Þjóðviljinn - 24.10.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Side 4
4 StDA — ÞJÓQVILJINN Föstudagur 24. október 1975. DJODVIIJINN MÁLGAGN sosíalisma VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Franikvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaöi: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Sfmi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. FYRSTA SKREFIÐ Stórt skref er stigið i dag. íslenskar kon- ur úr öllum aldursflokkum, öllum stéttum og með hinar ólikustu stjórnmálaskoðanir hafa sameinast og efnt til verkfalls til að vekja athygli á mikilvægi vinnuframlags kvenna i atvinnulifinu og á heimilunum og til að vekja athygli á þvi misrétti sem þær eru beittar i launum og verkaskipt- ingu. Þótt heita eigi að rikjandi sé launajafn- rétti að lögum á íslandi blasir hið gagn- stæða hvarvetna við. Fólk sem vinnur saman á skrifstofum fær mismunandi laun eftir kynferði. Karlar og konur i iðn- aði fá mismunandi laun, karlar og konur i frystihúsunum fá ekki það sama i launa- umslaginu sinu og þjónustustörfin er mis- vel launuð eftir kynferði starfsfólksins. Þetta er hægt með þvi að fara kringum lögin, kyngreina störfin og starfsheitin og raða körlum sér og konum annars staðar. Á skrifstofunni eru karlar fulltrúar, konur ritarar, þeir vinna við vélarnar i frysti- húsinu, en þær eru i pökkunarsalnum, i búðunum eru þeir verslunarstjórar og þær afgreiðslustúlkur, i skólunum eru þær kennarar, þeir skólastjórar. Mismunun kynjanna i atvinnulifinu nær enn lengra. Þannig er konum haldið sem ihlaupavinnuafli, sem kalla má á eftir þörfum, en senda heim þegar að þrengir á vinnumarkaðnum. Hvað sem liður öllum lagasetningum er það hefð i okkar þjóðfé- lagi að konur hafa ekki rétt til stöðugrar atvinnu til jafns við karla og þeirri hefð er viðhaldið með hagstjórnarstefnu i félags- málum. Samdrætti i atvinnulifi fylgir niðurskurður á fjárframlögum til barna- heimila og annarra opinberra þjónustu- stofnana meðan skortur á vinnuafli kallar hinsvegar á uppbyggingu slikra stofnana. Dæmin eru augljós. 1 kjölfar atvinnu- uppbyggingar vinstri stjórnarinnar um allt land fylgdi t.a.m. framkvæmd laga um rikisþátttöku i uppbyggingu dagvist- unarheimila fyrir börn og margháttaðar áætlanir varðandi aðstoð við aldraða. Með samdráttar- og kjaraskerðingarstefnu nú- verandi rikisstjórnar, þegar aftur skal skapað „hæfilegt atvinnuleysi” eins og i tið fyrri afturhaldsstjórnar, koma strax fram áætlanir um niðurskurð f járveitinga til þessarar þjónustu og þess verður ekki langt að biða, að áróðurinn hefjist um að eini staður konunnar sé á heimilinu, þar sem henni beri — liklega einni — eð annast þá yngstu og þá elstu i þjóðfélaginu. Samstaða kvenna i dag er eitt skref á réttri leið. Fyrsta skrefið á lengri leið sem við eigum fyrir höndum áður en jafnrétti næst. Vegna aldalangrar kynferðislegrar kúgunar kvenna er barátta þeirra tviþætt, annarsvegar gegn afturhaldsöflunum fyrir breyttu þjóðfélagi, hinsvegar fyrir eigi vitundarvakningu gegn þeim bælandi uppeldis og umhverfisáhrifum sem gaml- ir fordómar og úreltar hefðir hafa i för með sér. Við efnahagslega kúgun eiga konur að striða við hlið annars verkalýðs. Verka- lýðurinn, konur jafnt sem karlar, verður að standa saman gegn árásum á kjör sin og stöðu, standa saman i baráttunni fyrir betra þjóðfélagi, Fullur sigur i verkalýðs- baráttunni mun aldrei nást án virkari þátttöku kvenna, helmings vinnandi fólks. En eigi konur að verða virkar verða þær að öðlast frelsi og sigrast á bælingu og mismunun. Sigur i þeirri baráttu kvenna næst ekki nema með virkri samstöðu verkalýðsstéttarinnar. Verkalýðshreyf- ingin verður að taka þátt i henni og gera að sinni. 