Þjóðviljinn - 13.03.1975, Blaðsíða 12
r
JÚÐVIUIM
3
Fimmtudagur 13. inarz 1975.
BRETLAND:
Sam-
komulag
við EBE
DUBLIN 12/3 reuter —
Leiðtogafundur EBE-rikjanna
sem hófst á mánudag lauk i
nótt umræðum um kröfur
breta um nýja skilmála fyrir
aðild landsins að bandalaginu.
Harold Wilson forsætisráð-
herra mun leggja niðurstöður
fundarins fyrir stjórn sina á
næstunni.
Aður en fundurinn hófst
hafði náðst samkomulag um
allar kröfur bresku stjórnar-
innar nema tvær. Þær eru að
gjald breta til sameiginlegra
sjóða bandalagsins verði
lækkað og að þeir fái að halda
áfram að flytja inn smjör og
osta frá Nýja Sjálandi án þess
að leggja á það sömu tolla og
önnur bandalagslönd.
Fyrri krafa bretanna var
rökstudd með þvi að þjóðar-
auður þeirra færi minnkandi
og þvi yrði aðildargjaldið of
hátt eftir nokkur ár. Að sögn
reuter fékk Wilson meira fram
en hann hafði krafist að þessu
leyti.
Búist er við að átök verði um
þessar niðurstöður innan
bresku stjórnarinnar en einnig
að þeir Wilson og Callaghan
utanrikisráðherra verði ofan á
i þeim átökum og að stjórnin
muni hvetja þjóðina til að
samþykkja áframhaldandi
aðild breta að EBE á þessum
skilmálum i atkvæðagreiðslu
sem fram á að fara i landinu i
júni nk.
Van-
skil
togar-
anna
Vanskil togaranna voru um
siðustu áramót 110,3 miljónir við
Fiskveiðasjóð og 8,5 miljónir við
Byggðasjóð. Þetta kom fram i
svari sjávarútvegsráðherra á
alþingi i gær i fyrirspurnatima
alþingis.
Þá eru ekki taldar vanskila-
skuldir stærri togaranna við
Rikisábyrgðarsjóð. Fiskveiða-
sjóður hefur lánað til 30 togara,
þar af er 21 i vanskilum. Atta skip
eru svo óafgreidd hjá Fiskveiða-
sjóði varðandi lán. Vanskila-
skuldir togaranna hjá Fiskveiða-
sjóði um áramót skiptast þannig
á kjördæmi: Reykjavik 5,8
miljónir, Vesturland 4,7 miljónir,
Vestfirðir 8,7 miljónir,
Norðurland vestra 43,3 miljónir,
Norðurland eystra 22,7 miljónir
(Reykjanes ekkert). Alls rúmar
110 miljónir. Vanskilaskuldir
togaranna við Byggðasjóð voru
alls 8,5 miljónir og skiptust á 4
kjördæmi: Vestfirðir 2,5 miljónir,
Norðurland vestra 3,9 miljónir,
Austurland 0,8 miljónir, og
Reykjavik 1,3 miljónir.
Ráöherrann sagði, að þeir sem fá
lánsloforð nú um stofnlán hjá
Fiskveiðasjóði mættu búast við
að fá ekki greitt fyrr en á
næsta ári, vegna greiðsluerfið-
leika sjóðsins. Eigið ráðstöfunar-
fé er 900 miljónir króna.
PORTUGAL:
Byltingarráð og
breytt stjórn
Lissabon, Madrid, Washington
12/3 rcuter ntb — 200 fulitrúar
Herjahreyfingarinnar i Portúgal
ákváðu á fundi slnum i nótt að
stofnað skyldi byltingarráð hers-
ins og að breyta skipan stjórnar-
innar. Jafnframt hófust i dag
handtökur ýmissa fylgismanna
Spinola.
Yfir 60 manns sem grunaðir eru
um aðild að valdaránstilrauninni
voru handteknir i dag. t þeim hópi
voru m.a. margir af nánustu
samstarfsmönnum Spinola og 7
stjórnarmenn eins stærsta banka
landsins. Búist er við að fleiri
handtökur muni fylgja I kjölfarið.
Spinola var i nótt opinberlega
sviptur stöðu sinni innan hersins
og sama gildir um þá 18 herfor-
ingja sem fylgu honum á flóttan-
um til Spánar. Þeir eru enn i haldi
á herflugvellinum i Badajoz sem
er rétt við landamæri Portúgals.
Diplómatar i Madrid sögðu i dag
að spænska stjórnin væri andsnú-
in þvi að veita þeim landvistar-
leyfi þar sem slikt kynni að túlk-
ast sem ögrun i Lissabon.
Ekki er vitað nákvæmlega
hvert verður hlutverk byltingar-
ráðsins en i yfirlýsingu fundarins
i nótt segir að hlutverk þess sé að
leiða byltinguna i landinu. Breyt-
ingin á stjórninni á hins vegar að
gera hana hæfari til að fram-
fylgja stefnu Herjahreyfingar-
innar. Almennt telja fréttamenn
þessar breytingar boða aukna
þátttöku hersins i stjórnmálalif-
inu. Hins vegar hefur verið sagt
að kosningar þær sem fram eiga
að fara 12. april muni verða
haldnar.
