Þjóðviljinn - 08.10.1977, Side 10

Þjóðviljinn - 08.10.1977, Side 10
10 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 8. október 1977 Che meft eiginkonu sinni, Aleida March, og börnum / minningu bylúngarmanns 1 dag, 8. október, eru liöin 10 ár frá þvi aö Ernesto Che Gue- vara var myrtur I Bóliviu. Bylt- ingarmenn hægindastólanna voru ekki seinir á sér aö slá fram þeirri kenningu aö nii væri endanlega sannaö aö skæru- hernaöur gæti ckki sigraö i rómönsku Ameriku. Vist er um það aö á þeim árum sem liöin eru frá sigri kúbönsku bylt- ingarinnar 1959 hefur skæru- hernaöur ekki oröið til aö ieggja heimsvaldastefnuna aö velli annars staðar i álfunni. En þaö hefur einnig komiö I Ijós aö „friðsamleg leið til sósíaiisma” erekki til IRómönsku Ameriku, og tilraunir i þá átt hafa kostað fleiri mannslif en skæru- hernaðurinn. En þó aö skæru- hernaður sé ekki m ikill i álfunni i dag og svartnætti heimsvalda- stefnunnar hafi sjaldan verið meira, eru ýmis teikn á lofti um aukna baráttu og vonirnar slokkna aldrei, minningin um Guevara og fordæmihans er ein þeirra. — Hér birtum viö tvö islensk þjóö um Che, annaö eftir Jó- hannes úr Kötlum og hitt eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem skrifar hér einnig grein um hann, samantekt úr bókinni Frásögur úr Byltingunni, sem hefur að geyma kafla úr ritum Ché, og grein eftir Mgnús Kjartansson, sem birtist i 3. hefti Itéttar 1967, en Magnús er cini islendingurinn sem kynnt- ist Ché persónulega, frásögn af viðræðum þeirra er að finna i bók Magnúsar, Byltingin á Kúbu, sem út kom 1962. i starfi forseta Þjóöabanka Kúbu Meö Fidel Castro á Kúbu 1959 ,Tvö, þrjú, mörg Víetnamstríö’ (1 júni 1967 hóf tlmaritið „Tricontinental” göngu sina i Havana. Undirbúningur útgáf- unnar haföi staöiö nokkuö lengi, og i april barst ritnefndinni grein frá Che Guevara, sem hann hafði skrifaö sérstaklega fyrir fyrsta hefti timaritsins. Greinin þótti hinsvegar svo timabær og merki- leg að hún var birt i kúbönskum fjölmiðlum þá þegar, þ.e. i april 1957. Þá var Che kominn til Bóli- viu fyrir allnokkru og undirbún- ingur skæruhernaðarins þar var i fullum gangi. Hér fer á eftir úr- dráttur úr Tricontinental-grein- inni i Islenskri þýöingu Útfs Hjör- vars (Che Guevara, Frásögur úr byltingunni, MM-kilja).) Við veröum aö vera minnug þess, að heimsvaldastefnan, siö- asta stig kapitalismans, er kerfi sem spennir um heiminn allan og að baráttuna gegn þvf verður að heyja um allan heim samtimis. Lokamarkmiö i þeirri baráttu er að vinna endanlega bug á heims- valdastefnunni. Það hlutverk, sem viö hinir arðrændu og van- þróuðu verðum að takastá herðar er að ónýta foröabúr heimsvalda- stefnunnar: undirokuð lönd okk- ar, þaðan sem hún sýgur fjár- magn, hráefni, tæknifræðinga og ódýrt vinnuaflog þangað sem hún veitir nýju fjármagni — sem er kúgunaraöferð — og sendir vopn og hverskyns vörur, sem gera okkur algjörlega háða henni. Höfuðtakmarkið með þessari hernaðaráætlun er raunverulegt frelsi fólksins, en slikt frelsi er i flestum tilvikum ávöxtur blóð- ugrar baráttu, sem í okkar heimsálfu verður óhjákvæmilega sósialisk bylting. Eigi að vinna algjöran bug á heimsvaldsstefnunnj verður aö reiöa af höfði hennar, Bandarikj- unum. (...) Við erum þvingaöir til þessarar baráttu. Það er engra annarra kosta völ: Viö verðum að undirbúast og einsetja okkur að hefja baráttuna. Upphafið verður ekki auövelt. öllum kúgunaröfl- um harðstjórnarinnar, meö hrottaskap sínum og lýöskrumi, veröur beitt I hennar þágu. Fyrsta verkefniokkarer að kom- ast lífs af. Siðan mun fordæmi skæruliðanna verka sem vopna- áróður (i vietnamskri merkingu þess orðs), byssukúlu- og bar- dagaáróður, i orrustu sem vinnst eöa tapast, en er sifellt háð. Hinn þungvægi lærdómur, að skæruliö- ar eru ósigrandi, mun breiðast út meðal fólksins, öreigafjöldans. Þjóðernistilfinningin verður að eflast, leysa þarf stærri verkefni til að standast enn grimmilegri kúgun. Hatrið ræður úrslitum i baráttunni; ósliSikvandi hatur á fjandmanninum