Þjóðviljinn - 27.10.1974, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 27.10.1974, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. október 1974. Katrín Guðjónsdóttir velur gítargrip við vinsælustu lögin TÖKUM LAGIÐ! Síðast vorum við með eitt vin- sælasta lag Bitlanna, en nú vendum við okkar kvæði i kross og tökum sönglag sem vinsælt hefur verið að syngja saman á mannamótum hér heima undanfarin ár, Það gerðist hér suður með sjó. Við treystum þvi að þið kunnið lagið. Gaman væri að heyra frá lesendum, sem hafa notfært sér gitargripin hennar Katrinar, bæði hvernig þeim hefur gengið að spila eftir skýringunum og eins mætti benda á lög, og texta sem þá langar að fá hér. ÞAÐ GERÐIST HÉR SUÐUR MEÐ SJÓ a E7 a Það gerðist hér suöur með s j ó, d G7 C E7 ' að Siggi á Vatnsleysu d — ó, d og ekkjan hans Þóra, a var ekki að slóra, E7 a til útfararveislu sig b j ó.:,: Það var logndrifa og ládauður sjór er hinn látni i gröfina fór, :,: og ekkjan með sjarmi, brá svuntu að hvarmi, menn sáu, að hryggðin var stór.:,: Klerkur sagði: Holdið er hey vér hryggjumst og kveinum ó vei. :,: Þann gæða mann tel ég, sem guði nú fel ég, við gleymum hans trúmennsku ei.:,: Þegar gengin frá garði var drótt, kom granninn og talaði hljótt, :,: þó góðan með sanni, þú syrgir nú manninn, má sorginni gleyma i nótt.:,: En Þóra sagði: ,,Þvi skal ei leynt, að þetta er fallega meint :,: en sorgina ég missti er ég kistusmiðinn kyssti þú kemur þvi góði of seint.”:,: d-hljómur. a-hljómur. ( c b é T 6 Ac 3) C-hljómur'. G^-hljómur. E 1 -hl j óraur. cb ) 0 Tl ÞORSTEINN FRÁ HAMRI TÓK SAMAN Úr Eiríks sögu rauða I Eiriks sögu rauða segir svo frá lifláti Þorvalds Eirikssonar á Vinlandi: „Það var einn morgun, er þeir Karlsefni sáu fyrir ofan rjóðriö flekk nokkurn, sem glitraði við þeim, og æptu þeir á það. Það hrærðist, og var það einfæting- ur og skauzt ofan á þann ár- bakkann sem þeir lágu við. Þor- valdur Eiriksson rauða sat við stýri, og skaut einfætingur ör i smáþarma honum. Þorvaldur dró út örina og mælti: „Feitt er um istruna. Gott land höfum vér fengið kostum, en þó megum vér varla njóta.” Þorvaldur dó af sári þessu litlu siðar. Þá hleypur einfætingur á braut og suður aftur. Þeir Karlsefni fóru eftir honum og sáu hann stund- um. Það sáu þeir sfðast til hans að hann hljóp á vog nokkurn. Þá hurfu þeir Karlsefni aftur. Þá kvað einn maður kviðling þenna: þessa einfættu undramenn sem þó voru svo vigreifir og fótfráir; en svo vill til, að þegar aldir liða tekur að þróast allkynjaleg hug- mynd um einfætinga á Islandi. Sú tegund einfætinga virðist einna helzt sverja sig i ætt við skrimsl eða aðrar óvættir úr riki þjóðtrúarinnar. Jón Ólafsson Grunnvikingur lýsir svo ásýnd þeirra og lifnaðarháttum i einu af orðasöfnum sinum: Búa heíst í giljum „Einfætingar eru i stöku stöð- um á íslandi: þeir hafa einn fót nokkuð stóran, kringlóttan neð- an með tánum i kring frammjó- um eður sem neglum á hunds- fót; þeir eru eigi rétt hávaxnir, heldur sem meðalmanni I öxl eður þrjár álnir Islenskar eður hálf þriðja dönsk. Með soddan fæti stika þeir þó svo stórt, að þeir kunna að hafa hér um þrjár að kvikindið hefði verið hvirfil bylur, sem þyrlaði upp sandi, og að snúningsförin hefðu verið hringir eftir strá, sem vindur sveigði og sneri. En þetta hvort tveggja þekktu þeir félagar vel, og töldu ólikt þvi. Hvirfilstrókur myndast heldur ekki i skúta, kemst ekki upp, og hann er afarhár, en ekki uppmjór, og er aldrei minútu lengur kyrr á sama stað. Og hringar utan um strá geta ekki myndazt i malar- sandi. Þetta voru þó langllkleg- ustu skýringarnar”, skrifar Brynjólfur. Laufavatn Aþekkan fyrirburð virðist hafa borið fyrir Guðmund bónda Brynjólfsson á Keldum, sam- kvæmt annarri frásögn Brynjólfs frá Minnanúpi. Hann fór yfir Fjallabaksveg hinn syðra austur I Skaftafellssýslu og sömu leið til baka. „Þá reið hann að Laufavatni til að leita EINFÆTINGAR Eltu seggir, allsatt var það, einn einfæting ofan til strandar, en kynlegur maður kostaði rásar hart of stopir; heyr, Karlsefni. Þeir fóru þá I brott og norður aftur og þóttust sjá Einfætinga- land. Vildu þeir þá eigi hætta liði sinu lengra.” Einfætingaland Hvað sem valdið hefur dauða Þorvalds Eirikssonar, hefur Einfætingaland vist aldrei verið til nema i imyndun manna. 