Þjóðviljinn - 30.06.1976, Page 5
Miövikudagur 30. júni 1976 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5
íL
Hér sést tilfinningaskylda Sablnu aft störfum
Sabína
Ég kom til tsafjarðar um hvita-
sunnuna og leikhúsferð var nú
ekki tilefni fararinnar en ég var
svo heppin að sjá Sabinu hjá Litla
leikklúbbnum eftir Hafliða
Magnússon undir leikstjórn
Margrétar óskarsdóttur. Þetta er
hressilegt og skemmtilegt verk.
Hér kemur fram höfundur úr al-
þýðustétt landsins með álit á
landsmálum eftir sinni eigin
reynslu og skilur hvað á spýtunni
hangir og er óhræddur að segja
hug sinn, er ekki með neinn felu-
leik svo einn geti skilið þetta
svona eða annar eftir þvi sem
honum hentar. Það held ég sé ó-
gerningur.
Útgerðin hefur alltaf verið á
hausnum, eins langt og elstu
menn muna,og sjómenn, verka-
menn og verkakonur verða alltaf
að bjarga verðmætunum. En fyr-
ir hvern?
Stórlandeigandinn, með laxinn
og öll hlunnindin, hann þarf lika á
fólkinu i landinu að halda. En fyr-
ir hvern?
Stórmeistarar iðnaðarins þurfa
lika á fólkinu að halda. En fyrir
hvern?
Svo kemur Skrimslabandalagið
(Nató) og þarf á Sabinu (landinu)
að halda. En til hvers? Og fyrir
hvern? Þá stendur ekki á pen-
Höfundur verksins er Hafiifti
Magnússon frá Bildudal en hann
hefur samift nokkur leikrit og
leikþætti áftur. Hann gaf út skáld-
sögu aðeins 16 ára gamall. Hann
semur bæfti Iög og texta I verk sin.
Eyjan fagra
ingaaðlinum að skilja og leika
með. Alls staðar hringlar i gull-
kálfinum þangað til eitt skrimslið
heggur of nálægt auðvaldi útgerð-
arinnar þá er hlaupið til til gull-
kálfsins og kallað á verndina
marglofuðu. En, nei.segir Amer.
Svona litil falleg eyja getur ekki
hirt allan fiskinn i kringum landið
sitt, það samþykkja hin skrimslin
aldrei, við verðum að halda sátta-
fundi. Fundir eru haldnir, ekkert
semst. Sabina hótar slitum við
skrimslin. Hið háa lága Alþingi
tilkynnir: Nú verða allir á Sabinu
að snúa bökum saman og fólkið
stendur sem einn maður og sker
skrimslin burt. Tilkynning frá Al-
þingi: Samningar hafa tekist við
skrimslið, nú getum við faðmast
og leikið með gullkálfinum aftur.
Fyrir hvern?
Leikstjórn Margrétar er frá-
bær, leiktjöld einföld, en gegna
vel sinum tilgangi. Söngvar falla
skemmtilega að efninu, allt sett
fram hispurslaust, einfalt og satt.
Allt þetta unga fólk sem að sýn-
ingunni stendur veit og skilur á-
byggilega betur en þeir sem kall-
ast háttvirtir alþingismenn og
menntamenn með krossum og
fleiru hvað er að gerast á Sabinu
(íslandi) i dag. Húrra fyrir unga
fólkinu i Litla leikklúbbnum og ég
vona að við verðum svo heppin að
fá að sjá þau flytja þetta verk
sem fyrst i Reykjavik.
Með þökk fyrir skemmtunina.
Auftur Guðmundsdóttir
Margrét óskarsdóttir leikstjóri
Umboðsmenn og útsölustaðir
Þjóðviljans utan höfuðborgarsvæðis
Hér er birtur listi yfir umboösmenn og útsölu-
staöi Þjóðviljans utan höfuftborgarsvæbisins.
Hér er um aö ræöa yfir 100 staöi um allt land
þannig aö velunnarar Þjóöviljans eiga aö geta
fengiö blaöiö hvarvetna á feröalögunum I
sumar. Þjóöviljinn vill jafnframt beina þvl til
velunnara sinna aö þeir beini viöskiptum slnum
til þeirra staöa sem hafa Þjóöviljann til sölu.
A þessum stöðum fæst Þjóðviijinn:
Brúarland
Umboösm. Sólveig Jónsdóttir Dvergholti 1 Slmi: 66335
Kaupfél. Kjalarnesþings Mosfellssveit.
