Þjóðviljinn - 02.12.1976, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 2. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ávarp miðnefndar herstöðvaandstæðinga til ASÍ-þings
Öllu afli verði
Miðnefnd Samtaka her-
stöðvaandstæöinga sendir 33.
þingi Alþýðusambands Islands
jkveðjur og heillaóskir. A liðnum
áratugum hafa samtök verka-
lýðsins hvað eftir annaö gegnt
forystuhlutverki i islenskri
þjóðfrelsisbaráttu og enn eiga
þau þar mikið verk að vinna.
Landhelgisstriö islendinga og
breta hefur áþreifanlega leitt i
ljós hvernig stjórnmálaafli
Islenskrar auðstétar er ekki
aðeins beitt gegn hagsmunum
alþýðunnar i átökum um launa-
og kjaramál heldur er hún eöli
sinu samkvæmt stöðugt reiðu-
búin að fórna hagsmunum vinn-
andi stétta til skemmri og lengri
tima þegar stundarávinningur
er í boöi. Enn ásælist erlent vald
Islenskar auðlindir og leyfi til
umsvifa á Islensku yfirráöa-
svæði. Gegn þeirri ásælni er
staðfast viðnám alþýðusamtak-
anna öruggasta vörnin. Áðild
Islands að Nató og herstöðvar
Bandarikjanna I landinu eru nú
ásamt ásælni erlends auðvalds I
hagnýtingu islenskra auðlinda
alvarlegasta ógnunin við
islenskt fullveldi og möguleika
íslenskrar alþýðu til að skapa
mannsæmandi þjóðfélag I
landinu. Ófyrirleitnir fjárgróða-
menn og pólitlskir spákaup-
menn vilja nú notfæra sér ásókn
Bandarikjanna og annarra
Natólanda i hernaðaraðstööu
hér til að afla Islenskri auöstétt
stundargróða sem mundi binda
þjóðina til langframa á klafa
erlends hervalds og auðvalds,
klafa sem hægt yrði að festast á
en bágt að vikja af. Nú er það
ekki sist komið undir samtökum
Islensks verkalýðs að takast
megi að staðfesta með þjóðinni
það hugarfar að aðeins meö þvi
að treysta á eigin mátt og megin
geti hún lagt hér grundvöll aö
samfélagi sem ekki þarf á
ölmusu aö halda en getur frjálst
og óháð tekið þátt i alþjóölegri
beitt
baráttu fyrir frelsi og lifsham-
ingju alþýðu allra landa.
Samtök herstöðva-
andstæðinga skora á
Alþýðusamband
íslands
■ að standa fast gegn
öllum samningum
u m v e i ð a r
EBE-landa i
islenskri fiskveiði-
lögsögu,
■ að standa fast gegn
ásælni erlendra
auðhringa i hag-
nýtingu islenskrar
orku og annarra
auðlinda,
■ að beita öllu afli sinu
til styrktar barátt-
unni gegn aðild
íslands að Nató,
fyrir brottför banda-
riska hersins úr
landinu og her-
stöðvalausu íslandi.
Von á uppljóstrun i mútumálum:
Háttsettur suðurkóreu-
maður gefur sig fram
Kohl Strauss
Kohl og
Strauss
bera
saman
bækur
BONN 1/12 Reuter — Leiötogar
hægriflokkanna tveggja i Vestur-
Þýskalandi, sem eru i stjórnar-
andstöðu, hittust i dag til að ræða
samskipti flokka sinna á þingi i
framtiðinni, nú þegar þeir starfa
ekki lengur saman sem einn
flokkur. Eins og kunnugt er ákvað
CSU-fiokkurinn i Bæjaralandi,
sem stjórnað er af Franz Josef
Strauss, fyrir tveimur vikum að
siita sambandinu við Kristilega
demókrataflokkinn, en þessir
flokkar hafa starfað saman sem
einn frá stofnun vesturþýska
sambandslýðveldisins.
Helmut Kohl, leiðtogi kristi-
legra demókrata, sagði að þeir
Strauss hefðu ræðst við af hrein-
skilni og stundum verið harðorð-
ir. — Sambandsslitin eru einkum
talin stafa af þvi, að CSU hafi orð-
ið fyrir vonbrigðum með að
hægriflokkunum tókst ekki að
fella rikisstjórn sósiademókrat'1.
og frjálsdemókrata undir forsæá
Helmuts Schmidt i kosningunum
til sambandsþingsins i byrjun
október.
Angóla
gengur í Sþ.
