Þjóðviljinn - 24.10.1975, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. október 1975.
Það fer ekkert á milli mála að
þetta er besti leikur 1. deildar-
keppninnar i ár til þessa. FH-liðið
lék alls ekki illa, það hitti bara
fyrir ofjarl sinn. Kannski ná segja
að FH-ingar hafi á stundum verið
of bráðlátir með skot sin, þegar
þess er gætt hve frábær
markvarsla Gunnar Einarssonar
var. Á slikan markvörð þýðir ekki
að skjóta nema úr dauðafæri.
Viðar, Geir og Guðmundur
Sveinsson voru bestu menn FH i
sókn, en þeir Sæmundur og
Þórarinn i vörninni.
Hörður, Elias, Ingimar
Haraldsson, Ólafur Ólafsson og
Sigurgeir voru atkvæðamestir
hjá Haukum, en annars átti allt
liðið mjög góðan leik en eins og
áður segir var Gunnar Einarsson
i sérflokki, langt fyrir ofan alla
aðra leikmenn á vellinum.
Mörk Hauka: Hörður 11, Sigur-
geir 3, Ingimar 2, Elias 4 og Jón
H. 1.
Mörk FH: Guðmundur 5, Geir 4,
Þórarinn 3, Viðar 2, örn og
Guðmundur Arni 1 mark hvor.
—S.dór
Hinn ungi landsliðsmaður Hauka,
Ingimar Haraldsson skorar hér
annað marka sinna gegn FH
<Ljósm. S.dór)
FH orðið
litli
bróðir í
Firðinum?
,,Haukar eru bestir, Haukar eru bestir", söng áhorf-
endaskarinn í Hafnarfiröi i fyrrakvöld, þegar Haukarnir
tóku „stórveldið" FH í kennslustund i handknattleik og
sýndu bæöi FH-ingum og áhorfendum hvernig á að leika
góðan handknattleik, handknattleik eins og hann gerist
bestur hjá íslenskum liðum. Mikill hraði og ógnun í sókn-
inni, hraður, fastur og hreyfanlegur varnarleikur og
umfram allt frábær markvarsla. Já, markvarslan hjá
Gunnari Einarssyni er kapítuli út af fyrir sig, ég man
vart eftir að hafa séð annað eins nema kannski einu sinni
eða tvisvar áður um dagana. Og það er engum gerð
minnkun í því að fullyrða að hún átti mestan þátt í
þessum sigri Hauka. Ef liðin hefðu haft jafn góða mark-
verði hefði þessi leikur sennilega orðið jafn og spenn-
andi.
Það eru engir smá karlar sem
Haukarnir hafa lagt að velli i
tveimur fyrstu leikjum sinum. Is-
landsmeistarar Vikings og bikar-
meistarar FH og þetta er liðið
sem flestir spáðu falli eða i það
minnsta fallbaráttu. Og það sem
menn velta nú fyrir sér er hvort
Haukarnir séu að sanna þarfleysi
dýrra þjálfara eöa hvort Elias
Jónasson, einn besti leikmaður
liðsins, sem jafnframt stjórnar
æfingum liðsins sé svona frábær
þjálfari. Ljóst er að annaðhvort
er. Þaðfer nefnilega ekki á milli
mála að Haukarnir eru með besta
liðið i 1. deild sem stendur, hvað
sem verður.
Við megum nefnilega ekki
gleyma þvi að þeir byrjuðu likt
þessu i fyrra og hafa raunar gert
það oft áður, þótt liðið hafi
kannski ekki verið svona sann-
færandi fyrr. 1 fyrra unnu þeir
hvern leikinn á fætur öðrum I
byrjun, en siðan datt botninn úr
öllu saman og þeir höfnuðu um
miðja deild. En haldi þeir áfram
að leika eins og þeir hafa gert i
tveimur fyrstu leikjunum veröur
nær ógerlegt fyrir nokkurt lið að
stöðva þá.
Það skemmst frá þvi að segja
að Haukarnir tóku leikinn strax I
sinar hendur og héldu forystu út
allan leikinn. Tölur eins og 2:0,
4:2, 7:4og 9:4i leikhléi, 10:4, 12:5,
14:6 16:10, 18:12 sáust á marka-
töflunni. En undir lokinn tóku FH-
ingar lykilmenn Hauka úr
umferð, þá Hörð Sigmarsson
stórskyttu liðsins og Elias Jónas-
son primus mótór i öllum
samleik, og við það dofnaði mikið
yfir sóknarleik Haukanna og FH
náði að minnka muninn niður i 2
mörk. 18:16 urðu lokatölur leiks-
ins. Manni er ekki grunalust um
að þreyta hafi verið farin að hrjá
Haukana i lokin , eftir þann
óskapnaðar hraða sem þeir héldu
uppi lengst af, bæði i vörn og
sókn.
