Þjóðviljinn - 21.03.1973, Blaðsíða 15
Miftvikudagur 21. marz 1973 *>JÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Vanræksla
Framhald af bls. 9.
hrygna. En þaö var fyrir daufum
eyrum talað.
Þá kom heimsstyrjöldin fyrri
og fiskveiðar lágu að miklu leyti
niðri árum saman. Eftir það
fékkst hin afdrifarika sönnun sem
visindamenn höföu lengi leitað:
Árið 1919 var meðalafli á úthalds-
dag fiskiskips i Norðursjó 3.060
pund en hafði verið 1.430 pund
1913 (139 kg i stað 66 kg.)
í Bandarikjunum voru sett lög
um verndun manneldisfiska við
strendur landsins 1871 og siðan
skipaður fiskimálastjóri. Sá lagði
til að byggðar yrðu klakstöðvar
fyrir þorsk á Atlanzhafs-
ströndinni og var það gert á ein-
um þrem stöðum. Til að gefa hug-
mynd um starfsemina má nefna
að til ársins 1897 hafði verið
sleppt 450 miljón seiðum frá
stöðvunum og á vertiðinni það ár
var sleppt 98 miljón seiðum. En
með tið og tima komust menn að
raun um það að þetta var eins og
dropi i hafið, tæknilegur Ut-
bUnaður var ekki fyrir hendi til að
halda lifinu i seiðunum nægilega
lengi, og munu flest hafa tortimzt
áður en von var til þess að þau
ykju nokkru við stofninn. Siðustu
þorskklakstöðinni Woods og Hole
var lokað i heimsstyrjöldinni
siðari og byggingarnar lagðar
undir bandariska sjóherinn.
Þetta þarf að visu ekki að þýða
það að Utilokað sé að hjálpa undir
með náttUrunni við klak á sjávar-
fiskum, en erfiðleikarnir
eru meiri en menn héldu á
timabili.
Þorskþjóðir og alþjóða-
nefndir
Hins vegar hefur sannazt að
fiskur flytzt ekki á milli svæða til
þess að fylla upp i skörð ofveið-
innar. Erfiðlega gengur að
blanda saman þjóðum, þótt allt sé
það mannfólk, en með fisk virðist
það Utilokað að hugsa sér til-
flutning og blöndun og sýnist þó
hver þorskurinn öðrum likur. En
reyndin er sU, að enginn sam-
skipti eru milli þorskstofnsins i
Norðaustur- og Norðvestur-
Atlanzhafi. Það eru meira að
segja vistfræðilega aðskildir
hópar deiliteg. sinn hvorum
megin hafsins. T.d. gengur
þorskurinn á Grand-banka ekki
saman við Nova Scotiaþorsk,
annar fiskur er á Georgs-banka
heldur undan Nýja Englandi
sunnanverðu.
Þegar mikill fjöldi þjóða veiðir
þorsk á öllum eldis- og dvalar-
stöðum hans — 17 þjóðir við
Atlanzhaf austanvert og 15 við
það að vestanverðu — þá kemur
upp sú nauðsyn að þjóðirnar
sameinist um könnun á þorsk-
stofnunum, svo að unnt væri að
komast að samkomulagi um
nýtingu þeirra. Alþjóðanefndum
hefur verið komið á fót viða um
heim til eftirlits og verndunar á
auðlindum sjávar og vatna.
Fæstarþeirra hafa skilað árangri
meira en i meðallagi, einkum að
þvi er varðar fiskveiðar. Þær
hafa fyrst og fremst orðið vett-
vangur skoðanaskipta. Þetta á þó
alveg sérstaklega við um Atlanz-
hafs nefndirnar
Alþjóða fiskveiðinefndirnar við
norðanvert Atlanzhaf hafa náð
árangri á þvi sviði helzt að standa
fyrir rannsóknum og safna upp-
lýsingum handa visindaráðu-
nautunum sem þeir gætu lagt
fyrir nefndarm. En grátlega oft
hafa nefndarmenn kosið að hunza
ráðleggingar visindamannanna,
og koma þar til sundurvirkir
þjóðlegir og pólitiskir hagsmunir.
