Þjóðviljinn - 11.03.1973, Page 11
Sunnudagur 11. marz 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Bryndís Gísladóttir
Minningarorð
A morgun veröur gerö útför
Bryndlsar Gisladóttur, Óöinsgötu
17. Hún andaöist I Landsspitalan-
um siöla föstudaginn 2. marz.
Bryndis var fædd i Reykjavik
26. janúar 1952, og eru foreldrar
hennar hjónin Jóhanna ólafs-
dóttir og GIsli Guðmundsson
verzlunarmaður. Bryndis ólst
upp á heimili foreldra sinna
ásamt tviburasystur sinni, Björk,
og bróöur, Braga bór, sem er
nokkrum árum eldri. Bryndis var
mjög efnilegt barn og hvers
manns hugljúfi. Þegar ég hugsa
til bernskuára hennar, koma mér
i hug þessar ljóðllnur Þorsteins
Erlingssonar:
„Menn fundu þaö aldrei eins
ogþá,
hvaö æskan er Ijúf og fögur”.
En annaö skáld segir, aö sorgin
gleymi engum, og sannarlega
fékk þessi litla stúlka sinn
skammt og þaö fyrr en varöi. Hún
var ekki nema fimm ára gömul,
þegar þess varö vart, að hún var
miklum mun mæönari og þrek-
minni i leik en jafnaldrar hennar,
og viö rannsókn fannst lokugalli i
hjarta. Ekki var þess neinn kost-
ur að bæta mein Bryndisar litlu
hér heima, heldur varð móöir
hennar að fara meö hana til
Ameriku, þar sem hjartaskurður
var geröur I hinu mikla Mayo
sjúkrahúsi. En þangaö komst hún
til lækninga vegna fyrirgreiöslu
Magnúsar Agústssonar læknis.
Þetta var erfiö för fyrir sjö ára
telpu og móöur hennar, og mér er
enn i minni, aö ættingjar og vinir
biöu milli vonar og ótta eftir frétt-
um að vestan. En þær fóru ekki
erindisleysu. Bryndis kom heim
heil heilsu, og rómuðu þær mæög-
ur mjög allt þaö, sem fyrir þær
var gert þar vestra. Minnisstæö-
ust úr þeirri för hygg ég, að þeim
hafi oröiö einstök hjálpsemi og
hlýja Guöjóns Lárussonar læknis
og konu hans, en þau voru i
Rochester um þessar mundir.
Næstu árin lék allt i lyndi.
Bryndís var heil heilsu og henni
sóttist nám i skólum mjög vel.
Þar eignaöist hún góöa vini og fé-
laga. Ég man vel, hve kennari
þeirra systra i barnaskóla, Stefán
Jónsson rithöfundur, minntist
þeirra hlýlega. Bryndis átti sér
sumarland vestur við Djúp hjá
góðri ömmu, Sigriöi Samúelsdótt-
ur á Vonarlandi. Þar átti hún
marga góöa stund i sólskini á
sumardegi, og sá staöur mun
hafa veriö henni kærastur allra
staða. Strax og aldur og þroski
leyfði, fór Bryndis aö vinna á
sumrin, var viö gæzlu barna,
verzlunarströf og i sildarvinnu. A
þeim vettvangi eignaðist hún vini
og félaga.
Þannig liöu góöu árin hennar,
og þau voru fljótt liðin hjá. Hún
var oröin sextán ára og komin I
Menntaskólann. Lffið virtist
brosa viö þessari góöu og vel
gefnu stúlku, gatan greiö til
mennta og starfa. Þá skall ógæf-
an yfir. Illkynjaöur sjúkdómur
heltók likama hennar, svo aö nýr-
un hættu að mestu aö starfa.
I fyrstu lá Bryndis i Landakots-
spitala og naut þar meöal annars
umhyggju fornvinar sins Guöjóns
læknis Lárussonar. Veröur hon-
um seint fullþakkað þaö, sem
hann gerði fyrir Bryndisi. Siöar,
þegar sjúkdómurinn færöist i
aukana, reyndist henni lifsnauö-
syn aö vera i gervinýra tvisvar i
viku og fluttist þá i Landsspital-
ann. Var hún þar i umsjá Páls Ás-
mundssonar yfirlæknis, sem
geröi allt, er i mannlegu valdi
stóö henni til bjargar. Bar Bryn-
dis einlægan þakkarhug til hans
og hjúkrunarliðsins á þeim staö.
