Þjóðviljinn - 01.06.1977, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 1. júni 1977. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 13
Trúarhetja og umbótamaður
Mo’Ammar Gadhafi
tjoftvarg
//Heittrúaður hermað-
ur" heitir bresk heim-
ildamynd um
Mo'Ammar Gadhafi,
þennan umsvifamikla
þjóðarleiðtoga Libyutsem
sjónvarp sýnir í kvöld
ki. 21.45
Gadhafi komst til valda i
Libyu 1969, en fram til þess tima
höföu veriö viö völd i Iandi þessu
eyöimerkurhöföingjar, sem
boriö höföu kóngsnafnbót, eftir
að landið gekk undan itölum
sem nýlenda i striöslok. tbúar
Libýu höfðu lifað við afar
þröngan kost undir fyrra
stjórnarfari, og munu allir sam-
mála um aö Gadhafi hafi leiö-
rétt kjör landsfólksins mikið i
stjórnartiö sinni. Landiö er enda
auðugt af oliu og ibúar ekki
nema um ein miljón manns, svo
forsendur voru nægar fyrir
kjarabót.
Gadhafi hefur verið umsvifa-
mikill og látiö að sér kveða i
stjórnmálum arabalandanna.og
skömmu eftir valdatöku sina,
rak hann alla itali úr landi, sem
var ein fyrsta stjórnarathöfn
hans, og mæltist aö vonum mis-
jafnlega vel fyrir. Hann hefur
að hætti margra arabarikja
veriö með ýmis sameiningar og
samvinnuáform á prjónunum,
m.a. við Túnis og egypta, þótt
margt hafi oröið endasleppt i
þeim ráöagerðum, og þeir sem
kysstust i dag, saka hver hinn
um fjörráö viö sig á morgun.
Þannig er nú um stundir grunnt
á þvi góöa meö Gadhafi og
egyptum. Palestinumenn hafa
átt stuðning hans visan og
margir flugræningjar kosiö
flugvelli Þ Libyu til lendingar
öörum fremur. Minto á Möltu
hefur hann heitið liðsinni i þeim
fjárhagsörðugleikum, sem
steðja mundu að eyriki hans, ef
her breta hyrfi burt og Gadhafi
þannig orðið mörgum betri en
enginn.
Sem vænta má um jafn oliu-
auðugt land er Libya atkvæða-
mikil á fjármagnsmörkuöum og
Mo’ Atnmar Gadhafi
fyrir skemmstu keypti lybiska
rikið stór hlutabréf i Fiat.
Þótt opinber stefna Gadhafi
sé að land hans sé óháð stór-
veldunum og öllu þeirra vafstri,
hefur hann nýskeð tekið upp
stefnu með utanrikispólitik
Sovétrikjanna, en hve lengi sú
stefna varir er erfitt að segja
um, þvi áform valdsmanna i
arabalöndum hefur löngum þótt
örðugt að ráða i.
Börn, sem ekki er œtlaður skóli
Þáttur um vangefin
börn og skólann
/Aotorstillinq
LOFTUR LOFTSSON
MIÐTÚNI
GARÐABÆ
,,Hvað biður vangefinna
barna, þegar þau komast á
skólaskyldualdur?" heitir þátt-
ur i útvarpi i dag, sem fjallar
um þennan stóra vanda, sem oft
litur út fyrir aö menn vilji kom-
ast frá með þvi að gleyma hon-
um.
„Við reynum að gera þennan
þátt út frá þvi vöhorfi, sem for-
eldrar þessara barna hafa til
málsins, þvi ööru visi verður
svona þáttur ekki gerður,”
sagði Gisli Helgason, annar um-
sjónarmanna hans, i viðtali viö
blaðið. ,,Nú er nýlokið innritun
sex ára barna i skólana, og
þessir foreldrar reka sig á þá
staðreynd að skólastjórar hafna
umsóknum barna þeirra, ef þær
berast. Sú eyða sem þarna er i
skólamálunum er afar átakan-
leg, þvi flest eru þessi börn fær
um að læra eitthvað, sem gæti
orðið þeim og þjóðfélaginu til
gagns og nytsemdar, og ófor-
svaranlegt að hlúa ekki að
kennslumálum þeirra betur en
gert er.
I þættinum verður fluttur
kafli úr ræðu, sem Jóhann Guð-
mundsson læknir flutti á kenn-
araþingi um þetta efni og rætt
við tvo skólastjóra um þeirra á-
lit, og enn mun Magnús Magn-
usson, fyrrum skólastjóri
Oskjuhliðarskóla, gera grein
fyrir viðhorfum sinum um leiðir
til úrbóta, en hann hefur verið
einn ötulasti baráttumaður fyrir
réttindum þessa fólks um ára-
bil.
Þátturinn er á dagskrá kl.
19.35, og auk Gisla sér Sigurður
Hallgrimsson um gerð hans.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir k. 7.30, 8.15 (of
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
morgunstund barnanna kl.
