Þjóðviljinn - 09.04.1981, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fim,mtudagur 9. aprtl 1981
Ný happdrœttisskuldabréf
i gær hófst sala á happ-
drættisskuldabréfum ríkis-
sjdös sem gefin hafa verið út
til fjdröflunar vegna fram-
kvæmda við Norðurveg og
Austurveg. Samtals eru gefin
út i þessum flokki skuldabréf
að fjárhæð 5 milj. króna, en
hvert bréf er að fjárhæð 100
krónur. Vinningar nema 15%
af heildarútgáfunni og er
dregið um þá einu sinni, 1. júni
n.k..
Vinningar eru 933 talsins,
samanlagt að upphæð 750 þús.
kr., einn vinningur á 150 þús.
kr., tveir á 20 þús. kr., tiu á 10
þús. kr. og 920 á 500 kr.
Happdrættisskuldabréfin
verða endurgreidd handhafa
að 5 árum liðnum ásamt verð-
bótum i samræmi við þá
hækkun, sem kann að verða á
lánskjaravisitölu á lánstiman-
um. Þau eru undanþegin
framtalsskyldu og vinningar
svo og verðbætur eru skatt-
frjálsar. Seðlabanki Islands
sér um Utboð happdrættisláns-
ins fyrir hönd rikissjóðs, en
sölustaðir eru bankar, banka-
útibú og sparisjóðir, um land
allt.
A árunum 1972—1977 voru
gefnir Ut alls 10 flokkar happ-
drættisskuldabréfa vegna
vegagerðar, m.a. á Skeiðarár-
sandi, sem opnaði hringveg
um landið. Þau nutu mikilla
vinsælda hjá almenningi og
seldust flestir flokkarnir upp á
mjög skömmum tima. Skulda-
bréfin eru verðtryggð og
heildarfjárhæð sem gefin var
út nam 18.6 miljónum króna,
en þau eru nú að verðgildi
178,2 miljónir króna.
Æfa „Stalín er ekki hér”
Leikfélag Seyðisfjarðar æfir nú af kappi verk Vésteins Lúðviks-
sonar Stalin er ekki hér undir stjórn G. Margrétar óskarsdóttur.
Leikendur eru sex, en alls taka þátt I sýningunni um fjórtán
manns. Ráðgert er að frumsýna verkið um eða eftir páskana.
Formaður Leikfélags Seyðfirðinga er Emil Emilsson, sem þarna
sést á miðri mynd, en hinir leikararnir eru Ólafia Stefánsdóttir
og Hermann Guðmundsson.
Ein aukasýning á Ótemjunni
Verkefnaskrá Leikfélags
Reykjavlkur er orðin svo þétt
setin um þessar mundir, að
siðustu tvær vikur hefur verið
nær ógerlegt að koma að öll-
um þeim leikritum, sem félag-
ið sýnir i Iðnó, reviunni Skorn-
ir skammtar, Ofvitanum,
Rommi og Ótemjúnni, en öll
þessi leikrit hafa verið sýnd
fyrirfullu húsi að undanförnu.
A siðustu sýningu á gleðileik
Shakespeare ótemjunni, sl.
laugardag komust færri að en
vildu og hefur verið ákveðið að
hafa eina aukasýningu nú á
föstudagskvöld kí. 20.30.
Alls koma 15 leikarar fram i
sýningunni. Aðalhlutverkin
eru i höndum þeirra Lilju
Guðrúnar Þorvaldsdóttur og
Þorsteins Gunnarssonar.
Leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir og tónlistin eftir
Eggert Þorleifsson, sem flytur
hana á sýningum ásamt leik-
urum.
Fyrsta rokkplatan frá START
Rokkhljómsveitin START
hefur sent frá sér sina fyrstu
hljómplötu, tveggjalaga plötu
með „Seinna meir”, lagi og
texta Jóhanns Helgasonar, og
„Stína fina”, lagi eftir Jón
Ölafsson við texta Eiriks
Haukssonar.
Start hefur starfað um eins
árs skeið en hljómsveitina
skipa Pétur Kristjánsson, Ei-
rikur Hauksson, Sigurgeir
Sigmundsson, Jón ólafsson,
Nikulás Róbertsson og Davið
Karlsson. Hljómsveitin hefur
leikið mikið á dansleikjum og
hafa lögin á plötunni verið á
meðal þeirra vinsælustu á
dansprógramminu. Þetta eru
rokkarar en rokkið virðist
hvarvetna eiga ört vaxandi
fylgi að fagna þessa stundina.