Möskvareglur hafa
ekki alit að segja
Norðvestur-Atlanzhafs alþjóða
fiskveiðinefndin (International
Commission for the Northwest
Atlantic Fisheries — ICNAF)
fundaði i fyrsta sinn 1951, en hUn
var stofnuð til „rannsóknar og
verndunar á fiskveiðum i
Norðvestur-Atlanzhafi svo að
unnt sé að halda þar uppi
hámarksafla”. Samkomulags-
svæðið nær til hafs og grunnmiða
frá vesturströnd Grænlands
suður til Rhode Island. 12 þjóðir,
þeirra á meðal Bandarikin og
Kanada, standa að samkomu-
laginu.
Snemma á starfsferli sinum
var ICNAF — ásamt sam-
svarandi Evrópunefnd — um-
hugað um að draga Ur ungfiska-
drápi með reglum um möskva-
stærð. Málið reyndist þó ekki eins
einfalt og margir liffræðingar
höfðu haldið, þvi það sýndi sig að
fisktegundirnar höfðu mis-
munandi hæfileika til að smjUga i
gegnum net. Til dæmis gat meira
af tiltölulega stórum þorski
komizt i gegnum smáriöin net
heldur en ýsa. 1 framhaldi af ráð-
leggingum nefndarinnar voru sett
lög um möskvastærð árið 1953 i
Bandarikjunum. Samkvæmt
þeim skyldi minnsta möskva-
stærð vera 4 1/2 þumlungur fyrir
þorsk- og ýsuveiðar á miðunum
Uti fyrir Nýja Englandi i stað lág-
marksins áður 2 2/4 þumlungs
(11,4 cm i stað 5,7 cm). Aðrar
ICNAF-þjóðir fylgdu þvi for-
dæmi. Lágmarksstærð möskva er
nú 5 1/8 þumlungur viðVestur-
Grænland og 4 1/2 þumlungur
annars staðar á samnings-
svæðinu (13,0 cm og 11,4 cm).
En nýlega hafa komið fram þær
skoðanir hjá sérfræðingum i
sveiflum fiskstofna að reglur um
möskvastærðir hafi ekki meira að
segja fyrir fisktegundir eins og
þorsk og ýsu heldur en klakið og
af svipuðum ástæðum: Aföll af
völdum náttúrunnar sjálfrar og
veiðiásóknin aö öðru leyti hafi
miklu meira að segja sem eyði-
leggingaröfl. A fundi ICNAF 1972
kom eftirfarandi fram i skýrslu
bandarisku sendinefndarinnar:
„Visindamennirnir hafa lagt
áherzlu á það, að núgildandi
reglur um möskvastærðir eru
ekki nægilegar i sjálfu sér til að
girða fyrir gereyðingu þorsk-
stofnanna..”
Þegar ýsan er búin er
þorskurinn næstur
Vegna þess hve mörg skip
stunda veiðarnar, hefur ofveiði
gengið nærri þorskstofnunum á
mörgum miðum. Og eftir þvi sem
gengið hefur á aðra stofna nytja-
fiska hefur verið hert á þorsk-
veiðunum til að hafa upp i eftir-
spurn eftir fiski. Þetta er að
gerast nU i veiðunum við Nýja
England. Þar er orðið litið um ýsu
og tiltölulega fljótlegt að veiða
það magn af henni sem leyfilegt
er á hverju ári. Þá snúa sjó-
mennirnir sér af tviefldum krafti
að þorskinum, og má telja það
nærri þvi öruggt að hann verði of-
veiddur og stofninum taki að
hnigna. Spurningin er hvenær
hann hverfur.
Ekki er lengur hægt að láta sér
nægja rannsóknir og athuganir
sem sýna okkur hvernig hættan
færist nær og nær. Það er litil
huggun i þvi að hafa séð ýsu-
stofnana við Nýja England
þverra á undanförnum áratugum
Hver óskar sér eftirlits af þvi tagi
með eyðileggingu þorsksins?
Það þarl að hefja áætlun um
vernd fiskstofna sem tekur til
allra þátta i lifi og viðkomu teg
undarinnar sem að einhverju
leyti er á mannlegu
valdi að hafa áhrif á. Það
þarf að komast af umræðustigi og
á framkvæmdastig, hvaða þjóðir
skuli stunda veiðar, með hve
mörgum skipum og hve langan
tima i senn.
Það er ekki lengur stoð i að-
gerðum eins og reglum um
möskvastærðir og hámarks veiði-
magn ákveðinna tegunda á
grunnmiðum næst landi. Með þvi
er aðeins verið að troða upp i
smágöt þegar öll nótin er rifin.
