Þjóðviljinn - 21.03.1973, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. marz 1973
LITLI
GLUGGINN
Þessi mynd er frá Þrándi úlfarssyni. Hann er 5 ára.
Við þökkum þér fyrir myndina, Þrándur.
DRENGURINN Á
HVERGI HEIMA
Einu sinni var drengur, sem
hét Stefán Bjarnason. Hann var
12 ára og var i heimsókn hjá
frænku sinni. Frænka hans hét
Margrét Geirsdóttir. Einn
daginn fór Margrét út i búð til að
kaupa i matinn. Stefán var
aleinn inni og var að lesa i bók.
Þá heyrir hann að barið er á
dyrnar, og hann fer til dyra. Þar
sér hann litinn dréng, sem var i
fatalörfum einum klæða.
Drengurinn spurði Stefán, hvort
hann gæti gefið sér dálitinn
matarbita.
Biddu við, sagði Stefán.
Skömmu siðar kom hann með
kjötbita á diski og mjólkurglas.
Gerðu svo vel, sagði Stefán.
Takk fyrir, sagði drengurinn
og byrjaði að borða.
í sama mund kom Margrét inn
og sá drenginn.
Hvað er...?
Þetta er drengur, sem kom
áðan að biðja um mat. Og svo
sagði Stefán alla söguna.
Vesalingurinn, sagði Margrét.
Hvað heitirðu vinurinn?
Jósep, svaraði drengurinn
dræmt og var feiminn.
Við verðum að gefa honum
góðan mat, svo að hann nærist
eitthvað. Séruðu hvað hann er
horaður? Við skulum lofa honum
að sofa hjá okkur eina nótt ef
ekki lengur. Það fer eftir þvi
hvernig honum liður.
Og drengnum leið svo vel hjá
þeim, að þau lofuðu honum að
vera hjá sér. Margrét var ekkja
og hafði hún misst mann sinn i
sjó. Hún er mjög góð við börn og
hjálpaði þeim, ef eitthvað
bjátaði á.
Og hér lýkur sögunni um
Stefán og Jósep.
Ingólfur Bjarnason
i.
Þekkið þið þetta
merki? Þarna
standa 2 ensk orð,
peace sem þýðir
friður, og love sem
þýðir ást. Það er
Ingólfur Bjarna-
son, sá sem samdi
söguna, sem sendi
okkur myndina.
L?
V
,,Myndin á bara að heita Litill fugl”, sagði hún Snæ-
friður Jóhanna Þorsteins. Hún er 4 ára. Þetta er
ósköp fallegur litill fugl, finnst ykkur ekki?
VA
'r,')
; , /
£ LDífi'
Þessa mynd teiknaði Guðrún Hjálmtýsdóttir, Kópa-
vogi. Eitthvað er sólin nú hugsi yfir þessum-
ósköpum.
\ J uJl ik: r~\
Q; - Q'-.. Q
HAL LÐóM-TmsTADoTr/£Uu(rOft 7ar/\
Þessa mVd sendir 7 ára stúlka, Halldóra Traustadóttir, Laugum, S.
Þing. Liztykkur ekki vel á höllina, krakkar? Og hér er smá þraut:
Hvar er klukkan, og hvað er hún?