Þjóðviljinn - 08.10.1977, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 08.10.1977, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. október 1977 BRIDGE Víða góð þátttaka Flest stærri félögin eru vel á veg komin með byrjunarvetrar- starfssemi sina. Góð þátttaka er vfða, og t.d. eru 48 pör nú i keppni hjá BR. Liklega verða 36 pör hjá Ásunum, i boðsmótinu sem hefst á mánudag. 30 pör eru i keppni hjá BDB, annað eins hjá TBK, 20 pör hjá B. Kópa- vogs, og þannig mætti halda á- fram, meö upptalningu þeirra félaga, sem hafa yfir 20 pör i reglulegri keppni. Það er vel, að félögin hafi góða og almenna þátttöku, enda er styrkur sambandsins fólginn i þeim félagsskap, sem myndar og mótar allt bridgelif á tslandi. Eðlilegt er, að auka veg félaga, sem hafa yfir 20 pör í reglulegri keppni. Eðlilegt er, að auka veg félaga á einhvern hátt, og mynda t.d. félagakeppnir, þannig að hver spilari telst til á- kveðins félags, þó vitanlega megi mannskapurinn spila hvar sem er. Um formannaráðstefnu Ar hvert, heldur stjórn BSt, svokallaða formannaráðstefnu (annaö hvert ár), þar sem fáir útvaldir koma saman yfir kaffi- bolla og ræða ástand (óstand) mála, á viðum grundvelli. Slikir fundir eru frekar leiðigjarnir, að sögn frómra manna, enda er illu best' oftast lokið á sem skemmstum tima. Nú mega menn ekki fá þá alröngu hug- mynd, að ekkert sé um að vera á þessum ráðstefnum, annað en að tala um veðrið og nýjasta spil Belladonna. Nei, satt að segja eru gerðar ýmgar isgmþykktir og margt til betri vegar fært, i orði, vel að merkja.... Staðreyndin er sú, að orð og meiri orð verða bara orð, þar til yfir likur. Hlutina verður að framkvæma, jafnhliða þeim umræðum. Þessvegna vonar þátturinn að næsta ráðstefna marki timamót. Aö hann verði marktakandi. r Frá Asunum S.l. mánudag lauk hjá okkur haustkeppni félagsins, anno 1977. Svo skemmtilega vildi til, að sami sigurvegari sigraði nú, og sigraöi s.l. ár, þ.e. Sigtrygg- ur Sigurðsson, nú á móti sjálf- um kóngi íslensks bridge, Ein- ari Þorfinnssyni. Þeir félagar náðu að sigra, eftir mikinn barning efstu para, og hrun hjá öörum. 1 öðru sæti kom siðan ungt og efnilegt par. Annars varð röð efstu para þessi: 1. Einar Þorfinnsson—Sigtrygg- ur Sigurðsson 548 stig 2. Gunnlaugur Kristjáns- son—Sigurður Sigfússon 544 stig. 3. Jón Hilmarsson—Jón Páll Sigurjónsson 535 stig 4. Hermann Lárusson—Ólafur Lárusson 534 stig 5. Páll Valdimarsson — Vigfús Pálsson 531 stig. 6. Sigurður Sigurjóns- son—Trausti Finnbogason 521 stig 7. Oli Andreasson—Sævin Bjarnason 8. Esther Jakobsdóttir—Þor- finnur Karlsson 517 stig Þátttaka alls 24 pör. Meðal- skor 495 stig. A mánudaginn kemur hefst hjá félaginu „boðsmót” BÁK, 1977. Þetta er opið mót, en á- kveðnum pörum boðið til leiks. Keppnin mun taka yfir 3 kvöld, og spilað verður i riðlum, nema þriðja kvöldið, munu efstu pör spiia innbyrðis, um sjálf pen- ingaverðlaunin, sem eru all rif- leg. Þátttaka er miðuð við 36 pör hámark, og eru þegar komin vel yfir 20 pör. Væntanlegir kepp- endur geta látið skrá sig i sim- um 41507 Ólafur, eða 81013 Jón Páll. Veittur er bæði hjóna og nema-afsláttur. Spilað er i Félagsheim. Kópa- vogs, efri sal, á mánud. Frá bridgefélagi Breiðholts Að einni umferð ólokinni i hausttvimenningskeppni fé- lagsins, er staða efstu para þessi: 1. Eiður Guðjohnsen—Kristinn Helgason 369 stig 2. Guðlaugur