Þjóðviljinn - 23.12.1980, Page 2
2 ■ SÍÐA'— Jólablaö Þjóöviljans
MEIRA VERK
EN MARGUR
HELDUR
Rætt við Baldvin Björnsson
leikmyndagerðarmann
hjá Sjónvarpinu
Mér finnst oft eins og
það vilji gleymast í um-
fjöllun manna um leikrit
eða sjónvarpsdagskrá að
til er nokkuð sem heitir
leikmynd og þetta er
þeim mun furðulegra
þar sem leikmyndin er
hálft leikritið eða
skemmtiþátturinn i sjón-
varpinu/ alla vega hvað
augað snertir.
Það var Baldvin Björnsson,
leikmyndagerðarmaður hjá
sjónvarpinu, sem sagði þetta
þegar við ræddum saman á dög-
unum um leikmyndir og þátt
leikmyndagerðarmannsins i
tam. gerð skemmtidagskrár hjá
sjónvarpinu, sem er það svið
leikmyndar sem Baldvin þekkir
best. Leikmyndin i sjónvarps-
þætti Hauks Morthens á dögun-
um vakti óskipta athygli, og
slikt er fátitt, en það var einmitt
Baldvin sem gerði þessa leik-
mynd.
Að móta leikmynd
Hvernig verður leikmynd i
sjónvarpinu til Baldvin?
begar dagskrárgerðarmaður
hefurfengið verkefni, skemmti-
þátt eða leikrit, svo dæmi séu
nefnd, þá er haldinn fundur dag-
skrárgerðarmanns og leik-
myndagerðarmanns. Stundum
er til handrit, sem segir til
hvernig leikmyndin á að vera
svona i grófum dráttum til að
mynda þegar um leikrit er að
ræða. Stundum er bara um
punkta að ræöa og stundum
verður hugmyndin til á þessum
fyrsta fundi. Oftast er það samt
þannig, að leikmyndagerðar-
maðurinn fær frjálsar hendur
um gerð leikmyndarinnar.
Og næsta skref?
Ja, maður reynir að gera sér
hugmynd um hvernig leik-
myndin eigi að vera og maður
rissar þessar hugmyndir sinar
niður á blað. Þvi miður er það of
oft svo, að litill timi gefst til
heilabrota um málið og maður
verður að reyna sem allra fyrst
að koma sér niöur á hvað hægt
er að gera á þeim tímá sem
gefst, bæði með búninga og
sviðsmynd. Eftir að maður hef-
ur komið sér niður á ákveðna
hugmynd teiknar maður mynd-
ina upp og stundum er gert likan
eða figúrur af leikmyndinni.
Siðan ber maður hugmyndina
undir smiðina sem smiða eiga
leikmyndina og þegar þeir hafa
samþykkt hana er haldinn fund-
ur meö tæknimönnum og öðr-
um, sem munu vinna að gerð
þáttarins. Þar er málið enn rætt
og oftast gengið endanlega frá
þvi. Siðan er hugsanlegt að ein-
hverjar smálagfæringareigi sér
staö þegar stillt er upp i stúdiói.
Svona 2 til 5 dagar
Sennilega er ekki hægtað nota
meðaltalsregluna, Baldvin,
þegar talað er um leikmynda-
gerð.en hvað tekur langan tima
að gera venjulega leikmynd fyr-
ir sjónvarpsþátt?
Þessu er nú dálitiö erfitt að
svara, en ætli það taki ekki
svona 2—5 daga, það fer eftir
svo mörgu hve langan tima
þetta tekur.
Er leikmynd dýrasti póstur-
inn i gerð þátta?
Ég hygg að svo sé, ef undan er
skilin leiga á stúdiói og svo ef
um leikrit er að ræða hygg ég
að laun leikara séu hærri upp-
hæð en leikmyndin. En að ööru
jöfnu mun leikmyndin vera dýr-
asti pósturinn.
Hvernig er búið aö leik-
myndageröarmönnum hjá sjón-
varpinu ?
Aöbúnaðurinn er ekki slæmur
og trésmiöaverkstæði er einnig
sæmilegt, nema að þvi leyti að
þegar upptökur i stúdiói standa
yfir verður að slökkva á öllum
trésmiðavélum. Upptökusalur-
innogverkstæðið liggja samsiða
i húsinu og þar heyrist á milli.|
betta er auðvitaö óskaplegur
galli og tefur smiðina mikið. En
stóra vandamálið okkar hjá
sjónvarpinu, er skortur á
geymsluplássi. Sannleikurinn
er sá að við getum ekki geymt
nokkurn skapaðan hlut ef svo
má segja. Hugsum okkur til að
mynda Þjóðlifsþættina i fyrra-
vetur. 1 þeim var alltaf sama
leikmyndin og það var heljar
mikið vandamál að geyma leik-
myndina milli þátta.
