Þjóðviljinn - 21.03.1973, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. marz 1973
a D \F r /O ' A. a D ©Q & (ru^ CZZlo \? ’—T' /° 4 a D ?®^D \F m
Einstæður atburður 1 1 íslenzkri i þróttasögu: ||
,' • x, ■ , ■ . ; ■ • _•..■■• ■.■.■•■.
Fóru í útskipun til að
kr. skuldir ár eftir ár
greiða skuldirnar
fer bó nokkuð eftir bví deildinni bar eð húsaleia- um °8 að Þeir brugðust h
l.-deildarlið
Armanns í
körfuknatt-
leik gerði
þetta til að
bjarga deild-
inni frá
gjaldþroti
Allirvita hve bágborinn
fjárhagur islenzkra
íþróttafélaga er, en það
fer þó nokkuð eftir því
hvaða deild innan félag-
anna á f hlut. Þær íþrótta-
greinar sem vinsælastar
eru hjá almenningi svo
sem knattspyrna og hand-
knattleikur standa auð-
vitað bezt að vigi. En
greinar eins og körfu-
knattleikur, sem ekki hef-
ur minna umleikis en litl-
ar sem engar tekjur, berj-
ast í bökkum fjárhags-
lega. Svo mun vera með
allar deildir félaganna í
körfuknattleik. Körfu-
knattleiksdeild Ármanns
er jafn illa stæð fjárhags-
lega og aðrar körfuknatt-
leiksdeildiijog voru skuld-
ir hennar nú fyrir
skömmu orðnar um 150
þúsund kr. og ekkert sem
kom inn af peningum til
að greiða þær. Allt útlit
var fyrir að borgin myndi
taka æfingartímana af
deildinni þar eð húsaleig-
an fyrir langan tíma var
ógreidd. Og þá tóku leik-
menn 1. deildar og
stjórnarmenn til óvenju-
legs ráðs sem mun vera
einsdæmi í íslenzkri
iþróttasögu.
Þeir vissu aö oft er unnið á
kvöldin og næturnar við útskip-
un á áburöi hjá Aburðarverk-
smiðjunni i Gufunesi og ekki
alltaf hlaupið að þvi aö fá menn
i vinnu. Þeir tóku sig þvi til s.l.
mánudagskvöld og fóru uppi
Gufunes og fengu vinnu fram á
nótt við útskipun og gáfu kaup
sitt til deildarinnar og er ekki
ótrúlegt að það fari langt i að
greiða skúldir hennar, þar eð
um allstóran hóp af körfuknatt-
leiksmönnum var að ræða.
Undirritaður hefur aldrei heyrt
um neitt þessu likt hér á landi og
það kæmi ekki á óvart þótt um
einsdæmi i veröldinni væri að
ræða.
Þessi einstæði atburður sýnir
okkur vel hve áhuginn á iþrótt-
inni er mikill hjá þessum mönn-
um og að þeir brugðust karl-
mannlega við i erfiðri aðstöðu.
En manni verður á að spyrja —
er þetta hægt? Hvað segja
iþróttaforustan, svo sem stjórn
ISt, um þetta mál. Er það henn-
ar vilji að iþróttaflokkar leysi
fjárhagsmál sin á þennan hátt
eða hún hefur algerlega að
sér höndum varðandi fjármál
iþróttahreyfingarinnar, utan
veiklulegt mas um bágan fjár-
hag i glasaræðum og á iþrótta-
þingum? Er ekki kominn timi til
að þeir menn sem i stjórn ISt
hafa setið um árabil snúi sér
algerlega að sinni eigin sýslan
og láti iþróttahreyfinguna i friði
og leyfi mönnum sem hafa
áhuga á henni að taka við
stjórnartaumunum?
Ef til vill segir einhver sem
svo að stjórn ISl komi þetta
einstaka mál ekkert við og það
er alveg rétt. Hún hefði ekkert i
þessu einstaka máli gert. En
mál Armenninganna sýnir okk-
ur bezt hvernig komið er fjár-
málum flestra iþróttagreina
utan knattspyrnu og handknatt-
leiks og eru þau þó ekki merki-
leg. Hvert sérsambandið á fæt-
ur öðru sýnir hundruð þúsunda
kr. skuldir ár eftir ár og eru
skuldirnar farnar að skipta
milj. kr. hjá einstaka sambandi.
Hér er um slika meinsemd að
ræða að ekki verður þagað leng-
ur.
Hvað hefur stjórn 1S1 gert á
undanförnum árum til aö efla
fjárhag islenzkrar iþróttahreyf-
ingar? Ekki nokkurn skapaðan
hlut. Það eina sem gert hefur
verið til eflingar fjárhagnum er
getraunastarfsemin og 1S1 hafði
ekki forgöngu um það mál,
heldur KSI undir forustu
Alberts Guðmundssonar. Það
eina nýja sem stjórn ISl hefur
gert var að ráða sérst. mann
til að sjá um einhverja „trimm-
herferð” sem aðeins var stund-
arfyrirbrigðij en siðan hefur
þessi maður verið skráður rit-
stjóri Iþróttablaðsins sem nú
hefur verið fengið i hendur ung-
um ihaldsmönnum sem gefa út
einhverskonar rit sem kallað er
„Frjáls verzlun”. Þessir menn
eiga að annast útbreiðslu og
dreifingu Iþróttablaðsins og
ástæðan er botnlaust tap á blað-
inu. Og til kaupgreiðslu til
handa þessum manni var eytt
sérstökum styrk sem ISI fékk til
„trimmherferðar”.
