Þjóðviljinn - 27.03.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 27.03.1976, Blaðsíða 16
1- | * * AM' • / Kauphækkunin 1. mars má ekki koma inn í verö búvöru fyrr en 1. júní skv. skýlausum lagaákvæöum Verðhækkunin lögbrot VOÐVIUINN Laugardagur 27. mars 1976 Togarar til gœslu- starfa og rannsóknastarfa Áhugi beinist helst að pólsk- um togurum Rikisstjórnin mun hafa mannað sig upp i að leita fyrir sér um fleiri skuttogara til landhelgisgæslu en Baldur einan. Hefur rikisstjórnin eða ráðuneyti hennar skrifað Fé- lagi isl. botnvörpuskipaeig- enda og beðið þá að kynna vilja stjórnvalda i þessum efn- um, en ætlunin er að taka amk. tvo togara á leigu og þá annan til gæslustarfa og hinn til rannsóknarstarfa. Helst mun áhugi stjórnvalda eða sérfræðinga hennar bein- ast að stórum pólskum togur- um. tþvi sambandi er þá helst talað um togarana Ver, Guð- stein og Hrönn. —úþ Framkvœmdanefnd og starfshópar um kvennafrí Ijúka störfum með fundi á Hótel Sögu Kvenna- sögusafni afhent gögn og fé 1 tilefni þess, að framkvæmda- nefnd og starfshópar um Kvenna- fri eru að ljúka störfum, verður efnt til fundar, sunnudaginn 28. mars kl. 3 e.h. i Atthagasal Hótel Sögu. Þar mun fara fram afhending til Kvennasögusafns tslands á gögnum varðandi framkvæmd Kvennafris, m.a. fundargerðir, vinnuskýrslur, bréf og bækur með blaðaúrklippum. Ennfremur mun forráðamönnum safnsins verða afhent fjárupphæð, kr. 800.000.00, sem er tekjuafgangur frá 24. okt. s.l. Þess er vænst, að samstarfs- nefnd og starfshópar um Kvenna- fri, það fólk sem kom fram á úti- fundinum á Lækjartorgi og i „opnu húsupum” þann sama dag, sjái sér fært að koma og vera við- stödd afhendinguna, þiggja veit- ingar og eiga saman ánægjulega stund. Starfsfólk Kirkjusands Sendir ráð- herrum bréf f gærsendi starfsfólk frystihúss Kirkjusands hf. dómsmála- og sjávarútvegsráðherrum stjórn- arinnar eftirfarandi bréf i tilefni frétta um að ríkisstjórnin hyggist taka tvo togara á leigu til land- helgisgæslu- og hafrannsókna- starfa. Undir bréfið rita sex full- trúar starfsfólksins. „Þar sem rikisstjörnin hefur nú veitt heimild til leigu á tveimur togurum til rannsóknarog gæslu- starfa, leyfum vér oss hér með að óska þess að gætt verði þeirrar sjálfsögðu réttlætisskyldu að nefndir togarar verði valdir frá þeim landssvæðum þar sem hrá- efnisöflun er öflugust, en ekki þar sem hún er veikust. Við ákvörðun verðs á landbún- aðarvörum hefur greinilega verið framið skýlaust lögbrot af rikis- Póst- og simamálastjórnin til- kynnti i gær verulegar hækkanir á þjónustusinni. Taka þær gildi 1. april og l. mai. Þessar hækkanir nema yfirleitt fast að 30%, — en verkamenn fengu sem kunnugt er 6% kauphækkun frá 1. mars. Afnotagjald sima i sjálfvirka kerfinu hækkar úr kr.2.350 á árs- fjórðungi i 2.900 kr. eða um 29%. Gjald fyrir umframsimtöl hækk- ar úr kr. 6.10 ikr. 7.50 eða um 23% hvert teljaraskref. Fjöldi skrefa i afnotagjaldi eykst úr 525 i 600 á ársfjórðungi nema þar sem not- — Það er engum vafa undir- nrpið að ef aðvörunarkerfi hcfði verið til staðar i verksmiðjum Heklu heföi cldurinn uppgötvast til muna fyrr, sagði Tómas Böðvarsson slökkviliðsstjóri á Akureyri i samtaii við Þjv. um brunann á Akureyri í fyrrinótt, er tugmiljónatjón varð af völdum elds og reyks i f.itaverk- smiðjunni Hcklu. — Ef reyklúgur hcfðu verið þarna lika hefðu orðið mjög óvcrulegar eða engar reyk- skemmdir þannig að tjónið I heild sinni gæti hafa orðiö miklum mun ininna ef búnaður hefði verið full- komnari. Húsiö er hins vegar byggt fyrir u.