Noröurlandsleiö
Botnsskáli Hvalfiröi
Ollustööin Hvalfiröi
Hvltárskáli Borgarfiröi
B.S.R.B. Munaöarnesi Borgarfiröi
Sumarheimiliö Bifröst Borgarfiröi
Brú Hrútafiröi
Staöarskáli Hrútafiröi
Kaupfél. Skagfiröinga Varmahllö
Umboösm. Jóna K. ólafsdóttir Garöabraut 4 Sími: 93-1894
Bókaverslun Andrésar Nlelss. Skólabraut 2
Skaganesti v/Skagabraut
AkurgerÖi v/Kirkjubraut
Björk v/Kirkjubraut
Aldan Hafnarbraut 1
Blaöasala Akraborgar
Borgarnes
Umboösm. Flemming Jessen Þorsteinsgötu 7 Slmi 93-7438
Essostööin v/Borgarbraut
Hótel Borgarnes
Borgarfjöröur — Mýrar
Verslunin Laugaland Borgarf.
Söluskálinn Reykholti
Verslunin Vegamót Hnappadalss.
Hellissandur
Umboösm. Guömundur Bragason Báröarási 1 Slmi: 93-6619
ólafsvlk
Umboösm. Kristján Helgason Brúarholti 5 Sími: 93-6198
Grundarfjöröur
Umboösm. Guöni Guönason Fagurhólstúní 6 Slmi: 93-8703
Bensínsalan Grundarfiröi
Stykkishólmur
Umboösm. Einar Steinþórsson Silfurgötu 38 Slmi: 93-8204
Búöardalur
Afgreiösla B.P. og Shell
Bjarkarlundur Reykhólasveit A.-Barö.
Patreksf jöröur
Umboösm. Björg Bjarnadóttir Aöalstræti 87 Slmi: 94-1230
Þingeyri
Umboösm. Sverrir Karvelsson Brekkugötu 32
Flateyri
Umboösm. Bókav. Jóns Eyjólfssonar Slmi: 94-7697
Suöureyri Súgandafiröi
Umboösm. Þóra Þóröardóttir Aöalgötu 1 Slmi: 94-6167
tsafjöröur
Umboösm. Elln Manfreösdóttir Bókasafninu Slmi: 94-3296
Bókaverslun Jónasar Tómassonar Hafnarstræti 2
Essonesti
Blönduós
Umboösm. Sævar Snorrason Hliöarbraut 1 Slmi: 95-4122
Hótel Blönduós
Essóskálinn
Sauöárkrókur
Umboösm. Hrefna Jóhannsdóttir Freyjugötu 21 Sími: 95-5174
Kjörbarinn
Hofsós
Umboösm. GIsli Kristjánsson Kárastlg 10 Slmi: 95-6341
Siglufjöröur
Umboösm. Hlööver Sigurösson Suöurgötu 91 Slmi: 96-71143
Söluturninn Aöalgötu 21
Akureyri
Umboösm. Haraldur Bogason Noröurgötu 36 Slmi: 96-11079
Blaöavagninn Ráöhústorgi
Bókabúöin Huld Hafnarstræti 97
Versl. Esja
Dalvlk
Umboösm. Hjörleifur Jóhannsson Stórhólsvegi 3 Simi: 96-61237
ólafsfjöröur
Umboösm. Agnar Viglundsson Kirkjuvegi 18 Slmi: 96-62297
Hrlsey
Umboösm. Vilhjálmur K. GuÖjónsson Sólvallagötu 3 Sími: 96-
61739
Þingeyjarsýslur
Einarsstaöaskáli Reykdælahr. S.-Þing.
Hótel Reynihllö Mývatnssveit.
Húsavfk
Umboösm. Sigmundur Eirlksson Uppsalávegi 30 Slmi:: 96-41572
Raufarhöfn
Umboösm. Jón Gestsson Hllöarenda Slmi: 96-51166
Vopnafjöröur
UmboÖsm. GIsli Jónsson Hafnarbyggö 29 Slmi: 96-3166
Egilsstaöir
Umboösm. Guörún AÖalsteinsdóttir Otgaröi 6 Simi: 97-1292
Söluskáli K.H.B.
