Þjóðviljinn - 24.03.1977, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1977
Málgagn sósíalisma,
xerkalýdshreyfingar
og þjóöfrelsis.
Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans. útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Aúglýsingastjóri: Úlfar Þormóðsson
Ritstjórar:Kjartan ólafsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Stðumúla 6. Simi 81333
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón með sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann. Prentun: Blaðaprent hf.
„Annað atriði sem heldur uppi verði er
heildsalakerfið”, sagði Carter „Heildsal-
ar hafa að mestu horfið af sjónarsviðinu i
verslunarinnar jukust um tæplega 63% frá
Aö leggja heild-
söluna niður
og lœkka vöru■
veröum 10-15%
í vetur hefur breskur sérfræðingur um
smásöluverslanir dvalist hér i nokkra
mánuði. Sérfræðingur þessi, Stanley
Carter, starfar annars á vegum fyrir-
tækisins British Executive Service
Overseas, og samkvæmt viðtali i Morgun-
blaðinu við sérfræðing þennan er til-
gangur fyrirtækisins að veita sérfræði-
þjónustu „við uppbyggingu fyrirtækja i
þróunarlöndunum, ekki sist i nýfrjálsum
rikjum Afriku.” Og sérfræðingur þessi
kom hingað og i viðtalinu við Morgun-
blaðið birtir hann helstu niðurstöður sinar
eftir að hafa rannsakað verslunarrekstur
á íslandi. Hann telur að einkum sé það
tvennt sem þurfi lagfæringar við. í fyrsta
lagi bendir hann þar á skattakerfið hér á
landi: „óbeinir skattar eru hér mun hærri
en til dæmis i Bretlandi... óbeinu
skattarnir þrýsta verðlaginu upp hér á ís-
landi...”
Annað meginvandamál verslunarinnar
og þar með neytenda á íslandi er heild-
verslunin. Morgunblaðið segir i viðtalinu
um þetta vandamál, heildsalastéttina:
öðrum löndum Evrópu og flestar verslanir
panta vörur sínar beint frá framleiðanda.
Hnignunarskeið heildverslunarinnar i
Bretlandi var á milli 1930 og 1945 og þvi
fylgdi mikið strið, hótanir og erfiðleikar.
Það má fullyrða að hvarf heildsölukerfis-
ins hafi leitt til 10 til 15% íækkunar á
vöruverði.””
Ennfremur hefurMbl. eftir Carter: „Ég
held að þróunin hér verði einnig sú að
smásöluverslanir fari meira út I það að
kaupa sjálfar beint inn og að heildsölu-
kerfið leggist niður þvi það er ekkert vafa-
mál að það ýtir upp verðlagi.”
Hér er komið verðugt viðfangsefni að
glima við: Að leggja niður heildsalastétt-
ina og lækka vöruverðið um 10—15%. Það
er ekki litill ávinningur fyrir neytendur i
landinu og alþýðusamtökin i landinu að
keppa að.
Nýlega komu frá Þjóðhagsstofnun
verslunarskýrslur ársins 1974. Þar kemur
fram meðal annars hvað heildverslunin
kostar þjóðarbúið. Það ár unnu liðlega
4000 manns við heildverslunarfyrirtæki
sem eru milli 500 og 600 talsins. Þessi
starfsmannafjöldi er meira en þriðjungur
allra þeirra sem unnu á vegum verslunar-
innar. Vinnuafl i versluninni jókst um
3.3% á árinu 1974, sem var mun minni
aukning en árin á undan, að ekki sé minnst
á siðasta heila valdaár viðreisnar-
stjórnarinnar þegar aukning mannafla i
heildversluninni varð 9,3%. Verslunar-
velta heildverslunarinnar 1974 jókst um
65% frá árinu áður. Heildartekjur heild-
fyrra ári, en álagningartekjur um 39%.
Hreinn hagnaður eftir skatta jókst úr 790
milj. kr. 1973 i rúmlega 800 milj. kr. 1974.