Karlsson—Óskar Þráinsson 368 stig 3. Guðlaugur Nielsen—Tryggvi Gislason 365 stig Þriðja og siðasta umferðin verður spiluð n.k. þriðjudag, i húsi Kjöts og Fisks, Seljahverfi. Frá bridgedeild Víkings Ákveðið hefur verið ,að að spila framvegis á mánudögum, i félagsheimilinu v/Hæðargarð, og hefst spilamennska stundvis- lega ki. 19.30. Féiagar eru hvattir til að vera með frá byrj- un. Frá bridgefélagi Kópavogs Eftir fyrstu umferð i 3 kvölda tvimenningskeppni félágsins er staða efstu para þessi: 1. Birgir ísleifsson—Guðmund- ur Pálsson 142 stig 2. Guðmundur Arnars- son—Sverrir Ármannsson 138 stig 3. Guðmundur Gunnlaugs- son—óli Andreasson 126 stig 4. Guðjón Sigurðsson—Jón Steiriar Gunnlaugsson 124 stig.. Meðaiskor er 108 stig. Þátt- taka alls 20 pör. Félagið spilar reglulega á fimmtudögum, I Þinghól. Af starfsemi bridgefélags Hafnarfjarðar Nýkjörin stjórn félagsins er þannig skipuð: Halldór Einars- son form., Sævar Magnússon, Friðþjófur Einarsson, Hörður Þórarinsson, Guðni Þorsteins- son og Ólafur Gislason. Það kom fram á fundinum, að húsnæðisleysi háir félaginu, en liklegt má telja, að spilað veröi i Sjálfstæðishúsinu v/Strandgötu, en ekki er fullfrágengið i þvi enn sem komið er. öll keppnisgjöld hjá félaginu eru i lágmarki, veittur er bæði nema og hjónar afsláttur, sem gerir byrjendum vel kleift að vera með. Stjórnin hvetur alla félaga nýja sem eldri, til að vera með frá upphafi, og eru reyndari spilarar fúsir til að leiðbeina þeim sem þess óska. Spilað er á mánudögum. Að lokum eru hér úrslit i eins- kvöldstvimenning þ. 3/10: 1. Bjarnar—Þórarinn 184 stig 2. Björn—Magnús 183 stig 3. Arni —Sævar 180 stig 4. Dröfn—Einar 169 stig Meðalskor 156 stig NK. mánudag verður byrjað á aðaltvimenningskeppni félags- ins, sem stendur yfir 4 kvöld. Keppnisstjóri er hinn kunni stjórnandi Guðmundur Kr. Sig- urðsson. Og skorað er á menn til að mæta, konur sem karla. S.l. mánudag hófst hjá félag- inu 5 kvölda tvimenningur, með þátttöku alls 16para, sem spila i einum riðli. Spilastaður er Domus Medica, og hefst keppni stundvislega 7.45 Staða efstu para að lokinni fyrstu umferð er þessi: 1. Eggert—Reynir 247 stig 2. Haukur—Viðar 242 stig 3. Haukur—Þórður 240 stig 4. Finnbogi—Þórarinn 229 stig 5. Hermann—Sigurður 223 stig 6. Birgir—Viðar 216 stig 7. Einar—Kristin 216 stig 8. Benedikt—Guðmundur 213 stig Frá BR S.l. miðvikudag hófst hjá fé- laginu geysi-fjölmennur tvi- menningur með „Butl- er”—sniði, og sú nýjung var tekin upp hjá félaginu, aö spilað er i riðlum, 3x16, og eru 8 spil á milli para. Siðan komast 2 efstu pör úr hverjum riðli i úrslit. Eftir fyrsta kvöldið, alls 4 um- ferðir, er staða efstu para þessi: A-riðill: 1. Gunngeir Péturs- son—Þorfinnur Karlsson 73 stig. 2. Bragi Erlendsson—Rikharður Steinbergsson 70 stig. 3. Guð- mundur Sv. Hermanns- son—Sævar Þorbjörnsson 68 stig. 4. Ragnar Halldórs- son—Þráinn Finnbogason 67 stig B-riðill: 1. Jóhann Jóns- son—Stefán Guðjohnsen 78 stig. 2. Guðmundur Páll Arnars- son—örn Guðmundsson 73 stig. 3. Hörður Arnþórsson—Þórar- inn Sigþórsson 71 stig. 4. Jón As- björngsson—Simon Simonarson 71 stig. C-riðill: 1. Bjarni Sveins- son—Jón G. Pálsson 84 stig 2. Helgi Jónsson — Helgi Sigurös- son 80 stig. 3. Jakob Armanns- son—Páll Bergsson 77 stig. 4. Sigfús Þórðarson—Vilhjálmur Pálsson 60 stig. Athygli er vakin á þvi, að næst verður spilað á þriðjudaginn kemur, og hefst keppni kl. 20.00. Frá bridgefélagi Selfoss Nýkjörin stjórn félagsins er þannig skipuð: Jónas Magnús- son form., Halldór Magnússon og Þorvarður Hjaltason. Á fimmtudaginn kemur hefst sveitakeppni félagsins, sem tek- ur yfir 5—6 kvöld. Spilað er á fimmtudögum, og hefst spila- mennska kl. 19.30. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Einnig eru konur beðnar að athuga, að félagið er einnig fyr- ir þær. i Um bikarkeppnina Fyrirhuguð er frestun á úr- slitaleik mótsins, á leiknum milli Armanns J. Lárussonar og Jóhannesar Sigurðssonar, vegna ýmissra örðugleika hjá sveit þess siðarnefnda. Er ekki nema rétt og sjálfsagt, að taka tillit til þeirra örðugleika, sem alltaf geta skotið upp kollinum. En vonandi getur leikurinn farið fram innan skamms tima, þvi of langur frestur á þeirri fram- kvæmd, skapar slæmt fordæmi. Leiðrétting: Þátturinn fjallaði nýlega um fyrirhugað Olympiu- mót, sem haldið verður i USA næsta ár, og þá var fullyrt, að borgin New Orleans væri i Tex- as, en hið rétta er, að sjálfsögðu, að enn tilheyrir hún Louisana, hvað sem siðar verður.... En allt um það, hvern langar til Louisana? r Ur spilasafni Þjóðviljans Franska parið Chemla og Stoppa, náðu forystunni i OL ’74 á Kanari i 2. umferð undanúr- slitanna. I 4. umferð mótsins, kom þetta spil fyrir. N—S eru engir aðrir en Lárus Karlsson Urnsjón: Baldur Kristjansson Oiafur Larusson og Þórir Leifsson, en A—V eru fyrrnefndu Chemla—Stoppa: ♦ 763 9 DG103 O D10753 *9 ÁK852 4 AG2 D432 4 AK9 K9864 G1075 DG109 87652 AK86 Sagnir gengu: S V N A 1H lsp 2hj D P 31 3hj D allir pass.. Fyrra dobl austurs var kerfis- bundið, beiðni um betri minor (láglit). En gegn 3 hj., lét Stoppa út lauf 2, sem Lárus i suðri tók með kóng, laufás og spaða hent niður, lauf i þriðja sinni og trompað. Siðan tigull, trompað heima og fjórða laufið trompað i blindum og enn tigull og trompað heima. Siðan spaða- drottning út, Stoppa tók á ás, og spilaði tigul ás, sem var siðasti slagur sagnhafa, sem fékk alls 7 slagi, tvo niður. Gaf þetta góða skor til a/v. Eftir spilið, var það haft eftir Lárusi, þeim aldna heiðurs- manni, að nú hefði Tóti getað meldað (á spil norðurs).... Dæmi 2 Snjallir varnarspilarar eru ekki á hverju strái. Sá sem sat i Austur i þessu spili kann þó greinilega eitthvað fyrir sér. 4 G85 <3? DG63 0 52 4 10632 \ 4K73 N 4 D1092 9 ÁK92 V 9 874 O Á73 A , OG6 *AK5 S 4DG97 4Á64 9105 OKD10984 484 Vestur opnaði á sterku laufi. Austur sagði einn tigul (sem Suður gat ekki dobblað, til að sýna tígul, þvi það hefði þýtt allt annað). Vestur sagði tvö grönd og Austur þrjú grönd. Norður spilaði út hjarta þristi, átta, tia og ás. Næst kom spaða þristur frá sagnhafa, drottning úr blindum, og suður gaf (án umhugsunar auðvitað). Nú kom spaða tia, litið frá suðri, og sagnhafi lét að sjálfsögðu litið, þar eð norður hlaut að eiga ás- inn. Þegar norður fékk slaginn á gosann, tók hann sér smá pásu. Honum var ljóst, að suður átti spaðaás og hlaut að hafa gefið drottninguna i ákveðnum til- gangi. Spil blinds bentu honum siðan á rétta litinn, og norður skipti i tigul fimm og spiliö var einn niður. Við sjáum að hefði suður drepið spaða drottning- una með ás, var alltaf hægt aö vinna spilið. Tilviljun Framhald af bls. 3. Þetta tók eðlilega langan tima, sagði Benedikt, en það er einmitt frásögn Guðjóns, sem ákærurnar eru byggðar