Þjóðviljinn - 08.10.1977, Page 5
Laugardagur 8. október 1977 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Steinsteypt
háspennu-
möstur?
í nýútkomnu timariti Verk-
fræðingafélags Islands er skýrt
frá þvi að Rikharöur Kristjánsson
hafi hafið störf hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins 1.
sept. s.l.
Fyrsta verkefni Rikharðs, sem
er nýbakaður doktor i burðar-
þolsfræði frá Þýskalandi er að
gera könnun á þvi hvort hag-
kvæmt geti verið að nota stein-
steypta stólpa i háspennumöstur i
stað innfluttra viðarstólpa eða
stálmastra.
Þjóðviljinn hafði tal af Rikharði
og sagði hann að könnunin væri
rétt að fara af stað enn þá og væri
hann nú að viða að Ser gögnum
frá svipuðum rannsóknum
erlendis frá. Langt væri þvi i
niðurstöður enn.
Innflutningur háspennumastra
úr tré og stáli kostar mikinn
gjaldeyri, og sagði Rikharður að
ef steypan reyndist nógu góð
myndi verða af þessu mikill
sparnaður.
Hann sagði einnig að stein-
steyptir stólpar af þessu tagi
væru minni um sig en stálmöstrin
og að ekki myndi bera meira á
þeim i landslaginu heldur en
tréstólpunum. AI.
Brúarsmíöi
í ár
1 nýútkomnu timariti Verk-
fræðingafélags tslands er yfirlit
yfir verkefni I brúargerð sumariö
1977.
Þar segir að stærsta verkefni
brúardeildar Vegagerðar rikisins
sé bygging brúarinnar yfir
Borgarfjörð, en fjárveiting i þá
brú nemur 400 miljónum króna,
og hún verður 520 m. löng.
Af öðrum brúm eru nefndar brú
á Kolgrimu i Suðursveit, (73 m.),
brú á Gljúfurá i Húnavatnssýslu
(59 m.), brú á Mjóadalsá hjá Mýri
á Sprengisandsleiö (45m), brú á
Laxá hjá Hvammi i Laxárdal i
Skagafjarðarsýslu (24m), brú á
Hvaldalsá, austan við Hvalnes
(8m) og brú á Hólsá á Sólheima-
sandi (14m) Eru þá ótaldar 10
minni brýr.
A þessu ári verður lokið málun
og frágangi brúa á Skeiðarár-
sandi og brúar á Austurós
Héraðsvatna i Skagafirði.
Þá mun Vegagerð rikisins ann-
ast byggingu á undirstöðum fyrir
150 m pipubrú á Eyjafjarðará, en
það er hluti af aðveitulögn hita-
veitu Akureyrar.
Frá Bridgefélagi
Kópavogi
S.l. fimmtudag 7. okt. var spil-
uð 2. umferð tvimenningskeppni
hjá Bridgefélagi Kópavogs.
Birgir og Guðmundur halda enn
fyrsta sæti en tvö pör fylgja fast á
eftir. Stig.
1. Birgir Isleifsson —
Guðmundur Pálsson 269
2. Grimur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 259
3. Sverrir Armannsson —
Guðmundur Arnarsson 257
4. Sigurður Thorarensen —
Jóhann Bogason 230
5. Armann J. Lárusson —
Haukur Hannesson 230
6.-7. Kristinn A. Gústafsson —
ArniJónasson 226
6.-7. Guðmundur Kristjánsson —
Hermann Finnbogason 226
Siöasta umferöin i keppninni
verður spiluð næsta fimmtudag i
Þinghól Hamraborg 11.
Stjórnin hefur gert eftirfarandi
áætlun um starfsemi félagsins
fram að áramótum:
Tvimenningur29. sept. — 13. okt.
’77 3 kvöld
Hraðsveitakeppni 20. okt. — 17.
nóv. ’77 5 kvöld.
Einmenningur / Firmakeppni 24.
nóv. ’77 fyrri hluti
Tvimenningur — Buttler 1.— 15.
des. ’77 3 kvöld.
Jólafri.
Einmenningur / Firmakeppni 6.
jan. '78 siöari hluti.
Aðalsveitakeppnihefst 12. jan. ’78
— liklega 7 kvöld.
Framhald verður ákveöiö
siðar.
Guðmundur Benediktsson er sérstakur gestur Haustsýningarinnar og
sýnir 11 verk sem öll eru gerö á árunum 1976 — 77. Hér sést hann við eitt
þeirra (Ljósm.: —eik)
Haustsýning FÍM
Haustsýning Félags íslenskra
myndlistarmanna 1977 verður
opnuð á Kjarvalsstöðum laugar-
daginn 8. október — kl. 15.00. A
sýningunni verða alls 123 mynd-
listarverk eftir fjörutiu og einn
höfund. Af þessum myndlistar-
höfundum eru tuttugu og tveir fé-
lagar i FIM en 19 utan félagsins.
Nokkrir hinna siðarnefndu sýna
nú myndir i fyrsta sinn á Haust-
sýningu.
Á sýningunni eru:
myndvefnaður, keramikverk,
glermyndir, grafik af ýmsu tagi,
kritarmyndir, oliumálverk,
vatnslitamyndir, myndverk gerð
með blandaðri tækni, höggmynd-
ir eða skúlptúrverk auk annars-
konar hráefnis. Fyrir tveim árum
var Louisa Matthiasdóttir list-
málari sérstakur gestur Haust-
sýningar FIM en i þetta sinn hef-
ur sýningarnefnd félagsins valið
Guðmund Benediktsson mynd-
höggvara til kynningar.
Guðmundur Benediktsson
myndhöggvari fæddist i Reykja-
vik árið 1920. Um þritugt gerðist
hanh nemandi Ásmundar Sveins-
sonar i Myndlistarskólanum, sem
nú er til húsa við Freyjugötu (As-
mundarsal).
Guðmundur hefur tekið þátt i
fjölda myndlistarsýninga bæði
hér heima og erlendis t.d. á Norð-
urlöndum i Þýskalandi og Banda-
rikjunum. Haustsýning FIM 1977
stendur frá 8. — 23. október að
Kjarvalsstöðum. Hún er opin-
virka daga kl. 16.00 — 22.00 en
laugardaga og sunnudaga kl.
14.00 — 22.00. Húsið er lokað á
mánudögum.
Fraktleidin liggur
um Luxemborg
Frá framleiðendum í mið- og suður evrópu
liggurfraktleiðin
um Luxemborg hingað heim.
Þaðan og þangað er daglegt þotuflug.
Láttu okkur beina vörunni þinni á rétta leið.
Síminn er 84822. Biddu um fraktsölumann.
FLUGFÉLAG
ÍSLAMDS
LOFTLEIDIR frakt