Þjóðviljinn - 21.03.1973, Qupperneq 16
DIÚÐVIUINN
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Miftvikudagur 21. marz 1973
Nætur-, kvöld- og helgarþjón-
usta vikuna 16. til 22. marz, er
i Ingólfs apóteki og Laugar
nesapóteki.
Slysa-varðstofa Borgarspital-
■ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverndarstööinni.
Simi 21230.
ENGAR SAMKOMULAGSHORFUR
Stærsta verkfall í Danmörku siðan 1936 hefst í dag
KAUPMANNAHÖFN
20/3 — I dag kom ekkert
það fram sem komið getur í
veg fyrir verkfail i Dan-
mörku sem hefjast mun á
miðnætti i nótt. Nú hafa
bílstjórar bætzt í hóp þeirra
153.000 verkamanna sem
Hvftbók um
N-írland
LONDON 20/3 — Brezka
rikisstjórnin hefur gefið út hvit-
bók um pólitiska framtið Noröur-
trlands. Samkvæmt henni á að
koma á fót nýju þingi I Norður-tr-
landi og til þess verður kosiö hlut-
fallskosningu sem tryggja á að
kaþólski minnihlutinn fái réttláta
fulltrúatölu.
Þetta þing kemur i stað þess
gamla sem var lagt niður fyrir
tæpu ári þegar stjórnin i London
ákvað að taka völdin beint i sinar
hendur. Einnig á að stofna sér-
stakar þingnefndir sem eiga að
auka áhrif kaþólikka á fram-
kvæmdavaldið i landinu. Þingið
mun þó ekki hafa mikil völd þar
sem brezka þingið hefur æðsta
löggjaldarvald I málefnum lands-
ins.
í tillögum stjórnarinnar er
skýrt tekið fram að Norður-írland
muni verða áfram hluti af Bret-
landi og er skírskotað til at-
kvæðagreiðslunnar sem fram fór
8. marz um tengsl landanna. Þar
var samþykkt að landið skyldi
áfram vera hluti af Bretlandi, en
kaþólikkar hundsuðu atkvæða-
greiösluna.
Það kemur á óvart að i bókinni
er ekki gert ráð fyrir stofnun
alirsks ráðs með aðild irska lýð-
veldisins og Norður-lrlands. Al-
mennt hafði verið búizt við aö
brezka stjórnin myndi leggja til
að sliku ráði yrði komið á fót til
þess að veita írska lýðveldinu
aukin ahrif á gang mála i Norður-
trlandi.
Tillögur stjórnarinnar munu á
næstunni verða teknar til umræðu
i brezka þinginu.
Opinber rannsókn
á starfsemi I.T.T.
WASHINGTON 20/3 — I dag
hefst fyrsta opinbera rannsóknin
á starfsemi bandariska auð-
hringsins International telephone
and telegraph corporation (ITT) I
Chile.en eins og menn muna var
flett ofan af áætlunum auð-
hringsins um að steypa Salvador
Allende forseta af stóli árið 1971
Máliö er tekið fyrir af nefnd
sem sérstaklega var kosin af öld-
ungadeildinni til að rannsaka um-
svif bandariskja auðhringa er-
lendis Er búizt við, að vitna-
leiöslurnar, sem standa munu i
tvær vikur, leiöi ýmislegt
gruggugt i ljós hvað varðar náin
tengsl ITT við bandarisku leyni-
þjónustuna CIA og vfðtæka
njósnastarfsemi sem ITT rekur
upp á eigin spýtur.
Aflýsa verkfalli
PARIS 20/3 — Franskir flug-
umsjónarmenn tóku aftur upp
vinnu i dag eftir fjögurra vikna
verkfall. Ekki er þó búizt við þvi
aö flugumferö i Frakklandi veröi
komin i eðlilegt horf fyrr en á
föstudag.
Verkfallið hefur haft miklar
afleiðingar I för með sér fyrir
franska flugumferð. Þegar flug-
umsjónarmennirnir fóru i verk-
fall þann 20. febrúar fyrirskipaði
stjórnin aö herinn skyldi taka við
flugumsjón. Honum fórst það
ekki betur en svo aö tvær
spænskar flugvélar rákust á og
eftir það stöðvuðu fjölmörg stór
flugfélög allt flug yfir franskt
flugumsjónarsvæði.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fundur i Selfossbiói
Alþýðubandalagið I Arnessýslu og Alþýðubandalagið Hverageröi
efna til fundar I Selfossbiói næstkomandi föstudag, þann 23. marz kl
20.30.
Lúðvik Jósepsson ráðherra og Garðar Sigurðsson alþingismaður
mæta á fundinum og ræða um stjórnmálaviðhorfið. ólafur Jónsson
framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins kemur einnig á fundinn og
ræðir um Þjóðviljann.
Alþýðubandalagið Borgarnesi
Félagsfundur verður haldinn kl. 3 á sunnudaginn i húsi stéttarfélag-
anna i Borgarnesi.
Einar Olgeirsson verður á fundinum og svarar spurningum
Alþýðubandalagið Borgarnesi.
Fundur um refsipólidk
Efnið á næsta umræðufundi Alþýðubandalags-
ins á fimmtudagskvöldiö er refsipólitik. Fram-
sögu hefur Hildigunnur ólafsdóttir afbrotafræð-
ingur. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 3 og
hefst kl. 20,30. öllum heimill aðgangur.
Hildigunnur
boðað hafa verkfall. Það
þýðir að olíu- og bensín-
flutningar stöðvast.
