Þjóðviljinn - 24.10.1975, Page 7

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Page 7
Föstudagur 24. október 1975. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7 • Forystumenn finnska flokksins segjast ekki hafa vitað um athafnir gjaldkerans. Voru 100 þúsund mörk frá Vestur- Þýskalandi pólitískir ClA-peningar? 100 þús. vestur-þýsk mörk komu einhversstaöar frá. Eugen Lodereí, formaöur i v.-þ. Málmiönaöarsambandinu, sendi peningana til Stokkhólms, Per Johansson, gjaldkeri sænska Málmiönaöarsambandsins, tók viö þeim og setti þá á sinn eigin bankareikning. Peningarnir héldu áfram til Gösta Damberg, gjaldkera sænska sósialdemókrataflokksins. Penti Kettla, gjaldkeri finnska bróöurfiokksins, fékk I sinar hendur 244 sænska þúsund- krónuseöla og ætlaöi meö þá til Finniands. Lögreglan lagöihaid á þá. Kratapeningar yfir landamærin Finnskir sósiaidemókratar hafa átt I fjárhagslegum erfiö- leikum aö undanförnu. Mikiö iiggur viö, þar sem kommúnistar sigla nú meðbyr i finnskum stjórnmálum en heldur hefur siegiö i bakseglin hjá krötum. Nils Gösta Damberg, gjaldkeri sænskra sósíaldemókrata hefur skýrt frá því i viötali viö Afton- bladet aö þegar fyrir þingkosn- ingarnar i siðasta mánuöi hafi fiokksbræöurnir ieitaö eftir stuöningi frá Sviþjóö, en þá hafi þvi miður ekkert verið I kassan- um. Þaö er afar einkennandi fyrir þau blaöaskrif sem oröiö hafa um tilraunina til þess að smygla 250 þúsund. sænskum krónum frá Sviþjóö til Finnlands, aö leiötogar finnskra og sænskra sósialdemó- krata telja eðlilegt að systur- flokkar styrki hvern annan, en það er hinsvegar harmaö aö pen- ingarnir skuli koma frá dularfull- um aöila i Vestur-Þýskalandi og reynt sé aö smygla þeim yfir til Finnlands á klaufalegan hátt. Samstaða norrænna krata í forystugrein Aftonblaðsins, sem gefiö er út af Arbetar-press- en og er þar meö kratablað, þann 9. okt. segir að það sé ekki á nokkurn hátt hægt að ætlast til að fjármagnshreyfingar milli landa séu einkaréttindi sænskra kapitalista. t foystugreininni kemur sú skoðun fram að sósial- demokrataflokkúnum á Norður- löndunum sé i rauninni skylt aö styrkja hvern annan nú og fram- vegis. Hinsvegar sé óþarfi aö velta vöngumyfir því hvort meginhluti 250 þúsund kr. hafi komið frá bandarisku leyniþjónustunni CIA eða ekki. Það sé nógu slæmt að peningarnir skuli hafa komiö frá Vestur-Þýskalandi.Það sé illa komiö fyrir finnskum sósial- demókrötum, ef þeir hafa taliö sig þurfa aö leita eftir fjárstuön- ingi frá V-Þýskalandi fyrir þing- kosningarnar og kosningarnar i finnska Málmiðnaðarsamband- inu. Niðurstaða forystugreinarinn- ar er semsagt sú að ekki sé hægt að álasa gjaldkera sænska flokks- ins fyrir að hafa komið peningum til finnska bróðurflokksins, held- ur fyrir að hafa sent vitlausa pen- inga, i stað þess að efna til opinn- ar almennrar fjársöfnunar meðal norrænna sósialdemókrata til styrktar finnskum flokksbræðr- um. Bitbein i kosningunum Peningarnir sem Pentti Ketola,gjaldkeri finnska flokks- ins reyndi aÖ smygla til Finn- lands, verða nú bitbein i kosning- unum i Málmiðnaðarsambandinu 2. 3. 4. nóv. Félagar i þessu sam- bandi eru 140 þús., og baráttan er tvisýn. 