Það eru mikil og þungbær um-
skipti að hverfa úr glöðum hópi
vina og félaga á björtum morgni
lifsins og vera fjötrúö i sjúkra-
rúmi af ólæknandi sjúkdómi. Svo
hörö og þungbær eru þau örlög, aö
orö segja þar fátt af. Þá reynir
meira á þrek og hugrekki en
nokkru ungmenni er I rauninni
ætlandi aö þola. Eflaust hefur
Bryndis lifaö margar örvænting-
arstundir á þeim fimm löngu ár-
um, sem I hönd fóru, en okkur
fannst hún vera hetja, og ég held,
aö hún hafi aldrei gefið upp alla
von. Og blik af hennar vonum
lýstu hugi þeirra, sem næst henni
stóöu, hvaö sem skynsemi og rök-
um leið. Viö vonuðum, ef ekki
legöist annaö til, aö upp kynni aö
finnast meöal, sem aö gagni
kæmi, áöur en þaö yröi um sein-
an.
Þótt sjúkdómslega Bryndisar
væri löng og erfiö, grúföi þó ekki
samfellt myrkur yfir henni. alla
þá stund. Hvenær sem af henni
bráöi, reyndi hún af veikum
mætti aö taka einhvern þátt i eöli-
legu lifi. Mestan huga haföi hún á
náminu, las i rúminu, þegar hún
var svo hress, og fór i Mennta-
’ skólann nokkrum sinnum. En þótt
allt væri þar gert, sem unnt var,
henni til hagræðis, kom sjúk-
dómurinn I veg fyrir alla slika
viöleitni. Oft var hún furðanlega
glööog hress, og margs góös naut
hún á sinn hátt, ástrikis og um-
hyggju foreldra og systkina og
einlægrar vináttu margra.
Hugir manna og tilfinningar
skirast i sorg likt og málmar i
eldi, og þjáningin þokar fólki
saman. Viö vorum mörg, sem
kynntumst Bryndisi vel og náiö
þessi löngu ár, og stundir þær,
sem viö vorum I návist hennar,
munu lifa lengi i hugum okkar,
yljaðar i minningunni af hugrekki
hennar og mannkostum.
Foreldrum og systkinum Bryn-
disar votta ég einlæga samúö.
Blessuö sé minning hennar.
Bryndís Gísladóttir
Þú varst svo stór, svo sterk i þjáningunni,
þvi strengir hjartans þoldu alla raun.
i vonleysi bjó von í tjáningunni
sú vissa hún er draumsins sigurlaun,
að ofar hverju angri væri gleðin
i yndislegri sýn hins bjarta dags.
Þvi fylgdi lika þér á banabeðinn
hið bezta skin, já, allt til sólarlags.
Þú vissir, Bryndis, hve þér allir unnu,
of aldrei gleymist þú, er varst svo kær.
En æviþráð þinn örlög stuttan spunnu
i innileik þú varst svo hverjum nær.
Og leiðin þin á lifsins æðsta végi
mun létt og fögur, gleði og blóinum stráð,
Þú verður okkur vonarljós á degi,
ég veit þú hefur sliku marki náð.
Ingólfur Jónsson frá Prestbakka.
Tilboð óskast i gerð byggingarmannvirkja virkjunar I
Mjólká I Arnarfiröi — Mjólkár II.
Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000.00 kr.
skilatryggingu.
Tilboð vorða opnuð miðvikudaginn 25. april 1973, kl. 11.00
f.h.
INNKAUPÁSTOFNUN RÍKISINS
o
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Viðskiptafræðingur
Viljum ráða viðskiptafræðing nú þegar
eða i vor. Nánari upplýsingar veitir
starfsmannastjóri.
LANDSBANKI ÍSLANDS
Auglýsing
Atvinnueflingarsjóður Kópavogs auglýsir
eftir umsóknum um styrki til sérstakra
rannsókna og athugana i nýjum greinum
atvdnnurekstrar i Kópavogi.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá for-
manni sjóðsins Álfhólsvegi 5, Kópavogi,
simi 41570.
Umsóknarfrestur til 1. júni 1973.
Stjórn Atvinnueflingarsjóðs Kópavogs.
Framkvæmdastjóri
Stjórn Félags islenzkra bifreiðaeigenda,
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra
fyrir félagið.
Upplýsingar um starfið veita stjórnar-
menn, eða Magnús H. Valdimarsson, á
skrifstofu félagsins, Armúla 27.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist formanni
Félags islenzkra bifreiðaeigenda,
Kjartani J. Jóhannssyni, á skrifstofu
félagsins fyrir 31. marz n.k.
Stjórn Félags islenzkra bifreiðaeigenda.
Auglýsingasíminn er 17500
Gunnar Guðmundsson.