Þjóðviljinn - 27.05.1978, Síða 19
Laugardagur 27. mal 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 1»
Forustumenn Alþýöusambands islands
og sérsambanda innan þess i fundarsal
ASÍ I gær. Frá vinstri: Guömundur I>.
Jónsson formaður Landssambands iðn-
verkafólks, Karl St. Guðnason varafor-
maður Verkamannasambands lslands,
Guðmundur J. Guðmundsson formaður
Verkamannasambandsins, Snorri Jóns-
son varaforseti Alþýðusambandsins, As-
mundur Stefánsson hagfræðingur Alþýðu-
sambandsins, Einar ögmundsson for-
maöur Landssambands vörubifreiðar-
stjóra, Guðjón Jónsson formaður Málm-
og skipasmiðasambands islands, Þórir
Danielsson framkvæmdastjóri Verka-
mannasambandsins, Magnús Geirsson
formaður Rafiðnaðarsambands islands,
Benedikt Daviðsson formaður Sambandt
byggingamanna, óskar Vigfússon for-
maður Sjómannasambands tslands.
Frá fréttamannafundi um ólög rikisstjórnarinnar
Lög á lög ofan
valda óréttlæti
og skapa vanda
Eftirvinnuálag fiskvinnslufólks
samn
Skv: LÖ6UtA
Næturvinnuálag fiskvinnslufólks
Mo
ffl.
Sí%
Si%
SKV.
5AMN-
ÍN&UM '—“
Vq 'Jll
S“KV. LO&UÍA
Svona rýrna yfirvinnutaxtar láglaunafóiksins við bráðabirgðaiögin.
Álagsprósenturnar ganga jafnt og þétt niður á við með hverju nýju
visitölutimabili.
Alþýðusamband Is-
lands hefir gefið út
bæklinginn ,/Lög á lög
ofan" þar sem lýst er
viðhorfi verkalýðssam-
takanna til kjara-
skerðingarlaga ríkis-
stjórnarinnar/ bæði frá
þvi í vetur og nýsettra
bráðabirgða laga. I
bæklingnum kemur fram
að eftir 6 mánaða gildis-
tíma bráðabirgðalaganna
verður eftir vinnuálag
f iskvinnslufólks orðið
17% en næturvinnuálagið
51%, en þessar hlutfalls-
tölur hafa lengi verið
samningsbundnar í 40%
og 80%.
Forusta Alþýðusambandsins
boðaði fréttamenn á sinn fund I
gær og afhenti bæklinginn þar
sem heildarafstaða verkalýðs-
samtakanna til bráðabirgöa-
laganna kemur fram á skýran
og glöggan hátt. I fyrirsvari af
hálfu verkalýðssamtakanna á
fundinum voru, auk Snorra
Jónssonar varaforseta Alþýðu-
sambandsins, formenn
Verkamannasambandsins,
Málm- og skipasmiða-
sambands, Byggingamanna-
sambands, Sjómannasam-
bands, Rafiðnaðarsambands,
Vörubilstjórasambands og
sambands iðnverkafólks,
ennfremur varaformaður
Verkamannasambandsins, hag-
fræðingur Alþýðusambandsins
og framkvæmdastjóri
Verkamannasambandsins.
Undanha Id
Sú hækkun sem bráðabirgða-
lögin veita á dagvinnulaun lægst
launaða fólksins er undanhald
fyrir aðgerðum verkalýössam-
takanna: útflutningsbanni
Verkamannasambandsins,
dagsverkföllum Iðju og yfir-
vofandi allsherjarverkfalli á
Suðurnesjum og á Vestfjörðum.
Það sem veldur úrslitum um að
rikisstjórnin ákveður að láta
undan siga um sinn er óttinn við
að óánægja launafólks komi
fram i kosningunum.
Hér er ávinningurinn
Samkvæmt bráðabirgðalög-
unum skal frá 1. júni greiða
fullar verðbætur á dagvinnulaun
sem voru 115.000 kr. 1. des. sl.
Þau laun eru frá 1. mars kr.
127.395 skv. samningum, en kr
121.269 skv. kaupgjaldsskrám
vinnuveitenda. Greiða skal
sömu krónutölu i verðbætur á
dagvinnu á hærri laun og verð-
bæturnar fara þannig hlutfalls-
lega lækkandi og við laun sem
voru 226 þús. kr. l. des. sl. eru
verðbæturnar hálfar.
