Þjóðviljinn - 05.05.1981, Side 13
Þriöjudagur 5. mal 1981
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Undirbúningur borgarstjórnarkosninga 1982
Fulltrúaráð Alþýðubandalagsins i Reykjavik
Fulltrúaráð ABR er boðað til fundar miðvikudaginn
6. mai kl. 20:30 i fundarsal Sóknar að Freyjugötu 27.
Dagskrá:
1) Undirbúningur Alþýðubandalagsins i Reykjavik
fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982.
Fundur Verkalýðsmálaráðs AB Alþýðubandalags-
ins
Fundi Verkalýðsráðs Alþýðubandalagsins sem auglýstur var 10. mai
verður frestað þar til 16. og 17. mai. Nánar auglýst i blaðinu á morgun.
Aðalfundur VI. deildar ABR (Árbær)
Aðalfundur VI. deildar Alþýðubandalagsins i Reykjavik veröur haldinn
fimjntud.aginn 7. mai kl. 20:30 að Grettisgötu 3.
Dagskrá: Auglýst siðar.
Félagar fjölmennið Stjórnin
Kapprœðufundir
milli Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins og Sambands ungra
Sjálfstæðismanna.
Umræðuefni: Hvert stefnir á Islandi? Hverju þarf að breyta?
Ilafnarfirði i kvöld klukkan 20.30 IGafi-inum við Reykjanesbraut
Ræðumenn ÆnAb: Skúli Thoroddsen, Ragnar Arnason og Sig-
urður G. Tómasson.
RæðumennSuS: Gústaf Nielsson, Björn Hermannsson
Fundarstjórar: Ólafur Ólafsson og Sigurður Þorleifsson
Siguröur Ragnar Skúli
M
Starfsmaður óskast
nú þegar á skrifstofu bæjarstjórans i
Kópavogi, til starfa hálfan daginn.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til 8. mai. Umsókn-
areyðublöð fást á bæjarskrifstofunni.
Bæjarritari
Kvenstúdentar —
Kvenstúdentar
Við höldum árshátið fimmtudaginn 7.
mai kl. 19.30 i Lækjarhvammi. 25 ára stú-
diur sjá um skemmtiatriðin að vanda.
Girnilegur kvöldverður — glæsilegt
happdrætti. Aðgöngumiðar verða aðeins
seldir i gestamóttöku Hótel Sögu mið-
vikudaginn6. mai kl. 16—19. Verð kr. 150,
hver miði gildir sem happdrættismiði.
Takið bekkjarsysturnar með!
Stjórnin.
Þroskaþjálfar
Aðalfundur Félags þroskaþjálfa verður
haldinn miðvikudaginn 6. mai kl. 8,30 að
Grettisgötu 89. Mætum öll.
Stjórnin
erlendar
bækur
James l of England.
Caroline Bingham. Weidenfeld
and Nicolson 1981.
Jakob VII Skotakonungur 1566
til 1603 og konungur Skotlands og
Englands frá 1603-1625 hefur
fengið misjöfn eftirmæli; mat
hvers tíma mismunandi. Hann
átti heldur dapurlega æsku,
móðir hans i fangelsi og faðir
hans myrtur. Höfundurinn,
Caroline Bingham hefur skrifað
talsvert um Stuartana og er
þetta siðasta bók hennar. Hún
endurmetur Jakob samkvæmt
eigin heimildarannsóknum og
annarra og niöurstaðan verður sú
að konungur hafi átt mikinn þátt i
að milda hinar fornu andstæður
milli Skota og Englendinga og i
þvi að efla verslunaráhrif Eng-
lendinga og treysta lög og reglu
innanlands.
HUn fjallar um einkalif
konungs, samband hans við eigin-
konuna önnu, dóttur Kristjáns IV
Danakonungs og við vini sina, en
konungur var haldinn kynvillu og
átti oft i stappi við fyrrverandi
elskhuga sina. Kynvilla og sára-
sótt mótuðu á ýmsan hátt stjórn-
mál 17. aldar og ýmsar einkenni-
legar ákvarðanir stjórnvalda
mátti rekja til þessa. Bingham
dregur upp mynd aldarfarsins,
trúarbragðadeilur; mútuþægni,
hlægileg fordild og skelfingin við
myrk öfl, sem kom m.a. fram i
ótta konungs við galdur, en hann
skrifaði ritum nornir og samband
þeirra við djöfulinn, sem varð
frægt á sinni tið. Höfundurinn
fjallar talsvert um hagsögu
Englands á þessu tlmabili, en það
var einmitt á stjórnarárum
Jakobs I. sem áhrif og völd Eng-
lendinga efldust mjög i
nýlendunum og gróöi þeirra
margfaldaðist eftir að grund-
völlurinn var lagður að þræla-
versluninni og hún hafin I stórum
stil. Visinn aö hinum mikla
þjóðarauð Englendinga má hik-
laust rekja til þrælasölunnar fyrr
á öldum, og landsstjórnarmenn á
Englandi áttu sinn þátt i að
tryggja þá ábatasömu verslun á
siðari hluta 16. og á 17. öld; meðal
þeirra var Jakob I.