SAMEINUÐU ÞJOÐUNUM 1/12
Reuter — Angóla var samþykkt
inn i Sameinuðu þjóðirnar sem
146. aðildarriki þeirra i dag. Var
tillagan um þetta samþykkt meö
116 atkvæðum gegn engu á alls-
herjarþinginu, en Bandarikin
sátu hjá eitt rikja. 1 júni s.l., þeg-
ar inntökubeiöni Angólu var fyrir
Oryggisráðinu, beittu Bandarikin
neitunarvaldi til að hindra sam-
bvkkt beiðninnar. 1 slðustu viku,
þegar inntökubeiðnin kom fyrir
öryggisráðið á ný, endurtóku
Bandarikin hinsvegar ekki beit-
ingu neitunarvaldsins og munu
hafa farið þar að áskorunum Af-
rikurikja.
WASHINGTON 1/12 Reuter —
Háttsettur starfsmaður við sendi-
ráð Suður-Kóreu I Bandarfkjun-
um, sem jafnframt er talinn vera
háttsettur i KCIA, suðurkóre-
önsku leyniþjónustunni, hefur
gefið sig fram við bandarfsku inn-
anrfkisleyniþjónustuna (FBI),
lofað að gefa upplýsingar um til-
raunir stjórnar sinnar til að snúa
bandariskum þingmönnum á sitt
band með mútum og gjöfum og
auk þess beðið um hæli i Banda-
rikjunum sem pólitiskur flótta-
maður.
Maöur þessi, sem heitir Kim
Sang Keún, er skráður fyrsti rit-
ari suöurkóreanska sendiráösins
en raunverulega talinn vera yfir-
maður aðgeröa KCIA I Banda-
rikjunum. FBI hefur undanfariö
haft til athugunar ásakanir þess
efnis, að siöan 1970 hafi erindrek-
ar Suður-Kóreustjórnar boriö fé
og gjafir á bandariska þingmenn,
haldið þeim veislur og svo fram-
vegis, i þvi skyni að tryggja fylgi
þeirra við Suður-Kóreustjórn.
Blööin New York Times og
Washington Post héldu þvi fram I
dag að Kim þessum heföi nýlega
verið fyrirskipað af stjórn sinni
Framhald á 14. siðu
Líbía kaupir sig inn í Fiat
TÓRINO 1/12 — Libia er I þann
veginn að eignast nærri 10%
Fiat-bifreiðaverksmiðjanna
itölsku, stærsta einkafyrirtækis
ttaliu, með þvi að veita nýju fjár-
magni inn í fyrirtækið, og talið er
að hlutur libiumanna I fyrirtæk-
inu muni hækka upp I 13% með
skuldabréfa viðskip tum.
Er þetta haft eftir Giovanni
Agnelli, forstjóra Fiat, sem er
voldugasti einkaatvinnurekandi
Italíu. Þrátt fyrir þessa sókn
Líbíu inn i fyrirtækið mun
Agnelli-fjölskyldan áfram eiga
meirihluta I þvi.
I þessu sambandi er minnt á að
stutt er siöan að Iran, annað riki
sem auðgast hefur mjög á oliu,
keypti fjóröung hlutabréfa i
vesturþýska auðhring Krupp.
1ÓL Á KANARÍEYJUM AUKAFERÐ 11. DES.
' ' ■ ■
Vegna hinnar gífurlegu
eftirspurnar um jólaferðir,
y settum við upp 17 daga auka:
• ferð til Kanaríeyja. Brottför kl.
8 á laugardagsmorgun 11. des. og
komið heim að kvöldi mánudags 27.
des. Við viljum sérstaklega beina því
til hinna fjölmörgu viðskiptavinaokkar
og annarra, sem ekki gátu fengið pláss
í hinum jólaferðunum að panta strax.
Hægt er að velja um gistingu á flestum
hinum vinsælu íbúðum og hótelum, sem
þúsundir Sunnufarþega þekkja af eigin
raun á Cran Canaria; LAS PALMAS,
PLAYA DEL INGLES, SAN AUCUSTIN
OG PUERTO RICO, ásamt TENERIFE.
Pantiðstrax, þaðer auðveldara f.vrirokkur
og betra fyri.r ykkur, meðan plássertil
Verið velkomin og takið þátt í hinni glæsilegu og nægt að velja úr gististöðum
jólahátíö Sunnu á PLAYA DEL INGLES á jóladag.
Matarveizla og jólatrésskemmtun.
INNAN VIÐ 20 SÆTI LAUS.
.FERflASKRIFSTOFAN SUNNA IJFKJARGðfU 2 SÍMAR 10400 12070.