á. Benedikt taldi útilokað að trúa frásögnum þeirra Sævars, Krist- jáns og Erlu, enda hefðu þau logið upp hverri sögunni á fætur annari, auk þess sem allur fram- burður þeirra hefði verið meira eða minna ruglingslegur og ósamhljóða og greinilegt væri að þau gerðu litinn greinarmun á imyndun og veruleika. Benedikt gagnrýndi harðlega þá aðferð sem notuð var við sak-. bendingu þegar Kristján Viðar var látinn kannast við Guöjón Skarphéðinsson, en þeir munu ekki hafa hist fyrr en i Dráttar- brautinni I Keflavik og Kristján þar undir áhrifum lyfja og þvi vart með sjálfum sér. Guðjón var i yfirheyrslu, einn með lögreglumikinum og þá var Kristján Viðar látinn lita á hann einan og sagðist þá kannast við hann af Vatnsstignum kvöldið 19. nóv. 1974 og úr Dráttarbrautinni i Keflavik. Benedikt benti á að þegar lögleg sakbending færi fram ætti viðkomandi að þekkja mann úr hópi manna en ekki að stilla honum upp fyrir framan - enn mann.einsog þarna var gert. Þá kom Benedikt einnig inná timasetningu og vegalengdir, sem prófaðar hefðu verið I málinu og sagði hann það alveg ijóst að útilokað væri að Kristján Viðar hefði getað hringt I Geirfinn Ein- arsson úr Hafnarbúðinni. Hann, eins og Jón Oddsson, benti þvi á að allar likur bentu til þess að ein- hver aðili, sem ekki hefur verið upplýst hver er, hafi hringt i Geirfinn og boðað hann á þetta örlagarika stefnumót. Báðir lög- mennimir færðu afar sterk rök fyrir þvi að útilokað væri að Kristján Viðar hefði getað hringt, á þeim tima sem það var gert, og bentu báðir á að þvf hlyti að vera um að ræða einhvern aðila, sem enn hefur ekki komið inni málið. Benedikt benti á I sambandi við prófun sem gerð var að ferðum þeirra fjögurra til Keflavikur og og fyrst akstur innanbæjar i Reykjavik, að prófun lögregl- unnar hefði verið gerð i nýlegum Volvobil með tveimur mönnum i, enferðþeirra fjögurra hefði verið farin i gömlum og slitnum bila- leigubil af VW gerð með fjórum mönnum í. Það er útilokað að hægthafiverið að aka VW bilnum á þeim hraða sem Vovo bfllinn þurfti að aka á svo tlmasetning lögreglunnar stæðist, sagði Bene- dikt. Þá benti hann á að við svið- setningu atburðanna I Dráttar- brautinni i Keflavik hefði Erlu, Sævari, Kristjáni og Guðjóni borið saman um hvar sendiferða- billinn var, en ökumaður hans, sem aðeins heyrði en sá ekki at- burðinn i dráttarbrautinni hefði borið að bi'llinn hefði verið á allt öðrum stað. Hinsvegar bar engu þeirra saman um hvar VW bif- reiðin stóð. Þannig að heldur litið mark er takandi á framburði, sem er svona ósamhljóða, og hann er það raunar i mjög mörgum veigamiklum atriðum, sagði Benedikt. Loks benti Benedikt á að atburðarrásin i Dráttarbrautinni i Keflavik hefði aldrei fullkom- lega rif jast upp fyrir Guðjóni, en Guðjón hefði talið sig bera siðferðislega ábyrgð i þessu máli, þar sem hann var viðstaddur atburðinn, þótt hann hafi ekki tekið þátt i óhæfuverkinu. Loks benti Benedikt á að dóm- arar I málinu væru undir miklum þrýstingi almenningsálitsins þar sem mikið væri skrifað um málið og þau réttarhöld sem nú fara fram. Hann hvatti dómara til að láta þennan þrýsting ekki hafa áhrif á sig og taka sjálfstæða ákvörðun 1 málinu. Að svo mæltu lagði hann málið I dóm með venjulegum fyrirvara, eftir að hafa Itrekað kröfu sina um sýknu til handa skjólstæðingi sinum. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.