Þjóðviljinn - 24.10.1975, Qupperneq 18
18 StÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 24. október 1975.
Dagskipan
til kvenna 24. október 1975
Lag Internationalinn
Fram þjökuö fljóö f þúsund löndum,
sem þoldu mannsins herradóm.
Nú er lag aö losna úr þeim böndum
og láta gjalla nýjan róm.
Sameinaöar brjótiö bændaveldiö
og byrjiö á þvi strax I dag.
Með köldu blóöi karlmenn alla geldiö,
svo komi réttlátt þjóðfélag.
Nú skal búrhnifa brýna
láta blóð renna um storð.
Ef karlar kergju sýna
skal kasta þeim fyrir borö.
nn.
Baldur
Framhald af 11. siðu.
yfir neinu að kvarta. „Við höfum
ekkert að vinna — það er miklu
frekar að viö töpum einhverju á
þvi að taka þátt i aðgerðunum.”
— Auðvitað veit maður um
misrétti i launum viða — hélt
Baldur áfram. — Sama menntun,
sama starf, minni laun — þetta er
alkunn visa og það er ekki nema
eölilegt að konur leiti réttar sins.
— Finnst þér ekki að þær, sem
ekki þurfa að kvarta yfir launa-
misrétti, ættu að vera með i að-
geröunum til þess að sýna nú einu
sinni ærlega samtakamátt
kvenna?
— Ja... það verður vitanlega
hver og ein að gera það upp við
sig. Ég sé ekki nokkra ástæðu
fyrir t.d. kvenfólkið hér að fara i
fri, menn eru skilst mér alveg
sáttir við „kerfi” hérna hjá
BYKO. Stúlkurnar standa sig lika
með sóma hérna, þr eru alls ekki
siöri við afgreiðslustörfin og
kunna á skiptilykla og borvélar
eins og þær hafi fæðst með þetta i
höndunum.
— Hefur verkfallið mikil áhrif
á atvinnulifið?
— Já, það er enginn vafi á þvi.
Þó er ég lika viss um að verkfall
karlmanna hefði að sjálfsögðu
mun meiri áhrif, einkum á sam-
göngur og stórvirkan iðnað. Það
er kannski kominn tími til þess að
við förum að láta eitthvaö frá
okkur heyra á sjálfu kvennaár-
inu.
Kratapeningar
Framhald af bls. 7.
Dieter Strand harmar það að-
eins að ekki skuli hafa verið hægt
að senda meira af kratapeningum
frá Sviþjóð til Finnlands.
CIA peningar
i Evrópu
Hvaðan komu peningarnir?
Þeirri spurningu er enn ósvarað.
Finnskir kratar segjast ekki hafa
beöið um neina hjálp frá Vestur-
Þýskalandi. Sten Anderson segir
að þeir hafi komið frá v-þýska
Málmiönaðarsambandinu; Vest-
ur-þýska málmiðnaðarsamband-
ið neitar þvi og einnig talsmenn
vestur-þýskra sósialdemókrata.
Hinsvegar hefur Eugene Loderer,
forseti Málmiðnaðarsambands-
ins, viðurkennt aö hann hafi feng-
ið peningana hjá „vinum” og
komið þeim áleiðis. Hver var
þessi vinur Loderer?
í Aftonbladet 9. okt. eru raktar
ýmsar upplýsingar um CIA-
stuðning við and-kommúniskar
hreyfingar i Vestur-Evrópu. Þar
segirað bandariska leyniþjónust-
an hafi dreift milíjónum dollara
gegnum net sambanda i mörgum
löndum til sósialdemókratiskra
flokka.
Samkvæmt frásögn Aftonblaðs-
kérndunf
&JB
KOtlendiv
ins hafa heimildir i Washington
ljóstrað upp, að Cia-stuðningur-
inn, hafi einkum beinst að and-
kommúniskum verkalýðsfélögum
og viðskiptaaðilum i NATÖ-rikj-
unum. Dreifimiðstöðin fyrir
þessa styrki, sem einkum hafa i
sumar farið til sósialistaflokks
Soaresar i Portúgal, er talin vera
i Vestur-Þýskalandi. Frásagnir
fjölmiðla um CIA-stuðninginn við
Soares, meðal annars fréttir New
York Times frá þvi skömmu fyrir
siðustu mánaðamót, hafa verið
staðfestar i Washington. Hins-
vegar segir Aftonbladet að engar
upplýsingar liggi fyrir um það að
CIA peningum hafi verið veitt til
Finnlands fyrir millligöngu
sænskra sósialdemókrata. Grun-
semdir hafi á hinn bóginn vaknað
um að þau 100 þúsund v-þýsku
mörk, sem skipt var i sænska
þúsundkrónuseðla i Stokkhólmi,
hafi verið pólitiskir CIA-pening-
ar.
