Þjóðviljinn - 06.10.1974, Side 16

Þjóðviljinn - 06.10.1974, Side 16
UÚmiUINN Sunnudagur 6. október 1974. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 4.—10. okt. i Garðsapóteki og Lyfja- búðinni Iðunni. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Hermengun á Suðurnesjum Þeir voru mikið að æfa sig að fljúga kanarnir i Keflavik um daginn, þegar Þjóðviljamenn heimsóttu þá. Þarna er flugvél útbúin til að finna kafbáta, og slikar vélar eru margar I Keflavik. Tveir blaðamenn Þjóð- viljans eyddu nýlega nokkrum dögum í Kef lavík og á Kef lavíkurvelli og ræddu við ýmsa menn. Hermengun var það orð/ sem festist í huga okkar að þessari könnun lokinni, en svo er að vita hvort lesend- ur fá svipaða tilfinningu eftir lestur greinanna og viðtalanna sem birtast í dag og næstu daga. Herinn setur mikið merki á um- hverfi Keflavikur og mannlif, en þar er doliarakapphlaupið hvað ljótastur blettur á. Þeir sem hagnast vilja á hersetunni, reyna að eiga viðskipti við amerikana og stunda siðan spákaupmennsku með dollara. Húsaleigan híAlpar mönnum til þessa, og nú óttast margir, að þegar byggðastefna framsóknar hin nýja kemur til framkvæmda, sjö miljarðar i framkvæmdir á vellinum, hefjist nýtt gullgrafaraskeið i Keflavik, þegar hver sagga- og rottukjall- arinn á fætur öðrum verður leigð- ur fyrir morðfjár. Reyndar mun ekki erfitt að leigja amerikönum hús i Kefla- vik, þeir eru meira að segja farn- ir að leigja könum eitt og eitt við- lagasjóðshús i svokallaðri Eyja- byggð. Þau voru vist ætluð Vest- mannaeyingum i raunum þeirra, og eftir gosið i Eyjum héldu margir að nauðum löndum yrði leyft að kaupa Viðlagasjóðshús fyrir sannvirði, eins og reyndar var gert að einhverju marki, en nú eru komnir kanar þangað lika. Gert útá kanann Keflavik ber þess miklu fremur merki, að i næsta nágrenni við bæinn er fjölmenn amerikana- byggð, fremur en að útgerðin setji sinn blæ á staðinn, sagði ungur keflvikingur, sem Þjóð- viljamaður ræddi nýlega við. Og það virðist ljóst, að herliðið á vellinum hefur viðtæk áhrif á allt lif ibúa i Keflavik og Njarð- vikum. Sennilega búa um 1000 ameri- kanar utan vallarins, flestir i Keflavik og Njarðvikum, en nokkrir munu búa i Hafnarfirði og i Reykjavik. Vera hersins hefur að þvi er sýnist, ekki valdið bæjarbúum neinum sálrænum erfiðleikum. Þvert á móti. Sennilega taka menn herliðinu sem góðum gesti, reyna að hafa gott af honum með- an hann dvelur. Vona að hann dveljist sem lengst. Þeir sem leigja út hús eða ibúð- ir, vilja gjarna leigja hermönn- um, vegna þess að þeir greiða húsaleiguna með dollurum og gjalda einnig hærri leigu heldur en tslendingur láta bjóða sér. Við ræddum við ung islensk hjón, aðflutt til Keflavikur, sem nú eru að byggja þar hús. Þessi hjón eru hernámsand- stæðingar og forðast samneyti við hermenn. Þau kváðust ekki verða vör við herinn nema að þvi leyti, að jo eða vl merktir bilar eru margir i Keflavik. Það sem ein- kennir amerikanahús er álpappi eða tjöld, sem limd eru fyrir alla glugga, þannig að sólarljós sleppur ekki inn. Könum mun oft vera ami að sólbirtunni, einkum yfir sumarið þegar nætur eru bjartar. Við spurðum hjónin hvernig þeim hefði gengið að fá leigt I Keflavik. Þau sögðu að það hefði gengið vonum framar, þar eð þau gátu gert sér að góðu húsnæði, sem enginn kani leit við. Um skeið bjuggu þau i götu, þar sem allir ibúarnir voru ameriskir utan þau sjálf og tvenn önnur hjón. Brennivín og kalkún Samskipti islendinga og her- manna munu hafa verið til muna meiri hér á árum áður, heldur en nú tiðkast. Einn ungur viðmæl- andi okkar, sem sjálfur vill hafa herinn hér og hefur gott af herlið- inu að eigin sögn, skýrir þróunina þannig: tslendingar sem setja sig I samband við kana, vilja bara græða á þeim samskiptum. Kanar vilja ekki láta hafa sig að féþúfu. Þeir hafa dregið sig meira i hlé eftir þvi sem þeir urðu meira VELKOMIN