Saraiva de Carvalho hershöfð-
ingi hélt i nótt fund með frétta-
mönnum þar sem hann sagði að
sendiherra Bandarikjanna,
Frank Carlucci, væri hollast að
hypja sig úr landi eftir atburðina i
gær. Hann gæti átt ýmis „óþæg-
Þingflokkur ihaldsins klofnar
í afstöðu til
r æk j umálsins
sem Sverrir Hermannsson hafði
kallað „þingflokksfrumvarp sjálf -
stœðismanna
??
1 gær fór fram fyrsta atkvæða-
greiðslan á þingi um hið mikla
viðkvæmnismál sjálfstæðisþing-
manna, frumvarpið um sam-
ræmda vinnslu sjávarafurða,
sem nefnt hefur verið „rækju-
frumvarpið” vegna tengsla þess
við rækjumálið á Blönduósi.
Hugsjónamenn „einkafram-
taksins” i Sjálfstæðisflokknum
klufu sig frá flokksforystunni,
sem aftur lagði mikla áherslu á
samþykkt þess. Ellert Schram,
Guðmundur H. Garðarsson,
Pálmi Jónsson, svo og Guðlaugur
Gislason úr Vestmannaeyjum,
greiddu atkvæði gegn frumvarp-
ínu, en aðrir sjálfstæðismenn
með, að Ingólfi á Hellu þó undan-
skildum sem sat hjá.
1. grein frumvarpsins var sam-
þykkt að viðhöfðu nafnakalli með
29 atkvæðum gegn 8,1 sat hjá og 2
voru fjarstaddir. Auk greindra
sjálfstæðismanna voru á móti
frumvarpinu allir alþýðuflokks-
mennirnir i neðri deild og Lúðvik
Jósepsson.
Svipuð hlutföll voru i öðrum
atkvæðagreiðslum og var frum-
varpinu visað áfram til þriðju
umræðu i neðri deild. Var ekki
laust við að nokkur feginleiki lýsti
sér i ásjónu Matthiasar Bjarna-
sonar sjávarútvegsráðherra að
atkvæðagreiðslu lokinni.
SÍÐUSTU ÍÞRÓTTAFRÉTTIR:
Víkingur íslandsmeistari
Víkingur varð islands-
meistari 1975 i handknatt-
leik í gærkvöldi þegar lið-
ið sigraði Val með 13
mörkum gegn 11.
Leikurinn var nokkuð harður,
varnarleikur beggja liðanna
mjög góður, en markvarslan
réði úrslitum, hún var betri hjá
Viking.
Vikingur hafði yfirhöndina
allan leikinn utan þrisvar sinn-
um að Val tókst að jafna. Sigur
Vikings vgr fyllilega verðskuld-
aður, þar eð liðið sýndi betri leik
allan leiktimann út i gegn.
Þess má að lokum geta að
þetta er i fyrsta sinn sem Vik-
ingur vinnur Islandsmeistara-
titilinn i meistaraliðsflokki
karla i handki.attleik.
Sdór.
Alþýðubandalagið
Stofnfundur annarar deildar
Stofnfundur annarar deildar Aiþýðubandalagsins I Reykjavlk, Austur-
bæjar- og Sjómannaskólahverfi.
Fundarstaður: Hótel Esja.
Fundartimi: Nk. mánudag 17.
mars kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Þröstur ólafsson,
form. ABR. kynnir nýja reglu-
gerð fyrir félagsdeildir Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik. '2.
Kosning stjórnar. 3. Ragnar
Arnalds ræðir um stjórnmála-
ástandið og svarar fyrir-
spurnum.
Félagar fjölmennið og takið
Þröstur Ragnar með ykkur nýja félaga.
indi” i vændum og stjórnin gæti
ekki ábyrgst öryggi hans. Banda-
riska utanrikisráðuneytið svaraði
þessu i dag með þvi að itreka að
Bandarikin hefðu hvergi komið
nærri uppreisnartilrauninni i gær
og sagði að sendiráð Portúgals i
Washington hefði lýst þvi yfir að
ekki þyrfti að óttast um öryggi
sendiherrans.
Hópar vinstrisinna réðust I
gærkvöldi á höfuðstöðvar kristi-
legra demókrata og miðdemó-
krata i Lissabon og Oporto og
unnu á þeim ýmsar skemmdir. 1
dag réðust þeir einnig inn i hús
Spinola I Lissabon. Þar unnu þeir
ýmsar skemmdir á húsbúnaði en
höfðu húsgögn og aðra muni á
brott með sér og kváðust ætla að
nota þær i skrifstofum samtaka
sinna. Hermenn stóðu yfir þeim
Spinola: flúinn til Spánar og
sviptur völdum og mannvirðing-
um.
meðan á þessu stóð en höfðust
ekki að.
Að minnsta kosti einn hermað-
ur féll i átökunum i gær og 10
særðust. I dag var allt með kyrr-
um kjörum i landinu en hermenn i
skriðdrekum héldu vörð um flug-
velli stærstu borga, þ.á.m. Lissa-
bon og Oporto. Þeir voru þó opnir
fyrir umferð i dag.
Amerísk
HRÍSGRJÓN
( Kiviana)
RIVER hrísgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm
þau eru, sérstaklega í grauta. RIVIANA býöur nú einnig:
AUNT CAROLINE hrisgrjón, sem eru vitamínrik, drjúg, laus
í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á boröi.
SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoöin i poka, tilbúin
í pottinn. RIVER brún hýöishrísgrjón holl og góö.
FLUFFY wHlTE
NETWT. 32 OZ.(2LBS