Þjóðviljinn - 21.03.1973, Qupperneq 3
Miðvikudagur 21. marz 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
EBE hyggst beita þvingunum
— vill kúga okkur til uppgjafar
Fréttir hafa nú borizt frá aðalstöðvum Efnahags-
bandalags Evrópu i Brussel um að bandalagið muni
framkvæma þá hótun sina að synja okkur íslend-
ingum um þau tollfriðindi varðandi sjávarafurðir,
er samningurinn við Efnahagsbandalagið, sem
staðfestur var á alþingi á dögunum, gerir ráð fyrir.
Sem kunnugt er setti Efnahags- un viðsk'iptasamningsins á sinum
bandalagið fyrirvara af sinni tima, — og áskildi sér þar rétt til
hálfu um þetta atriði við undirrit- að skjóta á frest gildistöku þess
Brezkur prófessor
Flytur erindi
um tengsl
iðnaðar og
s j á varút vegs
Stofnuð nefnd til
að vinna að friðun
Norðurhafa
Nokkrir einstaklingar hafa
ákveðið að mynda nefnd, sem
hafi það hlutverk að vinna að
samstarfi smáþjóða við Norð-
ur-Atlanzhaf um friðun fiski-
stofna, ráðstafanir gegn
mengun og friðlýsingu Norð-
ur-Atlanzhafs. Ákveðið hefur
verið að halda fund i kvöld i
Norræna húsinu þar sem fjall-
að verður um formlega stofn-
un nefndar um friðun Norður-
hafa og kosin framkvæmda-
stjórn hennar. Á fundinum i
kvöld mun prófessor Norman
A. Godman frá Edinborgarhá-
skóla halda erindi. Godman er
prófessor i iðnaðarfélagsfræði
við háskólann i Edinborg, en
hefur að undanförnu fjallað
sérstaklega um tengsl milli
sjávarútvegs og iðnaðar.
Hann hefur einnig gert sér far
um að kynnast landhelgismál-
inu og hefur hann m.a. skrifað
greinar i brezka blaðið
„Tribune” um það mál.
Fundurinn i kvöld hefst
klukkan 20,30.
ákvæðis er lýtur að innflutnings-
tolli á sjávarafurðum svo lengi
sem við ættum i deilu við Breta og
Þjóðverja um landhelgismálið.
Ýmsir töldu að þetta volduga
bandalag mundi láta sitja við hót-
unina eina i þessum efnum, og
heyrðust slikir spádómar hér
heima úr röðum þeirra, sem
ákafast börðust fyrir staðfestingu
viðskiptasamningsins við EBE nú
þegar. En nú mun sem sagt liggja
endanlega fyrir, að Efnahags-
bandalagið metur meira að fram-
fylgja i þessu máli stórvelda-
hagsmunum Breta og Þjóðverja,
en aö koma til móts við lifshags-
muni okkar tslendinga.
Sú niðurstaða þarf vissulega
engum að koma á óvart, þegar
haft er i huga eðli og ferill þessa
bandalags.
Viðskiptasamningur okkar við
bandalagið kemur að öðru leyti til
framkvæmda nú þann 1. april, en
vert er að hafa I huga að af heild-
arútflutningi okkar til Efnahags-
bandalagslandanna, sem var 1900
miljónirkr. á áriárin 1970 og 1971
voru 1800 miljónir sjávarafurðir,
en aðeins 100 miljónir aðrar
vörur.
Það er þvi aðeins um 5% af út-
flutningi okkar til þessara landa,
sem hljóta tollfriðindi nú um
mánaöamótin, en 95% útflutn
ings okkar, þ.e. sjávarafurðirnar
setja höföingjar Efnahagsbanda-
lagsins I Brlissel á svartan lista
og reyna með þvi að kúga okkur
til undanhalds i landhelgismál-
inu.