Nei, það er alveg sama hvern-
ig við litum á þetta mál, risa-
átaks er þörf i fjármálum is-
lenzkrar iþróttahreyfingar, og
það er alveg ljóst að sú stjórn
sem nú situr i ISl framkvæmir
ekki það átak. — S.dór.
úrslit
ustu helgi fóru fram fjórir leikir
i mótinu sem skáru úr um þaö
hvaöa iið kæmust I úrslit. Úrslit
urðu þessi:
IMA — UIA 15:4 og 15:3
UMSE —UIA 15:8 og 15:4
IS — Laugdælir 15:1 og 15:6
UMF Hvöt — UMF tslendingur
15:13, 15:17 og 15:8
Þar með höfðu hin fjögur fyrr
töldu lið tryggt sér rétt til þátt-
töku i úrslitakeppninni. Hún
fer fram á Akureyri 1. april og
14. april og á Akureyri 31. marz
og 8. april og verður aðeins leik-
in einföld umferð. Nánar verður
sagt frá þvi hér i blaöinu hvaða
lið leika saman i hverri umferð.
Úrslit úr
leikjum
yngri
flokkanna
Aðeins örfáir leikir fóru fram
i tslandsmóti yngri flokkanna i
handknattieik um siðustu helgi.
En úrslit þeirra ieikja sem fram
fóru urðu þessi:
2. fl. kvenna
ÍBK — UBK 3:0
Armann — UMF
Njarðvik frestað
3. fl. kvenna
Stjarnan —KR , 17:14
IBK-UBK 8:1.2
1R — Vikingur 13:9
Haukar — Afturelding 22:8
1. fl. karla
IR-IBK 15:7
Fram — Ármann 14:12
Haukar — KR 12:10
Vikingur —Þróttur 26:10
2. deild kvenna
UMF Njarðv. — Haukar 15:4
FH-IBK 25:8
r
Agúst og Jón H. háðu
einvígi i Álafosshl.
Fvrsta Alafosshlaupið fór
fram um siðustu helgi og er það
eitt af hlaupunum i UMSK-seri-
unni. Eins og i þeim tveim
hlaupum sem þegar hafa farið
fram var það Agúst Asgeirsson
sem sigraði eftir geysilegt ein-
vigi viö Jón H. Sigurðsson, en
segja má, að þessirtveir lang-
hlauparar séu nú i sérflokki hér
á landi. Þeir háöú mikið einvigi
i Viðavangshlaupi Islands i
fyrra en þá sigraði Jón,og nú fer
Guðmundur Sigurðsson er hér
með sigurlyftuna á tslands-
meistaramótinu i lyftingum,
170 kg í jafnhöttun. (Ljósm.
Gunnar Steinn)
að styttast i það hlaup i ár, -svo
segja má að Alafosshlaupið hafi
verið eins konar generalprufa
fyrir VI. En úrslit urðu þessi:
1. Agúst Asgeirsson 1R 20:58,9
min.
2. Jón H. Sigurðsson HSK
21:34,0 min.
3. Einar óskarsson UMSK
22:09,0 min.
Úrslit i kvennaflokki urðu
þessi.
1. Lynn Ward 10:11.1 min
(Lynn keppti sem gestur)
2. Ragnhildur Pálsdóttir UMSK
10:38,2 min.
3. Lilja Guðmundsdóttir IR
10:47.6 min.
4. Anna Haraldsdóttir 11:05,4
min.
Engin óvænt úrslit
í 1. deild kvenna
Þrir ieikir fóru fram I 1. deild
kvenna um helgina og urðu úr-
slit eins og búizt var viö fyrir-
fram.
1 fyrsta leiknum sigraði Fram
Viking 12:8 eftir að hafa haft
yfir i leikhléi 6:3. Virðast liðin
búin að læra á hið einhæfa lið
Vikings sem annars hefúr
komið mjög á óvart i vetur.
Þá sigraði Valur KR 19:13 en i
leikhléi var staðan 10:6. Björg
Jónsdóttir, sem stundar nám að
Laugarvatni, var sótt til að
leika með Val og þá var ekki að
sökum að spyrja.
Loks geröu svo Breiðablik og
Armann jafntefli 13:13 og voru
Breiöabliks-stúlkurnar klaufsk-
ar að vinna ekki þennan leik.
Þær höfðu yfir 13:11 þegar
aðeins 2 minútur voru til leiks-
loka og höfðu þar að auki
boltann. En Armann náði að
jafna á þessum tima og á þvi
enn veika von um sigur.
¥ 1 J
Islands
4 lið komin í
Fjögur lið hafa nú tryggt sér
sæti i úrslitakeppninni i blaki
sem fram fer í Reykjavík og á
Akureyri i byrjun næsta mánað-
ar. Þessi lið eru ÍMA — UMSE
— IS — og UMF Hvöt. Um síð-