Hér visa fiskifræðingarnir
veginn. NU verða stjórnmála-
menn og aðrir þeir sem meö
framkvæmdavaldið fara að taka
höndum saman yfir öll landa-
mæri og gera þær ráðstafanir
sem duga.
Albert C. Jensen
Frakkland
Framhald af bls. 7.
ann. Miðflokkamenn, sem studdu
stjórnina (og áttu ráðherra i
henni) stóðu sig hins vegar betur,
þótt þeir misstu einnig þingsæti.
Þeir geta þvi haft miklu meiri
áhrif á stjórnarstefnuna en áður,
þar sem stuðningur þeirra er
henni nú ómissandi.
Siðara atriðið eru umbótasinn-
ar. Þeir bættu við sig þingsætum
og náðu þvi marki að fá 30 þing-
menn, en það er lágmarkið sem
þarf til aö geta myndað sérstakan
þingflokk. Þótt stuðningur þeirra
sé ekki nauðsynlegur fyrir meiri-
hlutann, getur Pompidou naum-
ast komizt hjá þvi — velsæmisins
vegna — að bjóða þeim ráðherra-
stól, og augijóst er að ekki
stendur á Lecanuet að þiggja það
boð (vera má að þegar sé búið að
ganga frá þvi bak við tjöldin). En
ekki má gleyma J.J.S.S.: eftir
það sem hann lét frá sér fara um
stjórnina i kosningabaráttunni,
má heita óhugsandi að hann geti
orðið ráðherra í litt breyttri
stjórn Gaullista og stuðnings-
manna þeirra, og óliklegt er að
hann fallist á að styðja slika
stjórn. Það er nefnilega augljóst,
eins og leiðtogar vinstri manna
bentu á i Utvarpsumræðum kosn-
ingakvöldið, að litil von er til þess
að unnt sé að gera neinar meiri-
háttar „umbætur” i frönsku þjóð-
félagi (jafnvel ekki þær takmörk-
uöu umbætur sem J.J.S.S. berst
fyrir) með mönnum, sem hafa
engan lit sýnt á þvi á fimmtán ára
valdatimabili. Ef Lecanuet verð-
ur ráöherra i nýrri stjórn Gaull-
ista og félaga þeirra, er þvi senni-
legt að umbótasinnar klofni. Þeir
hafa þá ekki haft annað sögulegt
hlutverk en að gefa stjórninni
gálgafrest um stundarsakir.
Þess vegna má búast við þvi að
reynt verði að fara aðra leið. Eins
og áður var sagt, er stuðningur
miðflokkamanna meirihlutans
þegar ómissandi fyrir stjórnina.
En ef þeir ganga i bandalag við
umbótasinna (þessir tveir mið-
flokkar eru hvort sem er keimlik-
ir) geta þeir fyllilega staðið
Gaullista-flokknum á sporði þótt
þeir séu heldur fámennari. Þaö er
þvi liklegt, að þessir flokkar reyni
að rotta sig saman þegar fram i
sækir, bola burt rétttrúuðum
Gaullistum og mynda hreina mið-
flokkastjórn. Slik lausn væri
Pompidou sennilega ekki á móti
skapi, en hún hefði vafalaust i för
með sér talsverða stefnubreyt-
ingu og jafnvel klofning
Gaullistaflokksins.
Þessar breytingar yrðu senni-
lega miklar á sviði utanrikis-
mála. Hins vegar er ekki eins vist
að stjórnarstefnan breyttist eins
mikið i innanlandsmálumj, vitað
er að miðflokkamenn njóta jafn-
vel enn meiri náðar i augum
franska auðvaldsins en Gaullist-
ar. Hvernig sem niðurstaðan
verður, þegar ný stjórn er mynd-
uð (en af ýmsum ástæðum er
óliklegt að það verði fyrr en i
april) og siðar, er þvi liklegt að
þeir 65 af hundraði franskra kjós-
enda verði fyrir vonbrigðum. Og
i rauninni getur ekki annað gerzt,
þar sem kosningafyrirkomulagið
(og pólitiskir siðir Frakklands)
hafa séð til þess að skipun þings-
ins er i litlu samræmi við umbóta-
vilja þjóðarinnar.
Nýr farvegur?
