Þjóðviljinn - 10.06.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 10.06.1979, Blaðsíða 5
Sunnudagur 10. júni 1979 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5 Afleiðingar kjarnorku- sprenginga í Nevada koma í Ijós: Ibúarnir tilraunadýr Það var eins og ailt ijós heimsins leiftraði eina sekúndu... við sem horfð- um á vörpuðum löngum svörtum skuggum.... drun- ur í f jarska... uns jörðin öll lék á reiðiskjálfi. Þannig farast Joe Fallini, bónda á Twin Springs i Nevada- fyiki, orö um kjarnorkuspreng- ingar sem hann varö vitni aö sem ungur strákur. A árunum 1951-1962 sprengdi her Bandarikjastjórnar 100 kjarnorkusprengjur i Nevada- eyöimörkinni. Pentagon og Kjarnorkunefnd Bandarikjanna (EAC) fullyrtu aö þær tilraunir vapru hættulausar vegna þess aö ,,þaö væru svo fáir fbúar í grenndinni”. 1 raun bjuggu nokkur hundruö mianna i örfárra kflómetra fjar- lægö frá æfingasvæöinu. Og geislavirkur úrgangur barst viöa til þorpa meö þúsundum ibúa i Suöur-Utah fylki og Vestur-Ari- zóna-fylki. Æ fleiri ibúar þessa svæöis deyja nú úr krabbameini — af- leiöingar kjarnorkusprenging- anna foröum. Sú staöreynd er aö gera þetta mál seint og um siöir aö einhverju illræmdasta máli bandariskrar kjarnorkusögu aö sprengingunum i Japan frátöld- um. Þaö er ekki fyrr en nú sem þetta er fariö aö vekja verulega athygli. Aldrei varaðir við Bændur á Nevada-hásléttunni eins og Joe Fallini fengu aldrei aö vita fyrirfram um kjarnorku- sprengingarnar. Þess var ein- staka sinnum getiö i blööum, en ekki nærri alltaf. Þeir voru aldrei hvattir til aö yfirgefa svæöiö eöa koma sér I skjól. Enginn hugsaöi heldur um þaö. Þetta var á þeim árum sem sem nu deyja úr krabba- meini kalda striöiö var i hámarki og stjórnvöld ráku takmarkalausan áróöur fyrir kjarnorkuvigbúnaöi. Nevada var og er ihaldssamt fylki og ráöamenn og „sérfræö- ingar” þeirra létu einsog þessar tilraunir væru hættulausar meö öllu. Kjarnorkunefndarmenn full- vissuöu til dæmis Fallini fjöl- skylduna um aö geislunin væri al- gerlega hættulaus. Þegar Fallini fékk sér engu aö siður Geiger- teljara á heimilið kom hann aö litlum notum: „Einu sinni gátum viö ekki lesið á mælinn i tvær vik- ur samfleytt”, segir Joe. „Visir tækisins komst ekki lengra”. Nágranni þeirra Martha Laird vildi ekki sætta sig viö þetta. Hún safnaöi undirskriftum nær allra Ibúa svæöisins undir skjal þar sem þess var krafist aö tilraunun- um yröi hætt. Þetta bænaskjal sendi hún til Hvita hússins, til Dwights D. Eisenhowers. 1 svarinu sem henni barst var talað um aö „hræösluáróöur” hennar væri „undir áhrifum kommúnista” og málinu aö ööru leyti ekki sinnt. í október 1956 dó 7 ára gamall sonur hennar úr lungnabólgu eftir hálfs árs legu. Sem litill forvitinn snáöi tók Joe Fallini myndir af kjarnorkusveppnum. „Viö höföum ekki hugmynd um hvaö leyndist I þessu skrýtna reyk- skýi.” Kjarnorkutilraunirnar voru framkvæmdar I hjarta Nevada, I aöeins nokkurra milna fjariægö frá mannabyggöum. Frú Laird var ekki i neinum vafa um hvers vegna og flutti burt af svæöinu skömmu siðar. Æfleiri krefjast bóta Dauöi úr krabbameini og mein- semdir i lungum eru lika mjög al- geng i litlum bæ 30 milum vestar, St. George I Utah-fylki. Þar búa nú 11 þúsund manns og enginn staður i heimi, Japan meötaliö, hefur oröiö aö þola jafnmikla geislun aö meöaltali. t eitt skiptiö nam geislunin þar 6 þúsund milli- remum á einum degi. (Hin opin- beru hættumörk eru nú 500 milli- rem á ári og þykir sumum vis- indamönnum nóg um). Mikill biturleiki rikir meöal ibúa þessa svæöis aö sögn frétta- manns Dagens Nyheter. Þeir voru notaöir sem tilraunadýr i vigbúnaöarkapphlaupi kalda striösins og margir þeirra uröu fyrir varanlegu heilsutjóni þess vegna. Þab er ekki fyrr en nú sem ibú- arnir eru farnir aö leita eftir bót- um svo einhverju nemi. 600 manns hafa ákveðið aö stefna yfirvöldum vegna kjarnorku- sprenginganna i Nevada. Skaöa- bótakröfur þeirra nema frá einni og upp i þrjár miljónir dollara eftir þvi hvort þeir stefna fyrir sjálfa sig eöa vegna látinna ætt- ingja. Þessum kærum fjölgar stöbugt nú þegar loksins er aö veröa alkunna hvaö raunverulega gerðist á þessum tima. Þvi fer fjarri aö öll kurl séu komin til grafar i þessu máli. Mörg hundruö þúsund liermenn voru viðstaddir þessar sprengju- tilraunir. Þaö er ekki einu sinni til fullkomin skrá yfir þá sem voru neyddir til aö vera viö sprengingarnar. En margar sögur eru til um hermenn sem voru þarna og hafa látist af krabbameini siöan. Enn sem komið er hafa tilraunir þeirra sem urðu fyrir heilsutjóni vegna þessa lltinn árangur boriö. 231 fyrrverandi hermaöur hefur höföað mál af þessum sökum. Einungis 19 hafa fengið einhverj- ar skaðabætur. Æ fleiri eru nú aö veröa sér þess meövitaðir hvflikur glæpur til- raunasprengingarnar i Nevada voru. Æ fleiri munu freista þess að sækja rétt sinn hjá dómstólun- um. Og hver veit nema pólitiskt ástand i þessu Ihaldssama fylki breytist eftir þvi sem fleirum veröur ljóst eðli bandariska her- valdsins. (Heimild: Daeens Nyheter 26.5.’79) Vituncl&Veaileild Málgagn gegn vitundarþrengingu Sbni 71688. Húsnæði óskast Læknaritari óskar eftir að taka á leigu litla ibúð eða rúmgott herbergi með snyrti- og eldunaraðstöðu. Ekki verra ef staðsetning er nærri leið 4. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Vin- samlegast hringið i sima 4-26-82 eftir kl. 19.00.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.