Þjóðviljinn - 04.10.1979, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. október 1979
GERIÐ
GÓÐ KAUP
okkar leyft
verð verð
Appelsínur Outspan 1 kg........ 475,- 528.-
Rauðepli U.S.A. 1 kg............ 575.- 638.-
Bananarlkg...................... 505.- 560.-
Bakaðar baunir ORA 1/2 ds...... 495.- 522.-
Feskjurl/Ids................... 695.- 769.-
Melrose'stepokar 20 stk.......... 275.- 305.-
O&C franskar karftöflur
14 unsur.................. 1.985.5 2.205.-
Gróft salt Katla 1 kg............ 210.- 235.-
Slög 1 kg.............. 500.-
Nauta-hakk 1 kg .............. 2.110.-
Smjörið á gamla verðinu
Opið til kl. 20 föstud.og 9-12 laugardag
Vörumarkaðurinn hf
ÁRMÚLA 1A
NY VERSLUN
Opna í dag kl. 2
verslun og vinnustofu
i nýja Smjörhúsinu Lœkjartorgi
GARÐAR ÓLAFSSON
ÚRSMIÐUR — LÆKJARTORGl
Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Blaðberar
Rukkunarheftin eru tilbúin á afgreiðslu
blaðsins.
DJÚÐVIUINN
KJARNORKUHÆTTAN:
Geislavirkni og
vopnabrall
Red Wing, Minnesota (Reuter)
Geislavirk efni komust
út í andrúmsloftið/ þegar
leki kom að kælikerfi
kjarnorkuvers við
Mississippif Ijót. Kjarn-
orkuverið stendur um 10
kilómetra frá 10.000
manna bæ. Annar af tveim
kjarnaofnum var þegar
stöðvaður# en mælitæki
hafa ekki bent til að geisla-
virknin reyndist hættuleg.
Fólk hefur því ekki verið
flutt burt af svæðinu.
Búnaöur Red Wing-kjarnorku-
versins er sömu teguridar og þess
sem staðsett er nálægt Harris-
burg, en leki þar olli umfangs-
miklum neyðarráðstöfunum i
mars s.l.
Paris (Reuter).
Þrátt fyrir mótmæli verkalýðs-
félaga vegna hættu á leka i
kjarnorkuverum, sem eru i bygg-
ingu i Frakklandi, hafa raforku-
málayfirvöld i Frakklandi ákveð-
ið að tefja ekki gangsetningu
þeirra.
Fundist hafa nokkurra milli-
metra djúpar sprungur i kæli-
kerfum franskra kjarnorkuvera,
en þau eru bandarisk þrýstings-
kælikerfi eins og kælikerfin i Red
Wing og Harrisburg. Talsmenn
verkalýðsfélaga telja að þótt ekki
sé um bráða hættu að ræða, megi
búast við lekaslysum eftir að
kjarnorkuverin hafa verið gang-
sett.
Franska raforkumálastjórnin
hefur ákveðið að hefja gangsetn-
ingu kjarnakljúfanna i
Gravelines og Tricastin i dag,
fimmtudag.
Washington (Reuter)
Bandariska orkumálaráðu-
neytið hefur ákveðið að setja aft-
ur leyndarkvöð á 100 skýrslur um
kjarnorkuvopn.
Skýrslurnar höfðu óvart verið
opnaðar aimenningi uppúr 1970,
sagði Duane Sewell talsmaður
orkumálaráðuneytisins, fyrir
rannsóknarnefnd bandarisku
öldungadeildarinnar s.l. þriðju-
dag. Mistökin voru uppgötvuð i
Los Alamos, þar sem skýrsla um
„úrelt” kjarnorkuvopn fannst á
almenningsbókasafni.
Réttarhöld í Frakklandi
Manndráps-
talkúmið ,Bebe?
Framleiðsla og sala
barnatalkúms sem nefnd-
ist „Bebe", ollu dauða 36
ungbarna árið 1972.
Réttarhöld hófust s.l.
þriðjudag í Pontoise í
Frakklandi yfir sex mönn-
um sem sakaðir eru um
manndráp af völdum
þessa barnatalkúms.