L
Engar togveiðar
á Fœtinum
Að undanförnu hefur orðið
vart við verulegt magn af
smáþorski I afla togara á
svæði úti fyrir Austurlandi,
sem nefnt hefur verið Fótur-
inn. Hefur af þessum sökum
margoft oröið að gripa til
skyndilokunar og hefur
sjávarútvegsráðuneytið nú, að
tillögu Hafrannsóknarstofn-
unar, gefið út reglugerð, sem
bannar um óákveðinn tima
allar veiðar i botn- og flot-
yörpu á Fætinum.
J
Frœðsluráð Reykjavíkur:
Innritun í grunn-
skólana hefst í dag
Innritun skólaskyldra barna og
unglinga fer fram I Fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur, Tjarnargötu
12 (s: 28544), i dag og á föstudag.
Þetta gildir jafnt um nemendur,
sem þurfa að flytjast milli skóla
af ýmsum orsökum, og þá sem
eru að setjast á skólabekk i fyrsta
sinn. Innritun forskólabarna fer
þó eigi fram fyrr en 27. og 28.
april og þá I viðkomandi skólum.
Þetta er nýjung, sem Fræðslu-
ráð Reykjavikur gengst fyrir, en
sem kunnugt er hefur innritun
nemenda farið fram i skólunum
sjálfum hingað til. Er þetta liður I
betri nýtingu skólarýmis og sam-
ræmingu grunnskólahalds i borg-
inni.
Einnig hyggst Fræðsluráð
Reykjavikur koma á þeirri ný-
breytni, frá og með næsta skóla-
ári, að grunnskólanemendum
gefist kostur á að velja milli skóla
innan viðkomandi skólahverfis,
en Reykjavik er skipt I eftirfar-
andi átta skólahverfi: I. Vestur-
bær; Hagaskóli, Melaskóli, Vest-
urbæjarskóli. II. Austurbær;
Austurbæ jarskóli, Hliðaskóli,
Æfingarskóli K.H.I.. III. Norð-
austurbær; Langholtsskóli,
Laugalækjarskóli, Laugarnesskóli
Vogaskóli. IV. Suðausturbær;
Alftamýrarskóli, Breiðagerðis-
skdli, Fossvogsskóli, Hvassa-
leitisskóli, Réttarholtsskóli. V.
Arbæjarhverfi; Arbæjarskóli. VI.
Breiðholt I; Breiðholtsskóli. VII.
Tækni-
búnaður hf.
er rétta
nafnið
Meinlegt nafnabrengl varð i
fréttum Þjóðviljans I gær um
framleiðslu á oliueyðslumælum.
Var fyrirtækið sem i hlut á nefnt
Tölvubúnaður h.f. á forsiðu en
TæknibUnaður h.f. á baksiðu, og
er þaðhið rétta nafn. Og fyrst far-
ið er að skrifa leiðréttingu er rétt
að fram komi að tölur þær sem
koma fram i viðtali við formann
atvinnumálanefndar um styrk-
veitingu til Tæknibúnaðar h.f. á
baksiðu orka tvimælis. Atvinnu-
málanefnd hefur ekki tekið
ákvörðun um fjárhæðir i þessu
sambandi heldur er hér vitnað i
minnisblað, sem lagt var fyrir
borgarráð þegar samþykkt at-
vinnumálanefndar um styrkinn
var kynnt. Sem sagt: Tækni-
búnaður h.f. fær styrk en upphæð
hans hefur ekki verið ákveðin.
Eru viðkomandi beðnir velvirð-
ingar á þessum villum.
—AI
íbúðasamtök í Árbæ
og Selási:
Mótmæla
iðnaðarlóðum
á Bæjar-
hálsinum
Igærvarlagtfram i borgarráði
bréf frá ibúasamtökum Seláss- og
Arbæjarhverfis þar sem mótmælt
er iðnaðarlóðum á svæðinu milli
Bæjarháls og Hraunbæjarlóð-
anna, en þar gerir nýja aðal-
skipulagstillagan ráð fyrir at-
vinnuhúsnæði á tveimur stöðum.
Segir i samþykkt félaganna að
þetta svæði eigi að vera fyrir ibúa
hverfisins eina en uppi haf a verið
hugmyndir bæði um útivistar-
svæði svo og bilskúra á þessu
svæði.