Flugkaffi
Hallormsstaöur
Smári h/f
Seyöisfjöröur
Umboösm. Nlels A. Hjálmarsson Garöarsvegi 8 Slmi: 97-2137
Neskaupsstaöur
Umboösm. Ingibjörg Finnsdóttir Hólsgötu 8 Slmi: 97-7239
Versl. óskars Jónssonar Hafnarbraut 1
Bensínsala Shell
Bensínsala BP
Eskifjöröur
Umboösm. Sigurbjörn Björnsson Hátúni 23 Slmi: 97-6281
Reyöarfjöröur
Umboösm. Katla Þorsteinsdóttir Slmstööinni
Fáskrúösfjöröur
Umboösm. Birna Baldursdóttir Simi: 97-5158
Verslun ViÖars og Péturs Búöavegi 1
Höfn Hornafiröi
Umboösm. Þorsteinn Þorsteinsson Hagatúni 12 Slmi: 97-8340
Suöurland
Kaupf. A-Skaft. Fagurhólsmýri
Skaftárskáli Kirkjubæjarklaustri
Vikurskáli Vlk I Mýrdal
Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli
Grillskálinn Hellu
Kaupf. Arnesinga Laugarvatni
Veitingaskálinn Þrastarlundi Grlmsnesi
Söluskálinn Valhöll Þingvöllum
Þjónustumiöstööin Þingvöllum
Vestmannaeyjar
Umboösm. Edda Tegeder Hrauntúni 35 Simi: 98-1864
Turninn Bárugötu 2
Friöarhafnarskýliö
Selfoss
Umboösm. Halldóra Gunnarsdóttir Sléttuvegi 7 Slmi: 99-1127
Kaupf. Arnesinga (feröaskrifstofa)
Kaupf. Höfn Tryggvatorgi
Addabúö
Stokkseyri
Umboösm. Frimann Sigurösson Eyjaseli 9. Simi: 99-3215
Eyrarbakki
Umboösm. Pétur Glslason Læknabústaönum Sími: 99-3135
Hverageröi
Umboösm. Helga Eirlksdóttir Varmahllö 43 Slmi: 99-4317
Verslunin Reykjafoss Breiöumörk 21
Þorlákshöfn
Umboösm. Veitingastofa Franklins Benediktssonar. Slmi: 99-
3636
Kaupf. Arnesinga
Grindavlk
Vlkurnesti
Sandgeröi
Umboösm. GuÖlaug Guömundsdóttir Slmi: 92-7446
Garöur
Umboösm. Asta Tryggvadóttir Skólabraut 2 Slmi: 92-7162
Ytri-Njarövik
Umboösm. Helga Siguröard. Hraunsvegi 8
Biöskýli Friöriks Magnússonar Simi: 92-1798
Fitjanesti
Keflavik
Umboösm. Magnús Haraldsson Sportvík Hafnarg. 36 Simi: 92-
2006
Linda
Aöalstööin Hafnargötu 13
Hrönn
Hafnarbúöin v/VIkurbraut
Aöalstööin Keflav.flugvelli.
Noirænir músíkdagar
— lokatónleikar
Stjórnandi: Karsten Andersen
Einleikarar: Einar G. Sveinbjörnsson, Mogens Ellegaard.
Kór: Passiukór Akureyrar, kórstjóri Roar Kvam
Efnisskrá: John Persen Orkesterverk II
Leifur Þórarinsson Fiðiukonsert
Arne Nordheim Spur
Jón Nordal Langnætti
Ingmar Milveden Nu
A þessum siðustu tónleikum
norrænu músikdaganna voru
m.a. flutt tvö islensk verk, fiðlu-
konsert eftir Leif Þórarinsson
og Langnætti eftir Jón Nordal.
Bæði þessi tónskáld hafa haslað
sér völl á sinn hátt, Leifur með
sitt uppátektarsama frjóa hug-
myndaflug, sem kemur áheyr-
endum oft i opna skjöldu, og
hinsvegar Jón Nordal sem hefur
valið mjög persónulega rás.
Tónlist hans kemur manni e.t.v.
aldrei mikið á óvart, en vekur
traust líkt og fastur póll i allri
þessari svartnættisringulreið
sem einkennir nútima tón-
sköpun. Still Jóns er einlægur,
og maður hlustar af meiri
athygli kannski vegna þess að
atburðarásin er nógu hæg til að
gefa manni tima til að verða
forvitinn.
Fiðlukonsert Leifs Þórarins-
sonar er skrifaður fyrir stóra
hljómsveit sem þvi miður yfir-
gnæfir einleiksfiðluna, sérstak-
lega i upphafinu, þetta lagast þó
þegar á liður, enda hverfur
hljómsveitin þá að mestu og
einleikarinn fær að njóta sin i
löngum einleiksköflum. Einar
G. Sveinbjörnsson er mjög
góður fiðluleikari og spilaði
verkið af sannri innlifun. Mér
finnst greinilegt að hann hafi
tekið ástfóstri við þetta verk, og
er það e.t.v. besti mælikvarð-
inn á gæði þess.
Tónleikarnir hófust með
Orkesterverk eftir John Persen,
nokkuð hnittnu samblandi af
massa og sveiflu. Verkið vekur
óskipta hrifningu, en þolir
áreiðanlega ekki margar yfir-
ferðir. „Spur” eftir Arne Nord-
heim er öllu djúpstæðara verk,
samið fyrir harmóniku sem
Sigursveinn
IVIagnússon
skrifar um tónlist
Mogens Éllegaard lék á meist-
aralega. Tónleikunum lauk svo
með verkinu Nu eftir Ingmar
Milveden. Nu er samið upp úr
skrifum Carl von Linné um ferð
hans til Lapplands, um hrifn-
ingu hans yfir þeirri náttúru-
fegurð sem fyrir augu bar.
Passiukórinn á Akureyri flutti,
og er það frumraun hans með
S.I., en einnig tók þátt i flutn-
ingnum litill karlakór sem skip-
aður var valinkunnum söngv-
urum af höfuðborgarsvæðinu.
Passiukórinn skilaði sinu hlut-
Framhald á bls. 14.