Þjóðviljinn - 08.10.1977, Page 7

Þjóðviljinn - 08.10.1977, Page 7
Laugardagur 8. október 1977 þjúÐVILJINN — SIÐA 7 3Getur það verið að yfirvöld í uppeldis- og skólamálum, sem þó hafa ráðið í þjónustu sína sérfræðinga úr fyrrnefndum félögum, hafi að engu álit þeirra í þessu máli og haldi sínu striki? í hrauninu Húsið A einum afskekktasta staö þessa hrjóstruga lands okkar er risin af grunni bygging ein veg- leg og mikil, sem ferðalangar lita i f jarska, er leggja leið sina til Grindavikur og nágrennis. Þetta einmanalega hús, sem trónar þarna i miðri auðninni, með lífið hraunið á allar hliðar, er byggt i þeim tilgangi að setja þar á stofn skóla og uppeldis- stofnun. Almennt gengur húsið undir heitinu Krisuvikurskólinn og dregur nafn af jörðinni Krisuvik. Markmiðið með þessari bygg- ingu mun vera eins og áður er getið, að starfrækja þarna skóla og uppeldisstofnun „fyrir heimilislaus heilbrigð börn” eins og það er orðað i reglugerð fyrirskólann. Þarna á með öðr- um orðum að safna saman börnum, væntanlega á grunn- skólaaldri, sem hafa orðið fyrir þvi óláni a^ð geta ekki alist upp við eðlilegar heimilisaðstæður sökum óhæfi foreldra þeirra eða af öðrum ástæðum. Að mati þeirra, sem að þessu mannvirki standa mun þessum börnum hollast að alast upp nokkuð fjarri mannabyggðum og utan þess samfélags, sem þeim er þó sennilega ætlaö siðar á lifsleið- inni að taka þátt íog verða nýtir þjóðfélagsþegnar. Hugmyndin að þessu „mannUðlega” fyrirkomulagi, mun vera einhvers staðar á aldrinum 25-30 ára eftir þvi sem mér er tjáð af kunnugum og lik- lega orðin til i heilabUiframmá- manna i sveitarstjórnarmálum á Suðurnesjum, þó eigi viti ég það gjörla. Að minnsta kosti standa sveitarfélögin að þessari stofnun ásamt rikinu og eru nU loks að sjá þennan áratuga gamla draum sinn rætast. Mér er mjög til efs að skóla- og uppeldisstofnun af þvi tagi, sem Kri'suvikurskólanum er ætlað að vera hafi nokkurntima átt rétt á sér, jafnvelekki þegar hugmyndin varð til. Félagsleg- ar og sálrænar þarfir heimilis- og foreldralausra barna á við- kvæmu bemskuskeiði eru svip- aðs eðlis nU og þær voru fyrir áratugum siðan. En munurinn er sem betur fer sá, að þekking manna á þessum þörfum barna er allt önnur og miklu meiri og viðtækari en var fyrir nokkrum áratugum. Flestar menningar- þjóðir hafa leitast við að hag- nýta þessa þekkingu og niður- stöður i' uppeldismálum, á þann veg að skapa þeim börnum er þess þurfa meö, eðlileg upp- vaxtarskilyrði, þarsem reynt er að koma til móts við grund- vallarþarfir þeirra og stuðla þannig að heilbrigðri persónu- leikaþróun eftir þvi sem hægt er.Enþaðerforsendanfyrir þvi aö barnið geti siöar meir á full- orðinsaldri notið sin i samfélag- inu sem fullorðinn einstakling- ur, er hopar ekki undan þeim kröfum og ábyrgð sem þjóð- félagið leggur hverjum og ein- um á herðar. Það ætti naumast að vera þörf á að fjölyrða nein ósköp um þau mistök, sem eru að eiga sér stað meö byggingu þessa skóla. Þau blasa við hverjum og einum, sem hefur einhvern snefil af skilningi á uppeldi barna almennt. Ein- angrun staðarins er slik, að ó- hugsandi erað unnt sé að skapa börnum þareðlilegtumhverfi til að alast upp við. Auk þess er löngu orðið Urelt að byggja sérstök munaðar- leysingjahæli jafnvel þó þeim væri fundinn staður i þéttbýli. Þau verða einungis til að undir- strika þá slæmu