þ.b. tiu árum og þá voru kröfur um svona nokkuð ekki gerðar — þvi miður. Slökkvilið Akureyrar var kallað út upp úr miðnættinu i fyrrinótt að fataverksmiðjunni Heklu, sem rekur i þessum húsakynnum m.a. stærstu pr jónaverksmiðju landsins. Eldur var iaus i svo- kölluðum hrálager verk- smiðjunnar, þar sem geymdar voru mokkaskinnskápur hálf- unnar ásamt skinnafskurði og fleiru. Skemmdir af völdum elds urðu ekki annars staðar i húsinu sem er allstórt, en reykurinn var mikill og lagði út i hvert einasta horn hússins. Olli hann miklum skemmdum i öllum deildum verksmiðjunnar, mun meiri en éldurinn sjálfur náði nokkurn timann að valda. Að sögn Tómasar voru þrir menn á vakt er útkallið kom og var strax kallað út meira lið. Um leið og ljóst var hve eldurinn var stjórninni. A þetta við um þá ákvörðun að láta kauphækkunina 1. mars hafa i för með sér hækk- endur eru fleiri en 20.000 (Rvik) á sama stöðvargjaldssvæði, þar verður skrefafjöldinn i afnota- gjaldinu óbreyttur. Samkvæmt þessu hækkar gjaldið hjá simnot- endum utan Reykjavikursvæðis- ins sem nota 600 teljaraskref um 3,3%, segir i fréttatilkynningu Póst- og sfmamálastjórnarinnar. Flutningsgjald á sima hækkar úr 7.800 i 10.000 kr. eða um 13%, stofngjald hækkar úr 15.800 i 20.000 kr. eða 27%. t handvirka kerfinu hækka afnotagjöld úr 12.700 kr. í 15.400 eða um 21%, og afnotagjöld á stöð sem er opin 12 mikill var allt slökkviliðið, um fjörutiu manns, kallað út og við slökkvistarfið notaðir fjórir af sex bilum liðsins. Reykkafarar freistuðu inn- göngu þrátt fyrir mikinn hita og afar þéttan reyk og fékk annar kafaranna fyrsta stigs brunasár i andlitið er hann reyndi að komast inn að eldinum. Slökkvistarfið tók þó, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, ekki nema um hálfa aðra klukkustund, en þá var eftir að moka út ónýtum skinnum og öðru þvi, sem eyði- lagðist i eldhafinu. Húsið, sem er ca. 70 m. langt er úr strengja- steypu. un á landbúnaðarafurðum þegar i stað. Þetta er brot á 1. málsgrein 9. klst. á dag úr 2.400 i 2.450 á f jórð- ungi. Gjald fyrir simskeyti innan- lands hækkar úr 7.00 kr. i 9.00 kr. á orðið eða um 29% fyrir hvert orö. Afnotagjald af venjulegri fjarritvél hækkar úr 81.300 kr. i 94.000 á ársfjóröungi, 15,6%. Við öll ofangreind gjöld bætist söluskatturinn sem er 20%. Burðargjöldhækkaeinnig frá 1. mai', en siminn frá 1. aprfl. Hækka burðargjöld öll um 29%. Bréf innanlands kostar nú i póst- inn 27.00, sem hækkar i 35.00 kr. og til útlanda úr 35.00 i 45.00 kr. Tómas sagði skemmdir á vörum vera stærsta hlutann i tjóninu, húsið hefðu sloppið tii- tölulega vel. Skinnin og ullin hefðu hins vegar orðið illa úti vegna elds og reyk:s og þótt ekki væri búið að meta tjónið væri Ijóst að það skipti mörgum tugum miljóna. Búist er við þvi að vinna i verk- smiðjunni hefjist aftur strax eftir helgi, en um þessar mundir er unnið að hreinsun á sóti. Elds- upptök eru ókunn en grunur leikur þó á að kviknað hafi i af- skurðarhrúgum sem fluttar höfðu verið inn á hrálagerinn. — gsp greinar laga um framleiðsluráð landbúnaðarins, en þar segir svo: „Heimilt er að breyta afurða- verði til framleiðenda og þar með söluverði landbúnaðarvara árs- fjórðungslega