Stéttarfélag bilstjóra er klofn-
ingsfélag út úr danska alþýðu-
sambandinu. Við verkfallsboðun
þeirra hafa magnazt upp deilur
milli þeirra og forsvarsmanna al-
þýðusambandsins og DASF sem
er stærsta verkalýðsfélag Dan-
merkur, en Anker Jergensen var
formaður þess áður en hann tók
við embætti forsætisráðherra.
Sagði Ejler Sönder formaður
DASF að bilstjórar gengju erinda
atvinnurekenda með þvi að fara i
verkfall þar sem stjórnin myndi
nota oliu- og bensinflutninganna
sem sem tylliástæðu til að gripa
inn i kjaradeilurnar. Sagði Sönd-
er að helzta markmið atvinnu-
rekenda væri að knýja stjórnina
tii að hafa afskipti af deilunum.
Ef það gerist hefur það i för meö
sér að frjálsar samningaumleit-
anir aðila vinnumarkaðarins
verða útilokaðar i framtiðinni,
sagði hann.
Meðan verkfallið stendur munu
dönsk launþegasambönd greiða
25 miljónir d.kr. á dag i verkfalls-
styrki. Fær hver maður 100 kr. á
dag en þarf að endurgreiða af þvi
25 krónur i skatt.
Enginn vill tjá sig um hversu
lengi verkfallið kemur til með að
vara. Þó hafa heyrzt getgátur
sem hljóða upp á eina viku og allt
upp i 4—5 vikur. Þetta fer þó eftir
þvi hvort stjórnin skerst i leikinn.
Hún hefur lýst þvi yfir að svo
muni ekki verða en margir búast
við þvi að hún sjái sig tilneydda til
afskipta af málinu ef mikilvægir
hlutar atvinnulifsins stöðvast.
MARGIR UTLEND-
INGAR í SVÍÞJÓÐ
STOKKHÓLMI 19/3— 20.hver
ibúi Sviþjóðar er útlendingur. I
ársbyrjun 1973 voru alls 406.700
útlendingar búsettir i Sviþjóð og
hafði þeim fækkað um tiu þúsund
frá þvi árið áður. Þessar upplýs-
ingar koma fram I skýrslu sem
hagstofa Svia hefur nýlega sent
frá sér.
Af útlendingunum eru Finnar
langflestir eða 197.000. Næstir
koma Júgóslavar 40.000 og þvi
næst Danir og Norðmenn.
Það er eftirtektarvert, að
meirihluti útlendinganna er ungt
fólk. 34% eru undir 18 ára aldri,
54% milli 18 og 44 ára en sam-
bærilegar tölur fyrir Svia eru 25
og 36 prósent. Aðeins eitt prósent
útlendinganna er yfir 67 ára aldri
en Sviar á þeim aldri eru 12%. Af
þessum tölum má sjá að meiri-
hluti útlendinganna eru verkfærir
menn enda hefur sænska auð-
valdið litinn áhuga á að flytja inn
gamalmenni sem ekki er hægt að
nota i skitverkin sem Sviar fúlsa
við.
Anker Jörgensen: Hvor verður
yfirsterkari verkalýðsleiðtoginn
eða forsætisráðherrann?
RÆTT VIÐ
BRETA
Rikisstjórnin ákvað á fundi
sinum i gærmorgun að halda
áfram viðræðum við brezka
sendiherrann i Reykjavik um þær
hugmyndir um bráðabirgðasam-
komulag i landhelgisdeilunni, er
fram komu i viðræðum hans við
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra s.l. laugardag.
Frá utanrikisráðuneytinu
Mynd þessi er tekin I réttarsal borgarfógetans f Rvk. I gær. A henni sjást, talið frá vinstri, Ottó
Björnsson, Logi Guðbrandsson iögmaður Bjarnamanna, fulltrúi fógeta Jón P. Emils/Hörður
Einarsson lögmaður Hannibalista, Einar Hannesson, ólafur Hannibalsson og Steinunn Haröar-
dóttir. (Ljósm. A.K.)
Lögbann lagt á félagsstarf-
semi Hannibalista í nafni
Frjálslyndra í Reykjavík
t gær kvað Jón P.
Emils, f ulltrúi
borgarfógeta i
Reykjavik upp þann
úrskurð i lögbanns-
máli þvi sem sagt var
frá i blaðinu i gær, að
lögbannið skyldi
þegar ná fram að
ganga gegn 75 þúsund
króna tryggingu.
Aætlað hafði verið að kveöa
upp úrskurð i málinu klukkan
4 i gær, en lögmaður Hanni-
balista, Höröur Einarsson,
mótmælti þvi að gerðin færi
fram, og Logi Guðbrandsson,
lögmaður stjórnar félags
Frjálslyndra I Rvik fór fram á
frest til að lesa greinargerð
Harðar, sem hann lagði fram I
réttinum. Var dómi þá frestaö
til klukkan fimm.
Aður en frestur var liðinn,
og meðan lögmaður Frjáls-
lyndra var að glugga I
greinargerð Harðar, hófu þeir
smávægilegt hnútukast um
rttmæti umboðs Loga til
málarekstursins, en það varð
siðar að nokkru atriði I ræöu
Harðar hvort ákvörðun um
lögbannskröfuna væri tekin á
löglegan hátt!
Klukkan 5 hófst munnlegur
málflutningur að úrskurði Jón
P. Emils, en það mun vera
nokkuð sérstakt I lögbanns-
Framhald á bls. 15.
I
HHtumst i kaupfélagtnu