Þjóðviljinn - 04.10.1979, Qupperneq 7
Fimmtudagur 4. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Eins og fljúgi flugvél yfir
fjallatind með drunum þungum,
þannig veit ég, þjóð min, lifir
þrieinn guð i hjörtum ungum.
É g held að þessi hemámsguð
með drunum þungum hafi þvi
miður tekið sér bústaö i svo
mörgum hjörtum, gömlum og
ungum, að öllum sé full þörf á að
rannsaka þann falsguð og upp-
ræta hjá sjálfum sér og öörum.
Að nota timann
Þrieinn hernámsguð
Stundum minnir hernám
hugarfarsins á guðsótta, sem
hefur með ósjálfráðum hætti á-
hrif á allar geröir manna. Rit-
stjóri Morgunblaðsins hefur œ-t
sálm, sem mér finnst eiga undar-
lega vel viö þennan þrieina her-
námsguð I hjartanu. Þar i er
þetta vers:
-á'
Úr göngunni. (Ljósm. eik.)
Páll Bergþórsson flytur ávarp
sitt.
Þessa siðustu daga hefur mér
orðið tiðhugsað um það sem
stundum er kallað hernám hugar-
farsins, þau ósýnilegu tök, sem
hernámsliðið og fylgifiskar þess
hafa reynt að ná á fólkinu i
landinu og tekist það að nokkru
leyti.Égskalnefna nokkur dæmi.
Hneykslaður hestaslátr-
ari
Það er sagt að hestamennska sé
heilsusamlegt sport fyrir sál og
likama. Fyrir stuttu gerðist það
að einn af talsmönnum hesta-
manna hneykslaðist mjög i blöð-
um á þvi framferði að setja
hrosshaus á niðstöng til höfuðs
NATO-flota sem var hér i heim-
sókn. Með þessu taldi hann þarf-
asta þjóninum sýnda mikla svi-
viröu. En hvað er þetta móti
þeirri kveðju, sem hestamenn
sjálfir senda þessum þarfasta
þjóni að siðustu, þegar þeir
senda haglasúpu inn i enni
hans, skera að höfuðið og
leggja sér svo skrokkin til
munns eða bjóða hann sam-
borgurum sinum til kaups á sann-
Hernámsguð með
drunum þungum
Ávarp Páls Bergþórssonar viö lok
Hvaleyrargöngu s.L laugardag
gjörnu verði sexmannanefndar?
Ég skal viðurkenna að búfjár-
haldi fylgja leiðinlegar hliðar
slátrunarinnar, hvort sem bónd-
inn eða hestamaðurinn er með
eða móti hernum og þaö sama
gildir um okkur kjötætur. En
kemur það nú ekki úr hörðustu
átt, þegar einn af þessum hesta-
slátrurum gerist svona blindur á
eigin gerðir,af þviaö hann langar
til að koma höggi á hemámsand-
stæðinga? Er þetta ekki vottur
um þá stiflun sanngirninnar og
skynseminnar sem af hernámi
hugarfarsins leiðir?
Hrjáðar höfuðstöðvar
Annað dæmi nýlegt má nefna
um það hvernig menn breyta af-
stöðu til atburða, sem eru i sjálfu
sér mjög áþekkir, eftir þvi hvort
hernám hugans ræður ferðinni
eða ekki. Hér er það lögreglan
Brunahanar
Vatnsveita Reykjavikur vill, að gefnu til-
efni benda á að öllum öðrum en Slökkviliði
Reykjavikur við skyldustörf og starfs-
mönnum vatnsveitunnar er stranglega
bannað að taka vatn úr brunahönum.
Vegna frosthættu hafa brunahanar verið
vatnstæmdir fyrir veturinn. Vatnsveitan
vill benda á, að hver sá sem notar bruna-
hana án leyfis getur orðið valdur að eigna-
tjóni og skapað margvislegar hættur.
