Þjóðviljinn - 24.10.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Qupperneq 5
Föstudagur 24. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 KJARYAL I tilefni nírœðisafmœlis lista- mannsins 15. okt. síðastliðinn Góð kona sagði einu sinni við Jóhannes Kjarval: „En hvað það hafa komið margar finar myndir af þér i blöðunum.” ,,Já, fólk stoppar mig á götu og spyr: verður ekki gert frimerki af þér bráðum?” Þetta kaldhæðnislega svar er vert að hafa i huga nú, þegar við litum til baka og igrundum lifs- starf listamannsins og samband hans við þjóðina. 3. umferð svœðismótsins Tvö stórmeistara- jafntefli i þriðju umferð svæðismótsins mættust stórmeistarar i tveim skákum. Timraan gcgn Parma og Libcrzon gegn Jansa, og i báðum skákunum varsamið uin jafntefli cftir um 20 leiki. Þetta mót virðist þvi ætla að falla i sama farveg og flest slík mót. Stórmeistararnir cru friðsamir hver við annan, en einbeita sér að þvi að fá sein flesta vinninga gegn veikari and- stæðingum, og ræður það þá úr- slitum i mótinu. Tómatabóndinn frá Guernesey i Ermasundi, E. Laine, varð engin hindrun fyrir Friðrik Ólafsson. Eftir uppskipti á mönnum var Friðrik með unnið peðaendatafl og gafst Laine upp i 31. leik. Auð- veld og átakalaus skák fyrir stór- meistarann okkar. Björn hafði svart gegn Arne, Zwaig frá Noregi, sem vann Jansa i 1. umferð. Björn fékk trausta stöðu og kannski heldur betri en norðmaðurinn og var samið jafntefli eftir 34 leiki. Von- andi verða þessi úrslit til að hressá Björn eftir ófarirnar i tveimur fyrstu umferðunum, en hann má gæta sin á timahrakinu, sem kom þó ekki að sök i þessari skák. Skemmtilegasta skák kvöldsins var skák þeirra ITartston og stór- meistarans Ribli. Englendingur- inn hafði hvitt og tefldi af engri minnimáttarkennd gegn stór- meistaranum. Hartston hrókaði langt og undirbjó kóngssókn, en komstekkert áleiðis gegn öruggri taflmennsku Riblis og fór svo, að Hartston varð að gefast upp eftir 34 leiki og missti þar með forystu i mótinu, en Ribli hefur 1 vinning Toynbee látinn LUNDÚNUM 22/10 — Hinn heimsfrægi breski sagnfræðingur Arnold Toynbee andaðist i York i Englandi i dag, 86 ára að aldri. Toynbee er talinn meðal fremstu sagnfræðinga nútians og lætur eftir sig fjölda ritverka sagn- fræðilegs og sagnfræðiheimspeki- legs eðlis. Þekktast verka hans er Study of History, sem er i tólf bindum. Skákst jórnin er I örugguin liöndum sálusorgarans og stór- meistarans frá Bandarikjunum, VVilliam Lombardy. og biðskák, sennilega unna, eftir tvær skákir. IJamann hafði hvitt gegn Van den Broeck og hafði belginn lengst af heldur betri stöðu, en lék illilega af sér rétt áður en skákin fór i bið. Hann gætti sin ekki á að kóngurinn var kominn i máthættu á miðju borði og varð að láta af hendi peð til að sleppa úr mátnet- inu, og hefur Hamann miklar vinningslikur i biðskákinni. Skák Murrey og Ostermeyers varð jafntefli eftir 23 leiki. Hér eru birtar tvær skákir úr 3. umferð. Hj.G. W. Hartston — Z. Ribli Sikileyjarvörn I. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cd4 4. Rd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Df3 Dc7 8. 0-0-0 Rbd7 9. Be2 b5 10. a3 Bb7 U. Dh3 Be7 12. f3 d5 13. ed5 Rd5 14. Rd5 Bd5 15. Dg3 Dg3 16. hg3 0-0 17. g4 IlfdS 18. IIh3 Hac8 19. Hdhl Rf8 20. Bd3g6 21. Kbl Bc5 22. c3e5 23. Rc2 Be3 24. Iíe3 Ba2 25. Kc2 Bb3 26. Kb3 Hd3 27. Rc2 a5 28. g5 IU12 29. Rc3 a4 30. Kb4 Hb2 31. Ka5 Kg7 32. Hlh2 Hb3 33. Rg4 Ha3 34. Rc5 Hac3 35. f4 a3 36. Hc3 Hc3 37. g4 Re6 38. Hf2 Rf4 39. Kb5 Rd3 0-1 Friðrik Ólafsson — E. Laine 4 riddara tafl I. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rc3 Rc6 4. Bb5 Rd4 5. Bc4 Rf3 6. Df3 Be7 7. d3 0-0 8. g4 d5 9. Rd5 Rd5 10. Bd5 c6 II. Bb3 Be6 12. h4 Bb3 13. ab3 f6 14. Be3 a6 15. Ke2 Hf7 16. Df6 g6 17. De6 Dd6 18. Dd6 Bd6 19. Hafl HeS 20. f4 ef4 21. Bf4 Bf4 22. Hf4 Kg7 23. Hhfl Hce7 24. d4 b6 25. Kd3 IId7 26. g5 fg5 27. Hf7 Hf7 28. IIf7 Kf7 29. hg5 Ke6 30. Ke3 Kd6 31. e5 Ke6 32. Kc4 1-0 Skrifstofuhúsnæði óskast Bandalag háskólamanna óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði 120-140 ferm. Vinsamlegast hafið samband við skrif- stofu BHM s. 21173. Bandalag liáskólamanna. Hvar er hátiðin mikla? Yfir- gripsmikil sýning á list Kjarvals? Upptökur á rödd hans? Endurút- gáfa ljóðabóka hans og dagblaðs? Viðtöl? Frásagnir af uppátækjum hans? En, siðast en ekki sist, hefði verið viðeigandi að afmá þann ljóta blett sem „Kjarvals- staðamálið” hefur sett á nafn hans. Að visu er haldin hátið i minningu Kjarvals, yndisleg sýn- ing á smámyndum hans og skiss- um hefur verið sett upp að Braut- arholti 6, og einn af rithöfundum þjóðarinnar les i útvarp úr bók sinni um listamanninn, en sú há- tið er bara öriitið innlegg á þá imynd sem aðdáendur hans bera með sér hvern dag. Það er ekki verið að mælast til neins, þetta er svo sjálfsagður hlutur. Kjarval á ekki skilið þakklæti neins, hann þarfnast þess ekki, það er ekki viðeigandi. Hins vegar ættum við að minnast hans stundum og orða hans að byggja draumum sinum fagra höll með mörgum skærum ljós- um: ,, — þangað vil ég bjóða vinum minum og áminna og syngja fyrir þeim með sannleiksvissu um framtiðina sem ég hef séð i hill- ingum liðins tima og fá þá til að halda áfram að vera litil börn sem halda áfram að gleðjast yfir þvi sem er fallegt og gott. svo möguleikarnir og framtiðin megi halda áfram að lifa—..” Niels Hafstein. KVENNAFRÍ 24. OKTÓBER 1975 FUNDURÁ LÆKJARTORGI Dagskráin hefst kl. 2 á Lækjartorgi. Fundarstjóri: Guðrún Erlends- dóttir. + Lúðrasveit kvenna leikur. * Fundur settur. * Ávarp: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona. + Fjöldasöngur undir stjórn Guðrúnar Á. Símonar óperusöngvara. * Alþingismannahvatning: Sigurlaug Bjarnadóttir og Svava Jakobs- dóttir. * Þáttur Kvenréttindafélags íslands. '★ Ávarp: Björg Einarsdóttir verslunarmaður. * Fjöldasöngur: Hvers vegna kvennafrí? Ljóð Valborgar Bentsdóttur í tilefni dagsins. + Ávarp: Ásthildur ólafsdóttir húsmóðir. * Kvennakróníka í þríliðu. Tekið hafa saman Anna Sigurðardóttir, Sigríður Thorlacius og Valborg Bentsdóttir. Flytjendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Helga Bachmann, Sigriður Hagalín og Sigurður Karlsson. Stjórnandi: Herdís Þor- valdsdóttir. -k Baráttudagskrá rauðsokka. -k Fjöldasöngur. + Fundi slitið. * Lúðrasveitin leikur i fundarlok. OPIÐ HÚS W* Oröiö er frjálst — Áhugafólk skemmtir — Kaffi og öl * Norræna húsið við Hringbraut. Opið kl. 15 til 19. * Sokkholt, heimili rauðsokka, Skólavörðustíg 12. Opið kl. 10—19. * Félagsheimili prentara, Hverfisgötu 21. Opið kl. 10—19. * Lindarbær, Lindargötu 9. Opið kl. 15—19. * Hótel Saga, Súlnasalur. Opið kl. 15—19. * Hallveigarstaðir v/Túngötu. Opið kl. 10—19. + Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Baldursgötu 9. Opið kl. 15—19. Framkvæmdanefnd um kvennafri. KONUR! STÖNDUM SAMAN!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.