1 kosningabaráttunni verða kratarnir minntir á slagorð, sem þeir sjálfir hafa haldið á lofti i fyrri kosningum: „Kjósið krata Myndin hér aö ofan var tekin á blaöamannafundi sem Kalevi Sorsa, leiötogi finnskra krata, Ulf Sundquist, flokks- ritari, og Pentti Ketola, gjald- keri, héldu i Helsinki um miöjan mánuöinn. Þar sögöu Sorsa og Sundquist aö flokks- forystan hefði ekkert vitaö um máliö og Ketola var iátinn taka á sig alla ábyrgð. Hann sagöist ekki hafa vitaö hvaöan peningarnir komu, nákvæm- lega, og sagði að þctta væri I fyrsta sinn sem flokkurinn fengi stuöning hinnar alþjóð- legu verkalýöshreyfingar. Ketoia er nú i frii og er taliö liklegt að þaö veröi langt. Ketola er fremst á myndinni en Sundquist viö hliö hans. — eina flokkinn, sem ekki tekur viö neinum styrkjum.” Meðal annars vegna þessa slagorös er talið að Ketola hafi ekki viljað láta verða uppvist um peningastreymið til flokksins að utan. Honum heföi veriö i lófa lagið að koma peningunum frá Sviþjóð á löglegan hátt, þvi sænskir kratar hafi i ár leyfi sænska Seðlabankans til þess aðflytja 3 milljónir sænskra króna úr landi til stuðningsstarfs viðsvegar um heim. Veit flokksforystan ekkert um fjáröflunar- leiðir gjaldkera? Eftir að upp komst um gjald- eyrissmyglið hvarf áðurnefndur Ketola um skeið og tjáði sig ekki opinberlega. Hin opinbera lina finnska sósialdemókrataflokksins kom fram i ummælum flokksrit- arans, Ulf Sundquist, sem sagði á fundi með fréttamönnum að flokksforystan vissi ekkert um þessa peninga, hefði ekki beðið um þá, vissi ekki hvaðan þeir kæmu eða hvernig þeir hefðu bor- ist. Þetta verður, samkvæmt skoð- un Aftonblaðsins, ekki túlkað á annan hátt en að gjaldkerar nor- rænu krataflokkanna hafi mjög frjálsar hendur um útvegun fjár til flokksstarfsins, og flokksfor- ystan viti raunverulega ekki hvaðan það fé er komið, sem hún hefur úr að spila. Of Iftið af sænskum kratapeningum í grein sem Dieter Strand, kunnur blaðamaður og flokks- krati, skrifar i Aftonblaðið 9. okt., setur hann upp það dæmi að kommúnistar i Sviþjóð hefðu möguleika á þvi að ná völdum i sænsku verkalýðshreyfingunni á næstu mánuðum. Hann kveðst viss um að þá myndu menn ekki beita neinum vettlingatökum i stjórnmálabaráttunni. Af þessu dregur hann þá ályktun, að gerðir Ketola hafi verið réttlætanlegar. Aö hans mati þýðir litið að vera i sunnudagafötunum i baráttunni við kommúnista skiljanlegt hafi verið að Ketola skuli hafa reynt að koma peningunum til Finn- lands án þess að það vekti at- hygli. Frh. á bls. 18. Upprifjun um peningasmyglið Úr Þjóðviljanum Þriðja okt. sl. fann öryggis- eftirlitið á Arlanda-flugvelli i grennd við Stokkhólm 194.000 krónur sænskar á fjórum finnum, sem voru i þann veginn að stiga upp i flugvél á leið til Helsinki. Finnarnir voru Pentti Ketola, féhirðir finnska sósial- demókrataflokksins, kona hans og önnur hjón. Fimmti finninn i hópnum var þá þegar sloppinn úr landi með 50.000 krónur sænskar. Fljótlega kom i ljós aö Ketola hafði fengiö fjármagniö hjá Nils Gösta Damberg, féhirði sænska sósialdemókrataflokksins. Sá sem afhenti Damberg fúlguna var hinsvegar Per Johansson, féhirðir sænska málmiðnaöar- mannasambandsins, sem er undir stjórn sósialdemókrata. 