Vatnsveita Reykjavikur.
eða öllu heldur yfirstjórn hennar,
sem verður uppvis að þvi að mis-
muna borgurum, þó að hún eigi
einmitt að gæta réttarins. I land-
helgisstriðinu var svo komið, að
ráðsettum útgerðarmönnum á
Suðurnesjum ofbuðu árásir
Nato-skipa á varðskipokkar. Þeir
gerðu sér litið fyrir og dembdu
stórgrýti á aðdráttaleiðir Kan-
anna við Grindavik. Ekki var
þetta alveg saklaust og gat jafn-
gilt hótun um aösvelta mennina i
hel. En hvað gerði lögreglan?
Hún hreyföi hvorki legg né lið, og
ekki skal ég andmæla þvi um-
burðarlyndi. En hvað gerist svo
þegar aftur er farið aö andmæla
Nato-flota fyrir fáum dögum
meðal annars einni freigátunni,
sem grimmust var i landhelgis-
striðinu? Þá var ekki verið að
loka fyrir neinar lifsbjargarleiðir
dátanna, þvi að grófasta fram-
koman var einmitt sú að færa
þeim þjóðlega björg i bú, þar sem
voru þorskhausar. Þá eru ungar
stúlkur lamdar og kramdar til
blóðs, og er það þó almenn réttar-
farsregla, að léttar sé tekið á yfir-
sjónum ef þær eru gerðar fyrir
æsku sakir. Nú efast ég ekki um,
að meðal lögreglumanna séu
margir sæmdar- og rósemdar-
menn. En þrátt fyrir það geta
þeir verið með snert af þvi her-
námi hugarfarsins, sem hrjáir
sérstaklega höfuðstöðvar lögregl-
unnar i Reykjavik, og þess vegna
geta góðir drengir misst alla
dómgreind á þaö, hvað er viðeig-
andi og mannsæmandi.
Meinbugir á leikreglum
Eigum við að lita á enn eitt
dæmi um valinkunn ljúfmenni og
undarleg viðbrögð þeirra? Þegar
embættismenn útvarpsins voru
að velta þvi fyrir sér, hvort birta
mætti auglýsingar um fund her-
stöðvaandstæöinga á Keflavikur-
flugvelli, þá visuðu þeir málinu
ekki til næstu yfirmanna sinna,
svo sem útvarpsráðs. Nei þeir
fundu vist einhverja meinbugi á
að hlita þeim leikreglum að þessu
sinni. I staðinn slógu þeir á þráð-
inn til lögreglustjórans suður á
Miðnesheiöi og létu hann skera úr
þvi hvernig skyldi túlka innan-
hússreglur útvarpsins um aug-
lýsingar. Þetta er þvi miður dæmi
um hvernig menn missa alla heil-
brigða dómgreind, ef þeir eru
haldnir af hernámi hugarfarsins.
Björgunarmál og
lágkúra
Eitt lágkúrulegasta dæmið um
skipulagthernámhugarfarsinser
það, að menn hafa látið það undir
höfuðleggjastaðtslendingar réðu
yfir loftfari til þess að koma slös-
uöu fólki sem skjótast i læknis-
hendur. Jafnvel heitustu her-
námsandstæðingar hafa oröiö að
sæta þvi að vera bjargað af her-
þyrlum Kanans, með tilheyrandi
myndatökum og lofgerðarrollum
um elsku varnarliðiö og lifsnauð-
synlega starfsemi þess. (Hér má
benda á Morgunblaðið daginn
eftir að þessi ræða var flutt). En
þess skal getið sem gert er. Nú
mun ákveöið aö binda loks enda á
þessa smán, svo þess vegna get-
um við hernámsandstæðingar létt
af okkur þeirri kvölinni ef við
slösum okkur. Þátt i þessu mun
eiga Steingrimur Hermannsson
dómsmálaráðherra, og fyrir það
ætti hann skilið klapp, og um leið
getum við hitað okkur á regnköld-
um höndum. Samtimis mætti
stinga þvi að honum að leggja
undirmönnum sinum i lögregl-
, unni holl ráð um mannsæmandi
framkomu við sanna Islendinga
til jafns við aðra landsmenn.