brýtur eðlilegar hömlur af manninum og breytir honum í mikilvirka, hatramma, einbeitta og kalda drápsvél. Þannig eiga hermenn okkar aö vera. An haturs getur þjóð ekki sigrað grimma fjendur. (...) Og við skulum þróa sanna alþjóðlega öreigahyggju með‘al- þjóðlegum öreigaherjum. Megi fánarnir, sem barist er undir, verða tákn þess heilaga hlutverks að frelsa mannkynið. Svo það að falla undir fánunum i Vietnam, Guatemala, Laos, Guineu, Kólumbiu, Bóliviu og Brasiliu — svo aðeins séu nefnd nokkur svið hinnar virku baráttu — verði jafnmikill heiður og æskilegt hlutskipti fyrir Amerikumann, Asi'ubúa, Afrikubúa — já jafnveí Evrópumann. Hver blóðdropi, sem fórnað er i landi sem hefur annan fána er þann sem þú fædd- ist undir, er reynsla, sem þeir njóta ■ er eftir lifa og styðjast seinna við i baráttunni fyrir frelsi föðurlands sins. Og hver þjóð sem f relsuð verður er siguráf angi i baráttunni um þitt eigið land. Stundin er komin að við set jum innbyrðis deilur okkar niður og göngum óskiptir til baráttunnar. (...) Við skulum draga saman það sem veitir okkur von um sig- ur: Við munum leitast viö að út- rýma heimsvaldastefnunni al- gjörlega með þvi aö vinna sterk- asta vigi hennar: heimsvalda- yfirráð Bandarikjanna. Aðferð okkar er aö frelsa þjóðirnar smátt og smátt, eina af annarri, með þvi að þvinga óvininn til erfiðrar baráttu i óvanalegu um- hverfi, ná forðabúrum hans: ófrjálsu löndunum. Þetta felur i sér langæja styrjöld — ég endur- tek enn einu sinni: grimmilegt strið. Enginn má blekkja sjálfan sig þegar hann fleygir sér út i bardagann, og enginn má hika af ótta við þær afleiðingar sem baráttan hefur fyrir alþýðuna. Þetta er nánast eina von okkar um sigur. Nú megum við ekki bregðast. Vietnam visar okkur leiðina meö framhaldskennslu i hetjudáöum, með sorglegum, daglegum lifsfórnum svo að endanlegur sigur fáist. I Vietnam eru hermenn óvinar- ins I ónotalegri og óþægilegri að- stööu. Þeir, sem vanir eru banda- riskum lifskjörum, verða að búa i fjandsamlegu landi. Óöruggir, vegna þess að þeir geta ekki hreyft sig án þess að verða þess varir. Dauðinn bfður þeirra sem voga sér útfyrir hinar viggirtu stöðvar. Stöðugur fjandskapur ibúanna dylst ekki. Allt þetta veldurinnriáhrifum heima fyrir i Bandarikjunum og verður sá ger- andi, sem veikir heimsvalda- stefnuna og hamlar útþenslu hennar: stéttabarátta i hennar eigin landi. Ljómandi framtið væri á næsta leiti ef tvö, þrjú, mörg Vietnam- strið loguðu á jarðkúlunni, hvert með sinum óskaplegu raunum, með sinum daglegu hetjudáðum, með sinum endurteknu árásum gegn heimsvaldasinnum, sem væru neyddir til að dreifa her jum sinum vegna hinna skyndilegu árása og yrðu fyrir vaxandi hatri allra þjóða heims. Ef við værum færir um að standa saman svo við gætum veitt þyngri og mark- vissari högg, svo að stuöningur okkar við striðandi, þjóðir yrði öflugri — hversu náíæg og skin- andi væri þá ekki framtiöin. Ef við uppfyllum á litlum bletti heimskortsins þær skyldur sem við höfum tekist á herðar og fórn- um baráttunni öllu er við meg- um: lifi okkar — ef viö einhvern dag, einhversstaðar i heiminum, drögum andann i hinsta sinn, þá vitið þetta: við höfum metið hve viðtækt gildi athafnir okkar hafa og litum á sjálfa okkur aðeins sem hlekk i hinum volduga öreigaher. Við erum stoltir af að hafa lært af byltingunni á Kúbu og viðhorfi æðsta leiðtoga hennar til þessa heimshluta: „Hverju skipta hættur og fórnir einstak- ling eða eina þjóð þegar örlög alls mannkyns eru i húfi”. Allar athafnir okkar eru sem heróp gegn heimsvaldastefnunni og hvatning til þjóðanna að sameinast gegn höfuðóvini mann- kynsins: Bandarikjunum. Einu gildir hvar dauðinn kann að bíða okkar, en veri hann velkominn, svo fremi að heróp okkar hafi glumiö opnum eyrum og önnur hönd gripi vopn okkar og nýir menn hefji útfararsönginn meö hvellum hljómi vélbyssunnar og ijósti upp nýju herópi striðs og sigurs. t sjálfboðavlnnu við höfnina I Havana l

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.