Þjóðviljinn - 24.10.1975, Side 20

Þjóðviljinn - 24.10.1975, Side 20
ROÐRASTÖÐVUN SJOMANNA Ríkisstj órnin á næsta leik UOBVIUINN Föstudagur 24. október 1975. Svœðismótið: Hamann efstur 1 gær voru tefldar biðskákir á alþjóðlega svæðismótinu i Reykjavik. Fóru leikar þannig, að Hamann vann Van den Broeck og Poutiainen gaf biðskákina gegn Ribli. Liberzon vann aftur skákina gegn Murrey, sem frestað var i 1. umferð. Hamann er nú efstur með 2 1/2 vinning. Fjórða umferð hefst i dag kl. 17, og teflir þá Friðrik gegn Van den Broeck og Björn gegn Timman. — úþ Vill losna við Franco MADRID 23/10 — Heimildir i Madrid, sagðar áreiðanlegar, herma að i spænsku rikisstjórn- inni vaxi þeirri skoðun fylgi að Franco beri að láta af völdum, en enginn þori að stinga upp á þvi við hann. Juan Carlos rikisarfi, sem i fyrra stjórnaði um þriggjp vikna skeið i veikindaforföllum Francos, er sagður hafa sagt Ariasi forsætisráðherra að hann vilji ekki taka við aftur nema fyr- ir fullt og allt. MOSKVU 23/10 — Fyrstu mynd- irnar af yfirborði Venusar eru lik- legar til að breyta hugmyndum manna um þessa plánetu. Yfir- borð hennar virðist til dæmis mjög hnökrótt, likt og botn á fljóti eða hafi en ekki likast eyðimörk, eins og hingað til hefur verið haldið. Einnig kom það á óvart að steinarnir á myndinni sáust kasta skugga, en áður var haldið að al- gert myrkur rikti á plánetunni vegna skýjahjúpsins um hana. — Mér er óhætt að fullyrða, að hér á Vest- fjörðum er alger sam- staða meðal sjómanna, það kom skýrt fram á þeim fundi sem við héld- um á (safirði í fyrra- kvöld, sagði Sölvi Öskars- son skipstjóri á Tálkna- firði en hann var á þessum fundi kjörinn í einskonar framkvæmda- nefnd fyrir sjómenn í þessu máli. Þeir bálar, sem leggja upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur munu halda áfram veiðum þótt aðrir bátar stoppi til að mót- mæla fiskverðinu. Og þegar þess er gætt að Fiskiðjusamlagið greiðir 5 kr hærra verð fyrir kíló- segir Sölvi Pálsson skip stjóri á Tálknafirði — Og eins og málin standa í dag, fæ ég ekki betur séð en að rikisstjórnin eigi næsta leik, málið er greinilega komið i sjálfheldu og það getur enginn aðili nema rikisstjórnin leyst ið af fiskinum en aðrir, þá er ekki nema eðlilegt að bátarnir haldi áfram veiðum. Talsmaður Fiskiðjunnar, sem við höfðum samband við i gær, sagði að þeir hjá Fiskiðjunni vildu ekkert um þetta mál segja. Frétt sú, um málið, sem lesin var upp i útvarpinu i gær þessa deilu. Ég geri mér þvi vonir um að eitthvað jákvætt komi fram á fundi forsætis- ráðherra og framkvæmda- stjórnar sjómanna i róðrar- banninu sem haldinn verður i dag sagði Sölvi. Fyrir okkur sem róum með linu, já og raunar alla fiskimenn er það lifsspursmál að við fáum fiskverðið hækkað og sjóða- kerfið lagfært, við getum ekki og munum ekki gefa eftir I mál- inu, slikt kemur ekki til greina, bætti hann við að lokum. — S.dór var ekki frá Fiskiðjunni komin og sagði talsmaðurinn að hann teldi ekki ástæðu til að vera að ræða málið meðan á deilunni stendur, þetta er það viðkvæmt allt saman sagði hann. Hinsvegar sagði hann það rétt vera, að Fiskiðjan gréiddi uppbót til sjómanna eins og hann orðaði það, og þvi væri fréttin af þessu efnislega rétt. —S.dór Alþýðuflokkurinn segir: Enginn fjárhags- stuðningur t gær greindi Þjóðviijinn frá þvi eftir Aftonbladct i Sviþjóð að Alþýðuflokkurinn hefði fengið 10.000 sænskar krónur i fyrra frá sænska jafnaðarmannaflokknum. i gær birtist einnig i Þjóð- viljanum yfirlýsingu um það frá Gylfa Þ. Gíslasyni að Alþýðu- flokkurinn hefði ekki fengið fjár- stuðning frá útlendum aðilum. i gærkvöid barst blaðinu yfirlýsing frá Alþýðuflokknum þar sem þessi mál eru rakin. Er viður- kennt að um hafi verið að ræða 10.000 kr. frá sænska jafnaðar- mannaflokknum, en sagt er að þetta fé hafi verið notað til þess að standa straum af kostnaði við fund norrænna jafnaðarmanna sem haldinn var i Reykjavik i fyrra. Kveðst Alþýðuflokkurinn ekki lita á þessa greiðslu sem fjárhagsstuðning. 