En það mega herrarnir i
Brössel vita, að okkur tslending-
um verður ekki i hel komiö með
slikum aðferðum, og ekki eykur
þessi auðvaldssamsteypa, sem
Efnahagsbandalagið er, hróður
sinn á Islandi með þvi að ganga
svo berlega erinda Breta og
V.-Þjóðverja i landhelgismáli
okkar.
Hver vill til
Kína fyrir
138 þús. kr.?
Hefur einhver áhuga á að fara
til Kina og vera þar I 15 daga fyrir
138 þúsund kr.? Ef svo er þá gefst
þeim hinum sama tækifæri til
þess hinn 12. april nk. en þá hefur
ferðaþjónusta Loftleiða fyrirhug-
að að fara 15 daga hópferð til
Kanton I Kina, þar sem ein
stærsta vörusýning er haldin er i
Asiu stendur yfir.
Að þvi er Gylfi Sigurlinnason
hjá Loftleiðum sagði okkur I gær
þurfa minnst 10 manns að skrá
sig til þessarar ferðar svo af
henni verði. Ferðaáætlunin verð-
ur I stórum dráttum á þann veg
að flogið verður héðan 12. april til
Kaupmannahafnar og þaðan til
Bangkok daginn eftir: siðan til
iHong Kong. Þaðan verður svo
Ifarið með lest til Kanton. Verður
dvaliö i Kanton frá 15. til 22. april
en siðan veröur dvalið i 4 sólar-
hringa i Hong Kong og síðan 2
sólarhringa I Bangkok i bakaleið-
inni.
Eins og áður segir kostar þessi
ferð 138 þúsund kr. og er þá inni-
falið allar feröir, fullt fæði og
gisting til og frá Kaupmannahöfn.
Gylfi sagði að þeir hjá Loftleiö-
um hefðu áður reynt að fara ferð
á borð við þessa en þá heföi ekki
næg þátttaka fengizt. Hann sagð-
ist þvi miður ekki vera bjartsýnn
á að þetta tækist frekar núna, en
þó hefðu nokkrir aðilar leitað
upplýsinga um þessa ferð. En
enginn hefur enn pantað far.
—S.dór
Harður árekstur
Mjög harður árekstur varð á
Kleppsveginum i gærdag.
Vuxhall bifreið var ekiö i noröur-
átt á móts við vegamótin niður á
Kleppi og var bifreiðin að beygja
af hægri vegarhelmingi yfir til
vinstri og inná bilastæði, þegar
VW bifreið kom á mikilli ferð og
lenti á hlið Vuxhall—bifreiðar-
innar, sem fór um við
áreksturinn.
t Vuxhall-bifreiðinni voru tvær
konur, og 3 börn i aftursætinu og
meiddust þau öll eitthvað, en
konan sem var farþegi sinu mest.
Ekkert þeirra mun þó hafa
meist lifshættuiega. Báðir hil
arnir eru mjög mikið skemmdir
- S.dór.
Gerum allt sem við getum
segir Helgi Bergs formaður viðlagasjóðs
Það hefur sjálfsagt ekki farið
fram hjá neinum að þeir menn
sem vinna við að stöðva hraun-
rennslið I Vestmannaeyjum hafa
kvartað undan skilningsleysi
yfirvalda varðandi aukin tæki til
starfansjog segja þeir að mikiö
vanti á að nóg sé af vatnsdælum i
Eyjum.
Við snerum okkur til Helga
Bergs formanns viðlagasjóðs og
spurðum hann hverju hann vildi
svara þessu. Helgi sagði það
hrein og klár ósannindi að við-
lagasjóöur hefði ekki gert allt
sem honum væri unnt til að út-
vega dælur, bæði innanlands og
utan, og að þær tilraunir stæðu
enn yfir.
—■ Mér finnst, sagði Helgi, að
þeir menn sem stjórna þessu
starfi út i Eyjum og hafa ásakað
okkur um skilningsleysi hafi ekki
sjálfir skilning á þvi hvað vantar.
