Þjóðviljinn - 04.04.1978, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 04.04.1978, Qupperneq 1
Þriöjudagur 4. april 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 ÍÞRÓTTIR Ióhann varð þre- faldur meistari Hann sigraði i einliðaleik tvUiðaleik og tvenndar- keppni . Kristin vann kvennakeppnina Islandsmótið i Badminton var háð um helgina. Það var einkum tvennt sem athygli vakti á mót- inu. Annars vegar þrefaldur sigur Jóhanns Kjartanssonar úr TBR og hins vegar léleg frammistaða íslandsmeistarans Sigurðar Haraldssonar. Hann tapaði strax i fyrsta leik mótsins fyrir Víði Bragasyni frá Akranesi, 1:15, 15:10 og 12:15. Úrslit á mótinu i úrslitaleikjum þess urðu annars þessi: Jóhann Kjartansson sigraði Sigfús Ægi Árnason i úrslitum einliðaleiksins 15:11 og 15:3 og þurfti Jóhann ekki að hafa mikið fyrir þeim sigri. 1 einliðaleik kvenna sigraði hin unga og efnilega Kristin Magnús- dóttir, Lovisu Sigurðardóttur i úr- slitum, 12:14, 11:8 og 11:2. ,,Ég vil meina að aðalástæðan fyrir tapi minu að þessu sinni hafi verið að ég varð fyrir þvi óhappi að skemma spaðann minn oe varð þvi að skipta um spaða og leika með spaða sem ég er ekki vön að nota. Slikt er mjög óþægi- legt i leik sem þessum” sagði L.ovisa eftir leikinn. Það hlýtur að vera badminton mönnum mikil ráðgáta hversu lé- legir tviliðaleiksmenn okkar eru. Þeir Steinar Petersen og Harald- ur Korneliusson sem ekki hafa æft badminton i 2 ár komust i úr- slit gegn þeim Jóhanni Kjartans- syni og Sigurði Haraldssyni og stóðu vel I þeim. Leika þurfti oddalotu til að fá fram úrslit og lauk leiknum með sigri þeirra siðarnefndu 15:8, 10:15 og 15:10. 1 tviðliðaleik kvenna mættust tvær kynslóðir i úrslitum (skrýtin kvennanöfn það). Lovisa Sigurð- ardóttir og Hanna Lára sem báð- ar eru komnar nokkuð til ára sinna á badmintonmælikvarða léku til úrslita gegn þeim ungu stúlkum Kristinu Magnúsdóttur og Kristinu B. Kristjánsdóttur oe Islandsmótið 1978: Kristln Magnúsdóttir. Hún er nú að taka viö veldi Lovlsu Siguröardótt- ur sem veriö hefur ósigrandi árum saman. „Ég átti alveg von á þessu” „Ég átti jafnvel von á þessum sigri mínum í einliöa leiknum", sagði hin unga og efnilega badmintonkona Kristin Magnúsdóttir úr TBR eft- ir að henni hafði tekist að krækja sér í islands- meistaratitilinn i einliða- leik kvenna. „Þessi leikur gegn Lovisu (úrslitaleikurinn) var langerf- iöasti leikurinn i mótinu. En ég get ekki sagt annað en að ég sé ánægð með sigurinn og hann var svo sannariega sætur, ekki sist eftir sigurinn i Reykjavikur- mótinu á dögunum”, sagði þessi glaðværa badmintonstúlka eftir sigurinn. ' SK sigruðu þær „gömlu” 15:11, 4:15 og 15:17. 1 tvenndarleik sigruðu þau Jó- hann Kjartansson og Kristin B. Kristjánsdóttur þau Sigurð Har- aldsson og Hönnu Láru Pálsdótt- ur i úrslitum 10:15, 15:2 og 15:12. 1 A-flokki uröu úrslit þessi: Einliðaleikur kvenna: Ragnheið- ur Jónsdóttir sigraði Asu Gunnarsdóttur Val i úrslitum 11:6 og 11:1. Jóhann Kjartansson hinn nýbak- aði tslandsmeistari i bamdinton. Hann sigraöi i þremur greinum og i fyrsta sinn i einliöaleiknum. Einliðaleikur karla: Þar sigr- aði Aðalsteinn Huldarson 1A Gunnar Jónatansson Val 15:10 og 15:8. Keppt var einnig i flokki sem nefndur er öðlingaflokkur og þar urðu helstu úrslit þessi: Einliöaleikur karla : Þar sigraði gamla kempan Jón Arnason Garðar Alfonsson i úrslitum 15:7 og 15:1. SK „Það hlaut að koma að þessu” „Það hlaut að koma að þess- um sigri minum og yfir honum er ég að sjálfsögðu mjög ánægð- ur”, sagði hinn ungi badminton- snillingur Jóhann Kjartansson eftir að hafa lagt Sigfús Ægi Árnason af velli i úrslitaleik Is- landsmótsins i badminton sem háð var um helgina. „Þetta er i fyrsta skipti sem ég sigra i einliðaleiknum en i fyrra tapaði ég i úrslitum fyrir Sigurði Haraldssyni. Ég lenti i kröppum dansi gegn Sigurði Kolbeinssyni i gær. Sá leikur var sá allra erfiðasti i mótinu. Ég er ekki aðeins ánægður með titlana mina þrjá. Mér finnst það einnig ákaflega á- nægjulegt hvað við ungu menn- irnir erum að sækja á. Þar má t.d. nefna nöfn eins og Sigurð Kolbeinsson og Brodda Kristj- ánsson”. Er við spurðum Jóhann hverju hann vildi þakka þennan góða árangur sem hann hefði náð á mótinu sagði hann. „Það er fyrst og fremst aöstöðumun aö þakka. Einnig hef ég haft mjög góðan þjálfara þar sem Garðar Alfonsson er”, sagði þessi frábæri badmintonmaður að lokum. SK

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.