1 sömu tilkynningu er þvi neitað að Alþýðuflokkurinn hafi vegna Alþýðublaðsins fengið fjárhags- aðstoð frá sænskum jafnaðar- mönnum. Segir i tilkynningunni að aðeins hafi verið um að ræða tæknilegar leiðbeiningar um útgáfu blaðsins, er hingað til lands kom einn sérfróður maður frá sambandi sænskra jafnaðar- manna. Krata- peningar yfir landamærin Sjá 7. síðu Fiskiðjusamlag Húsavíkur: Greiðir meira fyrir fiskkílóið en aðrir Troðfullur salur Salur Sjómannaskólans var þéttsetinn i gærkvöldi þegar sjómenn af fjöl- mörgum skipum héldu fund um f iskverðshækkan- ir og hin umtöluðu sjóða- mál sín. Á fundinum fluttu fulltrúar sjó- manna i samstarfsnefndinni ræð- ur, þar sem þeir m.a. lýstu von- brigðum sinum með móttökur Geirs Hallgrimssonar forsætis- ráðherra, þegar sam- starfsnefndin hitti hann að máli fyrr i gær. Litu margir svo á, að ráðherra hefði hreinlega gefið þvert afsvar við þeirri málaleit- an sjómanna, að lágmarksverð á fiski yrði hækkað. Jafnframt kom fram i ræðum fundarmanna, að erfitt væri vegna eðlis sjómannastarfsins, að ná upp mikilli samstöðu og fé- lagsstarfsemi meðal sjómanna. Erfitt væri um vik við hvérs kyns fundarhöid og annaö þess háttar. Þaö væri þvi mikilvægt að nota það tækifæri, sem nú byðist.loks þegar svo mörg skip væru i höfn, til hins ýtrasta. Sjómenn ættu ekki enn einu sinni að láta kúga sig til undirgefni. Að sögn fundarmanna voru það sjómenn af mun fleiri skipum en þeim 119 sem á sinum tima sendu skeytið til ráðherra. öll skip væru nú i höfn nema nokkrir togarar auk einhverra skipa fyrir austan. Báðu sjómennirnir, sem Þjóðviljinn hafði tal af i gær- kvöidi fyrir baráttukveðjur til fé- laga sinna úti á sjó. —gsp Vinstrimenn neita að afhenda vopn LISSABON 23/10 — Varnarsveitir vinstrisinna i Portúgal, BR, hafa lýst þvi yfir að þær muni gerast leynihreyfing til þess að komast hjá að afhenda vopn sin, en Costa Gomes forseti hefur fyrirskipað öllum óbreyttum borgurum að af- henda vopn sin fyrir aðra nótt. Talsmaður varnarsveitanna segir að þær þori ekki að láta vopn sin af hendi af ótta við að of- beldisaðgerðir af hálfu ihaldsafla fari i hönd. Carlos Fabiao, yfir- maður landhersins, sagði i nótt að hann óttaðist valdaránstilraun frá hægri, en flokkur alþýðu- demókrata segist hinsvegar ótt- ast slikar aðgerðir frá vinstri. Kommúnistaflokkur Portúgals og fleiri vinstri aðilar kref jast breyt- inga i rikisstjórn og byltingarráð- inu, þar sem hægfara herforingj- ar ráða nú mestu, og hafa boðað fjöldafund i Lissabon til að leggja áherslu á þær kröfur. Sj ór æning j ar á Eyrarsundi KAUPMANNAHÖFN 23/10 — ýfir á útgerðina. Sænska sjó- Þeir fáheyrðu atburðir gerðust i dag i Kaupmannahöfn og Malmö að tveimur ferjum, sem heita nöfnum þessara borga og ganga milli þeirra yfir Eyrarsund, var rænt og þeim siglt áleiðis til Kiel i Vestur-Þýskalandi. Eru þar að verki útsendarar Hadag, vestur- þýsks útgerðarfyrirtækis sem á helminginn i ferjunum á móti sænska fyrirtækinu Centrums- linjen. Talið er að ástæðan til þessa athæfis sé sú að sá aðili, er hafði veitingasöluna á ferjunum á leigu, er orðinn gjaldþrota, og þýðir það að ábyrgðin á skuld- bindingum hans gagnvart starfs- fólkinu við veitingasöluna færist mannasambandið hefur lýst töku ferjanna sjórán. Sjúkraþjálfarar í verkfall Félag islenskra sjúkraþjálf- ara styður málstað þann, sem er að baki kvennafris til þess að vekja athygli á stöðu konunnar. Þess vegna mælist F.l.S.Þ. til þess að félagsmenn leggi niður vinnu þennan dag, en höfð verði neyðarvakt á þeim stofnunum þar, sem þess gerist þörf.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.