Frönsk yfirvöld bönnuðu
framleiðslu á öllum lyfjum,
hreinlætisvörum og snyrtivörum,
sem innihéldu hexachlorophene,
þegar uppvist varð að áðurnefnt
barnatalkúm innihélt þetta efni i
hættulega rikum mæli. Notkun
efnisins er nú undir ströngu rikis-
eftirliti i Frakklandi.
Fyrirtækið Givaudan sem
framleiddi hexachlorophene, hef-
ur þegar greitt um 650 milljónir
króna i skaðabætur til fjölskyldna
204 barna sem veiktust af notkun
„Bebe”, auk þeirra sem misstu
börn sin.
Bretar banna
spærlingsveiði
Bann breta við
spærlingsveiðum á vetrar-
vertíð í Norðursjó tók gildi
1. október, og þrátt fyrir
tilraunir dönsku ríkis-
stjórnarinnar til að fá
banniö afnumið, mun það
virt af Efnahagsbanda-
lagsþjóðum.
Danska rikisstjórnin hafði leit-
að til stjórnarnefndar Efnahags-
bandalagsins um að reynt yrði að
fá bráðabirgðaúrskurð gegn
spærlingsveiðabanninu hjá
Evrópudómstólnum.
Spærlingur er meginuppistaða
fiskimjölsframleiðslu á Jótlandi.
Bretar telja að spærlingsveiðarn-
ar valdi tjóni á öðrum fiskstofn-
um, svo sem ýsu og lýsu, og lýstu
þvi einhliða yfir banni við þessum
veiðum. önnur riki Efnahags-
bandalagsins telja slika einhliða
ákvörðun óheimila rikjum innan
bandalagsins.
Páji til b/aðamanna:
Þjónið sannleikanum
Páll páfi brýndi fyrir
blaðamönnum að segja
sannleikann og starfa
staðfastlega, þrátt fyrir
andbyr, á blaðamanna-
fundi hjá Sameinuðu
þjóðunum á þriðjudag.
Páfinn, sem mælti á enska
tungu, sagði að „ef blaða-
mennska ykkar vekur ekki þá at-
hygli sem þiö væntið, og nær ekki
þeim árangri sem þið vonist eft-
ir, látið ekki hugfallast”. Hann
nefndi blaðamenn einnig þjóna
sannleikans og sagði þá efla ein-
ingu meðal þjóða heims, með þvi
að deila sannleikanum til mann-
kyns.
Geislavirk efni hafa oft sloppið út
i andrúmsloftiö úr kjarnorku-
verum
Mótmæli í
Red Wing
Kröfuganga til að mót-
mæla áframhaldandi rekstri
kjarnorkuversins i Red Wing
var farin i gær, og þess kraf-
ist aö reksturinn yröi ekki
hafinn aftur fyrr en öryggi er
tryggt.
Borgarstjórinn i Red Wing
viðurkenndi að yfirvöld
hefðu ekki farið að áætlunum
um almannavarnir á
svæðinu, og forsómað að að-
vara ibúana þegar lekinn
kom i ljós.
Fyrir nær tveim vikum var
haldinn stærsti mótmæla-
fundur gegn kjarnorkuver-
um i Bandarikjunum, en þá
komu 200.000 manns saman.
Liú Sjá-sjl
Líú Sjá-sjí
endur-
reistur?
Peking (Reuter
Sýning á sögu kinverska
kommúnistaflokksins var
opnuð i Peking s.l. mánudag,
og veldur hún vestrænum
diplómötum miklum heila-
brotum.
Liú Sjá-sji, sem var for-
maður Alþýðulýðveldins frá
1959 til 1968, var sviptur öll-
um völdum og titlum i
menningarbyltingunni og
sakaöur um að vera „endur-
skoðunarsinni”.
Vestrænum diplómötum
þykir merkilegt, að á sýning-
unni sem nær til 1. október
1949, sést Liú Sjá-sji á mörg-
um myndum. Hann er
„sýndur eins og ekkert hafi i
skorist”, sagði heimildar-
maður Reuter.
Telja vestrænir diplómat-
ar að hugsanlega sé verið að
undirbúa endurreisn Liu,
enda hafi ekkja hans Vang
Gúangmei tekið við embætti
hjá Félagsvisindastofnun-
inni i Peking á þessu ári.