Þjóðviljinn - 21.03.1973, Side 11
MiOvikudagur 21. marz 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
getraunaspá
Nokkuð getum við verið
ánægð með árangurinn i siðustu
spá, þvi að við vorum með 9
rétta. Að visu voru einir 90 með
13 rétta og um 400 með 11 rétta
hjá Getraununum svo 9 réttir er
ef til vill ekki mikið til að státa
sig af en þess ber þó að geta að
við sem spáum i blöð höfum að-
eins einn seðil til umráða, aðrir
geta verið með eins marga seðla
og þá lystir.
Nú, þessi seðill sem við leggj-
um i nú er einn af þessum seðl-
um sem manni finnst að allt geti
gerzt á og að ómögulegt sé að
spá um úrslit. Varla er þó hægt
að segja að hann sé mjög erfiður
i þeirri merkingu að efstu eða
neðstu liðin séu að leika saman,
þvi að það er ekki mikið um það.
En við skulum ekki vera að
velta þessu fyrir okkur lengui^
heldur hefja spána.
Birmingh.-Coventri 1
Við komum þarna strax að
allerfiðum leik. En þar sem
Birmingham-liðið virðist hafa
rétt úr kútnum og má kallast
sloppið úr allri fallhættu spáum
við þvi hiklaust sigri á heima-
velli. En tökum fram að jafn-
tefli kemur sterklega til greina.
C. Palace-West Ham 2
Þrátt fyrir mikil mannakaup
og dýrt lið gengur enn illa hjá C.
Palace og er það enn ekki slopp-
ið úr allri fallhættu og gegn
West Ham, þótt á heimavelli sé,
þorum við ekki að spá að Palace
nái stigi.
Ipswich-Everton 1.
Ipswich er enn i 4. sæti i deild-
inni og ætti ekki að lenda i erfið-
leikum gegn Everton og það á
heimavelli. Þó má ætla að jafn-
tefli komi sterklega til greina,
en við látum heimasigur standa.
Lecds-Wolves 1
Hér komum við að erfiðum
leik, sennilega erfiðasta leikn-
um á seðlinum. Úlfarnir hafa
sýnt afbragðsleiki að undan-
förnu og eru komnir i 6. sæti.
Þeir hafa ekki tapað leik um
langan tima, en hér mæta þeir
Leeds og það á útivelli,svo við
þorum ekki að spá þeim sigri i
safnið^n jafntefli og jafnvel úti-
sigur kemur til greina.
Leicester-Stoke 1
Þótt við setjum heimasigur á
þennan leik kemur jafntefli
einnig vel til greina. En Stoke-
liðinu hefur gengið afar illa að
undanförnu,þannig að meiri lik-
ur eru á sigri Leicester-liðsins.
Man.City-Arsenal 2
Mjög er ótrúlegt að
Manchester City stöðvi sigur-
göngu hins makalausa Arsenal-
liðs sem vinnur nú hvern leikinn
á fætur öðru með ótrúlegri
heppni.
Newcastle-Chelsea 1
Einn af erfiðustu leikjunum á
seðlinum enda tvö frábær lið
sem þarna eigast við. En ætli
við látum ekki spá um heima-
sigur standa þótt segja megi að
hvort sem er útisigur eða jafn-
tefli komi vel til greina.
Sheff. Utd.-Derby X
Mjög illa hefur gengið hjá
Derby-liðinu að undanförnu og
er það komið niður i 7. sæti. Ég
hef ekki trú á að Derby nái
nema öðru stiginu gegn
Sheffield Utd.
WBA-Southampton 2
Allar likur eru nú á þvi að
West Bromv. falli niður i ár og
er liðið langneðst i 1. deild um
þessar mundir. Jafnvei á
heimavelli er liðið ekki sigur-
stranglegt gegn Sheffield Utd.
Luton-Bristol C. 1
Þá erum við komin i 2.-
deildarleikina, og það er hið
sterka lið Luton sem leikur hér
á heimavelli gegn Bristol,og við
hikum ekki við að spá þvi fyrr-
nefnda sigri.
Middlesbro.-Aston V 1
Aston Villa sem lengi vel hélt
sér á toppi 2. deildar virðist nú
eitthvað hafa dalað og er komið
niður i 7 sæti. Ég hef ekki trú á
að það nái stigi á útivelli gegn
Middlesbro.