Breiðholt II; Seljaskóli, öldusels-
skóli. VIII. Breiðholt III; Fella-
skóli, Hólabrekkuskóli.
Þegar foreldri eða forráðamað-
ur barns innritar það i skóla, skal
merkt við hverfisskólana séu þeir
fleiri en einn I forgangsröð, eftir
þvi hvaða skóla er helst óskað eft-
ir að barnið sæki. Fræðsluskrif-
stofan mun svo verða við þeim
óskum að svo miklu leyti sem
fjöldi I bekksögnum viðtökuskól-
ans leyfir. Mjög áriðandi er,
vegna nauðsynlegrar undirbún-
ingsvinnu, að innritun fari fram
áðurnefnda daga, þvi að annars
er hætt við að nemandi fái ekki
inni i þeim skóla sem óskað er eft-
ir.
Að auki má geta þess, að
kennslukostnaður sá, er rikið
borgar, er miðaður við að meðal-
tal nemenda i bekksögn sé ekki
undirtuttugu og f jórum. Ef svo er
ekki — og aukakostnaður hlýst af
— greiðir borgin mismuninn.
Jón frá Pálmholti i hlutverki prests.
Kvikmyndin Sóley
frumsýnd í sumar
Lokið er töku kvikmyndarinnar
Sóley, og um þessar mundir er
unnið aö klippingu og lokafrá-
gangi myndarinnar. Lesendur
Þjóðviljans muna e.t.v. eftir
handrit i Rósku að þessari mynd,
en það var birt I Sunnudagsblað-
inu á sinum tima.
Vinna við gerð myndarinnar
hdfsthaustið 1979, en siðustu sen-
urnar voru teknar um siðustu
áramót. Myndin er eins konar
dæmisaga um ástina og frelsið,
þar sem táknmálið er tekið úr is-
lenskri þjóðtrú og þjóðsögum.
Sögusvið myndarinnar er tsland
á siðari hluta 18. aldar. t mynd-
inni koma fram á milli 70 og 80
manns. Myndin er tekin á
Rangárvöllum, undir Heklu,
undirEyjafjöllum, i Landmanna-
laugum og viðar á Suðurlandi og
við Mývatn og i Laxárdal i S.-
Þingeyjarsýslu og i nágrenni
Reykjavikur. Leikstjórn myndar-
innar önnuðust þau Róska og
Manrico Pavolettoni. Aðalleik-
arar i myndinni eru þau Rúnar
Guðbrandsson og Tine Hagedorn
Olsen. Kvikmyndatöku önnuðust
þeir Charles Rose og Mario
Gianni, en klippari er Guð-
Tine Hagedorn Olsen frá Dan-
mörku leikur huldukonuna
Sóleyju. Hér riður hún hvítum
fáki.
mundur Bjartmarsson. Þess er
vænst að myndin verði tilbúin til
sýningar i islenskum kvikmynda-
húsum i júlimánuði nk.
APEX gjöldin
gildi frá 1. maí
Svokölluð APEX fargjöld, sem
eru talsvert lægri en venjuleg,
ganga igildi hjá Flugleiðum á ný
1. mai n.k. Þau voru I gildi I des.
s.l. sem jólafargjöld milli Islands
og Skandinaviu og reyndust vin-
sæl þannig að ákveðið var að taka
þau upp aftur.
Farþegar á APEX eru háðir
reglum um kaup á farmiðum og
brottfarar- og komudaga. Þannig
verður að kaupa far báðar leiðir,
gera farbókun og greiða farseðil
að fullu samtimis og ekki siðar en
14dögum fyrir brottför. Bókuðum
ferðadögum er ekki hægt að
breyta, farmiðinn gildir lengst i
þrjá mánuði og dvöl erlendis má
ekki vera skemmri en 7 dagar. Sé
hætt við ferð eftir að miði er
keyptur er um takmarkaða eða
enga endurgreiðslu að ræða. *
Sem dæmi um verð miðaö við
gengisskráningu nú má nefna, að
ferð fram og aítur til Kaup-
mannahafnar kostar kr. 2.539, til
Osló kr. 2.316, Stokkhólms kr.
2.896, Glasgow kr. 1.892, London
kr. 2.189, New York kr. 3.830 og til
Chicago kr. 4.096. Eingöngu er
ferðast i dagflugi.
—vh