Þjóðviljinn - 19.12.1976, Síða 4

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. desember 1976 PWÐvmm MÁiGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. tJtgefandi: Útgáfnfélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmanri Ritstjórar: Kjartan óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaði: Arni Bergmann (Jtbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör- leifsson Auglýsingastjóri: Ulfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Siöumúia 6. Simi 81333 Prentun: Blaöaprent h.f. NÝTING INNLENDRA ORKUGJAFA Árið 1973 gerðust mikil og afdrifarik tiðindi i heiminum. Oliuframleiðendur ákváðu stórfellda hækkun á framleiðslu- vörum sinum, og hafði sú breyting viðtæk áhrif á efnahag þeirra þjóðfélaga sem háð voru innflutningi á oliuvörum. Viða var gripið til neyðarráðstafana, svo sem skömmtunar, og samdar áætlanir um þró- un i orkumálum sem gerðu riki óháðari innflutningi á oliuvörum. Forsenda þess- arar atburðarásar er sú staðreynd að oliu- lindum jarðar eru takmörk sett, og þrot þeirrar orkuuppsprettu verða nú reiknuð i tugum ára. Framkvæmdir sem nú er unn- ið að i sambandi við vinnslu oliu úr sjávar- botni með óhemjulegum tilkostnaði breyta litlu um þetta dæmi: endalokin kunna að færast nokkra áratugi fram i timann en eru þó augljós staðreynd. Hækkunin á oliuvörum hafði mikil áhrif á Islandi. Hún skekkti gjaldeyrisstöðuna til mikilla muna, gerði útveg og ýmsar greinar iðnaðar mun kostnaðarsamari en áður og bitnaði afar hart á þeim sem not- uðu oliu til húshitunar. Var gripið til ýmissa bráðabirgðaráðstafana til þess að létta og jafna þessi áhrif. En áhrifin voru ekki aðeins neikvæð ef litið var lengra fram i timann. íslendingar eru svo vel settir að búa yfir mjög miklum orkulind- um i vatnsföllum og jarðhita. Oliuhækk- unin gerði þessar orkulindir mun verð- mætari og nýtanlegri en áður var. Þvi fól iðnaðarráðuneytið 1973, Orkustofnun, Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thorodd- sens og Seðlabankanum að hefja gerð áætlunar um nýtingu innlendra orkugjafa i stað oliu hvar sem þvi yrði við komið, við húshitun, iðnað og fleira. Ljóst var að þessi framkvæmd jafngilti verulegum út- flutningsiðnaði og að arðsemin færi sivax- andi jafnhliða þvi sem gengi á hinar tak- mörkuðu oliulindir. Unnið var kappsam- lega að þessum verkefnum, og upphafs- skýrsla var lögð fyrir alþingi 1974. Skýrslunni fylgdi ályktunartillaga þar sem lagt var til að samin yrði fram- kvæmdaáætlun, þar sem gert var ráð fyrir að hitaveituframkvæmdum á landinu öllu lyki á árinu 1977 og rafhitun yrði hvar- vetna komin i gagnið 1981 þar sem ekki væri kostur á jarðvarma. Þannig ákvað vinstristjórnin að láta þetta verkefni hafa algeran forgang i orkumálum. Þegar stjórnarskipti urðu 1974 lét Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra það verða fyrsta verkefni sitt að stöðva með öllu þessa áætlunargerð. Hann hefur að visu ekki stöðvað hitaveituframkvæmdir þær sem hafnar voru, ákveðnar eða áformaðar i tið vinstristjórnar, en hann hefur látið geðþóttaákvarðanir ráða i stað áætlana. Nýtingu raforku i stað oliu hefur hann hreinlega stöðvað. Hann frestaði lögn byggðalinu frá Suðurlandi til Norðurlands með mjög alvarlegum afleið- ingum. Hann hefur ekkert gert til þess að tengja Vestfirði og Austurland við heildarkerfið, en einmitt i þeim . lands- hlutum er mest þörf raforku til húshitunar og annarra þarfa. Hann hefur ekki tengt rafstöðvar Landsvirkjunar við byggðalinuna. Og nú hefur hann lagt fyrir alþingi frumvarp um kisiljárnverksmiðju i Hvalfirði, en að þeirra áætlun hafði verið unnið áður en oliuverðhækkunin skóp ger- breytt viðhorf. Verði tekin ákvörðun um kisiljárnverksmiðju verða afleiðingarnar mjög stórfelldar. Áformunum um oliu- sparnað með rafhitun húsa er ýtt yfir i fjarlæga framtið. Hefji kisiljárn- verksmiðja störf á áætluðum tima verður afleiðingin tilfinnanlegur raforkuskortur á árinu 1980. Þvi yrði tafarlaust að taka ákvörðun