VARNARLIÐ ISLANDS Þetta er merki varnarliðsins og við einkennum greinarfiokkinn frá Keflavikurflugvelli með þessu merki. varir við gróðafiknina. Menn vilja fá bjór og brennivin fyrir lit- ið, dekk undir bilinn, kalkún á jólaborðið og fleira, sem hægt er með nokkurri lipurð að fá fyrir litið af vellinum, hafi maður sam- bönd. Hvað með skemmtanalifið? Fara islendingar hópum saman að skemmta sér á vellinum? Þetta gýs upp annað veifið. Einhverjir taka að venja komur sinar á bari þarna og hald- in eru einkasamkvæmi hjá is- lendingum eða könum þar sem drykkja stendur oft lengi. En svo hjaðnar þetta aftur. Hér i Kefla- vik þykir það ekki lengur fint að þekkja kana og drekka út á þann kunningsskap. Það ber núorðið meira á að fólk úr Reykjavik sé að laumast kringum þessa klúbba þeirra.... —GG Alþýöubandalagiö Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Reykjavik, verður haldinn n.k. fimmtudagskvöld kl. 8.30 I Lindarbæ, niðri. Til- lögur kjörnefndar liggja frammi á skrifstofunni. Dagskrá: 1. Venjuleg aðaifundarstörf. 2. Almennar stjórnmáiaumræður og starfið I vetur. 3. önnur mál. Stjórnin. Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru vinsamlega minntir á að greiða árlegt framlag sitt til flokksins. Notið giróseðlana og leggið inn á reikning flokksins i Alþýðubankanum. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagsins í Vestur- Kjördæmisráðsfundur landskjördæmi verður haldinn sunnudaginn 13. október i Snorrabúð, Borgarnesi Fundurinn hefst kl. 2. Jón Einvarðsson, bœjarstjóri, Keflavík Ameríkanar 10% af íbúum Keflavíkur Jóhann Einvarðsson var bæjarstjóri I Keflavik siðast- Iiðið kjörtimabil. Hann var siðan endurráðinn eftir kosningarnar I vor. Jóhann var áður bæjarstjóri á isafiri, og þvi hefur hann nokkurn samanburð, þegar hann svarar tveim spurningum fréttamanns. Fyrri spurningin var: Hvaða áhrif hefur vera Amerikana i Keflavík á rekstur bæjarins? Jóhann svaraði: „Raun- verulega verður litið vart við veru Amerikananna hér i bænum. Helst verður maður var við þá i verslunum og i umferðinni. í rekstri bæjarfélagsins verður þess að sjálfsögðu vart, að hér búa 5-500 Amerikanar i um það bil 170 Ibúðum, og þá i þeirri þjónustu sem þessum Ibúum er látin i té án þess að nokkuð komi I aðra hönd, eins og af öðrum ibúum bæjarins, þvi að sjálfsögðu fá- um við ekki útsvarsgreiðslur frá þessum Ibúum né heldur aðrar greiðslur. Þá má geta þess, að viðskipti þeirra Amerikumanna, sem búa i herstöðinni valda gtý.fur- legri umferð hér i bænúm, og þar af leiðandi mun meira sliti á götum, en bæjarfélög af þessari stærðargráðu eiga að venjast. Tekjuáhrifin af þessum ibúum koma aðallega fram i Jóhann Einvarðsson verslunum bæjarins, en þeir hafa mikil viðskipti hér. Þá greiða þeir háa húsaleigu, án þess að ég ætli að fella dóm á það hversu vel þær greiðslur skila sér i bæjarsjóð i auknum tekjum leigusala. Raunverulega finnst mér timabært, að við fengjum greitt aðstöðugjald af þessum erlendu ibúum þvi þeir eru þó alltaf 10% af ibúafjölda bæjar- ins.” Siðari spurningin var: Hvaða jákvæð áhrif hefur ná- lægð herstöðvarinnar á byggðiria hér? Jóhann svaraði: „Rekstrar- lega séð nýtur bærinn ekki neins af veru hersins. Aftur á móti kemur nærvera her- stöðvarinnar niðri á rekstri atvinnufyrirtækja hér i bæn- um. Þau þurfa vegna þessa að keppa við herinn um vinuafl, og það hefur ekki gengið of vel að manna fiskvinnsluna fyrir vikið. Hins vegar má svo segja, að fólk fái vinnu hjá hernum, vinnu sem það ætti annars ekki kost á, en það er vegna skorts á léttum iðnaði i bæn- um. Þetta á sérstaklega við um fullorðið fólk. Að öðru leyti en þvi, sem ég hef hér nefnt, verður maður litið var við nálægð her- stöðvarinnar i þvi starfi sem ég gegni. Hitt er annað hvort lögregluyfirvöld verði að sinna einhverri aukavinnu fyrir bragðið.” —úþ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.