1 fornum evrópskum landfræði- ritum er þetta kynjaland einna helzt talið til Blálands, hluta af Afriku, og er svo lýst ibúum þess i Hauksbók: „Einfætingar hafa svo mikinn fót viö jörð, að þeir skyggja sér I svefni við sólu. Þeir eru svo skjótir sem dýr og hlaupa við stöng.” Vafa- laust er einfætingssaga Eiriks sögu rauða skilgetið afkvæmi allra þeirra kynja sem kunna að mæta landkönnuðum á fram- andi slóðum og stækka og auk- ast aðvifandi hugmyndum um kynlegar og fjarlægar þjóðir. Þegar landkönnuðurinn Jacques Cartier kom til Kanada 1534 voru honum sögö tiðindi af landi nokkru þar sem allir ibú- arnir væru einfættir. Annars er ekki mikinn fróðleik að hafa um álnir milli sporanna eður i hverju sinu skrefi. Höfuðið sést ei vel, er sem vafið i nokkurri þoku. Búa helzt i giljum”. Þórsmörk Svo er að sjá, þótt Jón Grunn- víkingur geti þess ekki, að ein- fætingar þessir hafi tekið sér bólfestu I Þórsmörk og þar i grennd, en þar létu þeir að sér kveða með fáránlegri hegðan á öldinni sem leið. Brynjólfur frá Minnanúpi nafngreinir þrjá menn sem eitt sinn voru aö smala Merkurranann, suð- vestur-tagl Þórsmerkur, og hef- ur eftir þeim, að þeir hafi séð i hvilft einni eitthvert fyrirbæri sem hringsnerist i sifellu: „Það var allt að tvær álnir á hæð, dig- urt mjög niður við jörð, en njókkaði smátt og smátt upp eftir, og var strýtumyndað I efri enda, án þess að þar markaði fyrir höfði. Strýtan var hvitleit, og á einn veginn var hvit rák neðan frá, svo sem 1/4 hæðar upp eftir. Breidd þeirrar rákar gátu þeir ekki ákveðið, þvi kvik- indið snerist of ótt til þess. Þó mátti augu á þvi festa. Fyrir ut- an hvitu rákina að neðan og strýtuna að ofan sýndist þeim það allt mógrátt á lit... Þar sem kvikindið haföi verið þóttust þeir sjá votta fyrir kringlóttri lægð, á vidd við kolagröf, en grynnri mjög, og voru barmar hennar alsettir meö eintómum rákum eins og eftir hrisvönd.... Ýmsar skýringatilraunir komu fram, en allar þvingaðar, t.a.m. að fjöðrum. Sá hann þá kvikindi við vatnið. Það var sivalt, upp- mjótt og hringsnerist eins og snarkringla út I vatnið. Hann sá förin eins og eftir keraldsbotn, er snúizt hefði áfram á löggun- um.” Hesteyri Ýmsar sagnir af einfættum þjóötrúarverum eiga mun skyldara við sögur af sjó- skrimslum og tröllum. Þannig er i Hornstrendingabók hermt frá ófreskju einni á Hesteyri i Jökulfjörðum sem kölluð var fjörulalli, einfætt, einhent og með eitt auga i miðju enni. Fleira einfætt loðir við þær slóð- ir, þvi að I Kistufelli norðan Hesteyrar átti forðum að búa óvættur sem skildi eftir sig spor, þvi líkust sem væru þau eftir einn fót, og svo stór sem eftir kerald væri. Ég kom til Hest- eyrar sfðastliðið sumar og varð ekki annars var en að flest væri þar þá sæmilega mennskt og tvifætt einsog tiöast gerist, en tek fram að um aðkomufólk var að ræða, þvi byggö er horfin af Hesteyri. Ferðamenn I Þórs- mörk ættu fyrir sitt leyti að hafa augun hjá sér og llta eftir hvort þeir sjá ekki eitthvað ein- kennilegt sem hringsnýst.... (Eiriks saga rauða; Hauksbók; Jón ölafsson frá Grunnavik eft- ir Jón Helgason; Dulrænar smásögur Brynjólfs frá Minna- núpi; Hornstrendingabók Þór- leifs Bjarnasonar). r Þögul áminning Séð á dyrunum úti bflageymsluna um borð i danskri ferju. Heldur áfram aö fljúga Richard Bach, sá sem sló öll bóksölumet hér um árið með frá- sögninni af máfinum Jonathan Livingstone, heldur áfram að fljúga i nýjustu bók sinni, sem kom út i lok ágúst. „A gift of wings”. 1 henni eru 46stuttar frá- sagnir um flug og flugvélar meö um 50 myndum. Bókin hefur fengið mjög góða dóma og flýgur liklega upp á sölulistanum. Richard Bach

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.