Jean Daniel, ritstjóri Le Nouvel
Obserrvateur, benti á það fyrir
seinni umferð kosninganna, að ef
næsta þing gæfi ekki skýra mynd
af vilja þjóðarinnar, væri hætta á
þvi að vonbrigðin yrðu mjög
mikil. Þá mætti búast við þvi, að
breytingaviljinn brytist fram á
öðrum sviðum, og baráttan leit-
aði i nýja farvegi. Þetta er vafa-
laust rétt, en þvi má þó ekki
gleyma að þingið getur orðið einn
þessara „nýju farvega”. 1 fimm
ár hefur þar varla verið um neina
stjórnarandstöðu að ræöa, en nú
fjölmenna jafnaðarmenn og
kommúnistar inn. Þetta virðast
stjórnarsinnar óttast, þvi að þeir
reyna nU allt til þess að reka fleyg
milli vinstri flokkanna.
Meðal nýju þingmannanna er
Georges Marchais, leiðtogi
kommúnista, sem hefur sýnt i
þessari kosningabaráttu, svo að
ekki verður um villzt, að hann er
einn mergjaðasti ræðumaður,
sem komið hefur fram i frönsku
stjórnmálalifi árum saman. Og i
Utvarpsumræðunum kosninga-
kvöldið laumaði hann þvi að,
hvafta baráttuaðferðum hann
kynni að beita; hann nefndi
„stefnuskrá” Gaullista, sem
Messmer boðaði á fundi flokksins
i Provins i janúar en hefur forðazt
að nefna siðan (þvi að hún byggð-
ist mest á loforðum um að gera
enn meira en kommúnistar og
jafnaðarmenn) og sagðist ætla að
taka hana á orðinu! Hann ætlaði
að leggja fram lagafrumvörp um
þau atriði, sem Messmer hafði
lofað (og eru einnig i sameigin-
legu stefnuskránni), og sjá hvort
stjórnin ætlaði að efna þau.
Ef viðbrögð stjórnarinnar
verða neikvæð, má treysta frönsk
um verklýðsfélögum til að láta
ekki sitt eftir sitja.
e.m.j.
íþróttir
Framhald af bls. 11.
ingín, þegar næsta hlaup fer
fram.
Úrslit i einstökum flokkum
var þessi:
Drengir
Piltar f. 1959 og fyrr
(lengri Ieiftin).
min.
1. Asgeir Þ. Eirikss. 2:52.0-
2. Kjartan Einarss. 2:54.0 -
3. Guðm.R. Guðm.son 3:13.0 -
Keppendur f. 1960 og 1961
(styttri leiftin)
1. Omar Banine 2:41.0 -
Keppendur f. 1962 og 1963
1. Úlfar Úlfarss. 2:43.0 -
2. Arni Baldurss. 2:47.0 -
3. Hafliði Harðars. 2:53.0 -
4—5. Einar Gunnarss. 2:55.0 -
4—5. Orri Snorras. 2:55.0 -
6. Þorst. Kristm.son . 2:56.0-
Keppendur f. 1964 og siftar.
1. Guðjón Ragnarss. 2:56.0 -
2. Styrmir Snorras. 3:43.0 -
3. Kristm.E.
Kristmundss. 4:23.0 -
Stúlkur
Keppendur f. 1960 og 1961
—styttri ieiðin)
min.
1. Ingibj.
Guðbrandsd. 2:33.0 -
2. Asta Gunnlaugsd. 2:36.0 -
3. Hrund Óskarsd. 3:05.0 -
4. Þorbjörg
Ragnarsd. 3:07.0 -
Keppendur f. 1962 og 1963
1. Katrin Sveinsd. 2:37.0 -
2. SigrUn Harðard. 2:41.0 -
3. Margrét Björgv.d . 2:50.0-
4. Hrönn Einarsd. 2:55.0 -
5. EyrUn Ragnarsd. 2:58.0 -
6-7. Helga Guðm.d. 3:02.0 -
6—7. JódisPétursd. 3:02.0 -
8. Elisabet Aretta 3:11.0 -
Keppendur f. 1964 og siftar.
1. Bryndós Karlsd. 3:36.0 -
2. Halldóra Guðjónsd. 3:42.0 -
Lögbann
Framhald af bls. 16.
málum.
Upphófust nU nokkrar kapp-
ræður milli hæstaréttarlög-
mannanna, og höfðu hinir
örfáu áheyrendur nokkurt
gaman af.
Fór lögmaður Hannibalista
fram á, að rétturinn synjaði
lögbanninu framgangs, en ef
Ur lögbanni yrði, skyldi
ákveða tryggingarupphæð
tvær miljónir króna!