1 þessa átt er stigið skref i dag. Og með þvi að velja dag Sameinuðu þjóðanna er undirstrikað, að við erum hluti af heimin- um og okkur ber að taka þátt i viðtækari baráttu en þeirri sem aðeins nær til ís- lands, — baráttunni gegn kynþáttakúgun, gegn nýlendustefnu og undirokun þjóða, gegn hungurvofunni og fyrir friði. Dagurinn i dag er stór. En á morgun kemur lika dagur og þá er það okkar að sýna styrkinn. Það er hin daglega barátta sem mestu skiptir — að gefa hvergi eftir og vera sifellt á verði gegn misrétti hvar og hvenær sem það birtist. Sú barátta heldur áfram, skref fyrir skref. — vh KLIPPT... Ræðumaður Vöku, þegar veldi hennar var sem mest i háskól- anum, var Guðmundur í. Guðmundsson. t>á gengu háskóla- stúdentar, þar á meðal Jón Baldvin Hannibalsson, á dyr...... Varaþingmaðurinn A síðasta vetrarþingi brá Jón Baldvin Hannibalsson, skóla- meistari, sér nokkrum sinnum upp 1 ræðustól alþingis, en þing- sæti hlauthann sem varamaður Karvels Pálmasonar. Ræðuhöld varaþingmannsins vöktu mikla athygli, og voru ræðurnar birtar með velþóknun og tilvitnaðar i Morgunblaðinu. Segir það nóg um efni þeirra. Voru ræðurnar mjög i anda ihaldsflokka um flesta hluti. Mörgum fyrri bandamönnum Jóns Baldvins Hannibalssonar fannst leitt til þess að vita hvernig komið væri fyrir þeim manni, sem einu sinni i ónefnd- um flokki var kallaður „póli- tískt gæðingsefni”. Vonuðu margir að ræðuhöld Jós Bald- vins á alþingi væru til marks um fljótfærni og óhugsaðan glanna- skap, en slikt á Jón Baldvin vissulega til. - Svo var ekki En nii á þessum hlýju októ- berdögum kom fram að svo var alls ekki þegar hann birtist sem frambjóöandi Vöku i Háskólan- um. Ræðurnar sem Jón Baldvin fékk gullhamrana fyrir i Morg- unblaði i fyrra hafa augsýnilega verið vandlega igrundaðar af hans hálfu. Hann hefur um nokkurt skeið verið á hraðri leið yfir til hægri og telja margir — meöal annars eftir bæjarmála- stefnu hans á ísafirði — að hann ætti best heima i Sjálfstæöis- flokknum. Það sem kom i ljós núna i október, þegar hann bauð sig fram sem ræðumaður i- haldsstódenta i Háskóla fs- lands, staðfesti þvi miður aðeins það sem áður hafði komið fram. Varaþingmaður Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna er ihaldsmaður, frjálslyndur i- haldsmaður kannski, en ihalds- maður. Samfylkingin A almennum kosningafundi háskólastúdenta i fyrrakvöld var enn einu sinni tekist á um stefnu vinstrimanna annars vegar og hægri manna hins veg- - ar. 1 þeim átökum kom fram samfylking Sjálfstæðisflokksins og hannibalsarms Samtaka frjálslyndra gegn vinstrimönn- um. Var Jón Baldvin flaggskip hinna fyrrnefndu. Úrslit kosn- inganna urðu þau að samfylking hægrimanna beið mikið afhroð. Hlutu þeir Jón Baldvin og fylgi- nautar hans aðeins þriöja hvert atkvæði eða 34,7% greiddra at- kvæöa. Voru það heldur dapur- legar kveðjur fyrir samfylking- una þegar svo voldug stjórn- málaöfl sem skólameistarinn og íhaldið lögðu saman. Iðrun? Jón Baldvin Hannibalsson er I dag ekki í þeim flokki manna sem fagnar unnum glæsilegum sigri I Háskóla fslands. Hann er I hópi þeirra sem i dag eru dapr- ir i bragði — kannski iðrast hann. Það færi betur. Stórsigur vinstrimanna Þeir vinstrimenn sem fagna sigri i Háskóla íslands I dag eru aö yfirgnæfandi