Til að mynda heyrði ég eftir ein-
um þeirra, að það sem vantaði
mest væri dæluskipið Hákur. Nú
er það svo, að við erum með tvö
skip i Eyjum, sem eru sams kon-
ar dæluskip og Hákur er, dýpkun-
arskip, sem geta ekki dæít með
neinum þrýs.tingi. Þessi skip eru
gerð til að dæla upp af botninum
og gusa bara örfáa metra.
Það sem okkur vantar eru dæl-
ur sem geta komið þessu marga
tugi metra upp i loftið. Við höfum
fengið æði margar dælur til Eyja,
en ekki eins margar og við hefð-
um viljað. Það stafar einvörð-
ungu af þvi að þær eru ekki til i
landinu. Við erum að reyna að fá
þær annars staðar frá og ég hef
verið i sambandi við menn i Nor-
egi.SviþjóðogBandarikjunum að
reyna að útvega þessar dælur,og
við höfum vonir um að það megi
takast, sagði Helgi að lokum.
—S.dór
Yíða beitt lagakrókum:
Lögbann á kosningar
Borgarfógeti hefur i mörgu að
snúast þessa dagana. Eins og
frægt er oröið kvöddu
Bjarna-menn hann til liðs við sig
til að leggja lögbann á fund
Hannibals-manna i SFV. i gær
var hann aftur á feröinni með lög-
bannið á lofti. Að þessu sinni var
það utankjörstaöaatkvæöa-
greiðsla til Háskólaráðs sem ekki
mátti fara fram. Sá sem krafðist
þessara afskipta dómsvaldins var
Staksteinahöfundurinn og fram-
bjóðandi Vöku Davið Oddsson.
Þegar þetta spurðist sendi Fé-
lag náttúrufræðinema i Ht frá sér
dreifibréf það sem hér fer á eftir:
Klámhögg
Ihaldsframbjóðandans
Ekki leggja þeir litið á sig
Vökupaurarnir til þess að koma i
veg fyrir eigið fall i opinberum
kosningum hér i Háskólanum.
Nýjasta nýtt er að setja lögbann á
utankjörstaðaatkvæðagreiðslu til
Háskólaráðs. DAVIÐ þessi
ODDSSON, laganemi, Stak-
steinahöf. og frægur trúður,
mætti með friðu fötuneyti á
Grensásvegi 12 i morgun 20.
marz, þegar kjörfundur hafði
verið opinn i 15 min. Ekki dugði
minna en FÓGETI og HöRÐUR
EINARSSON hrl. (Fulltrúaráðs-
maður I Sjálfstæðisfl., I útgáfu-
stjórn Alþýðublaðsins og lögfræö-
ingur Hannibals i erjum hans við
Bjarna Guðna og Co.) Auk þess
voru 2—3 Vökupilar i förinni. Til-
gangurinn var að stöðva kosn-
ingu, sem þeir og gerði með þvi
að láta fógeta leggja lögbann við
utankjörfundaratkvæðagreiösl-
unni.'
Slikt kostar dálaglega peninga-
fúlgu, tryggingu, sem Vöku,
Heimdall og Sjálfstæðisflokkinn
munar litið um. Meira þurfti ekki
til að koma i veg fyrir að nemend-
ur I náttúrufræðum fengju að
njóta kosningaréttar sins.
