Þjóðviljinn - 21.03.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. marz 1973
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSIALISMA/
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Otgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviijans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi.
Lausasöluverö kr. 18.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
TÖFRAORÐ RISAVELDANNA
Það er viðar en á íslandi, sem menn
deila um, hvort réttmætt sé að draga úr
vigbúnaði eða leggja niður herstöðvar.
Hvar sem slikar kröfur eru gerðar koma
fram æfðir stjórnmálamenn og segja: Við
megum ekki rasa um ráð fram, ekki má
raska valdajafnvæginu i heiminum? — og
svo er bætt við: vissulega kemur til mála
að draga úr vigbúnaði og leggja niður her-
stöðvar, en allt slikt verður bara að gerast
samkvæmt samningum risaveldanna, svo
að ekkert fari nú úrskeiðis.
Við þekkjum þessi svör hér heima á Is-
landi við kröfum islenzkra herstöðvaand-
stæðinga, en þau hljóma svo sannarlega
viðar.
Á Bandarikjaþingi liggur nú t.d. fyrir
tillaga um að kalla heim á 18 mánaða
timabili meginhlutann af bandariskum
hermönnum i Evrópu. Þessi tillaga er
borin fram af mjög áhrifamiklum þing-
mönnum úr báðum flokkum svo sem Mike
Mansfield forystumanni demókrata á
Bandarikjaþingi og studd af William Ful-
bright formanni utanrikismálanefndar
öldungadeildarinnar.
Samkvæmt siðustu fréttum er Nixon
Bandarikjaforseti mjög uggandi vegna
þessarar tillögu og vegna þess, hversu
mikils stuðnings hún nýtur. Hann reynir
þvi með öllum ráðum að koma henni fyrir
kattarnef og beitir þá fyrst of fremst
þeim rökum, að hann ætli sér að semja um
þessi mál við Rússa og ekkert megi
ákveða meðan á þeim samningum standi.
Á Bandarikjaþingi eru sem sagt tvær and-
vigar fylkingar i þessum efnum.
Hvorum megin halda menn nú að dr.
GylfiÞ. Gislason, sem hélt ræðuna á fundi
Norðurlandaráðs um daginn, væri, ætti
hann sæti á Bandarikjaþingi sem Vest-
ur-lslendingur?
í Danmörku hefur rikisstjórn sósial-
demókrata ákveðið að draga verulega úr
vigbúnaði og stytta herskyldutimann að
mun. Ekki hefur staðið á talsmönnum
„valdajafnvægisins” að snupra Dani fyrir
þessar fyrirætlanir, og þarf vist engan að
undra, áð þar hafa fyrirmenn NATO verið
hvað harðastir i dómum. — Og „rökin”,
sem beitt hefur verið á Dani könnumst við
ákaflega vel við úr umræðum hér heima
um herstöðina á Keflavikurflugvelli. Það
er enn og aftur „valdajafnvægið” milli
risaveldanna, sem Jón Skaftason, al-
þingismaður, segir i Timanum i gær að
höfuðsynd sé að hrófla við, — en i sama
blaði er skýrt frá þvi, að hann hafi við
annan mann barizt gegn 16 ræðumönnum
á fundi hjá Framsóknarflokknum, og
vildu þessir 16 allir herinn burt af Kefla -
•víkurflugvelli.
Og liti menn i austur — hvað blasir þá
við, sem helzta röksemd ráðamanna
Sovétrikjanna gegn kröfum um aukið
sjálfsforræði fylgirikja þeirra? Aftur
„valdajafnvægið”, sem ekki má skerða.
Þess vegna m.a. innrásin i Tékkóslóvakiu
1968.
Þeir stjórnmálamenn smærri þjóða,
sem jafnan setja valdajafnvægi risaveld-
anna ofar viðleitni eigin þjóða til frum-
kvæðis i utanrikismálum eru bundnir á
höndum og fótum i snöru þeirra Nixons og
Bréshnévs.
Gætu nú ekki dr. Gylfi, Jón Skaftason og
fleiri góðir menn tekið trú sina á valda-
jafnvægiskenninguna til endurskoðunar
og skipað sér i sveit með William Ful-
bright, þeim bandariska, Anker jörgen-
sen, forsætisráðherra Dana og fleiri slik-
um, en hætt að elta Nixon?