Þau laun sem voru 1. desem-
ber 115 þúsund krónur i dag-
vinnu á mánuöi verða 1. júni
ekki fjarri þvi að vera 145
þúsund krónur, en ofan á það
kemur samningsbundin 5
þúsund króna hækkun i grunn.
óljóst er enn, hvort lögbundinn
verðbótaviöauki á dagvinnu
verður tekinn inn i skráða
kauptaxta 1. júni.
Hér er óréttlætið
Hækkunin kemur ekkiá neina
yfirvinnu eða vaktaálög en eins
og kunnugt er, hafa verkamenn
og iðnaðarmenn um þriðjung
tekna sinna af yfirvinnu. Með
lögunum eru yfirvinnuálög lág-
launafólks skert þannig að 1.
júni verður t.d. næturvinnuáiag
fiskvinnslufólks skv. lögunum
61.6% í stað 80% og eftirvinnu-
álag 25.7% i stað 40%. 1. des.
yrði næturvinnuálagið um 50%
og eftirvinnuálagið tæplega
20%. Yfirvinnuálög hátekju-
fólks haldast óbreytt hlutfalls-
lega. Bráðabirgðalögin leiða
þannig til þeirrar furðulegu
niðurstöðu að yfirvinnuálög
hátekjufólks verða hærri en
álög lágtekjufólks.
Þegar verðlag hefur hækkað
um 134% fram yfir það sem var
i febrúar sl. — en við svipaða
verðbólgu og nú verður það
siðari hluta árs 1980—' yrði eftir-
vinnutaxtinn orðinn sá sami og
dagvinnutaxtinn, að lögunum
óbreyttum. Siðan færi eftirvinn-
an niður fyrir dagvinnuna.
Skerðing á
álögum og bónus
Aldurshækkanir, starfsþjálf-
unarhækkanir og önnur sérálög
skerðast skv. lögunum ef dag-
vinnulaunin voru yfir 115.000 1.
des. sl.
Kaupauka vegna bónus skal
skv. lögunum reikna út frá
skertum taxta. Sú hækkun sem
bráðabirgöalögin gera ráð fyrir
gagnast ekki við útreikning
bónusgreiðsina. Enn frekari
skerðing kemur fram á tekjum
þeirra sem vinna viö ákvæðis-
vinnu, sem ekki er timamæld.
Hvað rekst á
annars horn
Sú reglugerð sem nú er sett
um framkvæmd bráðabirgða-
laganna virðist ætlast til þess að
fastir starfsmenn fái skert orlof
nú i sumar, og einnig séu
greiðslur i lífeyrissjóð skertar.
Þórir Danieisson framkvæmda-
stjóri Verkamannasambands-
íns vakti athygli á þvi á blaða-
mannafundinum, að þessi
ákvæði reglugerðarinnar, i 5.
gr. hennar, sýndust vera mark-
leysa. A orlof eða lifeyris-
greiðslur er nefnilega ekki
minnst i lögunum, en löglæröir
menn telja að ekki sé hægt að
setja ákvæði i reglugerð sem
ekki styöjist við viökomandi lög.
Sýndarmennska
og svívirða '
Akvæði febrúarlaganna um
verðbótaviðauka voru ill-
framkvæmanieg og reynslan
afhjúpaði sýndarmennskuna
Þetta kom berlega i ljós t.d. hjá
Eimskipafélagi Islands sem fór
að lögum og greiddi 12—14 þús
kr. i varðbótaviðauka á viku af
18—20 m. kr. launum. Verðbóta-
viðaukinn reyndist þannig 0,7
þúsundustu (0,8 prómill) af
launagreiðslum fyrirtækisins.
Fyrri ákvæði um verðbóta-
viðauka verkuðu þannig, að
Framhald á bls. 22
í sjónvarpi
í
dag
Hringborðsumræður
l dag klukkan 16.30 verður
sjónvarpað hringborðsum-
ræðum efstu manna á
framboðslistum til borgar-
stjórnarkosninga í Reykja-
vík. Umræðurnar fóru
f ram í gær og var þá þessi
mynd tekin. F.v. Birgir
ísleifur Gunnarsson af
D— lista, Björgvin Guð-
mundsson af A—lista,
Gunnar Schram stjórn-
andi, Kristján Benedikts-
son af B Iista og Sigurjón
Pétursson af G—lista
(Ljósm.: eik)