Þaö er þá ekki i fyrsta sinn sem
CIA hefur reynt að hafa áhrif á
verkalýðsmál i Finnlandi, þvi að
fyrir liggja uppljóstranir um að á
árunum kringum 1960, þegar
hægri sinnaðir sósialdemókratar
klufu finnska alþýðusambandið
og stofnuðu eigið samband, er
ekki naut langra lifdaga, fengu
forystumenn þess fjárstuðning
frá CIA.
Skáldkonur
Frh.af bls. 15
af starfi, erfiðleikum og fórnfýsi
ljósmæðranna og lesendur leiddir
inn á gömlu sveitaheimilin, eins
og þau voru fyrir og eftir siðustu
aldamót. Hér segir frá margs
konar dáðum ljósmæðranna
sjálfra, ævikjörum islenskrar
alþýðu og viðburðarikum feröa-
lögum á sjó og landi.
Ritsafnið er samtals tæpar 800
blaösiður.
(Frétttilkynning.)
Ríkisstjórnin
Framhald af bls. 1
semi, en enginn vafi er á þvi að
hún mun fylgja kröfum sinum
fasteftir um áramótin. Samtimis
þessu gerbreyta opinberir starfs-
menn um aðferðir i kjarabarátt-
unni.
Siðan sagði Ragnar: „Nú hafa
sjómenn siglt fiskveiðiflotanum i
land og krefjast leiðréttingar á
fiskverði og aflahlut. Þetta hiaut
að gerast fyrr eða siðar. Rikis-
stjórnin hefur skert aflahlut sjó-
manna aftur og aftur mcð þvi að
taka stórar fúlgur af óskiptum
afla og setja i ýmiss konar sjóði.
Við alþýðubandalagsmenn höfum
barist gegn þessum aðgerðum og
varað við þcim, enda augljóst að
þetta er fyrst og fremst gert til að
snuða sjómenn. Það eru þessar
aðgerðir rikisstjórnarinnar sem
nú hafa komið öllu i hnút”.
„Svo ætlar þessi rikisstjórn að
leyfa sér ofan á allt annað að fara
að semja við breta um áfram-
haldandi fiskveiðiréttindi i is-
lenskri landhelgi, þrátt fyrir hina
iskyggilegu skýrslu Haf-
rannsóknarstofnunar og þver-
öfugt við augljósan vilja þjóðar-
innar. Þessi rikisstjórn er búin að
ofbjóða þjóðinni. Hún á að vikja.
Þjóðin þarf vinnufrið, aðra
stefnu, djarfa forystu, vinstri
stjórn.”
Tillaga Sigurjóns Péturssonar í borgarráði:
Starfsfólk borgarinnar
fái laun í kvennaverkfalli
Borgarfulltrúi Alþýðubanda-
Iagsins, Sigurjón Pétursson, lagði
til á borgarráðsfundi sl. þriðju-
dag svohljóðandi tillögu:
„Borgarráð samþykkir að beita
ekki heimild til frádráttar á laun-
um hjá þvi starfsfólki borgarinn-
ar, sem leggur niður vinnu
„kvennafridaginn” 24. okt. nk.”
Albert Guðmundsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði
fram breytingatillögu, sem fól i
sér, að einungis konur, sem legðu
niður vinnu, skyldu losna undan
þvi, að missa þess i launum. Af-
greiðslu tillagnanna var frestað.
Sigurjón Pétursson.sagði blað-
inu i gær, að ástæðan til þess að
hann hefði lagt fram þessa tillögu
hefði verið sú, að borgin hefði not-
fært sér heimild i lögum um opin-
bera starfsmenn, sem kveður á
um það, að heimilt sé að taka af
launum þeirra tvöfalda launa-
upphæð fyrir hvern þann dag,
sem vinna er lögð niður.
Þá sagði Sigurjón, að hann
hefði orðað tillöguna á þann veg,
að nefna ekki konur sérstaklega,
til þess að það bitnaði ekki á
karlpeningnum hjá borginni, ef
konur tækju sér ekki einungis fri
frá launaðri vinnu, heldur og
heimilisstörfum, sem þá karlpen-
ingur i starfi hjá borginni yrði að
taka að sér þennan dag, svo sem
heimilisumsýslu, barnagæslu
o.fl.
Astæðan til þess að tillögunni
var frestað, er sú, að hafi tillaga
ekki verið kynnt fyrir fund þann,
sem hún er lögð fram á, er ekki
hægt að krefjast atkvæðagreiðslu
um hana á þeim fundi.
—Úþ
Virðing forsætisráðherra og Morgunblaðsins fyrir
störfum íslenskra kvenna:
Mogginn kemur út
Til heiðurs stallsystrum sinum
hafa konur þær, sem sjá um setn-
ingu Morgunblaðsins, samþykkt
að hefja setningu Morgunblaðs-
ins, á miðnætti i nótt,
svo Morgunblaðinu, einu árdegis-
blaða, megi auðnast að sýna allri
kvenþjóðinni lítilsvirðingu með
útkomu sinni á laugardagsmorg-
un.