Eða á það máske eftir að ganga yfir
okkur, að islenzkir þingmenn grátbiðji um
erlendan her i landið, þegar meirihluti á
Bandaríkjaþingi hefði ákveðið, að kalla
dátana heim frá Keflavik? Aldrei hefur
þótt gott að eiga mikið undir dómgreind og
glöggskyggni þeirra, sem Svo heittrúaðir
voru að þeir gerðust kaþólskari en páfinn.
Samanburður kennara- og stúdentsprófs
NIÐURSTÖÐUR VÆNTAN-
LEGAR Á ÞESSU SKÓLAÁRI
A fundi Sameinaös þings i gær
svaraöi menntamálaróöherra
fyrirspurn Jónasar Arnasonar
um samanburöarkönnun á kenn-
araprófi og stúdentsprófi meö til-
liti til inngönguréttinda kennara i
Háskólann. I svari ráöherra kom
fram, aö unnið er aö þessari
könnun og er aö þvi stefnt, aö
niðurstöður liggi fyrir á þessu
skólaári.
Jónas Arnason sagði að hann
legði þessa fyrirspurn fram
vegna tilmæla frá nemendum i
Kennaraskólanum. Brátt kæmi
að þvi, að þetta fólk lyki prófi en
það vissi ekki ennn, hvaða rétt-
indi það veitti þvi.
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra, sagði, að
áriö 1972 hefði verið veitt heimild
til að veita mönnum án stúdents-
prófs inngöngu i Háskólann að þvi
tilskildu, aö viökomandi deildir
veittu samþykki sitt og próf um-
sækjenda hefðu verið metin jafn-
gildi stúdentsprófs.
Siðasta sumar hefðu rösklega
30 kennarar sótt um inngöngu i
Hcískólann. Háskólaráð hefði ekki
viljað veita þeim viðtöku með
þeim rökum, að ekki væri tima-
bært að hverfa frá meginstefnu
um undirbúningskröfur, enda
heföi ekki farið fram nein endur-
skoðun á reglum þar að lútandi.
I sumar hefði svo ráðuneytið
fengið bréf frá Sambandi is-
lenzkra barnakennara, og var þar
hvatt til þess, að fram færi sam-
anburðarkönnun á kennaraprófi,
prófi frá tækniskóla og stúdents-
prófi. Ráðherra hefði þá kallað
saman samstarfsnefnd mennta-
skólastigsins, og hefði hún ein-
róma samþykkt, að rétt væri að
fela Sveinbirni Björnssyni, eðlis-
fræðingi, að vinna það verk.
Sveinbjörn hefði siðan hafið þessa
könnun. Stæði hún enn yfir og
væri að þvi stefnt, að henni lyki á
yfirstandandi skólaári.
Gylfi Þ. Gislason (A) spurði
ráðherra, hvað liði endurskoðun
laga um Kennaraháskóla Islands
frá 1972 og hver mundi verða af-
staða prófa þaðan til prófa úr Há-
skóla Islands.
Menntamálaráðherra sagði, að
sú endurskoðun væri hafin, en
hann gæfi ekki yfirlýsingar um
niðurstöður starfs, sem enn væri i
miðjum kliðum.
Rýmka ber ákvæði um
atkvæðagreiðslu
utan kjörfundar
1 haust var lögö fram á þingi'
þingsályktunartillaga um endur-
skoðun laga um kosningar til Al-
þingis. Samkvæmt tillögunni á-
lyktar Alþingi aö fela rfkisstjórn-
inni aö leggja fyrir næsta þing til-
lögur til breytinga á kosningalög-
um meö það fyrir augum aö auö-
velda utankjörfundaratkvæöa-
greiðslu.
Tillaga þessi er nú komin frá
allsherjarnefnd og mælir nefndin
með samþykkt hennar.
Var tillagan til umræöu I Sam-
einuðu þingi f gær, en atkvæöa-
greiöslu var frestaö.
Björn Fr. Björnsson (F) var
framsögumaður fyrir áliti alls-
herjarnefndar. Hann ræddi nokk-
uð um þann tviþætta tilgang, er
fram kemur i greinargerð með
þingsályktunartillögunni, annars
vegar að auðvelda þeim, sem
staddir eru erlendis þátttöku i
kosningum, hins vegar að létta
þeim, sem eru á sjúkrahúsum að
neyta atkvæðisréttar sins.
