Þjóðviljinn - 19.12.1976, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Blaðsíða 13
Sunnudagur 19. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 í afahúsi Ný bók eftir Guðrúnu Helgadótt- ur, höfund bókanna um Jón Odd og Jón Bjarna. Þetta er sag- an um Tótu litlu, átta ára óvenju- lega bráðþroska telpu, og fólkið í afahúsi, mömmu hennar<og pabba, systkini, afa og ömmu. Og á hinu leitinu er skólinn, þar sem margt ber til tíðinda, og fólkið í götunni. Sagan lýsir fjöl- þættu, iðandi mannlífi þar sem ekki skortir skemmtileg atvik né hnyttin tilsvör fremur en í fyrri bókum Guðrúnar. Vísnabókin Þessi sígilda bók hefur öðlast slíkar vinsældir að fátítt er. Hún ætti að komast í hendur allra barna og foreldra þeirra. Ný sending af hljómplötunni góðu, þar sem sungnar eru vísur úr bókinni, er væntanleg næstu daga. Kalli og Kata í fyrra komu út tvær bækur um Kalla og Kötu og urðu mjög vin- sælar. Nú eru komnar út tvær nýjar bækur, Kalli og Kata eiga afmæli og Kalli og Kata eignast gæludýr. Þær standa hinum fyrri síst að baki og eiga áreiðanlega eftir að gleðja mörg lítil börn. Jón Oddur og Jón Bjarni Báðar bækur Guðrúnar Helga- dóttur um þessa óviðjafnanlegu bræður hafa verið endurprentað- ar, en sú fyrri er þegar á þrot- um öðru sinni. Það er því ekki seinna vænna að komast yfir eintak. Sigrún fer á sjúkrahús Þessi bók Njarðar P. Njarðvik er einskonar heimildarsaga fyrir börn. Sagt er frá fjögurra ára stúlku sem þarf að fara á sjúkra- hús til að láta taka úr sér háls- kirtla. Bókin er samin í samráði við barnadeild Landakotsspítala og er ætlað kynningarhlutverk, auk þess sem hún geymir skemmtilega og að ýmsu leiti spennandi sögu. Barbapapa hefur unnið hug og hjörtu allra barna, enda er það auðskilið, þegar bækurnar eru skoðaðar, því að þær eru gæddar óvenju- legu hugmyndaflugi og lífsgleði. Nú er komin ný bók með 17 bráðskemmtilegum myndasög- um af ævintýrum Barbafjölskyld- unnar. Einnig eru fáanlegar fjór- ar aðrar bækur um þessa ein- stæðu fjölskyldu. Tumabækur Tvær nýjar Tumabækur eru komnar út: Tumi leikur við kisu og Tumi og Magga. Bækur þess- ar eru eftir mjög kunnan barna- bókahöfund, Gunilla Wolde, og gefnar út samtímis í mörgum löndum. Skemmtilegar myndir. Tvær fyrstu bækurnar í nýjum bókaflokki eftir höfund Tuma- bókanna, Emma öfugsnúna og Emma og litli bróðir. Þessar bæk- ur eru algerlega hliðstæðar Tumabókunum og bera öll sömu góðu höfundareinkennin. Helgi skoðajr heiminn Helgi skoðar heiminn Hinar gullfallegu myndir Hall- dórs Péturssonar, sem sýndar voru á Kjarvalsstöðum í haust, hugljúf og skemmtileg saga eftir Njörð P. Njarðvík. Ótvírætt feg- ursta og vandaðasta íslenzk barnabók, sem gerð hefur verið. Gleðjið unga vini yðar með þess- ari frábæru bók. Jólavísur Ragnars Jóhannessonar með myndum Halldórs Péturssonar eru komnar í nýrri útgáfu. Þess- ar skemmtilegu vísur hafa um langt skeið verið ríkur þáttur í jólagleði og jólahaldi íslenzkra barna, enda óspart um hönd hafðar í heimahúsum, á jóla- skemmtunum og í barnatímum í útvarpi. Breytíngar t Grtsabæ þroskandi leikbók eftir AnnetteTison og Talus Tavior IOUNN Breytingar í Grísabæ Þroskandi leikbók eftir Tison og Tailor, höfunda bókanna um Barbapapa. Falleg bók og skemmtileg, sem kennir börn- unum ýmislegt. Búkaútgáfan Iðm Skeggjagútu 1 simi 19156 og 12923

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.