Þjóðviljinn - 21.03.1973, Side 5
Miðvikudagur 21. marz 1973 ÞJóÐVILJINN — StÐA 5
Vinstri borgarfulltrúar vilja rannsókn:
Hver er orsök gatna-
skemmdann a í Rvík?
Hvað veldur
skemmdunum á götum
Reykjavikur? Um-
hleypingar? Salt-
burður? Nagladekk?
Lélegt malbik? ófull-
nægjandi undirbygging?
Lega landsins?
Allar þessar orsakir voru
nefndar i umræðum um
ófremdarástandið i gatnamálum
Reykjavikur á siðasta fundi
borgarstjórnar, þar sem borgar-
fulltrúar vinstri flokkanna lögðu
fram sameiginlega tillögu um að
látin verði fara fram sérfræðileg
athugun til að fá sem raunhæfust
svör við eftirfrandi atriðum :
1. Hvaða ástæður valdi þeim
stórfelldu skemmdum, sem orðið
hafa nú i vetur á malbiksgötum
borgarinnar.
1 þvi sambandi verði öll atriði
við undirbyggingu, gerð og
lagningu malbiks sérstaklega
rannsökuð svo og áhrif negldra
hjólbarða og salts, sem borið er á
göturnar.
2. Hvort saltburður á götur
dregur i reynd nokkuð úr slysa-
hættu og hvað áætla megi, að
hann kosti árlega bileigendur i
borginni vegna örari ryð-
myndunar og lélegri endingar
bilanna.
Lögðu flutningsmenn til, að
borgarráði yrði falið að annast
framkvæmd slikrar samþykktar
og lögðu i þvi sambandi áherzlu á,
að leitað yrði bæði til innlendra og
erlendra sérfræðinga og allt gert
sem unnt væri til að finna úrbætur
á þvi ófremdarástandi, sem
rikjandi er i gatnamálum
borgarinnar.
100 miljónir
i viðgerðir
Kristján Benediktsson bfltr.
sagði, að vafalaust ættu allar
ofangreindar orsakir sinn þátt i
ástandinu, en svo virtist þó, sem
allt væru þetta meira og minna
ágizkanir, sem ekki byggðust á
raunhæfri rannsókn. Viðgerðir á
götum Reykjavikur kostuðu stór-
fé árlega, alltað 100 miljónum á
þessu ári, en auk þess væri aldrei
tekið með i dæmið, hve mikið
lélegar götur kostuðu bileigendur
i borginni.
Hann minntist á deilurnar um
nagladekkin og saltið og sagði, að
setja þyrfti bann við notkun
negldra hjólbarða tiltekna
mánuði. Hann minnti á að mjög
væri deilt um öryggi saltsins og
héldu margir fram, að það yki
slysahættu vegna áhrifa á ljósa-
útbúnað og annan öryggisútbúnað
bifreiða. — Við þurfum að taka
upp fyrirbyggjandi aðgerðir,
sagði Kristján, og hætta þeirri
happa- og glappaaðferð, sem við
búum við i dag
Olaíur B. Thors, fulltrúi meiri-
hlutans, var sammála, að
göturnar væru illa farnar, en sér
væri ekki ljóst, sagði hann,hvort
orsakirnar væru sá leyndar-
dómur er flutningsmenn til-
lögunnar virtust telja og þess-
vegna ekki ljóst, hvort árangur
fengist útúr þeirri rannsókn, sem
tillagan gerði ráð fyrir. Margar
eldri göturnar þyrftu endur-
nýjunar og væru of veikbyggðar
fyrir þetta veðurfar, þvi þær
hefðu verið malbikaðar á þeim
tlma er ekki var miðað við það
burðarþol er stóraukinn um-
ferðarþungi krefðist. Hann taldi
saltið sem slikt ekki eyðileggja
malbikið og væri sandur og salt
langmest notaða efnið til að
draga úr hálku á Norðurlöndum,
hins vegar væri til betri
dreifingarútbúnaður fyrir salt en
hér væri notaður. Hann lagðist á
móti þvi, að leitað yrði til
erlendra sérfræðinga, heldur
skyldi tillögunni visað til borgar-
ráðs, sem þá kallaði til sin við-
komandi embættismenn
borgarinnar til umræðna.
Kristjáni Ben. fannst þetta ekki
annað en sem búast mátti við, að
meirihlutann skorti áræði til að
samþykkja að borgarstjórn tæki
afstöðu I málinu. Það væri geysi-
þýðingarmikið ef draga mætti úr
fjáraustrinum, sem færi i gatna-
viðgerð, en öryggismálin væru
ekki siður mikilvæg, td. rannsókn
á þvi, hvort salt drægi úr slysa-
hættu eða gagnstætt.