8.00: Baldur Pálmason les
framhald „Æskuminninga
smaladrengs” eftir Arna
Ólafsson (2). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Kirkju tónlist kl. 10.25:
Walter Kraft leikur á orgel
þrjá forleiki eftir Bach um
sálmalagiö „Gottes Sohn ist
kommen” / Desoff-kórinn
syngur Magnifikat nr. 4 eft-
ir Palestrina: Paul Böpple
stj. / Lionel Rogg leikur á
orgel Fantasiu og fúgu i
d-moll op. 135 eftir Reger.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Artur Rubinstein og félagar
i Guarnerikvartettinum
leika Kvartett I Es-dúr fyrir
pianó, fiölu, lágfiölu og kné-
fiðlu op. 87 eftir Antonin
Dvorák / Alexis Weissen-
berg og hljómsveit Tónlist-
arháskólans I Paris leika
„Kraká”, konsertrondó fyr-
ir pianó og hljómsveit op. 14
eftir Fredéric Chopin:
Stanislaw Skrowaczevski
stj. / Filadelfiuhljómsveitin
leikur „Valse triste” eftir
Jean Sibelius: Eugene
Ormandy stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Nana”
eftir Emile Zola Karl Isfeld
þýddi. Kristin Magnús Guö-
bjartsdóttir les (17).
15.00 Miödeeistónieikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn Halldór Gunn-
arsson kynnir.
17.30 Litli barnatiminn Guð-
rún Guðlaugsdóttir sér um
hann.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hvað biður vangefinna
barna, þegar þau komast á
skólaskyldualdur? Umsión-
armenn þáttarins: Gisli
Helgason og Sigurður Hall-
grimsson.
20.00 Einsöngvarakvartettinn
syngur lög við ljóðaþýöing-
ar Magnúsar Asgeirssonar.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur á pianó.
20.20 Sumarvaka a. Páskaleyfi
á Snæfellsnesi Hallgrimur
Jónasson rithöfundur flytur
fyrsta frásöguþátt sinn. b.
„Beztu sálma býður mér"
Annar þáttur Játvarös
Jökuls Júliussonar um
kersknivisur. Agúst Vigfús-
son les. c. Þetta hefur allt
blessast Arni Helgason i
Stykkishólmi talar viö As-
grim Þorgrimsson frá Borg
i Miklaholtshreppi. d. „Sál-
in hans Jóns mins” Ingi-
björg Þorbergs syngur eigið
lag viö ljóð Daviðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi.
21.30 Ótvarpssagan: „Jómfrú
Þórdis” eftir Jón Björnsson
Herdis Þorvaldsdóttir leik-
kona les (26).
22.00 Fréttir
2215 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Vor I verum” eftir Jón
Kafnsson Stefán ögmunds-
son les (16).
22.40 Djassþátturi umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Onedin-skipafélagið (L)
Breskur myndaflokkur. 2.
þáttur. Kaldir vindar næða.
Efni fyrsta þáttar: Skip i
eigu Frazers, keppinautar
James Onedins, springur I
loft upp á Merseyfljóti.
James og Baines skipstjóri
eru nærstaddir, en James
bannar aö nokkuö sé gert til
aö bjarga mönnunum, enda
telur hann, að það sé
tilgangslaust. Einn kemst
þó af og ber vitni viö sjó-
prófin. James er sýknaður
af öllum ákærum. Hann á þó
við margvislegt mótlæti að
striöa. Verst finnst honum,
að Elisabetu systur hans
tekst að ná undir sig oliu-
flutningum milli Ameriku
og Evrópu, og James óttast
að hún verði honum þung I
skauti, þegar hún tekur við
skipafélagi Frazers i fyll-
ingu timans. Þýöandi Óskar
Ingimarsson.
21.20 Gftartónlist (L) John
Williams leikur lög frá
þessari öld. Þýöandi Jón
Skaptason.
21.45 Heittrúaður hermaður
Bresk heimildamynd um
Mo’Ammar Gadhafi,
þjóöarleiötoga noröur-
afriska rikisins Libýu. A
undanförnum árum hefur
Llbýa oft verið f fréttum og
iandið hefur oft þótt vera
griöastaður flugræningja og
hvers kyns hryðjuverka-
manna. Þýðandi og þulur
Bogi Arnar Finnbogason.
22.30 Dagskrárlok.
:) BARNAVINAFELAGIÐ SUMARGJOF
Fornhaga 8- Sími 27277
Aðalfundur
félagsins verður haldinn þriðjudaginn 7da
júni kl. 18.00 að Hótel Sögu, Átthagasal.
Dagskrá : Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
BUNAÐARBANKINN
BREYTTUR,
AFGREIÐSLUTIMI
MIÐBÆJARÚTIBÚ
MELAÚTIBÚ
HÁALEITISÚTIBÚ
9-30-15-30 & 17-00-18-30
UTIBU GARDABÆ
9-30-12 & 13-15-30
17-00-18-30
Sölutjöld
17. júní
Þjóðhátiðarnefnd mun sem fyrr veita leyfi
fyrir sölutjöldum á þjóðhátiðardaginn.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Æskulýðsráðs, Frikirkjuvegi 11.
Umsóknum sé skilað þangað i siðasta lagi
mánudaginn 6. júni.
Þjóðhátiðarnefnd