meirihluta til róttækir vinstrimenn. Þeir hafa nU unnið stærri sigur en nokkru sinni fyrr i kosningum innan há- skólans og að sama skapi er ó- sigur hægrimannanna einstak- ...nú ræður Vaka ekki lengur og stúdentar höfnuOu Jdni Bald- vin sem ræOumanni ihalds- manna. ur. Þess ber að gæta að fyrir ekki allmörgum árum réði i- haldið eitt — án frjálslynda armsins lögum og lofum i æðstu menntastofnun þjóðarinnar, jafnt meðal stúdenta sem i kennaraliði. Þegar svikasamn- ingarnir voru gerðir um land- helgismálið 1961 voru hægri- menn skólans svo blygðunar- lausir að þeir létu svikaleiðtog- ann Guömund I. Guðmundsson, þáverandi utanrikisráðherra halda aðalræöuna i hátiðasal skólans. Þetta er aöeins nefnt hér sem dæmi um ósvifni og höld ihaldsleiötoga háskólans á þessum árum. Eftir þessu man Jón Baldvin Hannibalsson, nU- verandi skólameistari, áreiöan- lega. Ef mig rangminnir ekki var hann einn þeirra manna sem ákveönastir voru i þvi að votta Guðmundi 1. og land- helgisstefnu hans tilhlýðilega viröingu með þvi að ganga Ur salnum þegar ráðherrann hóf mál sitt — eins og meðfylgjandi mynd vitnar best um. Grjótið og glerhúsið Alþýðublaðiö er að fjargviðr- ast Ut af þvi i gær að Þjóðviljinn hafi ekki sagt frá lögbrotum við álagningu á byggingartaxta. Hér er að sjálfsögðu um argasta þvætting að ræða, Þjóðviljinn hefur sagt frá þessum málum ekki siður en önnur blöð. En ekki skal sá maður kasta grjóti sem býr i glerhUsi. Eða hvernig er það, hefur Alþýðu- blaðið ekki heyrt af þvi að meg- inhluti islenskra fiskiskipa ligg- ur i höfnum um þessar mundir? Þar er ekki einn einasti stafur um heimsiglingu fiskiskipanna. Af hverju? Með hinni rætnu rök- semdafærslu Alþýðublaðsins má leggja þetta Ut á þann veg að Alþýðublaðið vilji fela heimsigl- inguna! Að Alþýöuflokkurinn sé andvigur þessari aðgerð sjó- mannsstéttarinnar! Að það séu einhver öfl innan Alþýðuflokks- ins sem banni Alþýðublaðinu fréttaflutning af þessum við- tæku mótmælum sjómanna- stéttarinnar. Hreinskilni Viðtal Morgunblaðsins við Sverri Hermannsson var i senn skemmtilegt og fróölegt, en framast öllu hreinskilið. Sverrir viðurkenndi hreinskilnislega aö hann væri forstjóri stofnunar þessarar til þess að Uthluta bit- um handa landsmönnum sem þurfa á allskonar lánafyrir- greiðslu að halda. Sverrir vildi styrkari pólitiska stjórn á stofn- unina og þar með tekur hann i rauninni algerlega undir með þeim mönnum sem i upphafi komu þessari stofnun á laggirn- ar. Gylfi Þ. Gfslason og nokkrir Ihaldsmenn hafa á alþingi og i Morgunblaðinu barið sér á brjóst og heimtað „ópólitiska” stjórn Framkvæmdastofnunar- innar! Er ekki mál til komið aö alvörumenn hætti svona nokkr- um skollaleik: Auðvitað vita þessir menn að fráleitt er með öllu að finna „ópólitiska” stjórn slikrar stofnunar. Annað hvort er hUn beinlinis pólitisk eins og verið hefur eða óbeint pólitisk með þeim hætti að yfirstjórnin sitji og standi eins og rikis- stjórnin eða meirihluti stjómar fyrirskipar á hverjum tlma. Ekki dettur þessum sömu mönnum, Ellert og Gylfa, i hug aö halda þvi fram, að embættis- menn Reykjavikurborgar séu ó- pólitískir? Eða ráðuneytisstjór- arnir, sem sumir hverjir eru kosningasmalar Sjálfstæðis- flokksins? Það er alveg dæmalaus hræsni og yfirdrepsskapur sem kemur fram i málflutningi þess- ara manna og þeir kjóeendur sem þeir félagar biðla til eru á- reiöanlega orðnir löngu þreyttir á þessum málflutningi. — s. ... OG SKORIÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.