Þjóðviljinn - 24.10.1975, Page 14

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. október 1975. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona: Verkalýðs- hreyfingin verður að taka málin fastari tökum Mér er launajafnréttift efst i huga I dag. A meöan allskonar brögðum er beitt til að halda kon- um í lægstu launaflokkunum er aliö á minnimáttarkennd þeirra og baráttukjarkur þeirra er lam- aður. Ég trúi þvi, aö islenskar konur séu almennt farnar að gera sér grein fyrir að þær verða að herða baráttuna fyrir jafnrétti og þá launajafnrétti fyrst og siðast. Verkalýðshreyfingin verður að taka þessi mál fastari tökum en áður og hver vinnandi kona verður að leggja fram sinn skerf til baráttuunnar. Fram til baráttu og sigurs! Gleðilega hátið! Bergþóra Jónsdóttir menntaskólanemi: Lang- þvingað kvenfólk leysi af sér böndin A yfirborðinu virðist vera mik- ill áhugi fyrir jafnréttismálum, en það er sorglegt hversu litt virkar stúlkurnar i skólanum eru gagnvart félagsmálum og þá aðallega þeim félagsviðum sem höfða til annarra málefna en lista. A málfundum og öðrum fundum þykir það tiðindum sæta ef kvenmaður leggur orð i belg, veldi karlmanna á þvi sviði er nær algjört, en hvort þetta stafar af „kvenlegri feimni” aldalangri andlegri bælingu kvenfólks eða af ótta við „strigakjaftana ” sem alltaf hafa eitthvað til málanna að leggja (þeir eru allir karl- menn) vil ég ekkert um segja, en vona að auknar umræður um stöðu konunnar verði til þess að langþvingað kvenfólk leysi af sér böndin og taki til óspilltra mál- anna. t samtölum við stöllur minar i skólanum hef ég orðið vör við mjög útbreidda skoðun sem ég tel algerlega á röngum rökum reista. Það er mjög algengt að þær telji höfuðmóthverfuna i þjóðfélaginu Björg Pétursdóttir menntaskólanemi: Áfram,uns takmarkinu er náö! Mér finnst, að þaö verði að gæta þess, að hvorki kvennaárið né kvennadagurinn fari út i öfgar. Aö hugtakið kvennaár sé ekki notað i' auglýsingaskyni og sagt td.: Ja, nú er kvennaár, nú getum viö gert þetta eða hitt. Og það sé notað svo mikið, að allir verði hundleiðir á þvi. Lika það, að nú sé kvennaár og öll hin árin séu karlaár og þá eigi ekkert að fjalla um kvennamál. Margir eru sammála um, að konur eigi að fá jafnhátt kaup og karlmenn fyrir sömu vinnu. En þegar á reynir eru kvennastörfin alltaf lægra metin. 24. okt. held ég að verði vel heppnaður. Flestallar konur úti um allt land taka sér fri og munu Karlar — konur, og þvi slita þær jafnréttisbaráttuna úr öllu þjóð- félagslegu samhengi og vilja þvi siður tengja hana við aðra pólitiska paráttu i þjóðfélaginu hvað þá sé minnst á kommúnisma. t skólanum höfum við starfandi þjóðmálasvið sem er vettvangur nemenda fyrir skoðanaskipti i þjóðfélagsmálum og ekki þá sist i jafnréttismálum. A þeim tveimur árum sem ég hef verið I skólanum var aðeins ein stelpa starfandi I fyrra en engin I ár, amk. ekki enn sem komið er. Þetta sýnir slögg- lega áhugaleysi eða deyfð þá er ríkir meðal stelpnanna, þvi það er aldeilis ekki nóg að vera fylgjandi jafnrétti f oröi, þaö er starfið út á við sem skiptir mestu máli. sýna stööu konunnar I þjóöfélag- inu. Afturá móti tel ég, að mesta hættan sé nú, að allt detti niður þegar árið er liðiö. Semsagt, aö flestallir missi áhugann. Það verður að passa að slikt gerist ekki. Viö verðum aðhalda baráttunni áfram uns takmarkinu er náð. Jafnrétti á öllum sviðum. Sigríður Arnardóttir 10 ára grunnskólanemi: Karlar ættu aö athuga þaö! Konan er það mikilvæg i þjóð- félaginu að liklega verður að gefa öllum i barnaskólum fri ef kennslukonurnar taka sér allar i einu fri og það eru ekki nema 3—4 karlar sem vinna á barnaheimil- um en allt hitt konur. Frystihús, bankar, sjúkrahús, búðir og fleira er fullt af konum. Karlar ættu kannski stundum að athuga það að það eru konurn- ar sem leggja það á sig að fæða börnin. Hvers vegna eru þær þá veikari aðilinn? Karlar og konur með lágt Raup ættu að standa betur saman. STANDIÐ SAMAN KONUR i kvennafrii 24. október. Ætla að fjölmenna í bæinn A Akranesi hefur orðið til söngur i tilefni kvennafridagsins og þess að konur ætla að fara hópferð til Reykjavikur og taka þátt i baráttuaðgerðum þar og kvennafundinum á Lækjartorgi. Förum, förum, förum nu i bæinn förum þvi að nú er kvennnafri, Til hamingju, til hamingju, tii hamingju meö daginn, höndum tengjum fyrir máii þvi að undirstrika og viröa álag vinnudags verömætin að skapa til sólarlags. t dag má frystihúsum landsins loka i leyfisleysi nú er tekið fri málum okkar áfram skulum þoka enginn getur borið móti þvi að verömætin við sköpum fyrir lægstu laun leggjum þó fram krafta i dagsins önn og raun. t dag mun enginn salta sild i tunnu á saumastofum vélagnýrinn dó lengur enginn þegir hljóöi þunnu þvi að nú er loksins komiö nóg karlmennirnir heiminum stjórna illa enn eigum við ekki konur að taka þar við senn. Þjóð skal meta störf sin stolta kona þvi stöðvast vinnustaðirnir i dag Búðir og skrifstofur þegja til si svona skólar og bankar hafa annan brag viö þjóöfélagi flestar færum tvöfalt starf þvi fjölskyldu og heimili vinnum allt sem þarf. Gott er okkar Akraborg aö gista allar getum tekiö okkur far slenið nú af hópnum skulum hrista heimtum rétt sem konum alltaf bar. Syngjandi viö höldum i okkar höfuðborg Húrra fyrir kvennafundinum viö Lækjartorg. Þú færð ísmola í veizluna í Nesfi Nú getur þú áhyggjulaust boðið gestum kalda drykki heima hjá þér. Engin bið eftir að vatnið frjósi í ískápnum. Hjá Nesti færðu tilbúna ísmola, — og þú átt ekki á hættu að verða ís-laus á miðju kvöldi. Renndu við í Nesti og fáöu þér ísmola í veizluna! NESTI h.f. Ártúnshöfða — Elliðaár — Fossvogi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.