Herseta á tslkndi er nú nærri 40
ára. Meirihluti þjóðarinnar hefur
aldrei lifaö í herstöðvalausu
landi. Stundum hefur veriö gerð
hörð hrið að þessari meinsemd,
og legið nærri að setuliðinu yrði
stuggaö á brott. Þvi nefni ég
þetta, að hernámssinnar eiga það
heppni að þakka að hafa alltaf
sloppið fyrir horn I þessari viöur-
eign. Þaö væri sannarlega
undarlegt, ef lánið ætti ekki eftir
að snúast okkur i hag I þessum
viðskiptum. Hitt er ljóst, að við
verðum að vera þvi viðbúin, að
það geti dregist, að við sigrum.
Þann tima, sem þannig gefst þarf
að nota vel til þess að leggja á
ráöin um aðferðir og markmiö.
Það þarf að athuga vel, hvort
hugsanlegt er, að þingræðislegur
meirihluti geti komið þvi i kring á
einu kjörtimabili að koma hern-
um úr landi, eða hvort stefna beri
fremur að þvi að þjóðaratkvæða-
greiðsla skeri úr um örlög hers-
ins. Slik atkvæðagreiðsla hefur
alltaf verið eitur i beinum her-
námssinna, frá þvi að fyrsti for-
seti lýðveldisins lagði á ráð um
það á leynifundi, aðkomiðskyldi i
veg fyrir, að þjóðin fengi þannig
að segja álit sitt á þessu máli.
En hvað sem þessu liður er það
frumskilyrði, að hernámsand-
stæðingar nái sem sterkastri
samstööu og treysti fjöldafyigi
sitt. Þeir eru i öllum stjórnmála-
flokkum þvi megium við ekki
gleyma, og það er grundvallarat-
riði, að við gerum ekkert, sem
getur orðið til þess að hrinda fólki
frá okkur af stjórnmálaástæðum,
og það verður að ætlast til að fólk
geri sér ekki leik að slikum að-
ferðum. Hitt þurfum við samt
sem áöur að muna, að við erum
misjöfn aö skaplyndi. Þeir sem
rólegrieruað eðlisfari.hafalitinn
rétt til að hneykslast á hinum,
sem hefur hitnaö meira i geöi af
þeirri smán og svivirðingu, sem
hemámið hefur leitt yfir okkur.
Og þið sem ákafari eruð, verið
svo elskuleg að láta ekki koma
ykkur úr jafnvægi þær starfsað-
feröir, sem okkur rosknari mönn-
um eru tamari.
Að lokum vil ég taka fram, aö
ég er ekki hjátrúarfullur og hef
ekki mikið traust á töframætti
hrosshausa. En þægileg tilviljun
er það, aö nú nokkrum dögum
eftir að niðstöng er reist gegn
Nato og henni siðan stolið
(kannski er það einmitt af þvi að
henni var stolið), þá hefur það
gerst, að Nato-vigdreki vaggar
sér vélarvana og bilaður i land-
synningnum viö togarabryggjuna
i Reykjavik. Megi fleiri sllk hag-
stæð atvik gerast, og leiða að lok-
um til þess með markvissri og
fórnfúsri baráttu, að af landi okk-
ar verði létt öllu hernámi, her-
námi heiða og fjarða og hugar-
fars. Fram til sigursællar bar-
áttu! Lifið heil!
ÚTBOЮ
Tilboð óskast I að byggja dagheimili-leikskóla við Hálsa-
sel.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3
Reykjavik, gegn kr. 20 þús. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað þriöjudaginn 23. okt.
n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 25800