HM í júdó
Slagur
á milli
Japans
og
Sovétr.
Yfir 300 þátttakendur, frá 50
löndum eru nú komnir til Vin-
arborgar i Austurriki til þess
að taka þátt i HM i júdó sem
hefst þar i dag, mótið var sett i
gær.
Síðasta HM I júdó var haldiö
i Lausanne i Bandarikjunum
og þá sigruðu japanir í öllum 6
þyngdarflokkunum. Ekki er
búist við aðþeir leiki þetta aft-
ur nú, en talið er vist að þeir
vinni léttvigtina, millivigtina,
þu ngavigtina og opna-flokkinn.
Hörðustu keppinutar japana
verða sovétmenn sem eiga
mjög harðsnúnu liði á að
skipa, svo og frakkar og a-þjóð
verjar. Þetta verður siðasta
stórmótið i júdó fyrir ólym-
píuleikana I Montreal i Kan-
ada á næsta ári.
Þór á Akureyri með pantaða
flugmiða
... en Breiöablik
ætlar ekki að
mæta
A miðvikudagskvöld var
haldinn fundur með móta-
nefnd KSÍ og Breiðbliks vegna
,,nýja úrsiitaleiksins i 3.
flokki, sem nú er framundan.
Þar kom fram, aö akureyring-
ar eru staðráönir I að mæta til
leiksins, sem settur verður nk.
laugardag. Breiðablik ætlar
hins vegar ekki að m'æta og
gerir kröfur til formlegrar af-
greiðslu málsins.
Ein af kröfum kópavogs-
manna er sú, að þeir verði
formlega sviptir is-
landsmeistaratitlinum áður
en þeir veröi skikkaðir til að
leika um hann að nýju. Litur
KSi þó svo á, að um leið og
einn undanúrslitaleikur sé
dæmdur ólöglegur, leiki titill-
inn aftur á lausu.
Þetta mun vera i fyrsta sinn
i knattspyrnusögu okkar is-
lendinga sem íslands-
meistaratitill er tekinn af ein-
hverju liði. Mistökin i sam-
bandi við framkvæmd
undanúrslita yngri flokkanna
eru mikil og er vonandi að
langt verði að biða þess, að
leiðindaatvik sem þetta komi
aftur upp. —gsp
Handknattleikur í
lægsta gæðaflokki
þegar Fram sigraði Gróttu 16:12
Sem betur fer er það einstakur
viðburður að sjá handknattleik i
1. deild i svo lágum gæðaflokki
sem hann var I leik Fram og
Gróttu suður i Hafnarfirði sl.
miðvikudag. Það er meira að
segja sjaldgæft að sjá hann fara
svona ncðarlega i 2. deild, svo
hörmulegur var hann. Bæði liðin
eru að visu slök um þessar
mundir og þess vegna kannski
ekki von á stórleik þegar þau
mætast, en látum það vera. Hitt
er miklu verra. að bæði liðin og þó
alveg sérstaklega Gróttu-liðið
gerðusig sek um slikan fjölda af
byrjendavillum. of mörg skref,
tvigrip, misstu boltann úr hönd-
um sér, ótimabær skot og fleira
og fleira aðengu tali tekur um 1.
(íeildarlið.
Fyrir bragðið var leikurinn
ömurlegur á að horfa. Þar ofan á
bættist að það varð aldrei spenna
I leiknum, Fram hafði alltaf yfir 2
til 4 mörk. Það var aðeins fyrstu
minúturnar sem jafnræði var
með liðunum, 2:2 eftir 15 minútur
en siðan sigu Framarar framúr
og höfðu 2 mörk yfir i leikhléi 8:6.
Siðan höfðu þeir þetta 2-4 mörk
yfir allan siðari hálfleikinn, tvi-
vegis meira að segja 5 mörk,
þannig að aldrei kom upp spenna
I leiknum. Lokatölurnar urðu svo
16:12 eins og áður segir.
Aðeins einn leikmaður á skilið
hrós fyrir frammistöðu sina i
leiknum, það er Pálmi Pálmason,
sem sýndi frábæran leik á köflum
og vann þennan leik fyrirFram, á
þvi leikur enginn vafi og án hans
væri Fram algerlega á núlli.
Það væri þá helst Arni Indriða-
son sem hægt væri að hæla hjá
Gróttu-liðinu en hann hefur samt
oft leikið mun betur en að þessu
sinni.
Mörk Fram : Pálmi 7. Arnar 5 (2),
Andrés 2, Pétur og Gústaf 1 mark
hvor.
Mörk Gróttu: Björn Magnússon 3,
Björn Pét. 3, Magnús 2, Arni, Atli
og Kristmundur 1 mark hver.
—S.dór