Ritstjóri Morgunblaðsins,
Styrmir Gunnarsson, lokaði sig af
i glerhöllinni við Aðalstræti i gær,
svo ekki tókst að fá þetta staðfest
hjá honum þrátt fyrir itrekaðar
tilraunir blaðamanns. Hins vegar
hefur blaðið þetta eftir öruggum
heimildum annars staðar frá i
Morgunblaðshöllinni.
Gagnvart þessu virðingarleysi
Morgunblaðsins og formanns eig-
endafélags þess, Geirs
Hallgrimssonar, fyrir vinnu
kvenna, eiga konur ekki nema eitt
svar. Samkvæmt lagabókstaf,
þar sem fjallað er um atvinnuróg,
er óheimilt að prenta mótleik
kvenþjóðarinnar, enda skýr og
þvi ekki ástæða til.
—úþ
öll áhöfn togarans Júni frá
Hafnarfirði hefur verið afskráð,
að þvi er framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
sagði blaðinu i gær. Sagði hann
ennfremur, að þetta þýddi fyrir
sér ekki uppsögn á mannskapn-
um, heldur væri þetta siður, þeg-
ar skip væru bundin við bryggju.
Eins og kunnugt er er áhöfn
togarans Júni þátttakandi i að-
gerðum sjómanna, sem beinast
að fiskverðsákvörðun og aflagn-
ingu sjóðakerfis sjávarútvegsins,
og skipstjórinn Guðmundur Jóns-
son, einn af nefndarmönnum i
samstarfsnefnd undir- og yfir-
manna vegna þessa máls. —úþ
Farmanna- og fiskimannasambandið:
Treystir fulltrúa sjómanna
í Verðlagsráði, — fagnar gagnrýni á sjóðina
Fréttatilkynning frá Far-
manna- og fiskimannasambandi
tslands I tilefni af aðgerðum sjó-
manna:
„Fundur haldinn i stjórn Far-
manna- og fiskimannasambands
tslands lýsir fyllsta trausti á full-
trúa sinum i Verðlagsráði sjávar-
útvegsins, og telur að hann hafi
þar unnið af mikilli kostgæfni.
Hins vegar fagnar stjórn Far
manna- og fiskimannasambands
ins framkominni gagnrýni sjó-
manna á sjóðakerfi sjávarút
vegsins.”
Tónlistarfélagið í kvöld
I kvöld klukkan niu efnir Tón-
listarfélagið til tónleika i Austur-
bæjarbiói i Reykjavik. Þar koma
fram Erling Blöndal Bengtsson,
sellóleikari og Árni Kristjánsson,
pianóleikari.
Efnisskrá er á þessa leið:
Robert Schumann:
Fantasia fyrir selló og pianó, op.
73
Zart und mit Ausdruck
Lebhaft, leicht
Rasch und mit Feuer
Joh. Seb. Bach:
Einleiks-Svita nr. 6, D-dúr fyrir
selló
Síldarsöltun
Þjóðviljinn frétti af þvi að Þor-
steinn RE væri væntanlegur til
Reykjavikur sl. nótt með sildar-
farm og að til stæði að salta hann
hjá Bæjarútgerð Reykjavikur.
Við spurðum Matthias Þ.
Guðmundsson verkstjóra hjá
BOR hvort þetta væri rétt.
— Jú, þetta er rétt. Þorsteinn
kemur með um 240 tunnur i nótt
og aflinn verður saltaður á morg-
un (þ.e. föstudag) þvi annars
eyðileggst hann.
Preludio
Allemande
Courante
Sarabande
Gavotte I & II
Gigue
Ludwig van Beethoven:
Sónata i C-dúr, op. 102 nr. 1
Andante-Allegro vivace
Adagio-Tempo d’Adante
Allegro vivace
Fr. Chopin:
Sónata i g-moll, op. 65
Allegro moderato
Scherzo: Allegro con brio
Largo
Finale: Allegro
hjá BUR
— Verða ekki konur við þessa
vinnu?
— Jú, fastráðnar konur munu
gera þetta. Við fórum ekki fram á
að þær mættu, spurðum þær
aðeins hvort þær mundu gera það
og þær sögðust allar ætla að
mæta. Eflaust horfa þær i
peninginn á þessum verðbólgu-
timum þvi þær fá 500 krónur fyrir
hverja tunnu. En við munum
flýta þessu eins og hægt er og ég
vonast til að þetta verði búið um
hádegið, sagði Hatthias. —ÞII
Erling Blöndal Bengtsson
Arni Kristjánsson