Eftir að hægri stjórnin tók við batnaði
hagur heildverslunarinnar mjög veru
lega, að sjálfsögðu á kostnað almennings
eða eins og segir orðrétt i Verslunar-
skýrslum ársins 1974: „Afkoma
heildverslunar án olíu-, byggingavöru og
bilaverslunar virðist hins vegar hafa farið
batnandi á árinu 1975. Veltuaukning er
talin nema rúmlega 40% og umboðslaun
og aðrar tekjur aukast um 52% á árinu
1975. Heildartekjur þessara verslunar-
greina voru 19,6 miljarðar króna 1974, en
eru áætlaðar 27,5 miljarðar króna 1975 eða
rúmlega 40% hærri..... Vergur hagnaður
fyrir skatta eykst á árinu 1975 um tæplega
74% eða úr 923 milj. kr. árið 1974 i tæplega
1.605 milj. kr. og hlutfall hagnaðarins af
heildartekjum hækkar úr 4,7% I 5.8%.”
A þvi ári sem hagnaður heildverslunar-
innar jókst stórum eins og sést af yfirlitinu
hér að framan skertist kaupmáttur svo,að
Alþýðusamtökin töldu i lok veisluárs
heildsalanna að laun þyrftu að hækka um
30% til þess að halda kaupmætti.
Skýringin á þessu er að sjálfsögðu sú, að
rikisstjórn heildsalanna telur sér skylt að
gæta hagsmuna þeirra og það verður ekki
gert nema á kostnað launafólks. Þetta er
ákaflega mikilvæg pólitisk staðreynd sem
vert er að hafa i huga og méð þvi að leggja
heildsölustéttina niður mætti lækka vöru-
verð i landinu um 10—15%; það þýddi auð-
vitað að Geir Hallgrimsson heildsali hyrfi
af sjónarsviðinu, ekki aðeins sem heild-
sali, heldur einnig sem forsætisráðherra.
—s.
Vinstri arm-
ur fyrir-
finnst enginn
Bæði Alþýðublaðiö og Dagblað-
iö geta þess I framhjáhlaupi i gær
að hægri öflin hafi unniö góðan
sigur á aöalfundi fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna i Reykja-
vik á mánudaginn, þar sem Krist-
inn Finnbogason var kjörinn for-
maður og Jón Aðalsteinn i Sport-
vali varaformaður. Þessi fullyrð-
ing gerir ráð fyrir að til sé vinstri
armur innan Framsóknarfélag-
anna I Reykjavik. Við leyfum okk-
ur að efast stórlega. Vinstri arm-
urfyrirfinnst enginn, þóttnokkrir
innlyksa vinstri menn kunni að
hafa verið I andófshópnum gegn
Kristniog liöi hans. Forystumenn
hans, Guömundur G. Þórarins-
son, Kristján Benediktsson og
Eirlkur Tómasson veröa aö
minnsta kosti ekki taldir neinir
sérstakir vinstri Framsóknar-
menn, enda reyndir flokksvéla-
menn.
Miklu nær sanni er að álykta
sem svo, að þarna hafi staöið
barátta um persónur, væntanlegt
framboð og taktík. Hugsjónareld-
urinn er löngu slokknaöur I Fram-
sóknarfélögunum i Reykjavik, og
fylkingar innan þeirra takast ekki
á um stefnumál.
Vond
stjórnlist
Þaö eru hinsvegar margir
Framsóknarmenn, og það ekki
einvöröungu utan af landi, eins og
Kristinn Finnbogason f veldisstóii slnum og ekkl sakar
að hafa sakadómara sér við hægri hönd.
mundur G. Þórarinsson væri að
leggja hann á. Hann mun ætla sér
stóran hlut á framboðslistanum i
Reykjavik viö næstu alþingis-
kosningar. Klókindin eiga að hafa
veriö I þvi fólgin að etja Sverri
Bergmann á móti Kristni i þeirri
von að sá fyrrnefndi tapaöi kjör-
inu, og heföi eftir það minni
möguleika en áður að bitast við
Guðmund um þriöja sætið á þing-
lista Framsóknar. Guðmundi
varð ekki kápan úr þvi klæöinu,
og situr nú eftir mikiö mæddur,
þvi aö krókur kom á móti bragöi.