frá 1. desember, 1. mars og 1. júni vegna hækkunar á kaupi, svarandi til þess að laun bónda og verkafólks hans i verð- lagsgrundvelli landbúnaðarvara séu færö til samræmis við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á kaupi i almennri verkamanna- vinnu i Reykjavik á undangengnu þriggja mánaða timabili.” Núgildandi kjarasam ingar tóku gildi frá 1. mars og þvi mátti ekki. hækka landbúnaðar- vörur með tilliti til þeirra fyrr en 1. júni næstkomandi. Hefði hins vegar hækkun launanna orðið frá 29. febrúar var stætt á þvi sam- kvæmt þrengsta skilningi laga- greinarinnar að hækka landbún- aðarvörurnar skv. launahækkun verkamanna i Reykjavik. Fyrri reynsla 7. mars 1974 ákvað miðstjórn ASt að láta fara fram rannsókn á þvi hvort sú hækkun landbúnað- arfurða sem varð i kjölfar samn- inga hefði við rök að styðjastmið- að við áðurgreindar forsendur. Lögfræðingarnir Egill Sigur- geirsson og Jón Þorsteinsson sömdu þá álitsgerð. Niðurstaða þeirra varö sú að þar sem samn- ingar voru þá gerðir 26. febrúar hefði hækkun landbúnaðarvara fullnægt umræddu lagaákvæði, en siðan sögðu þeir: „Oðru máli kann að gegna um hækkun kaup- gjaldsvisitölunnar, sem gekk i gildi 1. mars er leiddi til 3,91% hækkunar á afurðaverðinu til bænda. Þessi visitöluhækkun kom að sjálfsögðu ekki fram i kaupi i almennri verkamannavinnu Reykjavik ,,á undangengnu þriggja mánaða timabili”. Bú- vöruhækkun af þessum sökum hefði þvi átt að biða til 1. júni 1974 samkvæmt eðlilegum skilningi á 1. mgr. 9. gr. framleiðsluráðslag- anna...” Svindlhækkanir Auk þess lögbrots sem framið hefur verið með þvi að láta launa- hækkunina 1. mars verka strax til hækkunar á verðlagi landbúnað- arvara hefur rikisstjórnin og sex- mannanefnd ákveðið að veroa sér úti um aukahækkanir eins og ekki væri nú nóg að gert þegar. Þessar svindlhækkanir snerta annars vegar sláturkostnað og hins vegar hækkun á vinnslu- kostnaði mjólkur. Sláturkostnað- urinn var nú eftir á hækkaður i 108 kr. á kg. úr 95 kg. á kilóið og þar inni i er að hluta til launa- kostnaður til þeirra sem unnu við að slátra þeim dilkum sem lands- menn eru nú sem óðast að gæða sér á. 1 annan stað er hér um að ræða hækkun á vinnslukostnaði mjólkur, sem er þannig fenginn að nú er miðað við minna mjólk- urmagn en áður og þvi meiri kostnað á framleiðslueiningu. —S GENGIÐ FRAMHJÁ • • MORGUM við ráðningu á dagsk Nýlega auglýsti Rikisútvarpið sjónvarp eftir dagskrármanni til starfa innan stoíníúnarinnar. Skyldi hlutverk hansvera umsjón með erlendu fræðslumyndunum og barst mikill fjöldi umsókna. Enn einu sinni hefur komið I ljós að opinber starfsauglýsing var fölsk, búið var að ráða i starfið áður en það var auglýst og við ráðninguna var gengið framhjá mörgum hæfum og/eða menntuðum kvikmyndagerðar- mönnum tilþess að koma gæðingi HÆFUM rármanni sjónvarpsins i hlutverkið. Helgi Helgason, sem leyst hefur af á fréttastofu sjónvarpsins undanfarið, var ráðinn úr hópi fjölmargra umsækjenda. Að sögn Péturs Guðfinnsonar fram- kvæmdastjóra sjónvarpsins var hann valinn að fenginni umsögn útvarpsráðs um hvern og einn umsækjenda. Umsækjendur um starfið voru eftirtaldir: Einar örn Stefáns- son, Elias Snæland Jónsson, Framhald á bls. 14. UM 30% HÆKKUN PÓSTS OG SÍMA TUGMILJONATJON af völdum elds og reyks i verksmiðjunni Heklu á Akureyri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.