Þjóðviljinn - 24.10.1975, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Síða 1
UmVIUINN Föstudagur 24. október 1975 — 40. árg. 242. tbl. EUGENIO MONTALE fékk Nóbelsverðlaun STOKKHÖLMI 23/10 — Sænska akademian veitti i dag italska ijóðskáldinu Eugenio Montale bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir árið 1975 vegna fimm ljóðabóka, sem hann hefur sent frá sér siðastliðin fimmtiu ár. Montale er nú 79 ára og skrifar bókmennta- og tónlistagagnrýni i blaðið Della Sera i Milanó. Auk ljóðaskáld- skapar hefur hann sent frá sér verk i óbundnu máli og þýtt á itölsku verk eftir til dæmis Melville, O’Neill, Shakespeare og Marlowe. KVENNAVERKFALL Nœr 100% þátttaka i dag sýna íslenskar konur samstöðu og sanna mikilvægi sitt í atvinnulíf- inu með því að leggja niður vinnu um allt land. Nær 100% þátttaka er í verk- fallinu. Stöðvast öll at- vinna kvenna í fram- leiðslugreinum, auk þess margskonar þjónusta eins og talsímaþjónustan við útlönd, skiptiborðum stórra fyrirtækja og stjórnarráðsins verður lok- að — og blöðin koma ekki út. Á þriöju síðu blaðsins er greint ítarlega frá atburð- um dagsins viðsvegar um landið. Á opnu eru viðtöl við hóp fólks um kvenna- verkfallið, jaf nréttissíður Vilborgar Harðardóttur, frásögn af ráðstefnu BSRB og ASí i Munaðar- nesi, forustugrein um verkfallið, birtir eru söng- textar dagsins og sagt frá uppföku kvennalagaplötu. Þjóðviljinn flytur is- lenskum konum baráttu- kveðjur í tilef ni dagsins, en næsta blað kemur út siðdegis á morgun, sunnu- dagsblaðið. Bretar innan 50 eftir 13. nóv. Fréttastofa Reutcrs staðlesti 1 Segir rcuter, að öll afstaða is- gærkvöldi þaö sem margan hafði lensku sendinefndarinnar sé nú rennt grun i að íslenska viðræðu- miklu sveigjanlegri en f viðræð- ncfndin væri að fjalla um veiðar unum i Reykjavik. Er sagt að Is- breskra togara innan 50 miln- lenska sendinefndin muni i dag anna. Hefði þessi afstaða fslensku nefna tölur um afiamagn og tog- nefndarinnar orðið til þess að ' arafjöida, sem hún telji aðgengi- samningum hefði miðað áleiðis. legar — innan 50 mílnanna. Undirbúningur kvennaverkfallsins I dag hefur krafist mikillar undirbúningsvinnu, enda eru konur ákveðnar I að gera þennan baráttudag sinn slfkan að eftir verði munað — og tekst það án nokkurs vafa. Þessi mynd var tekin I Myndlista- og handiðaskólanum I gær, þegar veriö var að leggja siðustu hönd á málun kröfuspjalda. (Mynd: Haukur Már) Ragnar Arnalds. Ragnar Arnalds við útvarpsumrœðurnar: Ríkisstjórnin er búin að ofbjóða þjóðinni Þjóðin þarf aðra stefnu í efnahagsmálum og vinnufrið, — þarf nýja forystu í landhelgismálum, — þarf nýja vinstri stjórnl Formælendur Alþýðubanda- lagsins I útvarpsumræðunum I gærkvöldi deildu fast á rfkis- stjórnina fyrir dugleysi hennar gagnvart ýmsum aðsteðjandi vanda og fyrir beinlinis að skapa og magna vandamál með stéttar- valdstjórn sinni. i fyrri umferð umræðnanna talaði Ragnar Arn- alds formaður Alþýðubandalags- ins cn i seinni umferðinni Geir Gunnarsson fulltrúi flokksins i fjárvcitmgarnefnd þingsins. 1 ræðu sinni minnti Ragnar Arnalds fyrst á loforð Geirs Hallgrimssonar i fyrra þegar hann tók við stjórnartaumum. Og hvernig allt snýr nú öfugt við loforðin: — Verðbólgan aldrei verið meiri, — gjaldeyrissjóður nú i minus — rikissjóður með 2-falt lakari stöðu en i fyrra — fjárfestingarsjóðir komnir i þrot. Lifskjör almennings hafa versnað svo hratt og stórstiga að engin dæmi önnur eru um slikt i evrópuiandi siðan i striðslok. Al- menn laun eru nú orðin hér helm- ingi lægri en i ýmsum grann- landa. Þetta stafar af þeirri stjórnar- stefnu að leggja byrðarnar á al- menning. En um leið hefur skap- ast ringulreið i atvinnulifi og fyrirtækjarekstri. Verkalýðs- hreyfingin hefur sýnt mikla hóf- 'Framhald a 18. siðu. Sjómanna- verkfallið Árangurslaus fundur Sjómenn héldu almennan fund í gœrkveldi til þess að skýra málin Samstarf snefnd sjó- manna hélt í gær fund með forsætisráðherra og hófst hann i forsætisráöu- neytinu kl. 16. Að þvi er Þjóðviljinn fregnaði siðdegis í gær var þessi fundur algerlega árangurslaus, en sem kunnugt er og áður hefur komið fram telja sjómenn að ríkisstjórnin eigi næsta leik í þessu máli. Engin nema hún getur leyst málið úr þvi sem komið er. í gærkveldi boðuðu sjómenn svo til almenns sjómannafundar i hátiðarsal Stýrimannaskólans, þar sem samstarfsnefndin skýrði gang mála og siðan hófust almennar umræður um málið. Þjóðviljinn kannaði i gær hljóðið i sjómönnum á nokkrum stöðum á landinu og var allsstað- ar sömu svör að fá, sjómenn standa saman sem einn maður i þessu lifshagsmunamáli sinu og hvergi minnstu eftirgjöf að finna. —S.dór Meira um róðrastöðvunina á baksíðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.