QPR-Blackpool 1
,,Spútnik-lið” QPR er nú nær
öruggt um að komast enn einu
sinni i 1. deild og er um þessar
mundir i sérflokki i 2. deild
ásamt Burnley. Og á heimavelli
ætti það að vera nokkuð öruggt
um sigur gegn Blackpool og við
hikum ekki við að spá heima-
sigri.
Mick Jones, hinn frábæri leikmaður Leeds, á erfiðan leik með félögum sfnum um næstu helgi er Leeds
og Wolves mætast i 1. deild.
V axandi
áhugi á
Miklatúns-
hlaupinu
4. Miklatúnshlaup Armanns
fór fram á Miklatúni laugardag-
inn 17. marz sl. og hófst klukkan
16.00. Alls komu 27 börn og ung-
lingar til leiks og luku allir
keppendurnir við hlaupið með
heiðri og sóma. Veður var ágætt
og þessi stund hin ánægjuleg-
asta. Leitt er til þess að vita,
hversu fáir foreldrar koma og
horfa á börnin sin i keppninni.
Þó hafa nokkrir feður komið og
aðstoðað börn sin. Ætti það ekki
að vera undantekning heldur
regla. Vilja forráðamenn
keppninnar eindregið mælast til
þess, að á næsta hlaup, sem hef-
ur verið ákveðið kl. 16.00
laugardaginn 7. april n.k. komi
fleiri fullorðnir og gleðjist með.
Reglur keppninnar mæla svo
fyrir, að þeir, sem hlaupið hafi
2svar, fái viðurkenningu fyrir
þátttökuna. Aður en hlaupið
hófst höfðu 9 unnið til hennar, og
fengu þeir litinn áletraðan
borða til minja. Nú hafa nokkrir
til viðbótar öðlazt þennan rétt,
og verður þeim veitt viðurkenn-
Framhald á bls. 15.
Guðjón Guðmundsson setti glæsiiegt tslandsmet I 200 m bringusundi
s.l. sunnudag. Þessi mynd er tekin að metsundinu loknu.
Punktamót í skiðagöngu
F1 j ót amennirnir
voru í sérflokki
Punktamót fyrir skiðagöngu
var haldið við Skiðaskálann i
Hveradölum laugardaginn 17.
marz klukkan 3 e.h. Rúmlega 30
keppendur voru skráðir til leiks
frá Isafirði, ólafsfirði, Fljótum,
Siglufirði, Breiðabliki, Akureyri
og Reykjavik. Skiðafélag
Reykjavikur sá um mótið.
Mótsstjóri var Jónas Asgeirs-
son, brautarstjóri Haraldur
Pálsson. Ennfremur var við-
staddur sænski iþróttaþjálfar-
inn Kurt Ecross. Formaður
Skiðaráðsins, Þórir Lárusson
setti mótið. Keppt var á svæðinu
fyrir framan Skiðaskálann.
Þokuslæðingur var og 3ja
stiga hiti og snjórinn hafði
blandazt öskufalli frá gosinu i
Vestmannaeyjum.
Keppnin fór sem hér segir:
15 kilómetrar
1. Trausti Sveins.Fljót. 63,52
2. Kr.R. Guðm.s. Isaf. 67,19
3. Magnús Eiriks.Fljót. 69,22
4. Björn Þ. Ólafs.Ólafsf. 70,12
5. Sig.Gunnars.lsaf. 70,30
10 kilómetrar
1. Reynir Sveins.Fljót. 44,44
2. Rögnv.Gottskálks.Sigl. 50,34
3. Guðm. Ólafsson tsaf. 52,14
4. Freyst.Björgv.s.Fljót. 53,12
5. Hörður Geirsson Sigl. 56,20
F ylkir
er ekki
fallinn
Það var ekki rétt hjá okkur I
gær cr við sögðum að Fylkir
væri fallinn i 3. deild i hand-
knattleik. Fylkir á einn leik
eftir við Breiðablik og enn eru
ekki komin úrslit úr kæru
Fylkis á leik ÍBK. Vinni Fylkir
þá kæru sem það gerir eins og
önnur lið sem kærðu leiki sina
við IBK og vinni það siðan
Breiðablik er Fylkir jafnt
Stjörnunni að stigum, og fengi
þá aukaleik um fallið.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson