Þjóðviljinn - 24.10.1975, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNl Föstudagur 24. október 1975.
Gísli Guðmundsson, Suðureyri;
Þessi hópur stendur að AlþýOuleikhúsinu á Akureyri. A myndina vantar Þráin Bertelson.
kiilla
Ég læt ekki
mig lygara
Gisli Guömundsson, fréttaritari
Þjóðviljans á Suðureyri við Súg-
andafjörð hefur beðið blaðið að
koma á framfæri athugasemdum
vegna sveitarst jóra máls þar
vestra — að gefnu tilefni.
. t fréttabréfi Gisla sem birtist
hér i blaðinu 18. mars 1975 var
fjallað um sveitarstjóramálin
undir millifyrirsögninni ,,Lög-
lærður sveitarstjóri,” Þar segir
svo:
„Gestur Kristinsson, sem tók
við starfi sveitarstjóra sl. haust
varð vegna veikinda sinna að
hætta i þvi starfi. 1 hans stað
hefur verið ráðinn nýr maður.
Nafn hans er Hlöðver
Kjartansson. Hann er lögfræð-
ingur að mennt frá i vetur.
Hlöðver er bróðir Guðvarðar er
var hér kaupfélagsstjóri i tvö ár.
Hlöðver er kvæntur súgfirskri
konu. Heimili þeirra hefur verið i
Reykjavik, en hún er lærð
hjúkrunarkona. Sveitarstjórinn
nýji mun koma hingað næstu
daga og þá án konu. Hlöðver er 27
ára gamall.”
Gisli heldur áfram:
„1 sama blaði 18. mars kom
önnur smáfrétt, sem ég simaði
suður 17. mars, og var hún um
afla súgfirðinga þá daga, sem
liðnir voru af mars-mánuði og i
lokin stóð þar orðrétt: „Nýi
sveitarstjórnin settist i stólinn
þar 10. mars, hann er nú alfarinn
héðan, og var frá 10. til 14. mars.
Ekki veit ég hvers vegna hann
hætti, enda vildi hann ekki segja
mér það, þegar ég hringdi til hans
yfir á Flateyri.” Svo mörg voru
þau orð. 18. mars, daginn, sem
Þjóðviljinn kom út, hringdi
blaðamaður frá Visi til hrepps-
stjórans hér og vildi fræðast um
sveitarstjórann og hans stuttu
viðdvöl. Blaðamaður Visis ÞJM
hefur sennilega ekki trúað
fréttum Þjóðviljans og talið þær
vera einhverja markleysu.
Hreppsstjórinn benti blaðamann-
inum á sjálfan oddvitann, hann
hlyti að geta sagt þeim sann-
leikann. Eftirfarandi stóð svo i
Visi 19. mars:
„Hann stoppaði ekki lengi viö,
sá sem ætlaði að taka við embætti
sveitarstjóra við Súgandafjörð.
Hann var aðeins i fjóra daga. Þá
afþakkaði hann starfið og fór
heim til Reykjavikur aftur.
Hlöðver Kristjánsson heitir
þessi maður og er 27 ára. 1 Þjóð-
viljanum igærer þvi haldið fram,
að Hlöðver hafi verið búinn að
taka við embættinu, en i viðtali
við Visi i morgun neitaði Ólafur
Þórðarson, oddviti, að Hlöðver
hafi verið sestur i stólinn.
Hann var aðeins kominn hingað
til að kynna sér starfið, en hann
var ekki búinn að taka við
embættinu, sagði oddvitinn.
Aðspurður um það, hvort fjár-
hagserfiðleikar sveitarfélagsins
kynni að hafa átt nokkurn þátt i
þvi að Hlöðver sneri heim aftur,
svaraöi oddvitinn:
„Við skulum ekki blanda þeim
málum of mikið saman. Hins
vegar er þvi ekki að neita, að
erfiðleikar okkar fjárhagslega
eru miklir. Vegna fyrirhugaðra
mannaskipta i embætti sveitar-
stjóra létum við gera upp bók-
haldið. Otkoman var ófögur, en
ég vil ekki úttala mig á þessari
stundu um þær tölur, sagði odd-'
vitinn. Það verður gert á opnum
hreppsnefndarfundi innan tiðar.”
A siðasta hausti tók Gestur
Kristinsson við embætti sveitar-
stjóra, en þegar hann varð að láta
af störfum vegna veikinda tók
Birkir Friðbertsson við starfinu
og gegnir þvi enn, eða þar til nýr
sveitarstjóri finnst.
„Við fáum nýjan sveitarstjóra
áður en langt um liður. Það þarf
ekki að efast um það”, sagði
Ólafur Þórðarson, oddviti, að
lokum.” — Þetta var frétt Visis og
i framhaldi hennar segir Gisli
enn:
„Með þessari yfirlýsingu sinni i
Visi, gerði oddvitinn mig að
ósannindamanni, eða hreint út
sagt lygara, þar sem hann
afneitaði Hlöðver Kjartanssyni
sem sveitarstjóra og sagði hann
ekki hafa verið ráðinn. Það liða
nú nokkrir mánuðir og eftirfar-
andi kom siðan i Þjóðviljanum 16.
júli, undir fyrirsögninni „5
sveitarstjórar á tæpu ári.”
„Ólafur Þórðarson bar á móti þvi
i viðtali við Visi 19.mars i vetur,
að Hlöðver Kjartansson hefði
verið ráðinn og farinn að
innheimta gjöld og gefa út
ávisanir viðvikjandi starfinu.
Hins vegar sagði Ólafur það rétti-
lega i Visisviðtalinu, að þvi væri
ekki að neita að erfiðleikar
hreppsins fjárhagslega væru
miklir og Hlöðver hefði verið hér
til að kynna sér það. Hver veit
nema erfiðleikarnir hafi nú aukist
og Sigurjón skutli sér burt þá og
þegar, já hver veit. Ekkert hefur
frést af hinum ■ opinbera hrepps-
nefndarfundi, sem lofað var i
málefnasamningi vinstrimanna
og oddviti gat um i vor þann 19.
mai sl.”
Þetta vil ég láta koma fram,
sagði Gisli. Ég læt ekki kalla mig
lygara i blöðum, jafnvel þó að það
sé oddviti sem það geri.
Þvi er viö að bæta að hinn opin-
beri hreppsnefndarfundur hefur
ekki verið haldinn enn.
Oddvitinn er á þingi suður i
Reykjavik, fór þangað rétt þegar
hann hafði sett skólann, en hann
er skólastjóri hér lika. —Gfsli
Starfsemi
hússins
að hefjast
Eins og fram hefur komið i
fréttum var á siðastliðnu sumri
stofnað ferðaleikhús. Alþýðu-
leikhúsið, sem hefur aðsetur sitt
á Akureyri. Stofnfundur var
haldinn þann 4. júli.
Um þessar mundir er starf-
semi leikhússins að hefjast með
æfingum og undirbúningi að eft-
irtöldum sýningum.
Safni einþáttunga, sem eiga
það sameiginlegt að bregða upp
myndum er sýna stöðu ýmissa
þjóðfélagsstétta. Einþáttung-
arnir eru samdir i hópvinnu fé-
laganna i leikhúsinu. Eru æfing-
ar þegar hafnar á hluta þátt-
anna.
Samfelld dagskrá er fjallar
um mengun, orsakir hennar og
afleiðingar. Þessi dagskrá er
sérstaklega undirbúin til sýn-
inga i skólum.
Nýtt islenskt leikrit eftir höf-
und, sem ekki hefur áður látið
að sér kveða á þessum vett-
vangi. Verkið er nútimaverk og
tekur höfundurinn til meðferðar
félagsleg og persónuleg vanda-
mál fólks i samfélagi nútimans.
Sameiginlegt öllum þessum
sýningum er að þær eru gerðar
þannig úr garði, að hægt er að
sýna þær við frumstæðar að-
stæður, s.s. á vinnustöðum, i
skólum og viðar.
Eftir næstu áramót er stefnt
að fastráðningu fimm starfs-
manna að Alþýðuleikhúsinu.
Verður það allt fólk sem unnið
hefur i leikhúsum áður við leik
og leikstjórn. Hópurinn mun
mynda þann kjarna sem megin-
starf leikhússins mun hvila á.