Forsaga þessa máls er sú, að
Félag Náttúrufræðinema fór
fram á það við kjörstjórn, að hún
efndi til utankjörfundar, þar sem
félagið géngst fyrir Færeyjaferð
22. þ.m. þ.e. daginn áður en kosiö
verður til Háskólaráðs. Með sjálf-
sögðu samþykki kjörstjórnar
hófst þvi kjörfundur á Grensás-
veginum i morgun kl. 10. Til
grundvallar lögbanni sinu vefur
Davið sig i lagakrókum kosninga-
laga og hengir sig I þaö að kjör-
stjórn hafi ekki auglýst kjörfund-
inn á réttum stöðum. Einnig
heyrðust raddir um 2 laganema
sem væru á ísafiröi og gætu þvi
ekki kosið vininn. . . Betri afhjúp-
un ræfildómsins er ekki hægt aö
hugsa sér, og sú áræðni Daviðs
Oddssonar aö taka meö fógeta-
valdi kosningarétt af heilli deild
Háskólans sýnir hugarfar þeirra
Húsavik:
Þar draga
„kopparnir”
björg í bú
Rœkjaer i flóanum,
en a miklu dýpi
Afli hjá Húsavikurbátum er
tregur, sagði talsmaður
Fiskiðjusamlagsins, er blaðiö
leitaði frétta þar nyðra. Aftur
á móti eru menn ekkert svart-
sýnir, þar sem þessi timi er
yfirleitt heldur daufur hvað
snertir fiskveiðar. Mikill fjöldi
smærri báta stundar veiðar
frá Húsavik, á trolli og linu
flestir, og handfærabátar eru
að heja veiðar. Til Húsavikur
hafa borizt 90 tonn af loðnu
sem fryst var til beitu, en ekki
hefur afli glæðzt afgerandi við
loðnubeitingu enn sem komið
er. Aflinn er eingöngu þorsk-
ur, nokkuð góð stærð, en
dálitið misjafnt eftir þvi hvar
borið er niður.
1 vetur var gerð tilraun til að
veiða rækju, en veður hamlaði
stöðugt veiðum. Menn eru
bjartsýnir á að hægt sé að
veiða töluvert af rækju i flóan-
um.
Það var bátur úr Reykjavik
sem gerði þessa tilraun og var
tilraunin studd af heima-
mönnum. Rækjan er á miklu
dýpi og þvi þarf stóran bát til
þessara veiða og kynni að
verða gerð önnur tilraun fljót-
lega.
Skelfiskur hefur ekki fundizt
i flóanum i nýtanlegum mæli.
Atvinna við fiskvinnslu var
ágæt i jandar, en alldauft
siðari hluta febrúar og i
byrjun marz, en viðunandi
núna.
Húsvikingar treysta ekki á
stór skip, og hafa ekki i huga
að kaupa skuttogara. Treyst
er á minni skip; þar eru gerðir
út núna þrir 35 tonna bátar og
töluvert af 10—12 tonna bátum
og þeir skila drjúgum afla. —
sj.
Talsvert
um veiði
í gær
Rétt fyrir kl. 7 i gærkvöldi
höföu tólf skip tilkynnt um
loðnuafla, samtals 3.160 tonn, en
búizt var við að fleiri skip
myndu gefa sig fram fyrir
myrkur. Heimir var með 440
tonn. Loftur Baldvinsson með
400 tonn og Hilmir 360 tonn.
Þessi skip ætluðu að sigla með
aflann a“ Austfjarðaíhafnir,
enda fengu þau aflann á veiði-
svæði þrjú, eöa austasta
svæöinu. Loðnan veiðist mjög
nálægt landi og þarf að kasta
oft. Talsvert var um að bátar
rifu nætur og þannig varð Guð-
mundur RE að sigla til
Reykjavikur með rifna nót og
Eldborgin til Hafnarfjarðar
einnig með rifna nót, en þetta
eru tvö aflahæstu skipin.
Vökupilta til hins almenna nem-
anda hér i Háskólanum, hugar-
far, sem er 1 fullu samræmi við
fyrri afstöðu þeirra aö reyna að
koma I veg fyrir að nokkrar kosn-
ingar til Háskólaráðs færu fram.
Ósvifni af þessu tagi látum við
ekki viðgangast.
Davið veröur felldur I kosning-
unum á föstudaginn, enda lengist
afrekaskrá hans i réttu hlutfalli
við dauöakippi ihaldsins.
FÉLAG
NATTÚRUFRÆÐINEMA,
H.t.
Þess má að lokum geta aþ kosn-
ingar þær sem fram eiga að fara
á föstudaginn eru endurtekning-
arkosningar en fyrri kosningar
voru ógiltar þar sem Vökupilt-
arnir flæktu þær i lagaklæki.
—ÞH