Þjóðviljinn - 24.10.1975, Side 9
Föstudagur 24. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
„Áfram
stelpur”
á plötu
Sjö leikarar
syngja 15 lög
inn á plötu
,,Áfram stelpur" heitir
hljómplata af stærri gerð-
inni sem út kemur í lok
nóvember. Nokkrir leikar-
ar tóku sig saman og
ákváðu að syngja lögin úr
,,Kellingunum" inn á plötu
og bæta við nokkrum öðr-
um kvennasöngvum. Á
plötunni verða semsagt 15
kröftuglega k>yrjaðir text-
ar eftir ýmsa höfunda.
Lögin úr kabarettinum „Ertu
nú ánægð kerling” eru mörgum
kunn, enda gengu þessar sýning-
ar fyrir fullu húsi vikum saman i
kjallara Þjóðleikhússins og hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Við hittum leikarana á þriðju-
daginn þar sem þær voru að
syngja baráttulögin inn á plötuna
i stúdióinu „Hljóðritun” i Hafnar-
firði undir stjórn Magnúsar Ingi-
marssonar, sem hefur annast út-
setningar.
Þær sem syngja eru Anna
Kristin Arngrimsdóttir, Briet
Héðinsdóttir, Guðrún Alfreðs-
dóttir, Kristin ólafsdóttir, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún
Björnsdóttir og Steinunn Jóhann-
esdóttir.
„Þetta eru lög úr „Kerlingun-
um”,” sagði Steinunn Jóhannes-
dóttir, „það er að segja sum
þeirra og svo nokkur sem við höf-
um tint til i viðbót.
Höfundur ljóðanna eru sviinn
Gunnar Edander og Böðvar Guð-
mundsson, Þrándur Thoroddsen,
Dagný Kristjánsdóttir, Kristján
Jónsson og svo er eitt lag og ljóð
eftir Megas.”
Hver er tilgangurinn með út-
gáfunni?
„Okkur finnst full þörf á þvi að
lög og textar eins og þau sem við
erum að syngja inn á plötuna
komist á framfæri á kvennaári.
Okkur langaði lika til þess að
gera lögunum úr „Kerlingunum”
betri skil, þvi sannast að segja
gekk sýningin i Þjóðleikhúsinu
enn fyrir fullu húsi þegar hætt var
við hana.”
Kjartan Eggertsson og Hjörtur
Blöndal gefa plötuna út. Magnús
Ingimarsson stjórnar söngnum
og útsetur og hljóðfæraleikarar
eru ekki af verri endanum: Birgir
Karlsson, Arni Scheving, Alfreð
Alfreðsson, Jón Sigurbjörnsson,
Gunnar Ormslev og Auður Ingva-
dóttir.
Lögin á plötunni verða fimmtán
talsins, þar af eru fjögur sem
hvorki voru i „Kerlingunum” i
Reykjavik né á „Akureyri”.
1 dag, I kvennaverkfallinu,
munu leikararnir sem aö framan
voru taldir, syngja á útifundi á
Lækjartorgi og einnig verða eitt-
hvað á ferðinni milli „opnu hús-
anna” og skemmta sjálfum sér og
öðrum.
Og við spurðum loks hvað plat-
an væntanlega ætti að heita?
„Auðvitað „Afram stelpur”! —■
og umslagið gerir hún Sigrún
Eldjárn.” —GG
: :
Leikararnir sjö við upptökuna. Frá vinstri: Sigrún Björnsdóttir, Briet Héðinsdóttir, Kristin ólafsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Guðrún
Alfreðsdóttir, Anna Kristin Arngrimsdóttir og Margrét Helga Jó hannsdóttir.
Söngvar í kvennaverkfalli
A kvennaári hafa komið fram I dagsljósið ýmsir baráttu- og
kvennatextar, sem Þjóðviljinn birtir hér sýnishorn af. Sjálfsagt.
verða þeir margir kyrjaðir á fundum og I „opnu húsunum” i dag.
Hvers vegna þegjum við
Á plötunni: Áfram stelpur
Hvers vegna þegjum við þunnu hijóði
og þótt við tölum, er sem þaðheyrist vart?
Hvað gera stelpur, sem langar I ljóði
að leggja til svo fjarskalega margt?
Og aliir garga:
Hvað er hún að þvarga?
Það heyrist ekkert I henni.
Hvað ætli sé að röddinni?
Eiga þá stelpur alltaf að þegja
og aðeins vona að strákar túiki þeirra mál.
Eða upp að risa og rétta úr kútnum
og reka upp öskur: Ef þiðbara hélduð kjafti
þá munduð þið heyra I okkar
hljóðu sál.
Svona margar
Svona margar, nær meirihlutinn
af mannfólki þessa lands.
Það skýrslur segja til sanns.
Svona margar, meirihlutinn,
já meirihluti mannkynsins er við,
kvenfólkið.
Ef kúrum við hér ein og ein
á okkar básum heima.
Það verður okkar versta mein
þvi vlst ei skulum gleyma:
Að meirihlutans sterka stoð
þá styður okkur ekki.
Þá setjum við hvorki bönn né boð
Við bundnar erum I hlekki.
Svona margar....
Þvi skulum við reyna að skriða út úr skelinni þarna heima
og rétta úr okkar kvennakút
ei krafti okkar gieyma.
Þvl ef við stöndum lilið við hlið
við hljótum að vera margar.
Ef stelpa konu leggur lið
það leiðin er til bjargar.
Svona margar....
Hvers vegna kvennafrí?
Texti: Valborg Bentsdóttir
Lag: Frjálst eri fjallasal
Hvers vegna Kvennafrl?
Konurnar fagna þvi,
takast mun allsherjar eining.
Vanmetin voru störf,
vinnan þó reyndist þörf.
Aðeins I kaupi kyngreining.
Nú.á að brjóta I blað bráðlega sannast það,
við sigrum, ef saman við stöndum.
Konan á vilja og vit,
viiji hún sýna lit.
Tengjumst því baráttuböndum.
Metin skal maðurinn,
manngildi er hugsjónin.
Enginn um Ölmusu biður.
Hljómar um fjöll og fjörð:
Frelsi skal ríkja á jörð,
jafnrétti, framþróun, friður.
ULLARVERKSMIÐJAN
GEFJUN AKUREYRI
Merki kvennaárs er tákn jafnréttis
og friöar. Tákn einber tryggja ekki
konum jafnan rétt körlum,
en væröarvoö frá Gefjun tryggir
jjeim yl og gæöi islenzkrar ullar.
íofiö kvennaársmerki minnir jafnframt
á, aö ávallt og ekki aðeins á kvennaári
ber konum aö gæta réttinda sinna.
Verö aöeins 2.950 krónur.
Kvennaársteppið fæst í þremur
litum, í sauðalitum, mórauöu og
gráu, og i rauðu.