túnum á fyrri hluta þessarar
aldar.stundaði Magnús faðir Guð
mundar alla þá vinnu, sem til féll,
en þó mun sjómennska hafa verið
hans aðalstarf. Móðir Guð-
mundar var mjög dugleg kona,
góð móðir og vel skapi farin. Ég
get imyndað mér að til hennar
muni hann m.a. hafa sótt sina
léttu lund og þann hæfileika að
koma öllum i gott skap i kringum
sig. Strax og Guðmundur hafði
aldur til fór hannaðtaka til hend-
inni og varð þá fyrst fyrir að fara
i sveit. Var hann þá svo heppinn
að komast á gott heimili, en það
var að Finnastöðum i Sölvadal
hjá hjónunum Jósef Jónassyni
og Sigriði Jónsdóttur. Minntist
hann verunnar þar af mikilli
hlýju.
Tæplega tvitugur að árum hóf
svo Guðmundur ævistarf sitt, er
hann gerðist nemi i múraraiðn,
en i þeirri grein starfaði hann um
30 ára skeið, bæði sem sveinn og
meistari. Iðn sina nam hann hjá
Tryggva Jónatanssyni múrara-
meistara á Akureyri og lauk prófi
árið 1934. bað sama ár 29. ágúst
giftist Guðmundur hinni
glaðlyndu og vel gefnu konu
Kristinu Magnúsdóttur frá Ólafs-
firði, og var hún næstyngst átta
systkina. Var mikið jafnræði með
þeim hjónum.
Hófu þau búskap á Akureyri og
farnaðist vel, þó börnin yrðu
mörg. Guðmundur var eftirsóttur
tii starfa, enda hamhleypa ti!
allra veka. A Akureyri bjuggu
þau svo i nitjan ár eða til ársins
1953, er þau fluttu til Reykja-
vikur. Þá höfðu þeim fæðzt 6
börn, sem öll eru á lifi, en þau
eru: Magni, tæknifræðingur,
kvæntur Valgerði Guðmunds-
dóttur, Halla Soffia, húsfreyja,
gift Halldóri Karlssyni, Viðar
múrari, kvæntur Berglind Hálf-
dánardóttur, Margrét Heiðdis,
heitbundin Jóhanni Guðbjarts-
syni, Oddný Guðfinna, heitbundin
Herði Hallgrimssyni, Sigurgeir
heitbundinn Guðbjörgu Eddu
Björgvinsdóttur.
Oll eru börnin mesta myndar-
fólk, og öll búsett i Reykjavík
nema Halla, sem býr á Akureyri
Barnabörn þeirra Guðmundar og
Kristínar eru nú þegar þetta er
ritað orðin 14 talsins.
Eins og áður sagði fluttust þau
hjón Guðmundur og Kristín til
Reykjavíkur haustið 1953 og hafa
búið hér siðan. Fyrst bjuggu þau i
Skipasundi 46, en þar bjuggum
við hjónin þá á neðri hæð hússins
ásamt fjórum elztu börnum okkar
og þar hófust kynni sem staðið
hafa óslitið siðan. Þvi skal ekki
neitað að við kviðum þvi nokkuð
að fá svo stóra fjölskyldu i húsið
og vissulega óráðin gáta hversu
til tækist um sambýlið. En það er
skemmst frá að segja að allur var
sá kviði ástæðulaus og þakkaði ég
það ekki sizt glaðlyndi þeirra
hjóna og einstakri tillitssemi,
hver sem i hlut átti. Börn okkar
og reyndar fjölskyldurnar bund-
ust þá vináttuböndum sem ekki
hafa raknað siðan. Oft á sið-
kvöldum var skroppið i kaffi til
Kristinar og rifjaði Guðmundur
þá upp glaðar stundir frá Akur-
eyri og minntist þá félaganna úr
Karlakór Akureyrar, en Guð-
mundur var einn af stofnendum
kórsins.
D. 30.10. 1972
Sumarið 1956 keyptu þau hjónin
ibúð að Kambsvegi 22 og hafa
búið þar siðan. Vafalaust hefur
Guðmundur þá lagt harðar að
sér en góðu hófi gegndi, þvi
nokkru siðar fékk hann hjarta-
áfall er hrjáði hann til dauðadags
Varð hann þá að leggja frá sér
múrskeiðina og taka upp léttara
starf. Gerðist Guðmundur vakt-
maður við Iðnaðarbankann árið
1962 og vann auk þess ýmis önnur
störf við bankann. Efast ég ekki
um að hann hefur verið góður
liðsmaður .þar, eins og annars
staðar þar sem hann lagði hönd á
plóginn.
Guðmundur var einarður
maður i skoðunum og fór ekki i
felur með álit sitt á mönnum eða
málefnum og gat þá orðið hvass-
yrtur. Engan vildi hann þó særa
KVEÐJA
Guðmundur Magnússon.
Samúð hans var öll óskipt með
þeim, sem stóðu höllum fæti i lifs-
baráttunni. Það þurfti engum að
koma á óvart, ,,þvi hartað var
gott, sem undir sló”.
Við minnumst Guðmundar
Magnússonar þakklátum huga og
sendum konu hans, börnum og
öðrum ástvinum samúðar-
kveðjur.
Sveinbjörn Markússon.
til Guðmundar Magnússonar, múrarameistara.
Meðan okkar lágu saman leiðir
við leiki og starf.
Voru okkar vegir allir greiðir,
hver vandi hvarf.
Er lengra varð á milli okkar Mundi,
var munað, geymt.
Og eftir það við alla endurfundi
um aðra dreymt.
Þó nú um tima verði vegir tepptir,
far vel um sinn.
Kæri vinur, unz ég kem á eftir
þig aftur finn.
Pall Fnðfinnsson
byggingam.
Akureyri.
PIERPONT-URIN
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
ogfallegt
útlit.
Kven-og
karl-
manns
úr af
mörgum
gerðum
og verð-
um.
KORNELIUS JONSSON úrsmiður
Skólavörðustig. Simi 18588.
Bankastræti 6.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i sölu á 600 stk. af þenslusiöngum úr ryð-
friu stáli i ýmsum stærðum fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsskilmálar eru afhentir I skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 12. janúar
1973, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKÍJRBORGAR
FríkirUjuvegi 3 — Sími 25800