aðstöðu, sem þessibörn hafa i þjóðfélaginu. I stað þess ber að leggja megin áherslu á að hjálpa þeim, sem á þurfa að halda, og finna þeim heimili i eðlilegu umhverfi þar sem fólk lifir venjulegu lifi. Þar sem heimili og skóli eru aðskil- in, umhverfi sem hefur á boð- stólum tækifæri til tómstunda- og félagsiðkana. Það er m.a. af þessum rökum, % sem nU hafa verið stuttlega rak- in, að þrjU stéttarfélög hér á landi hafa sent yfirvöldum ályktun þess efnis að fyrirhuguð starfsemi Krisuvikurskólans, sé i andstöðu við alla nUtimalega þróun i uppeldis- og kennslu- málum. Þessi stéttarfélög eru Sálfræðingafélag Islands, Sér- kennarafélag Islands og Stéttarfélag islenskra félags- ráðgjafa. Það fólk, sem stendur að þessum félögum hefur eytt mörgum árum ævi sinnar til að afla sér þekkingar á sviði kennslu- og uppeldismála til að bUa sig undir ævistarf á þessum vettvangi. Getur það verið að yfirvöld i uppeldis- og skólamálum, sem þó hafa ráðið i þjónustu sina sérfræðinga Ur fyrrnefndum félögum,hafiað engu álit þeirra iþessu máliog haldi sinu striki? Fróðlegt væri að vita hvernig slikt er réttlætt. Það væri enn- fremur fróðlegt fyrir almenning að fá upplýsingar um hversu mörgum miljónum rikissjóður hefur veitt i byggingu Krisu- vikurskólans. Þetta kemur okk- ur öllum við þvi að við borgum brUsann með sköttunum okkar. A sama tima og veitt er tugum miljóna i Krisuvikurskólann, bUa tugir þroskaheftra barna viðsvegarum land við algerlega ófullnægjandi og sums staðar alls enga aðstöðu til kennslu og þjálfunar vegna þess að það vantar m.a. fjármagn til að ráða kennara og greiða þeim laun. I þessu sambandi er ekki úr vegi að benda á fleiri staðreynd- ir. Þroskaheft börn, sem eiga lögheimili sín i sveitarfélögum i Reykjaneskjördæmi, er standa' að Krisuvikurskólanum, verða að sækja allá þjálfun og kennslu á dagheimili Styrktarfélags vangefinna i Reykjavik, alla leið frá Keflavik, vegna þess að hvergi nokkurs staðar fyrir finnst nein aðstaða i heima- byggð þeirra. Kennslustofa fyr- ir bóklega kennslu i Lyngási er ca 8 ferm., en þar eru rUmlega 40 börn. Það er enginn skóli til og hefur aldrei verið fyrir þessi börn, af þvi að það eru ekki til peningar hjá þvi opinbera til að byggja handa þeim skóla ekki einu sinni i sjálfri höfuðborg landsins. Það eru bara til pen- ingar til að byggja skóla Uti i Krisuvikurhrauni svo að hægt séað senda þangað foreldralaus börn i Utlegð. En þar eiga ekki að vera nein þroskaheft börn svo að þau sleppa vonandi við að hljóta slik örlög! NU er mér kunnugt um að ýmsir aðilar, sem hafa með höndum stjórnun i skóla- og upp eldismálum i þessu landi, eru sammála mörgu, sem hér hefur veriö sagt, og velta fyrir sér hvaða starfsemi hægt væri að hafa i hUsinu i hrauninu, sem orðið erstaðreynd, ánþess að sU starfsemi hefði skaðvænlegar afleiðingar i för með sér Við slikar vangaveltur kemur manni fyrst i hug hvort til séu einhverjir einstaklingar i þessu þjóðfélagi, sem þurfi á einangr- un að halda langtimum saman. Mér koma naumast aðrir i hug en þeir, sem eru dæmdir til fangelsisvistar vegna afbrota og þannig dæmdir til einangrun- ar. Ef til vill mætti velta fyrir sér hvort hugsanlegt væri að starfrækja þarna skóla fyrir af- brotamenn meðan þeir væru að afplána dóma. Þeirri hugmynd er hérmeð komið á framfæri en vonandi hafa aðrir ennþá betri tillögur og áhuga