um nýja stórvirkjun sem kæmi i gagnið fyrir þann tima. Eina virkjunin sem hefur verið fullhönnuð þannig að unnt verði að ráðast i framkvæmdir fyrirvara- litið er Hrauneyjarfossvirkjun i næsta ná- grenni Sigölduvirkjunar. Sú virkjun er hagkvæm en staðarvalið er mjög óheppi- legt. Sé áformað að tengja saman raf- orkukerfi landsins alls þurfa orkuöflunar- stöðvar að dreifast um landið til þess að tryggja nauðsynlegt öryggi. Auk þess er mjög háskalegt að kakka svo til allri raf- orkuframleiðslunni saman á eldvirkasta svæði landsins, einmitt á timaskeiði þegar eldgos og landrek eru mjög virk fyrirbæri á hnettinum, eins og jarðeldar og miklir jarðskjálftar sanna. Tillagan um kisiljárnverksmiðju er hvorki einangruð né einföld. Hvað sem menn kunna að segja um verksmiðjutil- löguna sjálfa verða þeir einnig að gera sér ljósar afleiðingarnar: Hættulegt misgengi i þróun raforkumála, frestun á nýtingu innlendra orkugjafa i stað oliu. Er ekki ástæða til þess fyrir þá islendinga sem nú búa við tilfinnanlegan orkuskort að ræða við þingmenn sina og hvetja þá til þess að hugsa i stað þess að hlýða. —m. CHILE-KANTATA Þeir sem vilja fylgjast meö gangi kvikmyndamála i þeim iöndum sem kenna sig viö sósialisma sperra upp eyrun þegar minnst er á kvikmynda- hátiðina í Karlovy Vary. 1 sum- ar var þessi hátiö haldin i 20. sinn og gerðust þar m.a. þau gleðitiðindi að einn af bestu kvikmyndastjórum tékka, Jiri Menzel, er nú loks kominn i sitt fyrra form aftur, en hann hefur litið látið á sér kræia siðan 1968. Við þessa frétt verður manni á aö spyrja: hvar eru allir hin- ir? þ.e. þeir sem ekki eru I út- legð. Einsog menn muna voru tékkar mjög framarlega á sviði kvikmyndalistar fyrir innrás, en heldur hefur verið sorglegt að sjá frá þeim framleiðsluna siðan. Hvað um það, nú er sem- sé Menzel kominn á kreik og tróð upp i Karlovy Vary með bráðfyndna gamanmynd, ef marka má gagnrýnendur. Aðalverðlaun hátiöarinnar féllu hinsvegar i hlut Humberto Solas frá Kúbu fyrir myndina Kantatan um Chile. Humberto Solas fékk fyrstu verðlaun á kvikmyndahátiðinni i Moskvu 1969 fyrir myndina Lucia, sem mun hafa verið sýnd hér á veg- um kvikmyndaklúbbsins. Kantötunni um Chile er lýst svo að hún sé afar óvenjuleg og Kaupa sig inní landhelgi USA Erlend útgeröarfyrirtæki, bæði I einkaeign og i opinberri eign, reyna nú að fara i kringum þá á kvörðun bandariskra stjórnvalda að taka upp 200 milna fiskveiöi- lögsögu og loka landheiginni sem mest fyrir erlendum veiðiskipum. Aðferð þeirra er sú að kaupa sig inn i bandariskan sjávarútveg. Þeir eru þá orðnir hluthafar i bandariskum fyrirtækjum og eru miöin þá aftur opin þeim sem slikum. Eins og að likum iætur ganga japanir á undan I þessum kúnstum, og hafa rúmlega 30 út- gerðarfyrirtæki fjárfest I banda- riskum fiskveiðum. Finnar, hol- lendingar, kanadamenn og suður- kóreumenn eru einnig meö i þessu stússi. Sovétmenn hafa lika látið á sér kræla, Sovrybflot i Moskvu hefur verið að semja við Bellingham Cold Storage Inc. mjög áhrifamikil. Formið er einskonar kvikmyndakantata eða óratoria, þar sem blandað er saman tónlist, söguleik, goð- sögnum, ljóðasöng, táknleik og venjulegum frásagnarmáta. Efnið er ástandið i Chile fyrr og siðar, en kjarni frásagnarinnar er verkfall i chilenskri námu ár- ið 1907. Mikið blóðbað fylgdi þessu verkfalli og voru 3600 verkamenn skotnir til ólifis. Þrátt fyrir iburðarmikið form er myndin beinskeytt og hörð á- deila á herforingjana i Chile og þau öfl sem að baki þeim standa. Kantatan um Chile var sýnd á kvikmyndahátiðinni i London nú fyrir skemmstu, en þar er jafnan sýnt úrval bestu mynda sem komið hafa fram á hinum ýmsu kvikmyndahátið- um ársins. FRÁ MENNINGARSJOÐI NÝR BÓKAFLOKKUR: ÍSLENZK RIT i samvinnu viö Háskóla islands JÓN Á BÆGI5Á í útgáfu Heimis Pálssonar BJARNI THORARENSEN i útgáfu Þorleifs Haukssonar HIÐ MERKA HEIMILDARIT SAGA REYKJA VIKURSKOLA 1. bindi Fróöleiksbrunnur og Heimilisprýði

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.