75.000 krónur af fjárhæöinni voru gjöf frá sænska málmiðn- aöarmannasambandinu til finnskra sósialdemókrata, en afgangurinn, að upphæð 169.000 krónur sænskar reyndist viö 17. október nánari athugun koma frá bankareikningi i Genossen- schaftbank i Basel f Sviss, en þann reikning hefur Eugen Loderer, formaður málmiönaö- armannasambands Vestur- Þýskalands, sem er stærsta verkalýössamband Vestur- Evrópu og undir stjórn sósíal- demókrata. Lögbrot Fyrst i staö lá beinast viö aö ætla að fjárfúlga þessi væri styrkur frá vesturþýskum sósialdemókrötum til bróöur- flokksins I Finnlandi, hliöstætt þvi sem þegar kom á daginn meö hinn sænska hluta fjárhæð- arinnar, en svo reyndist ekki vera. Málmiðnaðarmannasam- band Vestur-Þýskalands þver- tók snarlega fyrir að nokkur peningur af fénu væri frá þvi kominn. Loderer, sem staddur var á alþjóðlegri ráöstefnu málmiönaöarmannasamtaka i Tókió, gaf um siöir þá skýringu að nokkrir „vinir” hans hefðu skotiö saman fénu. Ekki hefur veriö upplýst hverjir þessir „vinir” eru, og eru uppi um það ýmislegar grunsemdir. í Sviþjóð vakti máliö i upphafi mesta athygli vegna þess, að hér var um lögbrot og tilraunir til lögbrota að ræöa af hálfu Ketola og fylgdarliös hans. Bannaö er samkvæmt sænskum lögum aö fara meö meira úr landi en 6000 krónur sænskar, nema aö fengnu leyfi sænska rikisbankans. önnur hlið á mál- inu er þó stórum alvarlegri. Hér er sem sagt greinilega um að ræöa tilraun vesturþýskra og sænskra sósfaldemókrata — og ef til vill fleiri aöila — til að hafa áhrif á gang innanrfkismála I Finnlandi, meö riflegum fjár- stuöningi við finnska sósial- demókrata. Baráttan í finnsku verkalýðshreyfingunni Ekki þarf að fara I grafgötur •yckn 13íalmS — dikr/ör SMZNASTE nyt 1 ÐE HEMLICH IlpnRTiPENGnnm — sá hðr ákte den finske partikassörei och tvá kvinnor fast með ástæöurnar til þess, að þessum fjárstuðningi skuli veitt til finnskra sósialdemókrata einmitt nú. Um langt árabil hafa flokkar sósialdemókrata og fólkdemókrata (sem er raun- ar einskonar kosningabandalag, þar sem finnski kommúnista- flokkurinn er sterkasti aðilinn) veriö i harðri keppni um völdin i verkalýðssamtökum Finnlands. Eins og sakir standa virðast fólkdemókratar þar i sókn, allavega unnu þeir talsvert á i þingkosningunum nýverið, en sósialdemókratar töpuðu litil- lega. 2.-4. nóv. nk. fara fram kosningar i málmiðnaðar- mannasambandi Finnlands, einu fjölmennasla verkalýös- sambaiidi landsins. Þar hafa sósialdemókratar nú nauman meirihluta, en hafa fulla ástæðu til aö óttast að þeir glati honum til fólkdemókrata, þar eö I þing- kosningunum bættu þeir siðar- nefndu verulega við sig i kjör- dæmum, þar sem málmiðnað- armenn eru fjölmennir. Báöir flokkarnir leggja höfuöáherslu á að hafa sem sterkust itök i verkalýöshreyfingunni, sem sjá má af þvi aö i Finnlandi er sagt aö frá sjónarmiöi þessara flokka hafi þingkosningarnar fyrst og fremst verið „general- prufa” fyrir kosningarnar i málmiðnaðarmannasamband- inu. Talið er að sigur fólkdemó- krata i þeim kosningum myndi hafa i för meö sér harðari bar- áttu finnskra verkalýössamtaka almennt fyrir hærra kaupgjaldi og aukna róttækni i finnskum stjórnmálum. Það er ljóst að ekki einungis vesturevrópskir sósialdemókratar myndu lita þá þróun óhýrum augum, heldur og til dæmis sænsk stórfyrirtæki, sem eiga verulegra hagsmuna að gæta i þessu sambandi, og ekki siður ráöandi öfl á Vestur- löndum yfirleitt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.