Auöur Auðuns (S) hefur lagt
fram breytingartillögu um, að i
stað orðanna „leggja fyrir næsta
þing” komi ,,leggja hið allra
fyrsta fyrir þingið”. Hún taldi
þessa breytingartillögu sina
raunhæfa, þvi aðekki væri að vita
nema kosningar yröu innan tiðar.
Svava Jakobsdóttir, fyrsti
flutningsmaður þingsályktunar-
tillögunnar^sagði meöal annars:
Svo sem hæstvirtum þingmönn-
um er kunnugt, hafa islenzkir
námsmenn erlendis sótt þaö af
kappi undanfarin ár, aö breyting-
ar yrðu gerðar á kosningalögum,
með það fyrir augum að auðvelda
þeim að neyta kosningaréttar
sins erlendis.
Ég held, að allir séu sammála
um, að ákvæði núgildandi kosn-
ingalaga um utankjörfundaat-
kvæðagreiðslu séu of þröng. Ann-
markar þeirra koma æ berlegar I
ljós eftir þvi sem námsmönnum
erlendis fjölgar og þeir dreifast
um fleiri lönd. Óhjákvæmilega
hefur farið svo, að kvartanir ber-
ast helzt, er kosningar standa fyr-
ir dyrum, og þá hefur timi verið
ónógur til að gera þær lagfæring-
ar sem aö gagni mættu verða.
Meö flutningi þessarar tillögu nú
höfum við, sem að henni stönd-
um, viljað stuðla að gagngerri
endurskoðun þessara mála,
þannig að unnt sé að vinna rólega
og yfirvegað að þeim breyting-
um, sem allir telja nauðsynlegar.
Þá ræddi Svava nokkuð um
breytingartillögu Auðar Auðuns
og sagði meðal annars: Þessi
breytingartillaga felur það i sér
að frumvar^um ný kosningalög
Svava Jakobsdóttir.
verði lagt fram þegar á þessu
þingi, fyrir þinglok i vor. Ég er
hrædd um, að þessi þröngu tima-
takmörk, er hún vill setja þeirri
vinnu, er framundan er, verði
einmitt til þess að ýta undir flýtis-
vinnubrögð, sem sérstaklega ber
að forðast, og var einmitt ætlunin
aö forðast... Undirbúningsvinna
varðandi breytingar á utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu vegna
sjúklinga, er mér vitanlega enn
alls óunnin. Þar hljóta að koma
fram alls konar hugmyndir, er
tima þarf til að ihuga og vinna að.
En hvort breytingin vegna
utankjörfundaratkvæðagreiðslu
erlendis er svo langt komin, að
það rétt'læti þá meðferð málsins,
sem þessi háttvirtur þingmaður
leggur til, er allsendis óvist. Sú
undirbúningsvinna er ekki komin
lengra núna, en hún var i janúar
1971 er þessi þingmaður var
dómsmálaráðherra. Hafi þá ekki
þótt fært að leggja fram frum-
varp á grundvelli hennar fyrir
þinglok og kosningar, er þess
varla að vænta, að timi vinnist til
þess núna, er komið er fram i
marzmánuð.
Jafnvel þótt kosningalaganefnd
eöa önnur nefnd, er núverandi
dómsmálaráðherra kynni að
kalla til, treysti sér til að semja
frumvarp svo til á augabragði, þá
tel ég nánast útilokað, að timi
ynnistfyrir þingmenn að afgreiða
það á þessu þingi.
Ég er i rauninni m j ög undrandi
á þvi, að svo vanur þingmaöur
sem 6. þingmaður Reykjavikur
(Auður Auðuns) skuli telja slikt
raunhæft. Og satt að segja þykir
mér óvirðing við málið, ef á að
flaustra þvi af, sem ætlað er að
bæta rétt manna i svo mikilvægu
og viðkvæmu máli.
Björn Fr. Björnsson kom i
ræðustól á nýjan leik og tók mjög
i sama streng og Svava, að engan
veginn mætti láta e41ýtinn
skemma þetta mál.
Atkvæðagreiðslu um þings-
ályktunartillöguna var frestað.