Þjóðviljinn - 08.10.1977, Page 16
DJOÐVIUINN
Laugardagur 8. október 1977
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
L 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I sima-
skrá.
Kolmunna-
veiðar
ganga vel
Togarinn Runólfur
hættir en Guð-
mundur Jónsson
tekur við
1 nótt kom togarinn Runólfur úr
sinni siðustu veiðiferð að sinni á
kolmunnaveiðum en sjávarút-
vegsráðuneytið leigði hann til
eins mánaðar. í staðinn hefur
ráðuneytið tekið Guðmund Jóns-
son frá Sandgerði á leigu til þess-
ara veiða. Að sögn Trausta Ei-
rikssonar hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins sem hefur umsjón
með kolmunnavinnslu i Gerðum
hentar Guðmundur Jónsson mun
betur til þessara veiða en Runólf-
ur. Sá siðarnefndi er minni og
getur ekki tekið nema kassafisk
en Guðmundur getur tekið 600
tonn laus i lest sem færi i bræðslu
og tekið afganginn i kassa. Veið-
arnar hafa gengið vel og fást 40-50
tonn i hali en notað er flotroll. 1
þessari siðustu veiðiferð kom
Runólfur með 75 tonn isuð i kassa
og um 15 tonn i viðbót. Vinnslan
gengur sæmilega i Garðinum.
Búið er að þurrka um 25 tonn,
frysta 10 tonn en einnig hefur kol-
munni farið i gúanó og frystingu
viðar um Suðurnesin. Runólfur
landar i Njarövikum i dag.
— GFr
Loðnuvelði
glæðist
að nýju
—150,000 lestir
komnar á land
Loðnuveiði glæddist skyndilega
á nýjan leik i fyrrinótt, eftir nær
þriggja vikna gæftaleysi.
Þá bárust rúmlega 5 þúsund
lestir á land, og er heildaraflinn á
sumarvertiðinni þvi orðinn 150
þúsund lestir.
1 gærkvöldi hafði loðnunefnd
ekki verið tilkynnt um frekari
afla, enda veiðist loðnan aðallega
um nætur.
Veiðisvæðið hefur nú færst mun
austar frá þvi sem var og er nú á
svokölluðu Kolbeinseyjasvæði.
Um 30 skip eru i loðnuflotanum
og vonast menn til þess að hrotan
haldist enn um sinn. — AI
KJÖR-
NEFND
KOSIN
vegna borgar-
st j órnarkosninga
Fulltrúaráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik var
haldinn að Hótel Esju á fimmtu-
dagskvöldið. A fundinum var
fjallað um störf og stefnu Alþýðu-
bandalagsins á kosningaári.
Málshef jendur um þetta efni voru
þau Svava Jakobsdóttir, alþingis-
maður, og Svanur Kristjánsson,
lektor. Fundurinn var fjölsóttur.
A fundinum var kjörin, i sam-
ræmi við tillögur félagsstjórnar,
kjörnefnd vegna borgarstjórnar-
kosningar. Kjörnefndina skipa:
Freyr Þórarinsson, Grétar Þor-
steinsson, Guðmundur Agústs-
son, Guðmundur Hilmarsson,Ing-
ólfur Ingólfsson, Páll Bergþórs-
son og Þórunn Klemensdóttir.
— ekh.
Rækjuveiði hefst í dag í Arnarfirði
— of mikið um seiði annars staðar
Rækjuveiðar hefjast í
dag f Arnarfirði/ eins og
ákveðið hafði verið. Þar
má veiða 600 lestir af
rækju en f fyrra veiddust
þar 550 lestir. 8 bátar
munu stunda veiðarnar
og er það tveimur færra
en í fyrra.
Jón B. Jónsson i Sjávarút-
vegsráðuneytinu sagði i samtali
við Þjóðviljann i gær, að rækju-
veiðum i Isafjarðardjúpi hefði
verið frestað fram til 20. októ-
ber. óljóst er, hvenær veiðarnar
i Húnaflóa og Axarfirði hefjast
þar sem siöustu kannanir Haf-
rannsóknar benda til þess að of
mikið sé um seiði á rækjuslóð-
um þar.
Hafrannsóknaskipið Dröfn
mun kanna þessi svæði nánar
innan skamms, og einnig Djúpið
fyrir 20. október.
1 Isafjarðardjúpi má nú veiða
2.300 lestir en þar veiddust 2.500
lestir i fyrra. 41 bgtur mun
stunda veiðarnar og er það svip-
aður fjöldi og i fyrra.
A Húnaflóa má veiða 2000
lestir eða 300 lestum minna en á
siðustu vertið. 26 bátar hafa
fengið leyfi til veiðanna.
1 Axarfirði má veiða 650 lestir
en þar veiddust riflega 950 lestir
i fyrra. Nokkur fækkun hefur
orðið á bátum sem leyfi hafa
fengið, enda var siðasta vertið
stopul vegna sifelldra lokana
veiðisvæðisins.
Bátum frá Kópaskeri hefur þó
fjölgað nokkuð en bátum frá
Húsavik fækkað.
Jón B. Jónasson sagði að lok-
um, að alltaf mætti búast við þvi
að hámarksafla yrði breytt eftir
þvi sem liði á vertiðina og sagði
hann það venjulega leiða til
hækkunar hans. — AI.
%*ir»u cortlrol clir«-cf dri%o/oulo tliul off
MARANTZ FYRIR
AT VIIMNUTÓNLISTARMENN -
OG LÍKA OKKUR HIN
Luiðunili lynil.uki ggBSfl
á sviói sjónvarps
útvarps og hljómtækja úesco
VER2LUN OG SKRIFSTO