Skrípaleikur-
inn kring-
um herinn
Stundum sýnist manni að her-
stöðvasinnar hér á landi gætu
gert sjálfum sér greiöa og jafnvel
slegiö á andstööuna gegn herset-
unni með þvi aö koma fram gagn-
vart hernum af sæmilegri reisn.
Svo gegnsýröir eru þeir þó af her-
námshugarfarinu að þetta er
þeim um megn. 1 hvert skipti sem
upp kemur „viðkvæmnismál” i
sambandi við herinn taka ráða-
menn og stofnanir að leika kostu-
legan skripaleik. Dæmi um þetta
er losun hersins á hergögnum i
hafið i trássi við alþjóðalög.
Utanrikisráöuneytið segist ekki
hafa veitt leyfi, en ber þaö á land-
helgisgæsluna og lögreglu-
stjórann á Keflavikurflugvelli.
Pétur Sigurðsson, forstjóri segir
ekki ég og lögreglustjórinn i
Keflavik segir ekki ég. Hafnar-
Svona ku hylkin Uta úr, sem her-
inn sökkti f tonnatali, en hver veit
hvað raunverulega var i pokan-
um?
stjórinn I Njarðvikum segir ekki
ég og loks kórónar utanrikisráöu-
neytiö vitleysuna með þvi að full-
yrða að það hefði veitt leyfi til los-
unar, ef það heföi veriö spurt, þvi
aö herinn hafi lýst góssinu sem
sökkt var og þaö hefi ekki verið
hættulegt.
Einusinni enn kemur i ljós, að
Islensk yfirvöld hafa ekki og vilja
ekki hafa neina möguleika til þess
að halda uppi eftirliti meö um-
svifum „varnarliösins”. Einar
Ágústsson lætur sig hafa það að
trúa öllu sem frá hernum kemur:
hvort sem þaö eru yfirlýsingar
um kjarnorkuvopn eða skranlos-
un. Við tökum undir þaö með
Dagblaðinu að réttast væri aö
nota tækifæriö og skylda herinn
til þess aö slæða upp drasliö og
sannreyna á þann hátt, hvort ver-
ið sé að hafa okkur að fiflum enn
einu sinni.
atkvæðatölur á fulltrúaráðsfund-
inum sýndu, sem eru þerrrar
skoðunaraðþað sé vond stjórnlist
að hafa kliku Kristins Finnboga-
sraiar við völd. Hún hafi svo vont
orö á sér vegna ráösmennsku
sinnar I bankakerfinu, fyrir-
greiðslunnar til vildarmanna
sinna, vafsturs með flokksfjár-
málin og vegna annarra „fram-
sóknarskandala”, að fylgi muni
hrynja af flokknum i Reykjavik,
og ekki slður úti á landi, þar sem
áhrifamiklum Framsóknar-
mönnum dáma ekki völd fjár-
málaklikunnar i höfuöborginni.
Veldi Kristins Finnbogasonar
stendur nú með enn meiri blóma
en áður eftir glæsilegan sigur, og
er kurr i andófsliðinu en sam-
takamáttur enginn. óánægjan er
þó fyrir hendi og hugsa menn sér
heist til hefnda viö kjörborðið að
ári.
Krókur á
móti bragöi
Ekki er nokkur vafi að fram-
boðsmálin hafa verið rikur þáttur
I þessum deilum. Eins og kunnugt
er dró frambjóðandi Guömundar
G. Þórarinssonar o.fl., Sverrir
Bergmann, læknir, sig I hlé á sið-
ustu stundu og lýsti stuöningi við
Kristim. A þessu hafa Fram-
sóknarmenn tvær skýringar:
Annaöhvort hafi hann verið
beygður af Ólafi, Einari og Þór-
arni, eða honum hafi veriö bent á
það klókindabragð, sem Guð-