fyrir að leggja orð i belg um þetta mál. VERKEFNAÁÆTLUN eitt aðalviðfangsefnið r Viðtal við Véstein Olason formann miðnefndar herstöðvaandstœðinga um landráðstefnuna 15. og 16. okt. t Festif Grindavfk verður öll þjónusta veitt sem á þarf aðhalda. Vésteinn Ólason: Þátttaka f fjöldaaðgerðum er góð, en vantar á aðokkar innra starf sé nægilega öfiugt og markvisst. Landsráðstefna herstöðvaand- stæðinga verður f Festi, Grinda- vik, 15. og 16. okt. nk. Þjóðviljinn fór á fund Vésteins Ólasonar formanns miðnefndar til að spyrja hann nánar um ráðstefn- una og tilhögun hennar. — Er slik ráðstefna oröin ár- viss atburður, Vésteinn? — Já, skv. lögum á að halda hana i september eða október hvert ár. — Hvers vegna varð Grindavík fyrir valinu sem fundastaöur nUna? — 1 Festi er i alla staði góö að- staða og við fáum þar alla þjón- ustu sem við þurfum á að halda. Það skapar betri vinnufrið að vera utan Reykjavikur. Menn geta þá gefið sig alveg að ráð- stefnunni en eru ekki hlaupa frá annarra erinda eins og vill verða i borginni. — Er gistiaðstaða i Festi. — Já, þarna er svefnpokapláss fyrir þá sem þurfa á að halda ut- an af landi og ennfremur verður kvöldverður á laugardagskvöldiö sem er innifalinn i ráðstefnu- gjaldinu. Það skal tekið fram aö ráöstefnugjaldiö, sem er 2000 kr„ er ma. notað til að fá fargjaldið niðurgreitt. — Hver verða helstu verkefni ráðstefnunnar? — t fyrsta lagi verður spjallaö um liðið ár og þá lærdóma sem við getum dregið af starfinu sem þá var unnið. Svo er ætlunin at reyna að marka skýrar verkefnaáætlun fyrir næsta ár er gert var siðast. Miðnefndin mur leggja fram drög aö álitsgerð o{ við vonumst til að ráðstefnar muni samþykkja áætlun bæö með kapp og forsjá þannig al verkefnavalið fyrir næsta ái verði með nokkurri forgangsröð un. Þetta eru megin atriðin. — Hvað finnst þér um starfiö á siðasta ári? — Að vissu marki erum við ánægð með starfið Ut á við, þátt- töku i f jöldaaðgerðum og sliku, en það vantar á að okkar innra starf sé nógu öflugt og markvisst. Með þessari áætlun sem ég minntist á áðan verður reynt að bæta Ur þvi. Slðast en ekki sist þarf að ræða okkar meginstefnumál og þoka þeim sem best áleiðis á þvi ári sem framundan er. — Verður kosin ný miðnefnd? — Já, i henni sitja 12 manns og 12 til vara. — Hvað með Utgáfumálin? — Viö leggjum áherslu á að koma fastari skipan á þau en ver- ið hefur og ræða þau. Þess skal getið að Dagfari er nýkomin Ut og eraðallega helgaður þessari ráð- stefnu. Honum verður dreiftmeð- alfélagaogá vinnustaðiog viðar. — Hvernig er fjárhagur sam- takanna? — Svo er góðum undirtektum manna fyrir að þakka að við lent- um ekki i' fjárhagsvandræðum á siðasta ári. Hins vegar er lágt i kassanum nUna og erum við að fara af stað með happdrætti sem við treystum að verði fjárhags- grundvöllur okkar i vetur. Þetta happdrætti er nýstárlegt aö þvi leyti að vinningar eru afskaplega margir eða um 250 talsins. Til gamans má nefna aö nokkrir vinningarnir eru Keflavikur- gönguskór, sterkir og endingar- góðir. Af öðrum vinningum má nefna listaverk og hljómplötur. — Að lokum Vésteinn, verður ekki eitthvað sér til gamans gert á þessari landsráðstefnu? — JU, það er kvöldvaka á laugardagskvöldið. Það er fólk Ur Hafnarfirði sem hefur góða reynslu, sem hefur tekið að sér að sjá um hana. —GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.