Sem þýðir þá, að öllum leik-
myndum er fleygt eftir að þátt-
ur hefur verið tekinn upp?
Já, nema i undantekningu
eins og Þjóölifsþáttunum.
Skemmtilegt starf
Af þvi að við vorum aö tala
um að leikmyndagerð væri
nokkuð dýr; er tilhneiging til að
spara við hana i sjónvarpinu?
Nei, alls ekki. Ég man ekki til
aö okkur hafi verið fyrirskip-
að það. Hitt er annað mál að
maður reynir að fara eins vel
með og mögulegt er.
Nú ert þú teiknari Baldvin, en
ekki lærður leikmyndagerðar-
maður; er ekki nauðsynlegt fyr-
ir ykkur sem vinnið við þetta að
komast til útlanda að fylgjast
með þvi sem starfsbræður ykk-
ar þar eru að gera, komast á
námskeið o.s.frv.?
Vissulega er það nauðsynlegt,
sérstaklega þar sem framfarir
á þessu sviði eru miklar, bæöi
Módel eru oft gerð að leikmynd-
inni og hér er Baldvin Björnsson
að huga að undirbúningi eins
sliks.
hvað gerð leikmynda varðar og
ekki sist i efnum til leikmynda-
gerðar. bvi miður er endur-
menntun hjá okkur mjög litil,
nánast engin. Það vantar þó
ekki að okkur bjóðist námskeiö
og að skoða hjá erlendum sjón-
varpsstöðvum, það er bara ekki
hægt að leyfa okkur að taka þátt
i þessu. Við erum aðeins 3 sem
vinnum að leikmyndagerð hjá
sjónvarpinu.
Er leikmyndagerð skemmti-
legt starf?
Ef manni þykir gaman að
skapa eitthvað, þá er hún
skemmtilegt starf; mér þykir
gaman að vinna að þessu.
Fyrst til að byrja með þótti mér
það einkennilegast við þetta
starf að vera kannski búinn að
vinna i 2 til 3 vikur við gerð eins
þáttar, sem er svo bara 30 til 40
minútur i útsendingu. Mér þótti
þetta litill afrakstur langrar
vinnu og maður fylltist ein-
hverjum tómleik. Þetta er ekki
ósvipuð tilfinning og um ára-
mót. Arið er liðið og kemur ekki
aftur. Og svo er maður oftast að
horfa á einhver smáatriði i út-
sendingunni, sem aðrir taka
vart eftir. Auðvitað er maður
aldrei ánægður, en þó er það svo
að ef allt hefur gengiö vel fyllist
maður einhverri sigurgleði, þó
svo að maður sjái að eitthvað
hefði mátt fara betur.
Vanþekking eða...
Þú haföir orð á þvi i upphafi
að menn tækju litið eftir leik-
myndum eða i það minnsta væri
þeirra litið getið i umfjöllun um
leikrit, eða skemmtiþætti; hvers
vegna heldur þú að þetta sé
svona?
Mér þykir liklegast að þetta
stafi af vanþekkingu á hvað
leikmynd er i raun og veru.
Sjáðu til, það voru margir sem
héldu að Þjóölifsþættir Sigrúnar
Stefánsdóttur væru teknir
heima hjá henni sjálfri og töluðu
um að hún ætti þarna bráð-
fallega stofu. Ég veit heldur
ekki hvort fólk gerir sér fulla
grein fyrir hve mikið verk leik-
mynd er i kvikmynd eins og til
að mynda Snorra Sturlusyni,
sem við unnum aö hjá sjónvarp-
imTí sumar er leið. Við byggð-
um bæi, konungsbústaði, Val-
höll á ÞingvöUum og fleirafýrir
utanalla aðra leikmuni. Við vor-
um bara tveir sem geröum
þessa leikmynd, ég og Snorri
Sveinn, og ég er alveg viss um
það, að ef almenningur hefði
verið viöstaddur upptökuna, þá
sæi fólk leikmynd og leik-
myndagerð 1 nýju ljósi. Hún er
meira verk e‘n margur heldur.
— S.dór.
Úr þættinum með Brimkló s.l. laugardag. Þessa leikmynd gerði Baldvin, eins konar vöruskemmu-
stemmning.