Þjóðviljinn - 23.12.1980, Page 12
í
Stundin nálgast,
verumviðbúin
nykrónunni í tima!
ENDURLESTU
BÆKLINGINN
Fyrir áramótin er ráðlegt að lesa aftur
bæklinginn sem sendur var út í haust. Ef eitthvað
er óljóst getur þú leitað upplýsinga í naesta banka
eða sparisjóði.
Vertu klár á gjaldmiðilsbreytingunni um
áramótin.
TÉKKAR:
Gkr. fyrír áramót-
Nýkr. eftir áramót
Það er áríðandi að tékkar útgefriir í des-
ember séu undantekningarlaust í gömlum
krónum. Eftir áramótin eiga allir tékkar að
vera í nýjum krónum.
Sknfaðu skýra dagsetningu, hafðu mán-
uðinn í bókstöfum til öryggis. Einnig getur
þú skrifað Gkr. fyrir framan fjárhæð á
áramót og Nýkr. fyrst eftir áramót.
ALLIRVÍXLAR
IGÖMLUM
KEDM3M,ÞÓIT
ÞEIR GREIÐIST
Á NÆSTA. ÁRI
Viðskiptamenn banka og sparisjóða eru
hvattir til sérstakrar varúðar við dagsetningu
og útgáfu tékka um sjálf áramótin.
Til að fyrirbyggja hugsanleg mistök og til að
létta störf gjáldkera er ráðlegt að leggja tékkhefdn
til hliðar á gamlársdag og nýársnótt.
AFGREIÐSLU-
POLKI
Losið ykkur
við qömlu myntina
fyriráramót
Það er mjög til hagræðis að mynt í spari-
baukum svo og mynt sem dagað hefur uppi hjá
fólkijberist bönlcum og sparisjóðum fyrir áramót.
NÝKRÓNAN RÍKIR
STRAX EFTIR ÁRAMÖT
Verðlag verður mælt í nýjum krónum frá
áramótum. Gamlar krónur (seðlar og mynt)
gilda þó áfram og má nota í viðskiptum að 1/100
skráðs verðs fram til júníloka 1981.
Þó að gamlar krónur (seðlar og mynt)
gildi til júníloka 1981, er best að
skipta strax eftir áramótin því að markmiðið er að
nýkrónan verði sem fyrst ráðandi gjaldmiðill.
innmts-
mfmitmr
og sparisjóðir sjá um um-
skráningu innlánsreikninga og verðbréfa í
þeirra vörslu úr gömlum krónum í nýjar.
Eigendur sparisjóðsbóka geta sem fyrr komið
hvenær sem er efúr áramótin til þess að sjá vaxta-
færslu og innistæðu þeirra í nýkrónum.
Reikningsyfirlit verða send í pósti eins og hingað til.
Þú þarft ekki að hlaupa til, bankmn sér um
breytinguna óbeðinn.
Biðltind og
hjálpsemi kostar
ekkíkrónu
Fólk er hvatt til þess að nota eingöngu
gamlar krónur í öllum viðskiptaskjölum út
þetta ár.
Víxlar sem samþykktir eru fyrir áramót en
eiga að greiðast á árinu 1981 skulu vera í gömlum
krónum og það tekið skýrt f'ram. Munið að það er
óráðlegt að samþykkja ódagsetta víxla.
Það mæðir mikið á verslunum í sambandi
við gjaldmiðilsbreytinguna. Sýnum því tillitssemi
og léttum afgreiðslufólkinu störfin með því að
stópta yfir í nýkrónur í banka eða sparisjóði
áður en farið er í verslun eftir áramótin, ef á
annað borð er greitt með peningum en ekki tékka.
Það munar okkur litlu en það miklu.
Meðan á gjaldmiðilsbreytingunni stendur
mæðir mikið á starfsfólki í bönkum, sparisjóðum
og verslunum. Því er áríðandi að allir sýni tillits-
semi og liðki til fyrir næsta manni. Afgreiðslufólk
jafnt sem viðskiptavinir þurfa að snúa btícum
saman, svo að breytingin gangi snurðulaust.
Það er öllum fynr bestu.
minni upphæðir-meira verðgildi