Þjóðviljinn - 09.12.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.12.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 9. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 BORN 00 UNGLINGAR ÞETTA EKD TKKAB BÆKUR HVAÐ TKFUR Utt Löfgren UMFERÐIKA? aná Kirkegaard Fnsi Iroskagieypir L0 Lúfgrwr UTALUÐUKlNN Barbapapa Bækurnar um Barbapapa eftir snillingana Annette Tison og Talus Taylor fara óvenjulega sigurför um heiminn. Þær eru þegar komnar út á fjölda tungumála. Gerðir hafa verið eftir þeim tugir sjónvarpsþátta handa börnum, auk langra kvikmynda. Á íslensku eru nú komnar út tvær fyrstu bæk- urnar: Barbapapa og Barba- papa i langferð. Undir samheitinu Leikur að læra eru komnar út fjórar fallegar og skemmtilegar bækur eftir Ulf Löfgren. Þær heita Hljóm- sveitin fljúgandi, Hvað tetur umferðina, Litalúðurinn og 1, 2, 3. Þessar einkar aðlaðandi bækur eru ætlaðar ungum börnum til fróðleiks og skemmtunar og er samhljóða álit allra, sem um þær hafa fjallað, að mjög vel hafi til tekist um alla gerð þeirra. fe* *** fiskurinn Bókin um Jesú Myndir hinnar frábæru lista- konu, Napoli, og fallegur, ein- faldur texti, sem gerir skil helstu þáttum í lífi og starfi Jesú, mynda órofa heild og rata beina leið að sérhverju barnshjarta. Gréta og grái fiskurinn Gullfalleg bók og skemmtileg eftir sömu höfunda og hinar vinsælu bækur Prinsessan sem átti 365 kjóla, Litla nornin Nanna og Jonni og kisa. Allar eru þessar bækur með sama sniði og sannkallaðar óska- bækur yngstu barnanna. Fúsi froskagleypir Óviðjafnanlega fyndin og skemmtileg barnasaga eftir danska höfundinn O/e Lund Kirkegaard, sem hlaut alþjóð- lega viðurkenningu fyrir þessa bók, sem er mjög mikið mynd- skreytt af höfundinum sjálfum. nw>»rnt*« «.£• *tUr íír idunn LINDA LEYSIR VAjriDÁN-N BOKLN 3beft*Uxte StBvsRsorí nuiinsija, höndutn fíilARFULLL SKALABOfífN iTÖFUR 1 GLÆSIBÆ KATA TRÚLOFÁST Áróra og Sókrates Þetta er fjórða bókin um Áróru í blokk X, litla bróður hennar, ioreldra og vini, prýdd fjölda mynda. Stúfur í Glæsibæ Fjórða bókin um Litla bróður og Stúf og margvísleg ævin- týri þeirra, prýdd fjölda mynda. Fyrsta bókin í þessum flokki var lesin í útvarp fyrir skömmu við miklar vinsældir. Þessar tvær bækur eru báðar eftir Anne-Cath. Vestly, sem er einn af fremstu barnabóka- höfundum á Norðurlöndum og hefur hlotið margvísleg verð- laun og viðurkenningu fyrir bækur sínar. þar á meðal oft- ar en einu sinni verðlaun þau, er norska menntamálaráðu- neytið veitir árlega fyrir bestu norsku barnabókina. Meðal bóka hennar eru hinar geysi- vinsælu sögur um Úla Alex- ander filibomm-bomm-bomm. Vísnabókin Þetta er 5. útgáfa af Vísnabók- inni, sem nú er stærri og skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Dr. Simon Jóh. Agústs- son valdi vísurnar og Halldór Pétursson teiknaði myndirnar. Dularfullu skilaboðin Ný bók í hinum vinsæla skemmtibókaflokki eftir Enid Blyton, höfund Ævintýrabók- anna. Jósefína Þetta er fyrsta bókin af hinum þremur víðfrægu bókum um Jósefínu og Húgó. Fyrir þær hlaut höfundurinn, Maria Gripe, Nils Holgersson verð- launin, sem eru mestu verð- laun sem veitt eru fyrir barna- bók i Sviþjoð. Kunnur sænsk- ur gagnrýnandi segir: ,,Jóse- fina er hreint og beint lista- verk.“ Kata trúlofast Þetta er þriðja og síðasta bók- in um Kötu og fjölskyldu henn- ar, sem gerðust landnemar í Ameríku. Þar beið þeirra nýtt líf og margvísleg spennandi ævintýri. Höfundurinnn, Jo- hanna Bugge Olsen, er ve1 metin norskur unglingabóka- höfundur. Þrenningin og forboðna eyjan Önnur bók í nýjum, mjög vin- sælum skemmtibókaflokki eft- ir Else Fischer. Fyrsta bókin heitir Þrenningin og gim- steinaránið á fjallinu. Þetta eru ósviknar skemmtisögur, ævintýralegar og spennandi. I ræningja höndum Spennandi saga um ungan pilt, sem berst fyrir rétti sínum og föðurarfi gegn grimmlynd- um og viðsjálum ættingja, eft- ir hinn fræga höfund Róbert Löuis Stevenson. Þetta er 19. bók í hinum merka og vinsæla bókaflokki Sigildar sögur Ið- unnar. Linda leysir vandann Bráðskemmtileg og fyndin saga um úrræðagóða og ráð- snjalla telpu, vini hennar og nágranna eftir Pamelu Brown, höfund hinnar vinsælu bókar Brúðarmeyjarnar. Pétur og Sóley Ákaflega hugþekk saga um tvö sjö ára börn eftir Kerstin Thorvall. Bók þessi hlaut verð- laun í samkeppni um bestu bókina handa 5—9 ára börn- um, sem stærsta forlag á Norðurlöndum efndi til. Við veljum úr heimsbókmenntum barna og unglinga og gefum bækurnar út í vönduðum íslenskum þýðingum. Þær eru á hagstæðu verði, enda þótt höfuðmarkmið okkar sé ekki að gefa út ódýrar bækur með minnsta hugsanlega til- kostnaði, heldur að gefa út góðar og vandaöar bækur, sem með góðri samvisku sé hægt að leggja í lófa sérhvers barns á aldrinum 4—14 ára. Við látum yður eftir að dæma um árangurinn. IDUNN SKE66JAGÖTU1 SÍMI 12923 19156

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.