Ekki verður ráðinn sérstakur
leikhússtjóri, þar sem hópnum
öllum er ætlað að hafa stjórnun
á sinni hendi, ásamt félögum i
rekstrarfélagi leikhússins. 1 fé-
laginu eru fjórtán félagar.
1 verkefnavali mun Alþýðu-
leikhúsið leggja áherslu á verk
er fjalla um félagsleg viðfangs-
efni. Þetta felur einnig i sér að
leikhúsið mun taka til sýninga
klassisk verk. Með verkefna-
valinu og túlkun mun leikhúsið
taka afstöðu til þeirra mála sem
um er fjallað. Leikhúsið tekur
afstöðu með verkalýðsstéttinni
og vill beita kröftum sinum i
baráttu alþýðunnar fyrir aukn-
um réttindum og fullkomnara
þjóðfélagi. 1 þeirri viðleitni mun
leikhúsið leita samstarfs við
leikritahöfunda til að skrifa
verk til flutnings á vegum leik-
hússins.
Þær starfsaðferðir sem leik-
húsið mun beita i innra starfi
sinu, byggjast ekki á hefð is-
lenskra leikhúsa. Alþýðuleik-
húsið leggur áherslu á sem full-
komnast lýðræði i vinnubrögð-
um sinum og telur að allir sem
viiina að leiksýningum eigi að
mynda einn samhentan vinnu-
hóp er byggi starf sitt á sam-
vinnu og samstarfi en ekki
stjórnun eins eða fárra.
Starfsfólk leikhússins og sam-
starfshópur þess mun i samein-
ingu velja verk til sýninga og
mun verkefnavalið grundvall-
ast á þvi að boðskapur hvers
verks falli að skoöunum hóps-
ins, þannig að ekki komi til þess
að leikarar og aðrir starfsmenn
þurfi að koma upp sýningu and-
stæðri þeirra eigin skoðunum.
Tilraunir sem áður hafa verið
gerðar hér á landi til að koma
upp sjálfstæðum leikhópum
hafa flestar mistekist að þvi
leyti að hóparnir hafa verið
skammlifir. Eigi Alþýðuleik-
húsinu að takast að verða lang-
lift er þvi nauðsýn á að á bak við
það standi mikill fjöldi styrktar
félaga sem sé reiðubúinn til að
tryggja fjárhagsafkomu leik-
hússins með sameiginlegu á-
taki.
Nú er unnið að þvi að leita til
almennings um stuðning við Al-
þýðuleikhúsið. Mun á næstunni
verða haft samband við mikinn
fjölda fólks og þvi gefinn kostur
á að styðja leikhúsið með kaup-
um á styrktarkortum, sem jafn-
framt gilda sem aðgöngumiðar
á sýningar leikhússins.
Þeir sem vilja leggja málinu
lið eru beðnir að senda framlög
sin með giróseðli eða að leggja
þau beint inn á ávisanareikning
Alþýðuleikhússins við útibú
Landsbanka tslands á Akureyri.
Númerið er 4081.
Póstur til leikhússins sendist i
pósthólf nr. 26 á Akureyri.
1 framkvæmdanefnd Alþýðu-
leikhússins eiga eftirtalin sæti:
Böðvar Guðmundsson, Hjarðar-
lundi 6, Akureyri, s. 23788.
Helgi Guðmundsson, Helga-
magrastræti 15, Akureyri, s.
22509
Ragnheiður Garðarsdóttir,
Skarðshlið 9, Akureyri, s. 23129.
Ragnheiður Benediktsdóttir,
Helgamagrastræti 15, s. 22509.
Tilboð óskast í
birgðaskemmu
að Keflavíkurflugvelli. Stærð 450 fermetr-
ar. Skemman er með beinum veggjum,
járn á lektum og stálgrind i þaki.
Skemman verður sýnd mánudaginn 27.
október kl. 10-12 árdegis.
Frekari upplýsingar á skrifstofu vorri
næstu daga.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri
miðvikudaginn 29. þ.m. kl. 11 árdegis.
Sala varnarliðseigna.