Aesthetics and Politics.
Ernst Bloch — Georg Lukács —
Bertolt Brecht — Waltcr Benja-
min — Theodor Adorno. After-
word by Fredrich Jameson. Ncw
Left Books 1978.
Umræður um fagurfræði, incl.
bókmenntaumræður og lista,
hafa óviða verið frjósamari en á
Þýskalandi bæði fyrr og siðar,
auðvitað að undanskildu þvi tima-
biíi, þegar pöpullinn náði völdum
ilandinuá fjórða áratug þessarar
aldar. Allt frá dögum
Winckelmanns hafa umræður og
deilur staðið um fagurfræði með
þeim, sem lifað hafa I heimum
andans, manna sem hafa lifað i
evrópskum menningararfi og
aukiö við hann hver með sinum
hætti.
I þessari bók er safnað saman
greinum um þessi efni, þar sem
nokkrir þeirra sem aðhylltust
maxistiska heimspeki að miklu
eða nokkru leyti, fjalía um f agur-
fræði i viðari merkingu orosins og
tengsl lista og bókmennta við
pólitiska meðvitund á hverjum
tima, og þá einkum þeirra tima
sem þeir lifðu.
Skoðanir þeirra voru mjög
skiptar um þessi efni. Block og
Lukács deildu um inntak og eöli
expressionsmans. Brecht taldi
Lukács vera haldinn formalisma
i bókmenntamati sinu og Walter
Benjamin var mjög fjarri kenn-
ingum Brechts um klassiska list,
hvaö þá núti'ma list. Adorno haföi
nokkra sérstöðu, hann átaldi
mjög kenningar Brechts um
skáldskap, taldi margt i kenning-
um Walters Benjamins um listir
vera svo langt sótt að vart væri
skiljanlegt aö Lukács nálgaðist
að vera tviátta i útlistunum sin-
um á listum og marxisma, þó að
hann (Adorno) væri sjálfur e.t.v.
fjarlægastur marxisma.
[GNBOGI
Frumsýnir:
SATURN 3
Afar spennandi og dularfull kvikmynd um voveiflega at-
burði langt úti i geimnum, á Titan, þriðja tungli Satúrn-
usar.
KIRK DOUGLASog FARRAH FAWCETT.
Leikstjóri: STANLEY DONEN.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Dvöl í
orlofshúsum
Iðju
Iðjufélagar, sem óska eftir að dvelja i or-
lofshúsum félagsins i Svignaskarði, sum-
arið 1981, verða að hafa sótt um hús eigi
síðar en föstudaginn 15. mai n.k. kl. 16.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu félagsins Skólavörðustig 16.
Dregið verður úr umsóknum, sem borist
hafa, á skrifstofu félagsins 16. mai n.k. kl.
17.00 og hafa umsækjendur rétt á að vera
viðstaddir.
Þeir félagar, sem dvalið hafa i húsunum
á 3 undanförnum árum, koma aðeins til
greina ef ekki er fullbókað.
Leigugjald verður kr. 400.00 á viku.
Sjukrasjóður Iðju
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt orlofshús til
ráðstöfunar handa Iðjufélögum, sem eru
frá vinnu vegna veikinda eða fötlunar og
verður það endurgjaldslaust, gegn fram-
visun læknisvottorðs.
Stjórn Iðju.
ÚTBOÐ
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar
óskar eftir tilboðum i lagningu 7. áfanga
aðveituæðar.
7. áfangi er um 4 km langur og liggur
beggja megin vegamóta Norðurlands-
vegar og Akranesvegar.
Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldum
stöðum gegn 500 kr. skilatryggingu:
í Reykjavik á verkfræðistofunni Fjarhit-
un h.f. Álftamýri 9.
Á Akranesi á Verkfræði- og teiknistofunni
s.f. Heiðarbraut 40.
í Borgarnesi á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen Berugötu 12.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Akraness og Borgarfjarðar Heiðar-
braut 40 Akranesi, þriðjudaginn 19. mai
kl. 11.30.