Breytum ekki
legu landsins
Sigurjón Pétursson fltr.
Alþýðubandalagsins sagði alla
sammála um margar orsakanna
til gatnaskemmda, en ástand
gatnanna nú sýndi einmitt, að
árangur af athugun embættis-
manna borgarinnar væri harla
litill og vel fórnandi nokkru fjár-
magni til að reyna að komast að
grundvallarorsökum
skemmdanna. Kenningu Ólafs
um aldur gatna visaði hann á bug,
þvi færi viðsfjarri, að
skemmdirnar takmörkuðust við
eldri göturnar.
Ekki væri heldur hægt að kenna
um umhleypingasamri tið og legu
landsins, sagði Sigurjón. — Við
breytum ekki lengu landsins, um-
hleypingar halda áfram, og þess-
vegna verðum við að gera
göturnar þannig úr garði, að þær
þoli þessa umhleypinga. Og til
þess þurfum við rannsókn, við
þurfum ma. að vita hvað er öðru-
visi hér en annarsstaðar.
Þá væru auk þess skapaðir um-
hleypingar með saltburði, leystur
upp snjór og is, sem siðan frysi
aftur. Saltið hefði marga ókosti,
t.d. áhrif á ljósaútbúnað og útsýni
úr bilum og væri fyllilega tima-
bært að fram færi raunhæft mat á
þvi, hvort raunverulega væri
aukið öryggi af saltburðinum.
Tillögunni var vfsað til borgar-
ráðs með samhljóða samþykkt.
— vh
Eigum við að
trúlofa okkur?
þessi auglýsing er ætluð
ástföngnu fólki úti á landi.
Kæru elskendur! Það er nú, sem við í Gujli og Silfri getum gert ykkur það kleift
að hringtrúlofast innan nokkurra daga, hvar sem þið eruð stödd á landinu.
1. Hringið eða skrifið eftir okkar fjölbreytta myndalista sem inniheldureittfalleg-
asta úrval trúlofunarhringa sem völ er á og verður sendur ykkur innan klukkust.
2. Með myndalistanum fylgir spjald, gatað í ýmsum stærðum. Hvert gat er núm-
erað og með því að stinga baugfingri í það gat sem hann passar í, finnið þið
réttu stærð hringanna sem þið ætlið að panta.
3. Þegar þið hafið valið ykkur hringa eftir niyndalistanum skuluð þið skrifa
niður númerið á þeim, ásamt stærðarnúmerunum og hringja til okkar og við
sendum ykkur hringana strax í póstkröfu.
Með beztu kveðjum,
(EiiU og i’ilfur
Laugavegi 35 - Reykjavik - Simi 20620
a.
U1
TÓNLISTARNEFND
Menntamálaráðuneytisins um norræna
samvinnu (Nomus) gjörir kunnugt, að
Menningarsjóður Norðurianda hefur veitt
fé til að greiþa fyrir ný tónverk norrænna
tónskálda og fyrir tónleikahald á Norður-
löndunum. Fyrir ný tónverk nemur
upphæðin d.kr. 160.000.00. Fyrir
tónleikahald nemur upphæðin d.kr.
350.000.00. Tónverk má eingöngu biðja
um af höfundi annars lands til fiutnings
hér. Tónleikar skulu haldnir af islenzkum
flytjendum á hinum Norðurlöndunum.
Umsóknir berist fyrir 1. april 1973.
Nánari upplýsingar veitir:
Tóniistarnefndin
c/o Ríkisútvarpið
Skúiagötu 4, Reykjavik
Simi: 2 20 60
Aðalfundur
Iðnaðarbanka
íslands hf.
verður haldinn i Kristalssal HótelsLoft-
leiða i Reykjavik laugardaginn 31'. marz
n.k., kl. 2 e.h.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf, samkv. 22.
gr. samþykkta bankans
2. Aukning hlutafjár.
3. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum og umboðsmönnum
þeirra i aðalbankanum, Lækjargötu 12,
dagana 26. marz til 30. marz að báðum
dögum meðtöldum.
Reykjavik, 19. marz 1973.
Sveinn B. Valfells
form. bankaráðs.
TILKYNNING
Við höfum flutt skrifstofu okkar að
Borgartúni 23 og verður simi okkar þar
8 12 44
Simi verkstjórans er óbreyttur 83120.
Ctborgun reikninga verður framvegis á
miðvikudögum.
HEGRI H.F.
TRÉSMIÐIR -
VERKAMENN
Óskum að ráða 2 trésmiði og verkamenn
strax, i Fæðingardeildarbygginguna.
Upplýsingar i sima 23353.