Orskurður var siðan kveð-
inn upp klukkan 7, og á þá lund
að lögbann var lagt við þvi að
Guðmundur Bergsson, Einar
Hannesson, ólafur Hannibals-
son, Steinunn Harðardóttir,
Haraldur Henrysson eða Arni
MarkUsson, eitt sér, eöa tvö
eða fleiri saman, mættu boða
til fundar i félagi Frjálslyndra
i Reykjavik, gefa Ut félags-
skirteini, eða innheimta fé-
lagsgjöld. Trygging var lögð
fram, 75 þúsund krónur.
Þess skal getið til glöggv-
unar, að lögbannsúrskurður er
ekki endanlegur dómur,
heldur ber þeim sem lögbann
fær dæmt að hefja staðfest-
ingarmál fyrir Bæjarþingi
Reykjavikur, i þessu tilviki,
innan viku frá lögbannsúr-
skurði.
Þá er það annaö nýtt af
Frjálslyndum vinstrimönnum
að frétta, að á mánudagskvöld
héldu þeir fund — Hannibal-
istar — þar sem ákveðið var
að gera þá tillögu til aöal-
fundar fél. i Reykjavik að
nafni þess verði breytt og inn i
það bætt svo Ur verði einnig
félag vinstri manna, en það
hefur hingað til aðeins verið
félag fyrir frjálslynda. — úþ.
Hagræðing
Framhald af bls. 1.
greiðslufyrirkomulagi er mælt
með að öll Urvinnsla og
greiöslufyrirmæli veröi unnin
með aðstoð tölvu i stað hand-
afls eins og nú er.
A sama hátt er lagt til, að
verðbréfaskrá sjóða i vörzlu
Tryggingastofnunarinnar
verði sett á tölvu og unnin vél-
rænt i stað núverandi hand-
færslna. Slik vélvæðing skap-
ar aukið öryggi og gerir stofn-
uninni fært að mæta fyrir-
sjáanlegri aukningu i útlánum
án verulegs kostnaðar. Enn-
fremur er lagt til að bókhald
sjóða verði sett á tölvu.
Einnig er tillaga um, að
verkefnasvið almannatrygg-
inga og sjóða verði algerlega
aðskilin innan Trygginga-
stofnunarinnar og ráöinn sér-
stakur forstöðumaður sjóð-
anna. Myndi þessi breyting
tryggja öruggari yfirsýn með
stjórn stofnunarinnar, traust-
ara eftirlit með rekstrinum og
stuðla að hagkvæmari verka-
skiptingu innan deilda stofn-
unarinnar, segir i Urdrætbi til-
lagna og er einnig bent á sér-
staka staðsetningu endurskoð-
unardeildar i skipulagi stofn-
unarinnar.
Lagt er eindregið til, að
Tryggingastofnuninni verði
gertað hafa öll sin viðskipti og
viðskipti sjóða i hennar vörzlu
á einum stað — hjá Seðla-
banka Islands. Ætti slikt fyrir-
komulag að tryggja mun
meiri vaxtatekjur og mundu
þær, að þvi er segir i tillögun-
um, nema miljónum króna ár-
lega.
Þá eru að lokum tillögur um
veigaminni breytingar, eins
og t.d. bætta simaþjónustu,
skýrari merkingu deilda og
staðsetningu þeirra. Brýn þörf
er talin á að hanna umsóknar-
eyðublöð um bætur aö nýju og
dreifa þeim á fleiri staði. Lagt
er til að eftirvinna við endur-
skoðun á vegum Rikisendur-
skoðunar verði lögð niður og
að innfærsla vaxta og afborg-
ana á skuldabréf f vörzlu
stofnunarinnar hverfi með
öllu, en þessir tveir siðast
nefndu liðir kostuðu Trygg-
ingastofnunina að likindum
um hálfa miljón árið 1971. —vh
HERRAMANNS ^
MATUR
í HÁDEGINU
ÓÐALÉ
VID AUSTURVÖLL
___________J
J~ 1 V
Simplicity
snióin
eru íyrir alla í
öllum stæróum
Það getur verið erfitt að (á fatn-
að nákvæmlega i yðar stærð, en
Simplicity sniðin leysa vandann,
— þar eru fötin þegar sniðin
eftir yðar höfði.
©
Ijil I
r